Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Síða 30
42
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994
Afmæli
Þórhalla Oddsdóttir
Þórhalla Oddsdóttir frá Kvígindis-
felli í Tálknafirði, nú að Hafnistu
við Kleppsveg í Reykjavík, varð níu-
tíu og fimm ára í gær.
Starfsferill
Þórhalla fæddist á Kleifarstöðum
í Gufudalssveit en flutti á fimmta
ári með fjöldskyldu sinni í Stóra-
Laugardal í Tálknafirði. Hún fór
ellefu ára til Patreksfjaröar þar sem
hún vann m.a. við barnagæslu og
við að vaska fisk í eitt og hálft ár.
Fjölskylda hennar flutti síðan að
Sæbóli en auk þess að vera í for-
eldrahúsum var hún í kaupavinnu
á sumrin á unglingsárunum.
Eftir að Þórhalla gifti sig var hún
húsfreyja á Kvígindisfelli. Þar var
stundaöur sjálfsþurftarbúskapur
þar til þjóðhættir breyttust.
Þórhalla hefur alla tið verið mikil
hannyrðakona, er vel em og fæst
enn þá við útsaum og hekl. Hún á
nú hundrað fimmtíu og átta afkom-
endur. Fyrir fimm árum heiðruðu
kvennalistakonur Þórhöllu fyrir
mikilfenglegt ævistarf.
Fjölskylda
Þórhalla giftist 18.12.1915 Guð-
mundi Kristjáni Guðmundssyni, f.
6.5.1890, d. 6.2.1969, b. á Kvígindis-
felli. Foreldrar hans voru Guö-
mundur Jóhannes Guðmundsson,
b. á Stóra-Laugardal, og kona hans,
Svanborg Einarsdóttir húsfreyja.
Börn Þórhöllu og Guðmundar
urðu sautján: Óskar, f. 24.6.1917,
fyrrv. stýrimaður í Reykjavík,
kvæntur Margréti Hallgrímsdóttur
og eiga þau þrjú böm; Svava, f. 1.7.
1918, húsmóðir á Hellu, gift Þor-
steini Oddssyni og eiga þau fimm
böm; Hörður, f. 12.12.1919, d. 31.10.
1988, bílstjóri í Reykjavík, eignaðist
fjögur börn, var kvæntur Guðrúnu
Klemensdóttur; Haukur, f. 10.10.
1920, stýrimaður í Reykjavík, var
kvæntur Halldóru Ólafsdóttur sem
lést 1988; Svanborg, f. 25.12.1921,
húsmóðir á Bíldudal, ekkja eftir
Þórð Jónsson útgerðarmann og em
börn þeirra sex; Reynir, f. 23.4.1923,
símamaður í Reykjavík, kvæntur
Svövu Kjartansdóttur og eiga þau
þrjú börn: Unnur, f. 7.7.1924, hús-
móðir í Reykjavík, gift Sveini Jónas-
syni; Karl, f. 2.9.1925, starfsmaður
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík,
kvæntur Sigríði Þ. Sigurðardóttur
og eiga þau þrjú börn: Þuriður, f.
21.2.1929, húsmóðir í Reykjavík,
ekkja eftir Stefán Guðmundsson og
eru börn þeirra Qögur; Magnús, f.
23.5.1931, b. á Kvígindisfelli, kvænt-
ur Halldóru Bjamadóttur og eiga
þau fjögur börn; Guðmundur Jó-
hannes, f. 8.10.1933, sjómaður í
Garðabæ, var kvæntur Borghildi
Garðarsdóttur og eru börn þeirra
fimm; Oddur, f. 6.11.1935, leigubíl-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Eyvöru
Friðriksdóttur og eiga þau þrjú
börn; Guðbjartur, f. 1.12.1937, bún-
aðarráðunautur á Blönduósi,
kvæntur Margréti Ásmundsdóttur
og eiga þau þijú böm: Fjóla, f. 29.10.
1938, húsfreyja að Laugarbrekku í
Svarfaðardal, gift Birni G. Daníels-
syni og eiga þau þijú börn; Víðir, f.
29.10.1938, verktaki í Reykjavík,
kvæntur Guðnýju Guðmundsdóttur
og eiga þau þijú böm; Helgi, f. 21.2.
1941, húsasmíðameistari í Hafnar-
firði, kvæntur Stefaníu S. Víglunds-
dóttur og eiga þau sex böm; Rafn,
f. 16.7.1943, skrifstofumaður í
Reykjavík, kvæntúr Kristborgu G.
Aðalsteinsdóttur og eiga þau tvö
börn.
Systkini Þórhöllu em öll látin
nema Haraldur. Systkini hennar:
Sigríður, f. 3.5.1897, d. 16.11.1983,
húsmóðir á Patreksfirði og síðar í
Reykjavík; Magnús, f. 4.10.1901, d.
Þórhalla Oddsdóttir.
11.12.1982, húsasmíðameistari í
Reykjavík; Lilja, f. 15.10.1903, hús-
freyja á Akureyri og síðar í Reykja-
vík; Vilhelmína, f. 17.9.1908, dó ung;
Haraldur, f. 29.7.1912, málarameist-
ari á Akureyri; Tryggvi, f. 29.7.1912,
d. 29.6.1981, sjómaður í Reykjavík.
Foreldrar Þórhöllu voru Oddur
Magnússon, b. á Kleifarstöðum, og
kona hans, Þuríður Guömundsdótt-
ir.
afmælið 13. júlí
85 ára
Jón Jónasson,
Freyjugötu 44, Sauðárkróki.
80 ára
Guðjón Jóhannesson,
Nökkvavogi 2, Reykjavík.
Rannveig Ásgeirsdóttir,
Laugavegi 70B, Reykjavík.
75 ára
HalIgrímurH. Egilsson,
Reykjamörk 11, Hveragerði.
Ilansína Sigurbjörg
Hjartardóttir,
Strandgötu 7, Hvammstanga.
Elín Sæmundsdóttir,
Hjallavegi 11, Njarðvík.
70ára
Daniel Gunnars Jónsson,
Borgarbraut 52, Borgamesi.
Arndts Einarsdóttir,
Hellulandi, Bakkafirði.
Sigurður Einarsson,
Stóra-Fjalli, Borgarhreppi.
Ásdís Einarsdóttir,
Lóni H, Kelduneshreppi.
Finnbogi Jónasson,
Digranesheiði 25, Kópavogi.
60 ára
Elma Nína Þórðardóttir,
Espigerði 6, Reykjavík.
Karl Sigurðsson,
Sandbakka 11, Höfn í Homafirði.
50 ára
Magnús Gíslason,
Dynskógum 3, Hverageröí.
Sveinn Bárðarson,
Nökkvavogi 39, Reykjavik.
Heiga Jón sdóttir,
Öldugötu 44, Hafnarfirði.
Jóhann Finnsson,
Háaengi6, Selfossi.
Elinóra Guðmundsdóttir,
Hjallavegi 7, Flateyri.
Guðni Frímann Guðjónsson,
Dísarási 10, Reykjavík.
Sigurður Haligrimsson,
Grænugötu 12, Akureyri.
40ára
Þorbjörg Ragna Þórðardóttir,
Hólanesi, Höfðahreppi.
Grétar Bjarni Guðjónsson,
Hverafold 74, Reykjavik.
Bernhard Heiðdal,
Otrateigi 14, Reykjavík.
Sigurbjörn Heiðdal,
Búlandí 14, Djúpavogshreppi.
Gisli Lindai Agnarsson,
Hólalandi 8, Stöðvarfirði.
Rósa Kristín Óskarsdóttir,
Aðalgötu 42, Ólafsfirði.
Þórður Karlsson,
Borgarvegi 31, Njarðvík.
Andlát________________
Óskar Aðalsteinn
Óskar Aðalsteinn Guðjónsson, rit-
höfundur og vitavörður, til heimilis
að Sporhömrum 6, Reykjavík, lést á
Landspítalanum fóstudaginn 1.7. sl.
Útfor hans fer fram frá Fossvogs-
kirkju á morgun, fimmtudaginn
14.7., kl. 13.30.
Starfsferill
Óskar Aðalsteinn fæddist á
ísafirði 1.5.1919 og ólst þar upp.
Hann stundaði gagnfræðanám á
ísafirði í einn vetur og var síðan í
íslenskunámi í þrjá vetur hjá Har-
aldi Leóssyni, kennara og bókaverði
á ísafirði, en var að öðm leyti sjálf-
menntaður.
Óskar var bókavörður við Bóka-
safn ísafjarðar 1941^46, vitavörður á
Hombjargsvita í N-ísafjarðarsýslu
1947-49, var rithöfundur og blaða-
maður á ísafirði 1949-53, var vita-
vörður á Galtarvita í V-ísafjarðar-
sýslu 1953-77 og hafði á hendi veður-
athuganir fyrir Veðurstofu íslands
auk þess sem hann rak þar smábú-
skap, stundaði síðan ritstörf á
Reykjanesvita 1977-92 þar sem kona
hans var vitavörður. Þau hjónin
fluttu þá til Reykjavíkur þar sem
Óskar stundaði ritstörf síðan.
Óskar var formaður KFUM á
ísafirði 1934-36 og sat í stjórn Leikfé-
lags ísafiarðar 1950-53.
Rit Óskars Aðalsteins em Ljósið í
kotinu, 1939; Gijót og gróður, 1941;
Húsið í hvamminum, 1944; Þeir
brennandi brunnar, 1947; Högni
vitasveinn (unglingasaga), 1950;
Gisla saga Brimness (endurminn-
ingar Gísla Gíslasonar), 1951;
Hlauparinn frá Malareyri, 1952;
Vormenn íslands (unghngasaga),
1956; Ennþá gerast ævintýri (barna-
saga), 1957; Kosningatöfrar, 1958;
Vonglaðir veiðimenn, 1963; Lífsorr-
ustan, 1964; Breyskar ástir, 1965; Úr
dagbók vitavarðarins, þáttasafn,
1968; Eplin í Eden, 1969; Dísir
drauma minna, 1971; Vökuljóð - fyr-
ir alla, 1976; í röstinni, 1978; Fyrir-
burðir á skálmöld, 1982; Mjöll -
stúlkan í fiöranni, 1990.
Fjölskylda
Óskar kvæntist 1943 fyrri konu
sinni, Sigfríði Maríu Guðbjartsdótt-
ur, f. 6.2.1920, húsmóður. Þau
skildu. Faðir Sigfríðar var Guð-
bjartur Sigurðsson, sjómaður í Bol-
ungarvík.
Dætur Óskars og Sigfriðar eru Sig-
riður Ósk, f. 23.10.1940, starfsmaður
við umönnun þroskaheftra, búsett í
Hafnarfirði, gift Hermanni Sigfús-
syni sjómanni og eignuðust þau sex
börn en fimm þeirra em á lífi; Hall-
dóra Björt, f. 21.9.1943, húsmóöir í
Reykjavík, gift Guðmundi Jónssyni
rafvirkja og eiga þau fiögur börn.
Óskar kvæntist 10.8.1950 seinni
konu sinni, Valgerði Hönnu Jó-
hannsdóttur, f. 29.1.1922, húsmóður
og fyrrv. vitaverði á Reykjanesvita.
Foreldrar Valgerðar voru Jóhann
Bjarni Loftsson, útvegsb. á Eyrar-
bakka, og kona hans, Jónína Hann-
esdóttirhúsmóðir.
Synir Óskars og Valgerðar eru
Flosi, f. 30.12.1946, vélstjóri í
Reykjavík; Gylfi, f. 5.6.1948, lang-
Óskar Aðalsteinn Guðjónsson.
ferðabílstjóri og myndlistarmaöur í
Reykjavík en kona hans er Sigríður
Konráðsdóttir tölvuritari og á Gylfi
einn son; Bragi, f. 11.1.1951, blaða-
maður og kaupmaður í Reykjavík.
Systkini Óskars eru nú öll látin.
Þau voru Sigurður Tryggvi, múrari
á ísafirði; Valgeir, múrari í Reykja-
vík, kvæntur Sigríði Sveinsdóttur;
Kjartan, matsveinn í Reykjavík,
kvæntur Bergþóru Skarphéðins-
dóttur; Einar, fisksali í Reykjavík,
kvæntur Margréti Gunnlaugsdótt-
ur; Þorlákur, matsveinn á ísafirði,
kvæntur Ágústu Ebenharðsdóttur;
Sigríður Ósk, dó í barnæsku; Ás-
geir, sjómaður á ísafirði.
Foreldrar Óskars vom Guðjón
Sigurðsson, f. á Kjalarlandi á Skaga-
strönd 18.7.1884, d. 1956, vélgæslu-
maður á ísafirði, og kona hans,
Guðmundína Jónsdóttir, f. í Miö-
húsum í Gufudalssveit 16.2.1885, d.
30.9.1955, húsmóðir.
Sviðsljós
John Larroquette segist ennþá geta hugsað sér að verða plötusnúður
á ný.
John Larroquette:
Fékk hótanir frá
Ku Kl u x Klan
Leikarinn John Larroquette,
sem margir muna eflaust eftir úr
myndinn Blind Date, var áður fyrr
útvarpsmaður í New Orleans.
Þetta var á 7. áratugnum þegar
þjóðfélagið einkenndist af mun
meiri andstæðum en í dag.
„Þetta var á aðfangadag og ég lét
plötu með hljómsveit sem hét Co-
ven á fóninn en hún spilaði djöfla-
messu. Svo sagði ég hlustendum
að við ætluðum aö halda okkar
árlega djöflaball fyrir framan
kirkju eina 4 bænum og eftir á fá
okkur kaffi og hreinar meyjar,"
sagði John.
Viðbrögðin við þessu uröu gífur-
leg og daginn eftir fékk hann
sprengjuhótun og svo hafði Ku
Klux Klan málað upphafsstafi sam-
takanna á glugga útvarpsstöðvar-
innar.
„Þetta fólk tók hlutina alvarlega
og hélt virkilega aö við værum
djöflaútvarpsstöð en auðvitað var
allt sagt í gríni. Hlutirnir voru bara
öðmvísi í þá daga.“