Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Síða 32
44
Halldór Ásgrímsson.
Veit ekJki hvað
maðurinn er
að tala um
„Ég veit nú ekki hvaö Svavar
Gestsson er að tala um þegar
hann er að tala um hægrisveiílu.
Ef það er merki um hægrisveiflu
að ég sé hugsandi út af framtíð-
inni í alþjóðlegu samstarfi, þá
veit ég ekki hvað Svavar Gests-
son er að tala um,“ segir Halldór
Ásgrímsson í Tímanum.
Kemur skellurinn?
„Það er bara einfaldlega þannig
að það er ekki mannlegur máttur
sem getur komið í veg fyrir að
það verði skellur, þegar svona
hremmingar ríða yfir,“ segir Ein-
ar K. Guðfinnsson í DV um erfið-
leika á Vestfjörðum.
Urnmæli
Hláturgas eykur sprengi-
kraftinn
„Ég hef verið á sama jeppa í fjög-
ur ár og þykir því vænt um grip-
inn sem getur skilað allt að 800
hestöflum með nítrógas-innspýt-
ingu. Með því að ýta á takka spýt-
ist hláturgas inn á véhna sem
eykur sprengikraftinn og aflið
um leið,“ segir Ragnar Skúlason
torfærukappi í Morgunblaðinu.
Meðvituð blekking eða
stríðni
„Það er augljóst að peningnum
hefur verið komið fyrir á meðán
á uppgreftrinum stóð. Annað-
hvort er hér á ferðinni meövituð
blekking eða stríöni," segir
Bjarni F. Einarsson fornleifa-
fræðingur í Alþýðublaðinu um
fund á rómverskum peningi.
Peningar vaxa ekki á trjám
„Peningamir vaxa ekki á trján-
um, menn hljóta að átta sig á því
að þegar staðið er í framkvæmd-
um þá kostar slíkt peninga," segir
Jónas Ólafsson, sveitarstjóri á
Þingeyri.
Þarf ekki á Ólafi Ragnari
að halda
„Ég treysti mér ágætlega til aö
ritstýra félagshyggjublaði án þess
að gera Ólaf Ragnar Grímsson að
leiðtoga lífs míns,“ segir Jón
Kristjánsson, ritstjóri Tímans, í
Tímanum.
Varð ofsalega kátur
„Skyggnið var slæmt þannig að
viö sáum þetta ekki vel. Síðan,
þegar við komum nær og sáum
að kúlan var í, varð að gera
tveggja mínútna hlé á öllu golfi á
vellinum því ég varð svo ofsalega
kátur,“ segir Sigurður Sigurðs-
son, golfmeistari Suðumesja, í
Morgunblaðinu.
Sagtvar:
Þeir þvældust fyrir hvor öðr-
um.
Rétt væri: Þeir þvældust hvor
Gætum tungiinnar
fyrir öðrum.
Bendum bömum á þetta!
OO
Rignir síðdegis um allt land
í dag verður suðaustankaldi eða
stinningskaldi og fer að rigna sunn-
anlands og vestan um landið norðan-
Veðrið í dag
og austanvert helst verður skaplegt
fram yfir hádegi en þá bætir heldur
í vind og síðdegis verður rigning um
nánast allt land. í kvöld lægir um
landið sunnan- og vestanvert, en
'áfram má þó búast við einhverri
rigningu eða skúrum. Veður fer
hlýnandi um landið norðanvert. Á
höfuðborgarsvæðinu er suðaustan
kaldi og síðar í dag stinningskaldi.
Rigning verður nánast í allan dag,
en síðdegis lægir heldur og dregur
úr úrkomu, en áfram væta annars
slagið. Hiti verður 9-11 stig
Sólarlag í Reykjavík: 23.31.
Sólarupprás á morgun: 3.37.
Síðdegisflóð i Reykjavík 21.33.
Árdegisflóð á morgun: 9.59.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað 10
Egilsstaðir hálfskýjað 10
Galtarviti alskýjað 8
KeflavikurílugvöUur rigning 10
Kirkjubæjarklaustur rigning 10
Raufarhöfn alskýjað 8
Reykjavík rigning 9
Vestmarmaeyjar rigning 9
Bergen þokumóða 15
Helsinki heiðskírt 22
Kaupmannahöfn léttskýjað 20
Ósló háifskýjað 19
Stokkhólmur heiðskírt: 24
Þórshöfn skýjað 11
Amsterdam léttskýjað 23
Berlín heiðskírt 22
Chicago alskýjað 22
Feneyjar skýjað 24
Frankfurt heiðskirt 22
Glasgow léttskýjað 11
Hamborg heiðskírt 22
London skýjað 18
LosAngeles skýjað 17
Lúxemborg léttskýjað 22
Montreal heiðskírt . 22
New York heiðskírt 27
Nuuk þoka 2
Orlando léttskýjað 23
París skýjað 21
Róm heiðskírt 23
Vín þoka 19
Washington mistur 25
Guðmundur Sigurðsson bifreiðarstjóri:
Guðmundur Sigurðsson rútubil-
stjóri varð fyrir þeirri upplifun sl.
fóstudag aö rúta hans, um 6 tonn
að þyngd, rann meö afturhjólið upp
á brjóstkássa hans. Þannig var
hann fastur í allt aö hálftíma eða
þar til nærstöddu fólki tókst að losa
hann. Það þótti kraftaverki líkast
Maður dagsins
aö hann skyldi sleppa lifandi frá
þessum ósköpum og jafnvíst að ein-
hver minni að burðum hefði ekki
átt möguleika á að sleppa lif-
andi.
Aðspurður um áhugamál segist
hann hafa mestan áhuga á félags-
málum og stjórnmálum. „Ég tók til
skamms tima þátt í starfi Lions-
Guðmundur Sigurðsson.
hreyfingarínnar. Þá hef ég tekið
virkan þátt i starfi Verkalýðsfé-
lagsins Skjaldar á Flateyri þar sem
ég er varaformaður. Þá er ég frétta-
ritari DV á Flateyri," sagði Guð-
mundur í viðtali viö DV þar sera
hann liggur á Borgarspítalanum
vegna meiðsla sinna.
Guðmundur hefur reyndar
ákveðna reynslu af því aö lenda í
erfíðum aðstæðum þar sem hann
lenti ásamt sambýhskonu sinni
undir snjóflóði á Breiðadalsheiði
fyrir nokkrum árum. Þau biðu þá
í bil sínum eftir hjálp á aðra
klukkustund en bíllinn lagðist
saman undan farginu. Guðmundur
er búsettur á Flateyri ásamt fjöl-
skyldu sinni. Sambýliskona hans
er Guðríður Kristinsdóttir og þau
eiga tvö börn, Ölmu Dögg, tveggja
ára, og Sindra Frey, fjögurra mán-
aða.
Myndgátan
Kvennaathvarf
Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki.
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLf 1994
Undanúrslit
á HM
Nú eru stóru stundirnar að
renna upp á HM í Bandaríkjun-
um. Aðeins fjögur lið eru eftir og
fara imdanúrslitaleikirnar fram
í dag. Fyrri leikurinn fer fram 1
íþróttir
New York og er það viðureign
ítala og Búlgara. Frekar er veðj-
aða á Itali en það er ekkert nýtt
fyrir Búlgara að vera fyrirfram
taldir tapa leiknum. Erfiðara er
að spá um úrslit síöari leiksins á
miOi Brasillíu og Sviþjóðar sem
fram fer í Los Angeles en veð-
bankar eru þó hhðhollari Brasil-
íumönnum. Leikirnir verða að
sjálfsögðu báðir sýndir í beinni
útsendingu í Sjónvarpinu í kvöld.
Hér innanlands má minna á þrjá
leiki sem fara ffarn i 4. deild
karla. Hvöt leikur gegn Neista,
Magni gegn Kormáki og Þrymur
gegn HSÞ-b.
Skák
Spánverjinn Martin Ortueta lést 1
Madrid fyrr á árinu, á 93. aldursári. Hann
var kunnur skákmaður og frægur um
heimsbyggðina fyrir að hafa setið röng-
um megin í ódauðlegum tafllokum gegn
landa sínum, Sanz, fyrir sextíu árum.
Hér er staöan fræga. Sanz með svart
gegn Ortueta.
8
7
6
5
4
3
2
1
1. - Hxb2!l 2. Rxb2 c3 3. Hxb6! Besta
vömin. ef 3. Rd3 c4 (fráskák) 4. Hxb6
cxd3 og hrókurinn ræður ekki við peðin.
3. - c4! 4. Hb4 Aftur best. Ef nú 4. - cxb2
5. Hxb2 og vinnur, eða 4. - c2 5. Hxc4
með sömu niðustöðu. En nú kemur rús-
ínan í pylsuendanum. 4. - a5!! og hvítur
er í leikþröng. Ef hrókurinn fer eftir b-
línunni vinnur 5. - c2 og ef 5. Hxc4 cxb2
og peðið verður að drottningu.
Fegurstu tafllok allra tíma, að ábti Ti-
grans Petrosjans, fyrrverandi hehns-
meistara. Jón L. Árnason
iS Á #
Í á
i Á
£ 1 A
& & I A
ABCDEFGH
Bridge
Önnur urnferð bikarkeppninnar stendur
nú sem hæst og þegar hafa nokkrir leikir
fariö fram. Síðasthðinn þriðjudag fór
fram leikur sveita Hjólbarðahallarinnar
og Roche, og hafði fyrrnefnda sveitin
betur í þeim leik, meö 101 impa gegn 55.
Þetta er eitt spihö úr leiknum en sagnir
gengu þannig í lokuöum sal, austur gjaf-
ari og NS á hættu:
♦ Á10752
♦ 9
♦ KG94
+ 642
♦ 84
V 8542
♦ 8762
+ D108
* DG6
V ÁK1073
♦ 3
+ ÁG93
* K93
V DG6
♦ ÁD105
+ K75
Austur Suður Vestur Norður
1» 1 G Dobl 24
Pass Pass Dobl p/h
Suður gat ekki stiht sig um að koma inn
á sagnir með 15 punkta, þrátt fyrir aug-
ljósa hættu. Suður ákvað að dobla th refs-
ingar þótt punktamir væm aðeins 8 og
v<m ekki síður átjáður í að dobla tvo tígla.
Vörnin var nákvæm, austur sphaði út
hjartaás, fékk niuna frá félaga og skipti
yflr í spaðadrottningu. Sagnhafi setti litið
sph úr blindum og vestur setti tvistinn
(kah í spaða). Austur sphaði næst spaða-
gosa, enn kom litiö spU í blindum og vest-
ur henti spaðatíunni (kaU í hjarta). Þá
kom hjartakóngur, vestur henti laufsexu
(frávísun) og trompaði hjarta með tígul-
Qarka. Vestur spUaði næst laufafjarka,
austur drap á ás og spUaði fjóröa hjart-
anu. Vestur trompaði á tígulníu og vöm-
in fékk að auki slag á tigulkónginn. Þetta
Ieit ágætlega út, 800 niður og aUs ekki
víst að austur kærði sig neitt um að koma
inn á sagnir á hinu borðinu. í Ijós kom
að sagnir hefðu gengið á svipaðan hátt i
opnum sal og niðurstaðan sú sama.
ísak örn Sigurðsson