Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1994, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1994, Blaðsíða 18
26 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1994 Sviðsljós Claudia Schiffer ásamt unnusta sinum, David Copperfield, sem m.a. er þekktur fyrir það að láta Frelsisstyttuna hreinlega gufa upp fyrir framan nokkur þúsund áhorfendur. Claudia Schiffer: Þögul eins og gröfin Fyrirsætan Claudia SchifFer hefur undanfama mánuði verið með hin- um margslungna galdramanni David Copperfield að nafni. Um daginn gerðu Claudia og David samning þar sem Claudia lofar að segja engum frá brögðunum á bak við galdrana hans ella þarf hún að borga háar fjárupphæðir. Ástæðan fyrir þessari varkárni Davids er sú að nýlega kom út bók gegn hans vilja þar sem brögðin á bak við galdrana eru útlistuð. „Ég lifi á göldrunum mínum og ef sagt er frá hvernig þeir eru gerðir er nokkuð ljóst hvað verður um mig,“ sagði David. eykur orku og úthald Sala á þessu vinsæla fæðubótarefni hefur nú verid leyfð á íslandi Fæst í apótekum KEMIKALÍA TÓMSTUNDIR /////////////////////////////// Aukablað TÓMSTUNDIR OG ÚTIVIST Miðvikudaginn 10. ágúst nk. mun aukablað um tómstundir og útivist fylgja DV. í blaðinu verður m.a. fjallað um: ★ Reykjavíkurmaraþon 21. ágúst. Viðtöl við keppendur, kort af hlaupaleið, upplýsinga- töflur og fl. ★ Tómstundir fyrir alla aldurshópa. Sund, hjól- reiðar, gönguferðir, golf og fl. Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði vinsamlega hafi samband við Björk Brynjólfsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 63 27 23. Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur aug- lýsinga er fimmtudagurinn 4. ágúst. ATH.I Bréfasími okkar er 63 27 27. Gull- parið Danska fýrirsætan Helena Christensen og unnusti hennar, INXS meðlimurinn Michaeí Hutchence, hafa tekið upp óvenjulegan hárstíl. Stíllinn felst í þvi aö láta gullnar strípur í hárið og hefur þetta vak- ið mikla athygli enda mjög óvenjulegur háralitur. „Framvegis munum viö bara mala gull og ekkert annaö,“ sagði Michael Hutchence. Helena og Michael með hinar guitnu stripur. Hinn harðgerði einstaklingur, sem birtist manni á hvíta tjaldinu, er einung- is pjattrófa þegar hulunni er svipt frá. Sylvester Stallone: Einnota maður Sylvester Stallone er vanur að leika harðgerða menn á hvíta tjald- inu en þegar út í alvöruna er komið er hann mjúkari en flestir aðrir. StaUone getur t.d. ekki verið í sokk- um og nærfatnaði oftar en einu sinni. Eftir notkun fleygir hann öllu ein- faldlega í burtu og labbar síðan út í næstu búð til þess að kaupa meira. „Þetta er bara eitthvað sem ég hef vanið mig á. Eflaust liggja ræturnar þó í. fátæktinni í fortíö minni því þá þráði ég ríkidæmi og nú hef ég það og vil njóta þess,“ sagði Stallone. En Stallone er ekki einn á báti hvað þetta varðar því leikarinn Andrew Dice Clay virðist einnig hafa svipaö- an kæk. Andrew viðurkennir hins vegar að um hreint pjatt sé að ræða og að hann eigi í mestu vandræðum með þetta. Menning_____________________ Ljótt er ef satt væri Pappírskiljan um hlutskipti Færeyja er fróðleg lesn- ing. Höfundur er kunnur fyrir fréttir og fréttaskýring- ar frá Færeyjum í útvarpi, og verður að ætla að hann sé kunnugur málefnum eyjanna. Bókin er byggð á viötölum við málsmetandi menn í Færeyjum, auk sjón- varpsþáttaraðar sem færeyska sjónvarpið íét gera. í bókinni er að finna margháttaðan fróðleik um Færeyj- ar, land og þjóð. Megintilgangur bókarinnar er þó að skýra þau efna- hagslegu vandræði sem Færeyingar hafa ratað í. Höf- undur lýsir og gerir grein fyrir þeirri meginkenningu, sem margir hafa orðið sammála um, að styrkjakerfið danska ásamt andvaraleysi þess vegna sé höfuðorsök þess hversu illa er komið. í þessari skýringu felst vafa- lítið mikill sannleikskjami. Lýsing höfundar á fram- göngu færeyskra stjórnmálamanna er ófögur. Hreppa- póhtík, byggðastefna og eiginhagsmunir hafa að hans mati verið ráðandi í starfi og stefnumálum færeyskra stjórnmálamanna. Af þvi eru margar sögur sagöar í bókinni og sumar í Helgarpóstsstíl. En meginboðskap- ur höfundar er að í stað þess að byggja upp heilbrigt atvinnulíf hafi stjómendur eyjanna einblínt á danska styrkjakerfið og stefnuskrár flokkanna gengið fyrst og fremst út á hve mikið mætti fá frá Dönum og hvem- ig. Af bókinni að dæma á rotið hugarfar, fráleitt styrkjakerfi og eiginhagsmunapot aðalsökina. Ekki kann ég að leggja dóm á þær sögur og dæmi sem tilgreind eru í bókinni og ekki vildi ég bera ábyrgð á þeim. Þeir sem slíkar sögur segja verða að þekkja vel til mála ef vel á að vera. En mér finnst lítið gert úr efnahagserfiðleikum Fær- eyinga með tilliti til gríðarlegs samdráttar í þjóðar- framleiðslu. Á bls. 99 er birt tafla sem sýnir þróun ýmissa hagstærða árin 1988-1993. Athugun hennar sýnir að samdráttur í landsframleiðslu 1989-93 er hvorki meiri né minni en um 35%. Slíkur samdráttur er líklega algjört einsdæmi í hinum vestræna heimi á síðustu áratugum og hefði einn og sér valdið ægilegum búsifjum þótt ekki kæmu til að auki rangar áherslur í atvinnupólitík og fjármálastjórn. Ótrúlegar þóttu mér margar sögur höfundar í bók- inni en enn verr gekk mér að fá botn í talnaskýringar hans. í nefndri töflu segir að styrkir Dana hafi numið 7.520 m. kr. árið 1990. Á bls. 101 segir: „Árið 1990 fengu Færeyingar tæpa 10 milljarða í styrk frá Danmörku." Þetta þykir mér passa illa saman. Á bls. 38 og 39 má lesa að heildarstyrkir og endur- greiðslur Dana hafi árin 1984-1992 numið hátt í 100 milljörðum króna. Af töflunni á bls. 99 er engin leið aö skilja að þetta geti verið rétt. Þvert á móti virðist þessi tala vera allt of há. Á bls. 75 segir: „í janúar 1993 áttu Færeyingar 10 úthafstogara. Árleg skuldabyrði þeirra nam 2,2 millj- örðum en fyrirsjáanlegt var að af þeirri upphæð gætu þeir aðeins greitt um 80 milljónir. Eigendur þessara togara skulduðu m.ö.o. næstum 30 sinnum meira en þeir höföu bolmagn til að greiða. Eigendur smærri togara skulduðu 6,2 milljarða en greiðslugetan nam 850 milljónum. Útgerðarmenn 24 línuskipa skulduðu alls um 1,9 milljarða en gátu greitt 200 milljónir. Fær- Bókmenntir Guðmundur G. Þórarinsson eyingar áttu þannig í janúar 1993 um 100 stór skip og togara sem skulduðu alls um 10 milljarða króna en gátu aðeins greitt 1,8 milljarða." Ég fæ engan botn í þetta. Mér virðist höfundur rugla saman árlegri skuldabyrði og heildarskuld og jafnvel leggja þessar tölur saman. Úr slíkum reikningum kem- ur varla mikið vit. Á bls. 121 fjallar höfundur um hlutabréfaviðskipti DDB árið 1993 varandi færeysku bankana. Einhvern veginn finnst mér að höfundur sé ekki vel með á nótun- um um hvað þar sé að gerast. Höfundur klykkir út með því aö segja að erlendar skuldir Færeyinga hafi vaxið um 25-30 milljarða króna vegna þeirra viðskipta sem þarna fóru fram. En í töflunni á bls. 99, sem rak- in er til öruggra heimilda, segir að skuldir Færeyinga hafi minnkað um nær 2 milljarða á árinu. Reyndar segir þar að erlendar skuldir Færeyinga hafi lækkað á árunum 1990-1993 um rúma 9 milljarða þrátt fyrir gríðarlegt hrun í landsframleiðslu. Eitthvaö passar þetta allt fila saman. Ég hefði talið að hér væri um óvandaða vinnu að ræða ef ég hefði ekki séð í opnuumfjöllun prófessors í hagfræði í Morgunblaöinu að bókin væri óvenjuvönd- uð. Gaman hefði verið að fá útskýringar prófessorsins á þessum tölum höfundar, svo lofsamlegum orðum sem hagfræðiprófessorinn fer um verk hans. Umfjöllun um vanda Færeyinga, sem nú hafa líklega fundið olíu, er fróðleg og þörf. En hún þarf að vera vönduð og ábyrg. Hlutskipti Færeyja Eðvarð T. Jónsson Útgefandi Mál og menning 1994 Alls 132 blaðsiður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.