Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Blaðsíða 38
54
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994
Afmæli
Ólafur Böðvar Erlingsson
Ólafur Böövar Erlingsson pípulagn-
ingameistari, Heiðabakka3, Kefla-
vík, verður sextugur á mánudaginn.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann stundaði nám í pípu-
lögn hjá Jóhanni Pálssyni í Reykja-
vík 1954-57, stundaði nám við Iðn-
skólann í Reykjavík, lauk sveins-
prófi í pípulögnum 1958 og öðlaðist
meistararéttindi í þeirri grein 1959.
Ólafur stundaði verslunarstörf í
Reykjavík 1948-50 og var sjómaður
1950-54. Hann fluttist í Sandgerði
1959 og var lögregluvarðstjóri þar
1959-65, var slökkviliðsstjóri þar í
fjögur ár og vatnsveitustjóri í Hafn-
arfirði í tvö ár. Þá starfrækti hann,
ásamt konu sinni, verslunina Óla-
búð í Sandgerði í nokkur ár en
lengst af hefur hann þó starfað sjálf-
stættviðiðnsína.
Ólafur gekkst fyrir stofnun Verk-
takafélags pípulagningameistara hf.
og var formaður þess frá byijun,
átti frumkvæði að stofnun Suður-
nesjaverktaka hf. og sat í stjóm
þeirra frá byrjun og hefur verið
formaður Meistarafélags bygginga-
manna Suðumesja sl. tuttugu ár og
framkvæmdastjórifélagsins. Þá
hefur Ólafur setið í stjóm Meistara-
sambands byggingamanna og
Landssambands iðnaðarmanna.
Ólafur starfaði lengi með björgun-
arsveitinni Sigurvon í Sandgerði,
með Lionsklúbbi Sandgerðis, var
formaður hans um skeið og stofnaði
þá Lionsklúbbinn Keili í Vogum og á
Vatnsleysuströnd, starfaði með leikfé-
laginu í Sandgerði, lék með Lúðra-
sveit Sandgerðis í nokkur ár og hefur
sungið með Karlakór Keflavíkur og
Kirkj ukór Keflavíkur.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 12.5.1956 Sigríði
Margréti Rósinkarsdóttur, f. 14.11.
1937, myndlistarkonu. Hún er dóttir
Rósinkars Kolbeinssonar, b. á Snæ-
flöllum á Snæflallaströnd, og k.h.,
Jakobínu Gísladóttur húsfreyju.
Böm ólafs og Sigríðar em Jakob-
ína Ingunn, f. 16.1.1956, hagfræðing-
ur og húsmóðir í Reykjavík og á hún
þijú böm en sambýlismaður henn-
ar er Pétur Gunnlaugsson verk-
fræðingur; Ólafía Kristný, f. 17.11.
1956, húsmóðir í Reykjavík, gift Eð-
varð T. Jónssyni fréttamanni og
starfsmanni Pósts og síma og eiga
þau sex böm en fimm þeirra eru á
lífi; Gísli Ólafsson, f. 25.3.1958, pípu-
lagningameistari í Keflavík, kvænt-
ur Jóhönnu Harðardóttur húsmóð-
ur og eiga þau þijú börn; Rósa, f.
6.3.1963, húsmóðir og skrifstofu-
tæknir og á hún flögur börn en sam-
býlismaður hennar er Pétur Sverr-
isson búfræðingur, fiskeldisfræð-
ingur og sjómaður; Erla, f. 31.10.
1964, sjúkraþjálfari og þroskaþjálf-
ari í Kópavogi, gift Pétri Einarssyni
vélaiðnfræðingi og eiga þau eitt
bam.
Hálíbræður Ólafs, sammæðra, eru
Svavar Magnússon, ketil- og plötu-
smiður í Svíþjóö; Halldór Magnús-
son, framkvæmdastjóri í Keflavík;
Magnús Magnússon, starfsmaður
við vörulager John Lindsey í
Reykjavík.
Hálfsystkini Ólafs, samfeðra, em
Örn Erlingsson, lengst af skipstjóri
og útgerðarmaður í Keflavík; Steinn
Erlingsson, starfsmaður Hitaveitu
Suðurnesja, búsettur í Keflavík;
Þorsteinn Erlingsson, skipstjóri og
útgerðarmaður í Keflavík; Steinunn
Erlingsdóttir, ritari við Sjúkrahús
Keflavíkur; Pálína, húsmóðir í Sví-
þjóð og starfsmaður við Fríhöfnina
á Keflavíkurflugvelli á sumrin; Stef-
anía, starfsmaður Pósts og síma,
búsett í Hafnarfirði.
Ólafur Böðvar Erlingsson.
Foreldrar Ólafs: Erlingur Eyland
Davíðsson, f. 8.3.1916, nú látinn, sjó-
maður og bifreiðarstjóri í Reykjavík
og síðar í Keflavík, og Ingunn Böð-
varsdóttir, f. 10.7.1917, nú látin,
húsmóðir.
Ólafur og Sigríður verða að heim-
an á afmælisdaginn.
Páll Ámason
Páll Ámason, Grenibergi 9, Hafnar-
firði, er fimmtugur á laugardaginn.
Starfsferill
Páll fæddist í Hafnarfirði og ólst
þar upp. Hann stundaði iönnám í
Vélsmiðju Hafnarflarðar, lauk
sveinsprófl í vélvirkjun frá Iðnskóla
Hafnarflarðar 1964, prófi frá undir-
búningsdeild Tækniskólans á Akur-
eyri 1965 og kennaraprófi frá KÍ
1972.
Páll hefur starfað víða um land,
ýmist sem vélvirki eða kennari.
Hann kenndi um tíma við Flens-
borgarskólann í Hafnarfirði, við
Bama- og unglingaskólana á
Kirkjubæjarklaustri og var kennari
og síðar skólastjóri við Laugargerð-
isskóla á Snæfellsnesi.
Þá starfaði Páll um skeið hjá
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins,
var í fimm ár verksmiðjustjóri hjá
Lýsi og mjöli hf. i Hafnarfirði en er
nú framleiðslusflóri hjá Sólningu
hf. í Kópavogi.
Páll hefur starfað mikið á vegum
Alþýðubandalagsins, sat m.a. í tíu
ár í stjórn verkamannabústaða í
Hafnarfirði og er nú formaður Al-
þýðubandalagsins í Hafnarfirði.
Fjölskylda
Páll er kvæntur Bryndísi Skúla-
dóttur, f. 10.3.1943, sérkennara við
Setbergsskóla. Hún er dóttir Skúla
Steinssonar, fyrrv. forstjóra, sem
lést 1980, og Gyðu Brynjólfsdóttur
húsmóður.
Börn Páls og Bryndísar em Árni
Pálsson, f. 19.7.1966, bílsflóri hjá
Kynnisferðum en sonur hans og
Rögnu Ragnarsdóttur er Ragnar
Adólf Árnason; Gyða Pálsdóttir, f.
4.1.1971, nemi; Svanur Pálsson, f.
14.5.1974, nemi.
Systkini Páls em Ásgeir Árnason,
kennari í Keflvík, kvæntur Sigríði
Jóhannesdóttur kennara og eiga
þau flögur börn; Kristín Árnadóttir,
hjúkmnarfræðingur í Reykjavík,
gift Einari Sindrasyni, yfirlækni á
Heymar- og talmeinastöð íslands og
eiga þau þijú böm; Björgúlfur Kláus
Ámason, sem er látinn, verktaki í
Bandaríkjunum, var kvæntur Ann
Páll Árnason.
Dabney Árnason og em böm þeirra
tvö; Hólmfríður Árnadóttir, tal-
kennari í Hafnarfirði, gift Friðriki
Rúnari Guðmundssyni, talmeina-
fræðingi og deildarstjóra á Heyrnar-
og talmeinastöð íslands pg eiga þau
þrjú böm; Anna Pálína Árnadóttir,
söngkona og kennari í Hafnarfirði,
gift Aðalsteini Ásbergi Sigurðssyni
rithöfundi og eiga þau tvö börn.
Foreldrar Páls: Árni Gíslason,
sem lést 1987, forstjóri í Hafnarfirði,
og Ester Kláusdóttir, starfsmaður
hjá Hafnarborg.
Páll og Bryndís verða heima og
taka á móti vinum og ættingjum að
heimili sínu eftir kl. 20.00 á morgun.
Karl Jeppesen
Karl Jeppesen, forstöðumaður
kennsluvarps Háskóla íslands, til
heimilis að Laugateigi 9, Reykjavík,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Karl fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Laugarneshverfinu. Hann
lauk kennaraprófi frá KÍ1965 og
meistaragráðu í kennslufræöi frá
University of Cardiff í Wales 1989.
Karl var kennari við grunnskóla
Reykjavíkur 1965-66 og 1970-79, dag-
skrárgerðarmaður hjá RÚV - sjón-
varpinu 1966-70 og 1980-81, var
kennari við Nordisk Folkehögskola
í Biskops Amö í Svíþjóð 1979-80,
deildarsfióri fræðslumyndadeildar
hjá Námsgagnastofnun frá 1981 en
er nú forstöðumaður kennsluvarps
HÍ frá síðustu áramótum. Hann hef-
ur verið stundakennari við KHI frá
1984 og við HÍ frá 1985 og hefur fram-
leitt myndbandsþætti fyrir Myndbæ
hf., íslenska myndritun og Fræðslu-
varpið.
Karl sat í sflóm knattspymudeild-
ar Vals 1968-70, í Æskulýðsráði
Reylflavíkur 1970-74, í sflóm Nor-
ræna félagsins á íslandi 1975-87, í
stjóm Norræna félagsins í Reykja-
vík 1989-91. Árið 1988 kom út eftir
Karl kennslubók í myndbandagerð:
Að segja frá með myndum.
Fjölskylda
Karl kvæntist 22.8.1970 Sigríði
Hlíðar, f. 5.11.1950, framhaldsskóla-
kennara. Hún er dóttir Gunnars
Hlíðar, símstöðvarsflóra í Borgar-
nesi, og k.h., Ingunnar Hlíðar hjúkr-
unarfræðings en þau eru bæði látin.
Dætur Karls og Sigríðar eru Ing-
unn Þóra, f. 30.4.1973, nemi, en unn-
usti hennar er Kieran Cahill, verk-
fræðingur hjá Ford-verksmiðjunum
í London; Anna Kristín, f. 13.10.1979,
nemi.
Systir Karls er Anna, f. 4.5.1939,
æfingakennari við KHÍ, gift Grími
Leifssyni rafvirkjameistara og eiga
þauþrjúböm.
Foreldrar Karls: Max Jeppesen, f.
10.10.1907, d. 6.5.1983, húsgagna-
smiður í Reykjavík, og Sigríður
Jeppesen, f. 27.10.1915, húsmóðir.
Ætt
Max var sonur Georgs Christians
Jeppesens, bakarameistara í
Reykj avík, af dönskum ættum, og
Önnu Benediktsdóttur. Móðir Önnu
var Sigríöur Pálsdóttir, b. á Blika-
stöðum, Ólafssonar, b. á Blikastöð-
um, Guðmundssonar, litara í Leir-
Karl Jeppesen.
vogstimgu, Sæmundssonar.
Meðal systkina Sigríðar er Þórður
Guðmundsson í Hvannbergsbræð-
rum, fyrrv. sundkappi og formaður
Ægis. Sigríður er dóttir Guðmund-
ar, verkamanns í Reykjavík, Sæ-
mundssonar, b. á írafelli í Kjós,
Jónssonar. Móðir Guömundar var
Guðfinna Jónsdóttir.
Móðir Sigríðar var Kristín Þórðar-
dóttir, b. í Kalastaðakoti á Hval-
flarðarströnd, Þorvarðarsonar, og
k.h., Bergþóru Oddsdóttur.
Karl og Sigríður taka á móti gest-
um í Rafveituheimilinu í Elliðaár-
dalnum í dag frá kl. 17.00.
Til hamingju með afmælið 30. júlí
90 ára
ara
Sveinn Tómasson,
Laugargötu 3, Akureyri.
Bjamfriður Sigurjónsdóttir,
Hjallaseli 55, Reykjavík.
Unnur Sigurðardóttir,
Hagamel 31, Reykjavík.
Kristín Kristbjörnsdóttir,
Vesturvangi 48, Hafnarfirði.
Þorvaldur Dan Petersen,
Austurgötu 26, Hafnarfirði.
Axel Þorberg Ingvarsson,
Heiðarholti 7, Keflavík.
Þórey Sigurbjörnsdóttir,
Unufelli 46, Reykjavík.
HelgiJónsson,
Lónabraut 7, Vopnaflarðarhreppi.
40ára
Gunnlaugur Jónsson,
fyrrv. starfs-
maðurhjáSól
hf„
Bólstaöarhlíð
13, Reykjavík.
Gunnlaugur
tekurámóti
gestumáaf-
mælisdaginn í
Risinuá Hverfisgötu 105 milli kl.
20.00 og 23.30.
60 ára
Vilheimína Sofia Sveinsdóttir,
Blöndubakka 16, Reykjavík.
Bragi Friðfinnsson,
Bugðulæk l.Reykjavík.
Ólöf Anna Ólafsdóttir,
Hafnarstræti 1, Flateyrarhreppi.
Sigurjón Rúnar Baldursson,
Brautarholti 22, Reykjavík.
Jóhann Þórir Jóhannsson,
Austurgöíu 3, Hafnarfirði.
HaUdór Guðjónsson,
Lækjargötu 10, Hafnarfirði,
Dóra Sigurðardóttir,
Skildinganesi 60, Reykjavík.
Inga Hrönn Sigurðardóttir,
Álftarima 7, Selfossi.
Herdis Á. Sæmundardóttir,
Jöklatúni 24, Sauöárkróki.
Heigi Ómar Bragason,
Smárahvammi lc, Fellahreppi.
Friðrik Ingvar Alfreðsson,
Boðaslóð 7, Vestmannaeyjum.
Hj ördís Jónsdóttir Ström,
Fífuseli 34, Reykjavik.
Agnar Hannesson,
Dalseli 8, Reykjavík.
Ingvar Benediktsson
Ingvar Benediktsson, sjómaður,
verkamaður og bóndi, Hlíðarvegi 16,
Bolungarvík, verður áttatíu og
fimm ára á laugardaginn.
Starfsferill
Ingvar fæddist í Rekavík bak Höfn
í Sléttuhreppi en ólst upp í Tungu í
Fljótavík. Hann naut tveggja ára
skólagöngu en byijaði ungur til sjós.
Ingvar reri í fimm ár frá Sæbóli og
önnur fimm frá Látrum, var síðan
bóndi í Stakkadal, á Látrum í Sléttu-
hreppi, að Görðum í átta ár og í
Selabóli í Flateyrarhreppi í sex ár.
Ingvar flutti síðan til Flateyrar þar
sem hann átti heima í flórtán ár.
Þar stundaði hann ýmis verka-
mannastörf. Síðustu fimmtán árin
hefur Ingvar svo átt heima í Bolung-
arvík og sér hann enn um sig að
ölluleytisjálfur.
Fjölskylda
Ingvar kvæntist 31.3.1947 á Látr-
um í Aöalvík, Maríu Guðmunds-
dóttur, f. 17.3.1903, d. 22.4.1989,
húsfreyju. Hún var dóttir Guð-
mundar Pálmasonar, b. og vitavarð-
ar í Aðalvík bak Látur, og Ketilríðar
Þorkelsdóttur húsfreyju.
Ingvar Benediktsson.
Kjörsonur Ingvars er Ingi Karl
Ingvarsson, f. 16.9.1944, fiskvinnslu
maður, kvæntur Ragnheiði Jóns-
dóttur kaupmanni og eiga þau sam-
an tvö böm, Ingvar Karl og Maríu
Sigurrós, auk þess sem stjúpbörn
Inga og börn Ragnheiðar frá fyrra
hjónabandi eru þrjú, Rannveig,
RakelogJón.
Foreldrar Ingvars voru Benedikt
Ámason, f. 22.7.1877, d. 30.5.1938,
bóndi í Tungu í Fljótavík, og Sigur-
rós Bjamadóttir, f. 25.9.1877, d. 2.11.
1937, húsfreyja.