Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1994, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1994 25 Fréttir Halldór Ingvason var á bökkum Rangánna fyrir fáum dögum en hann veiddi vel með veiðifélaga sínum eða tíu laxa. Rangárnar voru komnar yfir 600 laxa í gærkvöld. DV-mynd Jói Rangámar: 70 laxar veidd- ust í fyrradag - yfir 600 laxar á land Ungir og áhugasamir veiðimenn virða fyrir sér veiði sem pabbi og mamma höfðu veitt i Álftá á Mýrum, lax og fallega sjóbirtinga. Veiði- mennirnir eru Arnar Helgi Ágústsson, Gísli örn Bragason og íris Dóra Snorradóttir. DV-mynd Ágúst „Þetta er besti dagurinn í sumar, það veiddust 70 laxar á sunnudag- inn og Þórarinn Sigþórsson tann- læknir veiddi þann stærsta, 15 punda, þennan daginn," sagði Þröstur Elliðason í gærkvöld. Rangárnar hafa gefið yfir 600 laxa og eru komnar í hóp fengsælh veið- iáa þetta sumarið, líklega í sjöunda sæti yfir þær bestu á þessari stundu. „Þetta var bullandi veiði, Þórar- inn og Egill fengu mest 24 laxa en síðan héldu þeir til veiða í Laxá á Ásum. Það veiddust 50 laxar á svæði tvö af þessum 70 en þar er veitt á sex stangir. Mest voru þetta 5 til 8 punda laxar. Sá stóri slapp í Símastrengnum „Hreinn Líndal úr Keflavík missti fisk eftir þriggja og hálfs tíma baráttu. Þessi lax tók spúnn hjá Hreini en hann slapp eftir hörkubardaga. Þessi veiðimaður sá fiskinn nokkrum sinnum en hann haíði fyrir skömmu veitt 19 punda lax. Hann sagði að þessi lax hefði verið miklu, miklu stærri. En þeir stóru sleppa oft,“ sagði Þröstur ennfremur. Fréttir af veiðiánum í ísafjarðardjúpi „Laugardalsá hefur gefið 90 laxa og hann er ennþá 16 punda sá stærsti, veiðin er frekar róleg þessa dagana,“ sagði Siguijón Samúels- son á Hrafnabjörgum við Ísaíjarð- ardjúp í gærkvöld. „Veiðimenn, sem voru við veiðar hjá okkur í gær, voru ekki komnir með nema þijá laxa eftir tveggja og hálfs dags veiði. Eins árs laxinn hefur aðeins látið sjá sig en mætti gera það meira,“ sagði Siguijón í lokin. Langadalsá hefur gefið 27 laxa og Hvannadalsá 23 þegar við síðast fréttum. Smálaxinn hefur lítið látið sjá sig ennþá í þessum veiðiám frekar en í Laugardalsánni. Menning Hafið brennur Þessi súrrealíski titill er á ljóðaúrvali lettnesku skáldkonunnar Vizma Belsevica en það birtist nýlega á íslensku. Þetta eru sex tugir ljóða, auk stutts eftirmála með helstu upplýsingum um feril skáldsins. Þrátt fyrir titihnn sem sýnir ósættanlegar andstæður, er bókin ekki súrrealísk, né á annan hátt módern að marki. Þaö sem lengst er gengið í þá átt eru djarfar persónugervingar umhverfisins, t.d. í „Brunnurinn sem hvarf' Ó, nei. Aðeins skrapandi fatan á gegnþurri möl. Og þá stirðnið þið skyndilega - brunnurinn brýtur sér leið upp úr jörðinni, önugur dregur hann veggi sína upp rif fyrir rif styður sig við lyftistöngina og gengur haltrandi burt úr garðinum. Þvílíkar persónugervingar virðast mér mestmegnis til að sýna ljóðmæ- landa einan og einmana, mikið fer fyrir ástarsorg. En þetta er einfóldun, lítum á dæmi þess hvemig hún sýnir þvílíkar tilfinningar: Hrædd við augnablikið er sannleikurinn verður ei lengur umflúinn, fel ég augun bak við kastaniublómið sem þú gafst mér eitt sinn, treö ég í eyrun sem sveif yfir okkur þá, og þek hjartað mildu kvöldunum okkar saman, við tvö alein við fjólublátt hafið, og ég held mér fast í glóðina sem slokknar við sjónarrönd, hrædd viö augnablikiö, er sannleikurinn verður ei lengur umflúinn. Bókmenntir Örn Ólafsson Hér vekja líkingarnar athygh. Einstök atriði sem hún minnist frá sam- verustund meö ástmanninum eru kunnugleg rómantík, hann gaf henni blóm, fuglar svifu yfir þeim við sólarlag á mildu kvöldi. En þessu er öllu líkt við teppi eða sæng, sem hún dregur yfir skhningarvitin! Þannig eru rómantískar minningar til þess eins að blekkja sjálfa sig, loka augunum. Annað stuft ljóð sýnir mikla samþjöppun. Fyrsta ljóðmyndin, af óhreyf- anlegum veiðifugh, gefur góða hugmynd um óvirka þrá. Regluleg endur- tekning orösins alda sýnir nánast ölduganginn sem lýst er. Og það er fín- leg skynjun að taka fiðrhdisvæng sem dæmi um lífveru sem verður fyrir áfóhum, og nær sér aftur. Einmitt svo smágert dæmi vekur í senn samúð með varnarlausri veru og skarpa skynjun hverfuls andartaks: Alda og sem mávur á steininum í hafinu þrá th þín. alda aðeins sorg sár eins og votur fiðrhdisvængur í sandi við fjöruborð alda salt einmana tár í ehífð hafsins alda hverfur óþekkjanleg eftir að hafa skolað sandinn af fiðrhdisvængnum alda. Útkoma þessarar bókar sætir engum stórtíðindum í íslenskum bók- menntum. En þetta er ágætt, vel þess virði að kynna sér fyrir áhugafólk um ljóð. Ekki hefi ég getað borið þýðingamar saman viö þær dönsku og sænsku þýðingar sem þýtt var eftir. Ljóðin eru mjög mislöng, en hefjast ævinlega efst á síðu og hrot bókar- innar er thtölulega stórt. Mér finnst fara iha á því að hengja lítinn prent- flöt efst á annars auða síðu, en þetta er vitaskuld smekksatriði. Vizma Belsevica: Hafið brennur. Óðr 1994, 79 bls. Tilkyimingar Safnaðarstarf Vitni óskast að árekstri hvíts sendiferðabíls og Toyotu sem átti sér stað á horni Háteigsvegar og Skipholts-Bólstaðarhlíðar þann 6. júh sl. kl. 10.50. Þeir sem telja sig geta gefið einhverjar upplýsingar um atburðinn vinsamlega hringi í síma 985-25275. Silfurlínan Sími 616262. Síma- og viðvikaþjónusta fyrir eldri borgara alla virka daga kl. 16-18. Tapað fundið Gulur dísarpáfagaukur tapaðist í Garðabænum fostudaginn 22. júlí sl. Finnandi vinsamlega hringi í síma 43913. Köttur tapaðist Bluepoint, eymamerktur síamsköttur, tapaðist sl. fóstudagskvöld viö Hjallaveg í Keflavik. Þeir sem geta veitt upplýs- ingar um hann vinsamlega hafi samband við Drífu eða Steinunni í síma 92-14398. Friðrikskapella: Guðsþjónusta í kvöld kl. 20.30. Prestur sr. Siguijón Ámi Eyj- ólfsson. Kaffi i gamla félagsheimili Vals eftir guðsþjónustu. Hallgrimskirkja: Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Seltjarneskirkja: Foreldramorgunn kl. 10-12. LWWWWWWWl SMÁAUGLÝSINGADEILD OPIÐ: Virkadaga frákl. 9-22, laugardaga frákl. 9-16, sunnudaga frákl. 18-22.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.