Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1994, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1994
Fréttir
Rúta með 32 erlendum ferðamönnum valt á Vatnsskarði fyrir ofan Bólstaðarhlíðarbrekku:
Algert öngþveiti á slysstað
- ellefu erlendir ferðamenn fluttir á sjúkrahús á Blönduósi og Sauðárkróki
„Lögreglan á Akureyri hafði sam-
band viö okkur og ég var fyrstur á
staðinn en þaö liöu ekki nema nokkr-
ar mínútur þar til fyrsti sjúkrabíllinn
kom og svo komu þeir á 2-3 mínútna
fresti eftir þaö,“ sagði Hörður Rík-
harðsson, lögregluþjónn á Blöndu-
ósi, en hópferðabifreið á vegum
Ferðaskrifstofu íslands með 32 er-
lendum ferðamönnum, auk bDstjóra
og fararstjóra, valt út af veginum á
Vatnsskarði fyrir ofan Bólstaðarhlíð-
arbrekku í Skagafirði um ellefuleytið
á laugardagsmorgun.
„Það var múgur og margmenni á
slysstað, tvær fullar Norðurleiðar-
rútur að koma að norðan, u.þ.b. 20
fólksbílar að bíða eftir að komast í
gegn, rúmlega 30 manns í rútunni
sem valt og loks lögregla, læknar og
hjúkrunarfólk, eða hátt í 200 manns.
Þarna var engin aðstaða til eins né
neins, bæði var þarna brekka og veg-
urinn eins mjór og hann verður svo
það myndaðist þarna hálfgerð kaos
og öngþveiti," sagði Hörður.
Hann sagði að fararstjórar og bíl-
stjórar hefðu verið búnir að fmna þá
mest slösuðu og hlynna að þeim.
Þeir hafi síðan vísaö læknunum
þangað þegar þeir komu. AUs voru 5
sjúkrahúsinu á Sauðárkróki í gær
en rúmlega tvítug stúlka fylgdi móð-
ur sinni þangað þótt hún heíði sjálf
sloppið við meiðsli.
„Hinir farþegamir fóru beint niður
í Húnaver þar sem framkvæmd var
bráðabirgðagreining og síðan voru
þeir fluttir þaðan í forgangsröð.
Kristján Þorbergsson, yfirlögreglu-
þjónn á Blönduósi, var vettvangs-
stjóri þarna eftir að lögreglan kom á
staðinn en læknarnir stjórnuðu með-
ferð hinna slösuðu. AUs komu þarna
um fimm sjúkrabUar, 3-4 lögreglu-
bUar, sem gátu flutt fólk á börum,
og slökkviUðsbílar en þyrla Land-
helgisgæslunnar var einnig í við-
bragðsstöðu," sagði Hörður.
Aðspurður sagði Hörður að þetta
hefði Utið ansi Ula út. „Þarna var
mikill fjöldi og fólk var með hávaða
og læti, hlaupandi um og baðandi út
höndum. Þegar sjúkrabílarnir komu
varð svolítið öngþveiti, fólk var fyrir
og erfitt um vik að komast að þeim
slösuðu,“ sagði Hörður. Þjóövegur-
inn var lokaður í u.þ.b. klukkustund
eftir slysið og síðan var honum aftur
lokað í rúmar 2 klst. um kvöldið þeg-
ar verið var að ná rútunni upp.
manns fluttir á sjúkrahúsið á
Blönduósi og sex á sjúkrahúsið á
Sauöárkróki. Höfðu flestir þeirra
hlotið beinbrot, sprungur og mar en
enginn var lífshættulega slasaður.
Einn erlendu ferðamannanna út-
skrifaðist af sjúkrahúsinu á Blöndu-
ósi í gær og hinir útskrifast í dag eða
á morgun. Fjórir úrskrifuðust af
A slysstað örfáum minútum eftir að óhappið átti sér stað.
Einn feröamannanna sem slasaðist:
Hélt að annað
tilverustig
væri tekið við
ÞórhaDur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki;
„Þetta gerðist mjög snöggt og þeg-
ar ég rankaöi við mér innan um
glerbrotin og draslið var það fyrsta
sem kom í hugann hvort ferðin
væri á enda og annað tilverustig
tekíð við," sagði Elsa Rosi, mið-
aldra frönskukennari frá Flórens,
sem var ein þeirra sem lenti í slys-
inu við Bólstaðarhlíðarbrekkun?..
Elsa slapp með sprungur í tveimur
rífbeinum en maðurinn hennar, ft- Elsa Rosl þyklst heppln að hala
alski læknirinn Roberto Norfi, sloppið llfandi úr veltunni. Eigln-
slasaðist mest allra í slysinu. í hon- maður hennar slasaðist mest allra
um brotnuðu sjö ríibein, auk þess og verður rúmfastur næstu 1-2
sem hann hlauteymsii og skrámur vikurnar með sjö brotin rifbein.
um skrokkinn, m.a. í andliti. DV-mynd Þórhallur
Elsa var hress í gær og kvaö aö-
búnað og hjúkrun á sjúkrahúsi ferðast á íslandi en við eigum ör-
Sauðárkróks frábæra. Hinir slös- ugglega eftir að koma hingaö aftur
uðu voru ákaflega þakklátir og því viðhöfumsvolítiöséðafland-
Elsa sagði þá hafa veriö djúpt inu,“ sagði Elsa. Hún er ákveðin í
snortna þegar sóknarpresturinn, því að nota tímann þangað til mað-
séra Hjálraar Jónsson, heimsótti urinn hennar útskrifast, eftir
fólkið í gær og spjallaði við það. a.m.k. 10 daga, til að fara út í
„Jú, þetta hefur kannski pínulítið Drangey og horfa á miðnætursól-
breytt viðhorfum okkar til þess að ina.
Bílstjóri rútunnar sem valt:
Hef aldrei lent
í óhappiáður
- telurvegkantinnhafagefiðsig
„Þetta leit mjög illa út þegar rútan
stöðvaðist, fólk bara lá þarna á víð
og dreif um bílinn. Ég rauk út og
byrjaði að hjálpa því og taugaáfalhð
kom ekki fyrr en eftir á,“ sagði Borg-
ar Þór Guðjónsson, bílstjóri hóp-
ferðabílsins sem valt, en sjálfur slapp
hann með skrámur og mar.
Aðspurður hvemig fólk hefði
brugðist við, þegar ljóst var hvert
stefndi, sagðist Borgar ekki hafa
heyrt mikið frá því. „Æth fólk verði
ekki bara stjarft þegar eitthvað
svona kemur fyrir. Sjálfur geri ég
mér ekki grein fyrir því hvemig ég
brást viö, maöur bara reynir að
bjarga því sem hægt er. Ég reyndi
að koma bílnum sem beinast niður.
Þaö var stórgrýti bæði fyrir aftan og
framan staðinn þar sem ég fór fram-
af svo það hefði getað farið verr.“
Hann sagðist ekki hafa verið í
rónni fyrr en hann hefði fengið frétt-
ir af hðan fólksins hjá læknunum og
var þakklátur fyrir að enginn hafði
kastast út í veltunni og orðið undir
bílnum. „Maður er náttúrlega ekki
búinn að jafna sig ennþá. Þetta fór
þó töluvert betur en á horfðist. Ég
hef sem betur fer aldrei lent í óhappi
áður þótt ég sé búinn aö keyra meira
og minna frá árinu 1976 og oft farið
þarna um áður. Þetta er það sem
maöur er ahtaf hræddastur viö á
þessum vegum okkar, að mæta
svona stórum bílum akkúrat á þess-
um stað, og reyndar á fleirum, og að
vegkanturinn fari eins og gerðist
þarna. Ég mætti rútunni í brekkunni
og við vorum báðir á einhverri ferð.
Þetta var tæpt hjá okkur báðum en
svo gaf kanturinn sig hreinlega."
Hann sagði að nýr vegur hefði fyr-
ir löngu átt að vera búinn að leysa
þann gamla af hólmi en nýi vegurinn
verður tekinn í notkun eftir hálfan
mánuð. Borgar kom ekki í bæinn
fyrr en klukkan fimm um morgun-
inn þar sem hann hjálpaði til við að
ná 'rútunni upp en hún er ekki tahn
ónýt. Aðspurður sagðist hann halda
að hann færi að keyra aftur þegar
hann væri búinn að jafna sig en nýr
bílstjóri ekur nú um með þann hluta
hópsins sem treysti sér til að halda
ferðinni áfram.
Verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins:
Mannleg mistök ollu slysinu
- engin merki þess að vegkanturinn hefði gefið sig
„Það er ekki um það að ræða að
vegkantur hafi gefið sig heldur fer
maöurinn bara svo utarlega aö hann
fer út í fláa, út fyrir vegbrún. Ég
veit ekki af hverju það hefur stafað,
hvort hinn hefur keyrt svona ógæti-
lega á móti honum eöa hvað en það
voru engin merki þess að vegkantur-
inn hefði gefið sig,“ sagði Þormóður
Pétursson, verkstjóri Vegagerðar
ríkisins á Blönduósi, sem kannaði
aðstæður á slysstað.
„Þar sem slysið gerist er komið upp
úr brekkunum og vegurinn er flatur
og sléttur, engin brekka. Hins vegar
var hár, brattur kantur þama og á
svona gömlum vegi, þar sem svona
stór bíll er kominn út fyrir öxlina
með hjól, hlýtur iha að fara. Vegur-
inn var blautur, það hefur rignt
þama annað slagið en þetta er harð-
ur og sléttur vegur svo það er ekki
hægt að kenna því um. Ég held að
þarna hafi bara orðið mannleg mis-
tök. Hann hefur ekki varað sig á því
hvað hann var kominn utarlega sem
sést á fóranum þegar hann er kom-
inn 4 tommur ofan í kantinn áður
en hann veltur,“ sagði Þormóður.
Aðspurður hvort aðstæöur hefðu
að einhverju leyti verið óvanalegar
á þessum staö taldi Þormóður svo
ekki vera. „Auk þess sem þetta er
þjóðvegur eitt og þarna fara á annað
þúsund bílar um á dag svo þetta eru
ekki einu stóru bílamir sem hafa
mæst á þessum stað,“ sagði Þormóö-
ur. Nýr vegur, neðar í brekkunni,
verður tekinn 1 notkun eftir hálfan
mánuð og kemur hann til með að
leysa þann gamla af hólmi.
Stuttar fréttir
Innistaðanrýrnar
Tékka- og almennir sparisjóðs-
reikningar bera neikvæða raun-
'ávöxtun. Fyrir eigendurna þýöir
þetta að peningar rýma inni á
reikningunum. Sjónvarpið
- grcindi frá þessu.
Stefntá
þingmennsku
Markús Öm Antonsson, fyrr-
um borgarstjóri, Katrín
Fjeldsted, fyrmm borgarfulltnii,
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarfulltrúi íhuga að taka þátt
í prófkjöri Sjálfstæöisflokksins
vegna komandi alþingiskosn-
inga. Mbl. greindi frá þessu.
Átakskilarárangri
Bæjarstjórinn á Siglufirði telur
að átakið „ísland, sæKjum það
heim" hafi skiiað miklum ár-
angri. Sjónvarpið hafði þetta eftir
honum.
Nýrfrystitogari
Nýr frystitogari kom tii lands-
ins um helgina. Skipið ber nafnið
Pétur Jónsson RE og er sérútbúið
fyrir rækjuveiðar. Skv. Mbl. er
kaupverðið um 700 milljónir.
Lægsta tilboðitekið
Stjóm hafnarinnar í Keflavík,
Njarðvíkum og Höfnum hefur
ákveðið að taka tilboði Hedm hf.
vegna kaupa á stálþili sem koma
á fyrir í Helguvíkurhöfn. Skv.
Mbl. hljóöar tilboðið upp á tæpar
43 milijónir.
Nesskip en
ekki Festing
Mishermt var í frétt DV á fóstudag-
inn að Festing, dótturfélag Sjóvá-
Almennra, væri einn kaupenda fyr-
irtækisins Smjörlíki/Sól.
Hiö rétta er að Nesskip kaupir fyr-
irtækið ásamt Páli Kr. Pálssyni, Jóni
SchevingThorsteinssyni, Þróunarfé
lagi íslands, Hans Petersen hf., og
hjónunum Geir Geirssyni og Hjördísi
Gissurardóttur.