Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Blaðsíða 17
%*a®íi
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ1994
17
Fréttir
Átak gegn unglingadrykkju:
Drykkja unglinga
er þjóðarósómi
- segir framkvæmdastjóri átaksins
„Markmið okkar er að koma því til
fullorðna fólksins að okkur beri að
stöðva þessa vitleysu sem unglinga-
drykkja er,“ segir Valdimar Jóhann-
esson, framkvæmdastjóri átaksins
„stöðvum unglingadrykkju".
Vigdís Finnbogadóttir er vemdari
átaksins en Vímulaus æska og
Fræðslumiðstöð í fíknivörnum áttu
frumkvæðiö að setja það í gang. í
kringum 80 aðilar standa að átakinu.
Þar er skorað á foreldra að fara með
börnum sínum um verslunarmanna-
helgina en hleypa þeim ekki einum
á útihátíðir. Reynslan hefur sýnt að
mikil drykkja meðal ungmenna hef-
ur loðað við útihátíðirnar þó að með-
ferð og neysla áfengis sé stranglega
bönnuð. Ungmennum yngri en 16 ára
er óheimill aðgangur að útihátíðum
nema í fylgd með fullorðnum. Átakið
skorar á mótshaldara að virða þessar
reglur.
„Við vekjum athygli á þeirri hættu
sem bömunum er búin á hátíðunum.
Við getum bara skorað á foreldra að
fara með börnum sínum, við getum
ekki sett þau í bílinn. Hátíðin á Akur-
eyri vinnur undir okkar slagorði og
í Vestmannaeyjum hafa mótshaldar-
ar fallist í einu og öllu á okkar sjón-
armið. Við erum ekki með endanleg
SVARTISVANURINN
Laugavegi 118
Nætursala um helgar
/ideotilboð
Ein ný spóla og
a önnur eldri, 1 'A
t| I kók og Maarud
j| snakk
kr. 500
svör ennþá við því hvernig við getum
náð markmiðum okkar en við höld-
um áfram í haust,“ segir Valdimar.
Að sögn hans er verslunarmanna-
helgin ekki eina helgin á árinu sem
stuðlar að unglingadrykkju því hætt-
an sé sérstaklega mikil á haustin
þegar skólarnir séu að byrja.
„Þetta er náttúrlega viðvarandi
ástand um allar helgar og ég tel
ástandið í miðbæ Reykjavíkur þann-
ig að við eigum að skammast okkar
fyrir það. Þessi unglingadrykkja er
þjóðarósómi. Mér fmnst mikilvægt
að börnin komist óskemmd yfir
þennan viðkvæma aldur þannig að
þau geti sjálf ákveðið hvort þau vilja
drekka eða ekki þegar þau eru orðin
nógu þroskuð til þess en leiðist ekki
út í það með félögunum," segir Valdi-
mar.
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1984-1.fl. 01.08.94-01.02.94 kr. 66.678,20
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júlí 1994.
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
Jón Hallgrímsson, 17 ára, fær afhent
einkaflugmannsskírteini sitt.
DV-mynd JAK
17áraflugmaður:
Er með brjál-
aða f lugdellu
„Ég er mjög ánægður og mér finnst
þetta alveg frábært. Ég er einn af
þeim sem eru með brjálaða flug-
dellu,“ segir Jón Hallgrímsson, 17
ára einkaflugmaður sem tók við skír-
teini á föstudag.
Að sögn Hjartar Haraldssonar,
flugkennara hjá flugskólanum Flug-
mennt, þar sem Jón lærði að fljúga,
eru alltaf einhverjir strákar spenntir
að klára einkaflugmannsprófið þeg-
ar þeir hafa aldur til. Lágmarksaldur
til einkaflugmannsprófs er einmitt
17 ár.
„Ég er með þeim yngstu til að taka
einkaflugmannsprófið en ég er búinn
að taka 74 tíma. Ég byrjaði á þessu
þegar ég var 15 ára í Bandaríkjunum
en fékk ekki að taka prófið fyrr en
núna. Ég er ákveðinn í að taka næst
atvinnuflugmannspróf í Bandaríkj-
unum. Á íslandi fær maður ekki að
byrja í atvinnuflugmannsprófmu
fyrr en maður er kominn með stúd-
entspróf," segir Jón.
Nq snælda meO vönduöu öarnaefni
HraHHar úr Hamrashóla sijngja:
I Öxarviðána |
I Sólskin um mýrar og móa I
I Voriðgóðagrœntogblýtt 1
I Núersumar |
I Viðgöngum svo léttir ílundu
Frjálsteríjjallasal I
Vorlag
Ó blessuð vertu sumarsól I
1 Krummavísur 1
Johann SijjurOarson leiHari
■ les þjoösögumar af
Gilitrutt
karlsdœtrunum þremur
Helgu karlsdóttur
Gípu
sálinni hans Jóns míns
karlssyni, Litlum,
Trítli ogfuglunum
I
I
I
I
I
i
Þúfœrð hana í nœstu hljómplötuverslun,
á bensínstöðvum Esso og víðar
S-K-l-F-A-N
KRINGLUNNI SÍMI: 600930
STÓRVERSLUN LAUGAVEGI 26 SÍMI: 600926
LAUGAVEGI 96 SÍMI: 600934