Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994
Fréttir
Davíð hefur tvær vikur til að ákveða haustkosningar:
Ymislegt mælir með
haustkosningum
- segir Geir Haarde. Einhugur um Evrópumálin
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
kom saman á fundi í Valhöll í gær
og ræddi Evrópumálin, hugsanlegar
haustkosningar, stjórnmálaástandið
og fjárlögin. Fundurinn var afskap-
lega tíðindalítill og samstaða var um
öll mál.
Enginn ágreiningur var um Evr-
ópumálin og lýstu allir þingmenn
flokksins yfir eindregnum stuðningi
við stefnu forsætisráðherra í þeim,
að sögn Geirs H. Haarde þingflokks-
formanns, þar á meðal Vilhjálmur
Egilsson en hann hefur lýst því yfir
að senda beri umsókn um aðild aö
ESB. „Það voru allir sammála um að
umræða um aðild að sambandinu
væri ekki tímabundin" sagði Davið
Oddsson forsætisráðherra. Hann
sagði að allir þingmennimir á fundin-
um hefðu tjáð sig um Evrópumálin.
Geir H. Haarde, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, heilsar Vilhjálmi
Egilssyni, helsta talsmanni aðildar að ESB innan flokksins, við upphaf þing-
flokksfundar í Valhöll í gær. Við hlið þeirra stendur helsti andstæðingur ESB
í fiokknum, Eyjólfur Konráð Jónsson. DV-mynd BG
Davíð sagði að hann hefði tvær vik-
ur til að ákveða hvort til haustkosn-
inga kæmi. Haustkosningar voru
mikið ræddar á fundinum og sáu
menn kosti og galla. Það var vilji
þingmanna aö svar fengist við þeirri
spumingu hið fyrsta, af eða á. Davíð
sagði að ef ákveðið væri að ganga til
haustkosninga yrðu þær um mán-
aðamótin september/október. Davíð
taldi ekki að Evrópumálin yrðu aöal-
kosningamálið.
„Það er ýmislegt sem mælir meö
haustkosningum og annað gegn
þeim,“ sagði Geir H. Haarde þing-
flokksformaður en hann sagðist ekki
hafa gert upp hug sinn.
Ingi Björn Albertsson mætti ekki á
fundinn og Egill Jónsson og Matthías
Bjarnason boðuðu forfoll.
Stuttar fréttir i>v
Skattur á ttáttúruskoðun
U mhverfisráðherra íhugar að
hefla gjaldtöku af feröaraönnum
sem skoöa vilja stórbrotna nátt-
úra landsins. Alþýðublaðið
greindi frá þessu.
Stjórn Miklalax í Fljótum ætlar
að óska eftir því að fyrirtækið
verði tekið til gjaldþrotaskipta.
RÚV greindi frá þessu.
. Sekt fyrir náttúruspjöil
Danskur ökumaöur var 'í vik-
unni sektaður fyrir að aka utan
vegar í Hvannalindum. RÚV
greindi frá þessu.
Furðuljósáhimni
Furðuljós sáust á himni yfir
vestanverðu landinu síðdegis í
gær. Sjónarvottar hejTðu spreng-
ingu og sáu skærbláan bjarma
hátt á lofti. Talið er að um loft-
stein hafi verið að ræða.
Ryðrauttpósthus
Pósthúsið í Reykjavik verður
málað ryðrautt með grænu þaki
og grænum gluggakörmum.
Treg ioðnuveiði
Einungis 5 loðnuskip eru nú á
sjó og er veiðin mjög treg.
Úttekt á tekjum ráðherra:
Launaumslögin bólgnuðu
þrátt fyrir þjóðarsátt
Tekjur ráðherra jukust verulega í
fyrra miðað við árið á undan. Að
jafnaði hækkuðu tekjur ráðherranna
um rúmlega 63 þúsund krónur á
mánuði. Það samsvarar því að hver
og einn hafl mánaðarlega fengið
verkamannalaun í kaupauka þrátt
fyrir þjóðarsátt um að halda verðlagi
og launum niðri.
Samkvæmt útsvari ráðherranna
vegna tekna ársins 1993 var Guð-
mundur Árni Stefánsson tekjuhæst-
ur. Að meðaltali hafði hann 583 þús-
und krónur í tekjur í fyrra saman-
borið við 483 þúsund krónur árið
áður. Hækkunin milli ára er 20,7 pró-
sent.
Davíð Oddsson hafði að jafnaði 503
þúsund í mánaðartekjur í fyrra en
436 þúsund árið áður. Hækkunin er
15,4 prósent. Ólafur G. Einarsson
hafði að jafnaði 516 þúsund í tekjur
í fyrra en 349 þúsund áriö á undan.
Hækkunin er 47,9 prósent. Tekjur
Friðriks Sophussonar hækkuðu um
6,3 prósent milli ára eða úr 335 þús-
undum árið 1992 í 356 þúsund árið
1993. Tekjur Halldórs Blöndals
hækkuðu um 7,6 prósent milli ára,
úr 370 þúsundum í 398 þúsund, og
tekjur Þorsteins Pálssonar um 30,5
prósent, úr 338 þúsundum í 441 þús-
und.
Tekjur Jóns Baldvins Hannibals-
sonar hækkuöu um 10 prósent milli
áranna 1992 og 1993 eða úr 350 þús-
undum í 385 þúsund á mánuði. Mán-
aðartekjur Sighvats Björg\dnssonar
hækkuðu um 5,9 prósent milli ára
eða úr 353 þúsundum í 374 þúsund.
Tekjur Össurar Skarphéðinssonar
hækkuðu um 28,1 prósent, úr 260
þúsundum í 333 þúsund, og tekjur
Jóhönnu Sigurðardóttur hækkuðu
um 5,2 prósent eða úr 327 þúsundum
í 344 þúsund.
Úttekt þessi nær einungis til tekna
en ekki launa. Um er að ræða skatt-
skyldar tekjur í fyrra eins og þær
voru gefnar upp eða áætlaðar og út-
svar reiknast af. Til samanburðar er
stuðst við sambærilega úttekt í fyrra.
Kvótasvindlið er að verða þjóðaríþrótt
- fullyrðir Óttar Guðlaugsson, útgerðarmaður 1 Ólafsvík
„Kvótasvindliö er að verða þjóðar-
íþrótt. Ég hef gran um að heilu vöra-
bílsfarmarnir af fiski fari norður í
land undir þeim formerkjum að um
sé að ræða ýsu eða aörar aukateg-
undir þegar raunverulega er um að
ræða þorsk,“ segir Óttar Guðlaugs-
son, útgerðarmaður í Ólafsvík.
Óttar segir að sér virðist sem fram-
hald mála verði ekkert eftir að rann-
sókn veiðieftirlitsins lýkur.
„Ég veit til þess að þeir hafa verið
að stoppa bíla sem era að flytja þenn-
an felufarm. Þar hafa þeir upplýst
að um misferh væri að ræða. Söku-
dólgarnir hafa sloppið án sekta og
farmurinn bara skráður á viðkom-
andi bát án eftirmála. Ég tel vera lit-
ið fram hjá þessu vegna þess að ann-
ars lægi meirihluti flotans bundinn.
Það er nefnilega rangt að fara svona
langt niður með þorskkvótann eins
og raun ber vitni," sagði Óttar.
Guðmundur Karlsson, forstöðu-
maöur veiöieftirhts Fiskistofu, sagð-
ist ekki kannast viö að verið væri að
flytja fisk norður í land undir fólsk-
um formerkjum.
„Kvótaeign Norðlendinga hggur að
mestu í þorski þannig að í mínum
eyrum hljómar þetta ósennilega.
Okkar þáttur er að rannsaka mál og
senda þau til viðkomandi lögreglu-
stjóra eða til sjávarútvegsráðuneyt-
isins eftir því sem ástæða er til,“ seg-
ir Guðmundur Karlsson. Guðmund-
ur sagði að sér vitanlega væri aðeins
eitt fyrirtæki sem væri hjá yfirvöld-
um vegna kvótasvindls.
Nýir eigendur að Smjörlíki/Sól:
Páll Kr. og fleiri búnir að kaupa
Gengið hefur verið frá samningum
um kaup Páls Kr. Pálssonar, fyrrum
forsflóra Vífilfells, og fleiri flárfesta
á Smjörlíki/Sól hf. Samningur hefur
verið undirritaður viö rekstraraðila
fyrirtækisins en stærstu lánar-
drottnar hafa rekið það undanfarið
ár. Heimhdir DV herma að Páll verði
forsflóri fyrirtækisins.
Stærstu lánardrottnar Smjörlík-
is/Sólar; íslandsbanki, Iðnlánasjóður,
Iðnþróunarsjóður og Ghtnir, tóku til
sín eignir fyrirtækisins í júlí á síðasta
ári og tóku alfariö við rekstrinum í
sumar þegar ljóst var að Davíö Sche-
ving Thorsteinssyni og öðram eigend-
um hafði ekki tekist að standa við
skilyrði nauðasamninga frá því í vet-
ur. Meðal skilyrða var að auka hlut-
afé um 120 mihjónir en það tókst ekki.
Kaupverö lá ekki fyrir í gær en
heimildir DV herma að það sé í
kringum 500 milljónir króna eða um
200 milljón krónum lægra en fyrri
eigendum var gert að selja fyrirtækið
ef þeir ættu að halda hlut sínum í
fyrirtækinu.
Kaupendur ásamt Páh og Jóni
Scheving Thorsteinssyni era Þróun-
arfélag Islands, Hans Petersen hf.,
Festing, sem er dótturfélag Sjóvá-
Almennra, og hjónin Geir G. Geirs-
son, eggjabóndi á Kjalarnesi, og Hjör-
dís Gissurardóttir, gullsmiður og
fyrrum eigandi Benetton-búðanna á
íslandi.
Tekiur raðherra
— framreiknaðar mánaðartekjur í þúsundum króna
á árinu 1993 miðað við verðlag í ágúst 1993 —
200 400
Davíð Oddsiion forsætisráð lerra
Friðrik Sopi usson fjármáh ráðherra
Jón Baldvin
Halldór Blöndai
Johanna Sig
I
Sighvatur Björgvinsson, heíibhgöis, iönai
ar- og viðskiptar
Ossur Skarphéðinsson umhverfisráðherra
Vestmannaeyjar:
Fjöldi í Herjólfsdal í nótt
Töluverður flöldi fólks var saman
kominn í Heijólfsdal í Vestmanneyj-
um í nótt.
Að sögn lögreglu gistu nokkur
hundruð manns þar í nótt í rigningu
og roki og voru hálfheimihslausir
þegar þeir vöknuðu í morgun þar
sem ekki hafði verið flaldað vel á
sumum bæjum.
Búist er við miklu flölmenni til
Eyja í dag og er lögreglan með mik-
inn viðbúnað.