Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994
Erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Joanna Trotlope:
A Spanish Lover.
2. Roddy Doyle:
Paddy Clarke Ha Ha Ha.
3. Patricia D. Cornwell:
Cruel and Unusual.
4. Tom Clancy:
Without Remorse.
5. Sebastian Faulks:
Birdsong.
6. Wilbur Smith:
River God.
7. John Grisham:
The Client.
8. Jilly Cooper:
The Man Who Made Hus-
bands Jealous.
8. Ken Follett:
A Dangerous Fortune.
10. Sue Townsend:
Adrian Mole: The Wilder-
ness Years.
Rit almenns eðlis:
1. Jung Chang:
Wild Swans.
2. J. McCarthy & J. Morrell:
Some Other Rainbow.
3. W.H. Auden:
Tell Me the Truth about Love.
4. Alan Clark:
Diaries.
5. Bill Bryson:
Neither here nor there.
6. Robert Calasso:
The Marriage of Cadmus
and Harmony.
7. Russetl Davis:
The Kenneth Willlams
Diaries.
8. Brian Keenan:
An Evil Cradling.
9. Bob Monkhouse:
Crying with Laughter.
10. Brian Johnston;
More Views from the
Boundary.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Peter Heeg:
Froken Smíllas
fornemmelse for sne.
2. Dorothy L. Sayers:
Peter Wimsey i Oxford.
3. Alice Walker:
Andetemplet.
4. Troels Klovedal:
Oerne under vinden.
6. Dan Turóll:
Vrangede bílleder.
6. Peter Hoeg:
Fortællinger om natten.
7. Bret Easton Ellis:
Amerícan Psycho.
(Byggt é Politiken Sendsg)
Tom Ripley og
O.J. Simpson
Patricia Highsmith er tvímælalaust
einn kunnasti núlifandi glæpasagna-
höfundur Bandaríkjanna. Sögur
hennar eru í senn óvenjulegar,
spennandi og vel skrifaðar.
Highsmith fæddist í Forth Worth í
Texas árið 1921. Hún stóð á þrítugu
þegar fyrsta skáldsaga hennar kom
út. Sú heitir Strangers on a Train
(1951). Þar segir frá tveimur mönnum
sem hittast fyrir tilviijun um borð í
jámbrautarlest og ákveða að fremja
fullkomið morð hvor fyrir annan.
Snilhngurinn Aifred Hitchcock gerði
frábæra kvikmynd eftir þessari
mögnuöu sögu.
Frægasta sögupersóna Highsmiths
er hins vegar Tom Ripley, marg-
slunginn glæpamaður sem fremur
morð. Um þennan kappa hefur hún
samiö röð skáldsagna.
Fylgistmeð
Simpsonmálinu
Að undanfornu hefur Patricia
Highsmith hins vegar fylgst með og
ritað um raunverulegt morð. Þetta
er drápið á eiginkonu bandarísku
íþróttahetjunnar O.J. Simpson og
elskhuga hennar en Simpson var
handtekinn fyrir morðin. Fundist
hafa fjöldamörg ummerki sem benda
til þess aö Simpson sé sekur. Þaö
virðist hins vegar lítið hafa dregið
úr vinsældum hans meðal banda-
rísks almennings og hann neitar sekt
sinni.
Þýska tímaritið Der Spiegel hefur
birt greinar eftir Highsmith um
Simpsonmálið og um leið viðtal við
höfundinn. Gluggum MtUlega í það:
Bandariska skáldkonan Patricia
Highsmith.
Umsjón:
Elías Snæland Jónsson
- Hvers vegna tekur þú upp á því
að skrifa um raunverulegan glæp,
þ.e. Simpsonmáhð?
„Þetta mál vakti athygli mína
vegna þess að ég hef aldrei áður
kynnst því að maður, sem virðist
sekur um hryllilegan glæp, skuli
samtímis njóta mikilla vinsælda og
virðingar meðal þjóðarinnar."
- Söguhetja þín, Tom Ripley, er
morðingi sem stundar garð sinn og
ketti - og næst aldrei. Hvernig hefði
hann hagað sér við þær aðstæður
sem Simpson lenti í?
„Ripley hefði aldrei skihð eftir sig
shkan fjölda vísbendinga. Ripley hef-
ur ahtaf fullkomna stjórn á málun-
um.“
- Meira en eitt þúsund bandarísk
hjónabönd enda á hverju ári með því
að eiginmaður myrðir konu sína. Fer
betur fyrir konum í heimi bókanna,
eða hvað?
„Alls ekki. Bækur Agötu Christie
eru uppfuhar af hkum kvenna. Og
að minnsta kosti tvær konur hafa
verið myrtar í mínum sögum.“
Sektarkennd
- Ritverk þín gefa í skyn að glæpur-
inn sé mikilvægari en lausn hans.
Og að þér sé sama um réttlæti.
„Ég get vel skihð þá túlkun. Þaö
sem ég hef áhuga á varðandi glæpa-
mann er hvort hann finnur til sektar-
kenndar eða ekki. Auðvitað er gleði-
legt að sjá réttlætinu fullnægt. En
alltof oft getur klókur lögfræðingur
látið sýkna sekan karl eða konu.“
- Söguhetjan þín, Ripley, virðist
fylgja kenningunni: ég myrði, þess
vegna er ég. Kanntu að meta fjar-
skyldan ættingja hans, kvennamorð-
ingjann Raskolnikov í sögu
Dostojevskís?
„Ég er mjög hrifin af Raskolnikov
og skáldsögunni Glæpur og refsing.
Að mínu áliti spurði Raskolnikov
sjálfan sig ekki að því hvort hann
ætti að drepa eða ekki. Hann spurði
sig hvort mannslíf hefðu misjafnt
ghdi eða væru öh jafnmikhs virði."
- Efast þú um það eins og Raskoln-
ikov?
„í augum laganna eru öh mannslíf
jafnverðmæt," svarar Highsmith.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Tom Clancy:
Without Remorse.
2. Míchael Crichton:
A Case of Need.
3. E. Annie Proulx.
The Shipping News.
4. John Grisham:
The Client.
5. John Le Carré:
The Night Manager.
6. Scott Turow:
Pleading Guilty.
7. Jeffrey Archer:
Honor Among Thieves.
8. Judith McNaught:
Perfect.
9. Cormac McCarthy;
All the Pretty Horses.
10. Carl Hiaasen:
Strip Tease.
11. Robert Ludlum:
The Scorpio lllusion.
12. Kevin J. Anderson:
Dark Apprentice.
13. Dominick Dunne:
A Season in Purgatory.
14. Anne Rivers Siddons:
Hill Towns.
15. Mary Higgins Clark:
l'll Be Seeing You.
Rit almenns eðlis:
1. Thomas Moore:
Care of the Soul.
2. Peter D, Kramer:
Listening to Prozac.
3. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
4. Bailey White:
Mama Makes up Her Mind.
5. Joan W. Anderson:
Where Angels Walk.
7. M. Hammer & J. Champy:
Reengineering the
Corporation.
8. Cornelius Ryan:
The Longest Day.
6. Witliam Shatner & C. Kreski:
Star Trek Memories.
9. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird
Sings.
10. Susanna Kaysen:
Girl. Interrupted.
11. LewisB. Puller Jr.:
Fortunate Son.
12. Benjamin Hoff:
The Tao of Pooh.
13. Peter Mayle:
A Year in Provence.
14. C. David Haymann:
A Woman Nemed Jackie.
15. Gail Sheehy:
The Silent Passage.
(8yggt á New York Tímes Book Review)
Karpað uni blóðhita
í dauðum risaeðliun
Sóru risaeðlur sig meira i ætt við spendýr en skriðdýr? Um það deila vís-
indamenn.
Vísindi
Fösturfíima
til sársauka
Efasemdir eru komnar upp um
þá útbreiddu skoðun að fóstur
geti ekki fundið fyrir sársauka
fyrr en meðgangan er komin vel
á leið.
Breskir vísindamenn hafa kom-
ist að því að þegar læknar stinga
í húð fóstra vegna blóögjafa gefa
þau frá sér streituhormóna, svip-
aða þeim sem börn og fullorðnir
gefa frá sér viö sársauka.
Vísindamennimir mældu
streituhormóna í fóstrum, sem
voru milli 20 og 34 vikna gömul,
og jókst magn þeirra eftir því sem
nálin var lengur i kviðarholinu.
Þeir telja að hægt sé að lina
streitu fóstranna með því að gefa
verkjastiUandi lyf fyrir blóðgjöf-
ina.
Rándýr með
kjöt á heilanum
Þörf rándýra til að vera sifellt
aö veiða og eta kjöt kemur til af
sérstöku taugabúnti í heila
þeírra. Vísindamenn í Bretlandi
hafa fundíð nokkrar sérstakar
taugar hjá rándýrum sem mynda
tengsl milli mænunnar og svæðis
mitt í heilanum. Og þaö er hér
sem sjón- og hreyfiskynjun um-
breytist í löngun til að veiða og
drepa bráðina.
Rándýr hafa fleirí og stærri
taugafrumur í þessum hluta
taugakerfisins en jurtaætur.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Risaeölurnar eru kannski löngu
útdauðar en því fer víösfjarri að þær
séu gleymdar og grafnar. Þær hafa
sjálfsagt aldrei verið jafnmikið í
sviðsljósinu og upp á síðkastið og nú
karpa menn um það hvort þær hafi
verið með heitt blóð eða kalt.
Steingervingafræðingurinn Reese
Barrick segir að ný greining á beini
úr týrannósárusi rex, stærstu og
ægilegustu risaeðlunni, gefi til
kynna að eðlutegund þessi hafi haft
mjög svo stöðugan líkamshita, ekki
bara milli dags og nætur heldur einn-
ig milli árstíða. Það þýði að skepnan
hljóti að hafa haft fremur hröð efna-
skipti. Samkvæmt því var týrannós-
árus rex þess vegna líkari spendýri
en skriðdýri.
Barrick og starfsbróðir hans, Will-
icim Showers, sem báðir starfa við
ríkisháskóla Norður-Karólínu í Ra-
leigh, skýrðu frá því fyrir tveimur
árum að greining þeirra á súrefnis-
samsetningu fosfats í nokkrum
gömlum risaeðlubeinum bentu til
þess að skepnumar þær hefðu verið
með heitt blóð. Þær rannsóknir voru
hins vegar gagnrýndar þar sem óljóst
var hvort beinfosfatið kynni að hafa
breyst á þeim árþúsundum sem bein-
in voru að steingervast.
En þeir Barrick og Showers eru
ekki af baki dottnir því í nýju hefti
tímaritsins Science segjast þeir hafa
komist aö svipuðum niðurstöðum
þegar þeir notuðu sömu greiningar-
aðferð við bein á vel varðveittum
týrannósárusi rex sem risaeðlufræð-
ingurinn Jack Homer fann árið 1989.
Týrannósárusinn er stærsta rán-
dýr sem nokkru sinni hefur ráfað um
á jörðinni, rúmlega átta metra hár.
Hann var með stutta framleggi en
stóra afturfætur og tennurnar voru
flugbeittar.
Vísindamennirnir segja að hin nýja
greining þeirra sýni ekki einasta að
munur á hitastigi beina úr mismun-
andi líkamspörtum risaeðlunnar
hafi verið innan við fjórar gráður á
selsíus heldur einnig að hitastigið
innan sama beinsins hafi lítið breyst
í gegnum tíðina.
Nýju vísbendingarnar kölluðu á
hörð viðbrögð innan steingervinga-
fræðinnar þar sem vísindamenn hafa
verið á öndverðum meiði um málið
frá því fyrst var hreyft við því fyrir
25 ámm.
Lífeðlisfræðingurinn Frank Palad-
ino við Purdue háskólann í Indiana
segir að risaeðlur haíi veriö meö
jafnheitt blóö af því að þær voru stór-
ar en ekki af því að efnaskiptin vom
hröð.
„Þær voru skriðdýr og ekkert ann-
að,“ segir Paladino í grein sem einnig
birtist í Science.
Kínverjar, Japanir og Kóreu-
menn em næmari fyrir bæði sjó-
og bílveiki en Vesturlandabúar.
Og orsakirnar eru erfðafræðiieg-
ar.
Það var fyrir algjöra tilviljun
að bandarískur vísindamaður
uppgötvaði þetta. Hann fékk Kín-
verja í heimsókn tU sín tU að læra
á búnað sem framkallar sjóveiki.
Kinverjinn fékk landa sína sem
tilraunadýr og þeir urðu næstum
allir sjóveikir. í tilraunum með
Evrópubúa varð aðeins tæpur
helmingurinn sjóveUmr.
í ljós kom að hormónið vaso-
pressin leikur þama stórt hlut-
verk en þaö eykst í blóði manna
eftír því sem þeir verða sjóveik-
ari. Aukningin meðal Asíubúa er
miklu meiri en meðal Vestur-
landamanna.
Ensím
breiðir út
æxli
Japanskir vísindamenn við há-
skólann í Kanazawa hafa uppgöt-
vað ensím sem þeir segja að séu
hugsanlega þess valdandi að æxli
breiðist út um likamann.
Uppgötvun þessl gæti orðið til
þess að auðvelda leitina að leið-
um tíl að koma í veg fyrir út-
breiðslu æxla um allan Ukamann,
að sögn tímaritsins Nature.
Ensím þessi virka á einhvem
hátt á efni sem er að finna á yfir-
borði æxla og fara æxlisfrumum-
ar þá í landvinninga.