Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Blaðsíða 39
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994
55
Tilkyimmgar
Verslanir á Laugaveginum
lokaðará laugardag
í tilefni verslunarmannahelgar hafa
verslanir við Laugaveg og Bankastræti
ákveðið að hafa verslanir lokaðar á
morgun, laugardag. Fram undan er lang-
ur laugardagur á Laugavegi þann 6. ág-
úst. Ætlunin er að vera meö bíla- og báta-
sýningu ásamt fleiri skemmtiatriðum í
tflefni dagsins.
Félag eldri borgara
í Rvík og nágrenni
Göngu-Hrólfar fara frá Risinu, Hverfis-
götu 105, kl. 10 á morgun, laugardag.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Spiluð verður félagsvist og dansað í
félagsheimili Kópavogs í kvöld, fóstu-
dagskvöld, kl. 20.30. Þöfl og félagar leika
fyrir dansi. Húsið er öllum opið.
Hana-nú, Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardag.
Lagt verður af stað frá Gjábakka, Fann-
borg 8, kl. 10. Nýlagað molakaffi.
The Body Shop
í dag, fóstudag, ætlar The Body Shop á
Islandi ásamt 1100 öðrum The Body Shop
verslunum um allan heim aö gefa 1% af
sölu dagsins til hjálpar flóttafólkinu frá
Rúanda.
Tjaldmiðstöðin, Laugarvatni
A ári fjölskyldunnar er vakin athygli á
því að tjaldsvæðin á Laugarvatni eru sér-
staklega ætluð fjölskyldufólki. Því þurfa
börn og unglingar að vera í fylgd með
fullorðnum. Hávaöi er raskar svefnfriði
er ekki leyfilegur. Dvalargestir, er þetta
virða, eru velkomnir til að pjóta náttúr-
unnar í friði og ró meðan pláss leyfir.
Bleikur
vodkablús
Fimmta bók-
in frá Frjálsri
fjölmiölun á
þessu ári er Úr-
valsbókin
Bleikur vodka-
blús eftir Neal
Barrett, jr. Bók-
in er skilgreind sem „léttslompuð
spennusaga" og gefur það nokkra
hugmynd um efnistökin í sjálfu sér.
Bókin er spennusaga af háum gæða-
flokki og er kímni sérstakt einkenni
hennar. Ekki er örgrannt um að les-
andinn eigi eftir að skella upp úr yfir
lestrinum.
„Russell Murray hefur fyrr vaknað
eftir ærlegan túr án þess að muna
mikið eftir honum. En nú tekur
steininn úr. Lögreglan leitar hans
nú fyrir þijú morð... Og það eina
sem Russ raunveruiega þarf að gera
er að finna skjalatösku sem hann
man ekkert um - og veijast mafí-
unni, lögreglunni og gamalii konu í
bláum strigaskóm með hríðskotariff-
il í höndum," segir á bókarbaki.
Eftir einn - ei aki neinn!
UMFERÐAR
RÁÐ
Vél(
ACLOCKWORK
ilcflín
® CöD@ŒJDtHQ0 @Í0í
6. sýn. þri. 2/8
7. sýn. fim. 4/8
8. sýn. fös. 5/8
i.: Sýningar hefjast kl.:
flth. aðelns örfáar sýningar.
Bensínstöðvar
lokaðará
frídegi verslunar-
manna
Allar bensínstöðvar á höfuð-
borgarsvæðinu verða lokaðar á
frídegi verslunarmanna, næst-
komandi mánudag. Bensínstöðv-
ar Esso eru opnar frá 7.30-23.30
fóstudag og laugardag en frá
9- 23.30 sunnudag. Esso við Lækj-
argötu er opin frá kl. 7 á föstudag-
inn. Bensínstöðvar Olís eru opn-
ar frá 7.30-23.30 föstudag, laugar-
dag og sunnudag. Bensínstöðvar
Skeljungs eru opnar sem hér seg-
ir: Bústaðavegi við Öskjuhlíð,
Suðurfelh, Hraunbæ og Lauga-
vegi 180 frá kl. 7.30-23.30 fóstudag
og laugardag en 9-23.30 sunnu-
dag. Vesturlandsvegi 7.30-22
fóstudag og laugardag en sunnu-
dag kl. 9-22. Aðrar stöðvar Skelj-
ungs eru opnar frá 7.30-20 fóstu-
dag og laugardag en kl. 9-20
sunnudag. Kortasjálfsalar eru á
eftirtöldum Shell-stöðvum: Mi-
klubraut, norðanmegin, Bæjar-
braut, Garðabæ, Reykjavíkur-
vegi 58, Hafnarfirði, og Laugavegi
180.
Sundlaugar í
Reykjavík
Sundstaðir í Reykjavík verða
opnir alla verslunarmannahelg-
ina en á mánudag verður opið
eins og á sunnudögum frá 8-19.30.
Strætisvagnará
höfuðborgar-
svæðinu
Strætisvagnar Reykjavíkur og
Almenningsvagnar aka á öllum
leiðum á frídegi verslunarmanna
samkvæmt áætlun helgidaga.
Ferðir hefjast um kl. 10 að morgni
mánudags.
Verslanir á höfuð-
borgarsvæðinu
Verslanir á höfuðborgarsvæð-
inu verða almennt lokaðar á
mánudeginum, frídegi verslunar-
manna. Þó eru á því undantekn-
ingar þar sem eigendur vinna
sjálfir og eitthvaö verður um að
verslanir verði opnar sem alla
jafna hafa opið á frídögum. Versl-
unarmiðstöðin Kringlan er opin
til 19 í kvöld, fóstudagskvöld, en
matvöruverslun Hagkaups verö-
ur opin til 20. Allar verslanir í
Kringlunni verða lokaðar á laug-
ardag og mánudag. Opið verður
bæði í 10-11 og 10-10 verslunum
yfir verslunarmannahelgina. í
Bónusverslunum er opið til kl.
19.30 í kvöld og 10-16 á morgun,
laugardag, en lokað sunnudag og
mánudag. Verslanir Hagkaups í
Skeifunni, Hólagarði, Grafarvogi
og á Eiðistorgi verða opnar frá
10- 18 laugardag en lokaðar
sunnudag og mánudag. Verslanir
Hagkaups í Kjörgarði og í Kringl-
unni verða lokaðar laugardag,
sunnudag og mánudag.
Fréttir
Þeir voru i Brennunni i Borgarfirði fyrir skömmu, frá hægri: Anton Orri Dagsson, Pétur Sigurðsson og Sigurð-
ur Garðarsson. Brennan var komin með yfir 100 laxa í gærkvöldi. DV-mynd Dagur
Laxá í Leirársveit:
Veiðin gengur
feiknavel
- 500 laxar komnir á land
„Veiðin gengur vel í Laxá í Leir-
ársveit þessa dagana og eru komn-
ir 500 laxar úr ánni. Þetta er miklu
betri veiði en verið hefur síðustu
tvö árin,“ sagði Óli Johnson í gær-
kvöldi en hann hefur verið á bökk-
um Laxár í Leirársveit upp á sík-
astið.
„Það er mjög mikið af fiski í ánni
þessa dagana, bæði eins og tveggja
ára laxar, laxinn dreifður um alla
á. Það eru erlendir veiðimenn við
veiðar þessar vikurnar en þeir
veiða aðeins á flugu. Síðasta vika
gaf 120 laxa á sjö stangir sem er
nokkuð gott. Einn Bandaríkjamað-
ur sleppti 18 punda hrygnu í síð-
ustu viku í vitna viðurvist. Hann
sagðist ætla að fá 10 smálaxa undan
henni næstu árin. íslendingar taka
við veiðinni 20. ágúst aftur," sagði
Óli ennfremur en hann sagði að
stutt yrði þangað til hann renndi í
Laxá í Leirársveit aftur.
Bæði Álftá og Brennan
komnar yfir hundrað laxa
„Álftá á Mýrum er komin yfir 100
laxa og hann er 16 punda sá stærsti
ennþá. Það hefur líka veiðst mikiö
af vænum sjóbirtingi," sagði Dagur
Garðarsson er við leituðum frétta
af Áiftá og Brennunni í gærkvöld.
„Það eru komnir laxar um alla á
og Sigurður Garðarsson var þar
um síðustu helgi og hann veiddi 4
laxa í Veitunni. Það er laxar mest
í Hrafnshyl, Lambsfossi, Verpi og
Kerfossi. Maðkurinn gefur best en
flugan er sterk líka. Brennan í
Borgarfirði er líka komin yfir 100
laxa og þar er stærsti laxinn 16
punda eins og í Álftá. Veiðimenn,
sem voru í tvo daga fyrir skömmu,
veiddu 13 laxa. Flugan hefur veriö
að sækja á maðkinn í Brennu þessa
dagana,“ sagði Dagur í lokin. En
hann og Jón Pétursson ætluðu um
helgina í Álftá á Mýrum.
Stóri viiiiiinguririn í ferðaáskriftargetraun D V:
„Mér varð ekki svefnsamt um
nóttina eftir að mér bárust þessar
gleðifréttir og ég þorði varla að
trúa því að ég hefði fengið stóra
vinninginn í ferðaáskriftarget-
rauninni," sagði Áslaug Magnús-
dóttir, áskrifandi að DV, sem var
svo heppin að fá stóra vinning-
inn, Combi Camp tjaldvagn frá
Títan með borði, 2 stólum, gas-
eldavél og hleðsluljósi. Heildar-
verömæti vinningsins er 380.000
krónur.
„Við höfum alltaf þráð að geta
ferðast innaniands en átt erfitt
með það því eiginmaður minn er
í hjólastól. En með tilkomu tjald-
vagnsins verða okkur alhr vegir
færir og við höfum hugsað okkur
að vígja tjaldvagninn um versl-
unarmannahelgina," sagði Ás-
laug.
Hjónin Aslaug Magnúsdóttir og Arnór Pétursson með barnabörnum sinum,
Björgvini Viktori Þórðarsyni og Arnóri Inga Þórssyni, við afhendingu stóra vinn-
ingsins í ferðaáskriftargetraun DV. DV-mynd ÞÖK
Allt í veiðiferðina
Full búð af flugum, spúnum og beitu.
_________Góða helgi!_______
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751