Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÚLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Erlendar fjárfestingar Tvískinnungs gætir í afstöðu margra íslendinga til erlendra fjárfestinga. Sömu mönnunum og finnst það eðlilegt að við eigum hlut í fyrirtækjum erlendis, þ.ám. í sjávarútvegi, finnst fráleitt að leyfa útlendingum að fjár- festa hér á landi, og allra síst í útgerð og fiskvinnslu. Þessi tvöfeldni birtist reyndar ekki aðeins gagnvart erlendum íjárfestingum. Mörgum finnst til dæmis sjálf- sagt að njóta fullra atvinnuréttinda úti í hinum stóra heimi á sama tíma og þeir vilja takmarka fjölda útlendra verkamanna hér á landi. Mörg okkar vilja enn fremur geta keypt fasteignir, lóðir og jarðir í útiöndum en eiga svefnlausar nætur af áhyggjum yfir tilhugsuninni um útiendinga sem kynnu að kaupa upp dah og ár í landinu okkar. Þessi viðhorf komu skýrt fram í umræðunum um Evrópska efnahagssvæðið fyrir nokkrum misserum. Sömu ættar og þau er viljaleysið til að sjá mótsögnina milli skýjaborganna um að íslenskur landbúnaður leggi heiminn að fótum sér á sama tíma og við köllum á lög- reglu og tollverði ef einhverjir dirfast að reyna innflutn- ing á útiendum landbúnaðarvörum. Fram að þessu hefur það nánast verið bannorð að tala um úárfestingar útiendinga í útgerð og fiskvinnslu hér á landi. Nú tala stjómmálamenn og áhrifamenn í sjávar- útvegi um nauðsyn þess að rýmka þær ströngu reglur sem um þetta gilda. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra sýndi póhtískt hugrekki með yfirlýsingum sínum um þetta mál í Við- skiptablaðinu 1 vikunni sem leið. Síðan hefur komið í ljós að margir eigendur og stjómendur fyrirtækja í út- gerð og fiskvinnslu em sama sinnis og hann. Gunnar Ragnars, forstjóri Útgerðarfélags Akur- eyringa, vekur athygh á því í samtali við DV í dag að stór hluti fjármagns til fjárfestingar og rekstrar í íslensk- um sjávarútvegi alla þessa öld er frá útiöndum kominn. Munurinn er sá að við höfum sjálfir tekið það að láni og greitt útiendingum gífurlega vexti af því. Sú spuming vaknar hvort sé betra fyrir íslenskt at- vinnulíf erlent lánsfé eða erlent áhættufé. Það þarf htla hagfræðiþekkingu til að sjá svarið í hendi sér. Einn stærsti vandi atvinnuveganna er skortur á fjármagni th framkvæmda, rannsóknar og þróunar. Það gildir ekkert síður í sjávarútvegi en öðrum atvinnugremum. Þegar lögum var breytt árið 1991 til að greiða fyrir þár- festingum útiendinga hér á landi vom þau ákvæði meðal annars sett að þeir mættu ekki eiga hlut í útgerð og fisk- vinnslu. Að þessu leyti voru nýju lögin strangari en eldri lög sem heimiluðu útiendingum að eiga aht að helmingi hlutaflár í útgerðarfélögum. Timi er til kominn að lög um erlendar fjárfestingar á íslandi verði endurskoðuð í ljósi reynslunnar og breyttra viðhorfa. Vitað er að eitthvað er um streymi erlends fjár- magns th íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja innan „neð- anjarðarhagkerfisins“ svonefnda. Og áhtamál em uppi varðandi eignaraðhd útiendinga að íslenskum fyrirtækj- um utan sjávarútvegs sem aftur eiga hlut í útgerð og fisk- vinnslu. Lengi hefur verið fuhyrt að sjávarútvegur hafi slíka sérstöðu fyrir íslenskt þjóðfélag og fuhveldi þjóðarinnar að þar geti venjuleg lögmál viðskipta og samkeppni ekki ght. Fyrr á árum vom uppi sams konar kenningar um ýmsa aðra þætti atvinnulífs og ríkisbúskapar. Þær reynd- ust rangar. Er ekki líklegt að hið sama eigi við hér? Guðmundur Magnússon „Uppdráttarsýki hefur heltekið Alþýðuflokkinn eina ferðina enn,“ segir í grein Árna. - Þingflokkurinn fundar. Jón Baldvin lætur illa Jón Baldvin hefur verið á flakki í Evrópu og talað ósköp frjálst. Svo frjálst reyndar að Davíð þykir meira en nóg um. Enda lætur Jón Baldvin illa: hann vill sækja um aðild að Evrópusambandinu sem fyrst og fara inn þangað með þeim EFTA-ríkjum sem nú standa í þjóð- aratkvæðagreiðslum um inn- göngu. Út í hött Að vísu eru þetta vangaveltur sem bíta í skottið á sér. Ef við sækt- um um aðild að ESB, segir utanrík- isráðherrann, þá mundu Þjóðverj- ar styðja okkur inn með forgangs- hraða - að því tilskildu að okkur væri full alvara. En við erum ekki að sækja um og þýskur ráðherra, sem spjallar stundarkorn við Jón Baldvin, er ekki einráður í ESB. Ekki ennþá a.m.k. Þegar viö skoðum betur þennan æðibunugang heldur vitleysan áfram að ganga í hring. Málfærslan er eitthvað á þessa leið: íslendingar geta ekki sætt sig við fiskveiði- stefnu ESB. En þeir mega heldur ekki sitja hjá þegar þessi fiskveiði- stefna verður endurskoðuð. Þeir eiga þá, að því er best verður séð, að fara inn í ESB til að breyta fiskveiðistefnu sem þeir geta ekki sætt sig við. En með því að ganga inn hafa þeir þegar gengist undir þessa ótæku fiskveiðistefnu. Og náttúrlega engin trygging fyrir því að þessari sömu auðlindastefnu verði breytt eins og íslendingar vilja. En þá er of seint að iðrast inngöngunnar. Jón Baldvin mun þá segja: við semjum um undanþágur. Um leið er „gleymt" þeirri grundvallar- reglu ESB aö undanþágur séu til bráðabirgða: þegar til lengdar læt- ur fer yfirstjórn ónýtrar fiskveiði- stefnu til komissara í Brussel og KjáUariim Árni Bergmann rithöfundur íslenskur sjávarútvegur á alþjóð- legt uppboð. Hagsmunir flokksins Jón Baldvin stendur hins vegar fast á því að „þegar til lengdar læt- ur“ sé hagsmunum íslendinga best borgið innan ESB. Þessu er ekki slengt fram vegna þess að umsókn um aðild sé á dagskrá í raun. Hið rétta er að Jón Baldvin sér hags- munum Alþýðuflokksins til skamms tíma best borgið með því að hann hafi hátt um aðild að ESB. Uppdráttarsýki hefur heltekið Alþýðuflokkinn eina ferðina enn. Jóhanna og hennar lið er á forum. Jón Baldvin ræður aðeins yfir rúmum hálfum minnsta flokki landsins og þá þeim parti hans sem almenningur telur spilltastan allra. Hins vegar segja skoðanakannanir að meirihluti landsmanna vilji nú skoða aðild að ESB. - Sú útkoma fæst eftir að Jón Baldvin og aðrir Evrópufíklar hafa mjög fegraö fyrir sér og öðrum ESB-samninga sem norska stjórnin hefur gert. Og hér í blandast að margir Evr- ópufíklar láta óspart í veðri vaka að íslendinga bíði allir hugsanlegir sjóðir í Brussel sem þeir muni fá miklu meira úr en þeir í þá mundu láta. En hvað um það, hér sér Jón Baldvin leik á borði: Eina leiðin fyrir hann til að bjarga flokknum í næstu kosningum er að fljóta á þessari gruggugu Evrópubylgju, segjandi sem svo: Ég er djarfur, ég er nútíminn, ég tek forystuna, ég er framsýnn, ég mun leiða yður í þann evrópska sælustað þar sem við töpum engu og græðum allt. Það hlálega er þó að Jón Baldvin á það allt undir elskulegum vinum sínum Norðmönnum hvort þetta spilverk skilar einhverjum ár- angri. Felli þeir aðild að ESB í þjóð- aratkvæðagreiðslu er allt hans upphlaup ónýtt og pólitískt gjald- þrot blasir við. Árni Bergmaim „ Jón Baldvin ræöur aðeins yíir rúmum hálfum minnsta flokki landsins og þá þeim parti hans sem almenningur telur spilltastan allra.“ Skoðanir annarra Afgjald til verkalýðsf élganna „Verkalýðsfélögunum á ekki að líðast að selja aðgang að vinnumarkaðnum, gegn þjónustu, sem greiöendur hafa svo misjafnan aðgang að, eða njóta ekki, eins og dæmin sanna, allt eftir því hvort þeir teljast fullgildir félagsmenn eða ekki. Þessi háttur á að heyra fortíðinni til. Hér ætti að ríkja frelsi manna til þess aö velja hvort þeir standa utan stéttarfélaga eða innan. Þeir sem velja félagsaðild, greiða þá sin stéttarfélagsgjöld og njóta réttinda í samræmi við greiðslumr, en þeir sem velja leið einyrkjans, greiða þá ekkert skyldugjald til stéttarfélagsins." Úr forystugrein Mbl. 23. júlí. Haustkosningar „Umræður um að flýta kosningum em ekki nýjar af nálinni. Stjómarsamstarfið hefur verið með þeim hætti nú í seinni tíð, að almenningur í landinu hefur 'allt eins átt von á því að upp úr því shtnaði... Kosn- ingar í haust myndu létta þeim krossi af stjómar- flokkunum að búa við heimilisófriðinn í vetur. Þær myndu einnig losa þá við óþægilega fíárlagagerð og þau hrossakaup sem fylgja henni, þegar meirihlutinn er orðinn ótryggur." Jón Kristjánsson ritstj. í Tímanum 23. júlí. Helsta kosningamálið „Síöustu daga hefur þess orðið vart að stjórn- málaleiðtogar gera lítið úr þeim möguleika, að ESB- málin verði eitt helsta umræðuefni í kosningabarátt- unni fyrir næstu þingkosningar. Þetta er mikill mis- skilningur. Það er alveg ljóst að svo verður. Ekkert mál, sem nú er á dagskrá í íslensku þjóðfélagi, vekur upp jafn sterkar tilfinningar á báða bóga og þetta mál. Þess vegna er augljóst, að hvort sem kosningar verða í haust eða næsta vor verður aðild að ESB eitt helsta kosningamáliö." Úr Reykjavíkurbréfi Mbl. 24. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.