Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1994, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994
11
Fréttir
Minna skotið af rjúpu en áður var haldið:
Skotveiðar hafa engin
áhrif á stof nstærðina
- er helsta niðurstaða rjúpnaráðstefnu Skotveiðifélagsins
„Skotveiðimenn fagna því að nú
skuli vera hafnar vísindalegar rann-
sóknir á ijúpunni. Við væntum mik-
ils af samstarfi við umhverfisráðu-
neytið. Almennt eru veiðimenn fúsir
að afla gagna fyrir ráðuneytið og
stunda talningar á nýjum svæðum.
Með ráðstefnu Skotveiðifélagsins
vildum við afla upplýsinga um þenn-
an helsta veiðifugl þjóðarinnar frá
landnámi," segir Sigmar B. Hauks-
son, stjórnarmaður Skotveiðifélags
íslands.
Meirihluti villidýranefndar hefur
lagt til við Össur Skarphéðinsson
umhverfisráðherra að rjúpnaveiði-
tímabilið verði ekki stytt eins og í
fyrra. Þá hefur sérfræðingur Nátt-
úruverndarstofnunar í vistfræði
ijúpunnar, Ólafur K. Nielsen, sagt
að ekki væri þörf á styttri veiðitíma.
Þetta kom fram í máli hans á ráð-
stefnu Skotveiðifélagsins um síðustu
helgi. Vegna þessa hefur stjórn fé-
lagsins skorað á ráðherra að heimila
veiðar frá 15. október til 22. desemb-
er, eins og verið hefur nánast undan-
tekningalaust frá árinu 1924.
Á ráðstefnunni kom fram að frá
því um miðbik aldarinnar hafa verið
merktar um 3.800 ijúpur. Af þeim
hafa um 11 prósent endurheimst; um
6 prósent verið skotnar en um 5 pró-
sent drepist af öðrum orsökum. Þá
kom fram að endurheimtur vegna
skotveiði hafa farið minnkandi und-
anfarna áratugi.
Gestur ráðstefnunnar var dr. Hans
Chr. Pedersen frá norsku náttúru-
fræðistofnuninni en hann er talinn
einn helsti sérfræðingur Noröur-
landanna í lifnaðarháttum ijúpunn-
ar. í máli hans kom fram að um 70
prósent rjúpunnar eru drepin á
fyrsta ári, einkum af völdum fálka,
refs og annarra dýra. Að hans mati
hafa skotveiðar engin áhrif á vöxt
og viðkomu stofnsins. í þessu sam-
bandi gat hann þess aö í Noregi væri
veiðitíminn þremur mánuðum lengri
en á íslandi. Þar taka veiðimenn um
10 prósent af stofninum ár hvert en
að mati vísindamanna er talið óhætt
að veiða allt að 30 prósent.
Að sögn Sigmars voru á árunum
1864 til 1942 íluttar út frá íslandi um
3,2 milljónir fugla. í könnun, sem
Skotveiðifélag íslands gerði á árun-
um 1992 og 1993 um neyslu lands-
manna á ijúpum, kemur fram að nú
eru að jafnaði borðaðar um 100 þús-
und rjúpur á ári. Niðurstaðan sé því
sú að nú sé mun minna veitt af ijúpu
en verið hefur.
Umferðarátak lögreglunnar:
Athyglin beinist að skóiabörnum
DV
Fjöldi í bekkjardeildum:
Ennbara
drögað
frumvarpi
- segir Guðrún Hrefna
„Menntamálaráðherra hefur
tekið við frumvarpi frá nefnd um
mótun menntastefnu og sent það
til umsagnar, m.a. Heimilis og
skóla, til að fá viðbrögð við því.
Þaö er rétt að ekkert í frumvarp-
inu takmarkar Qölda nemenda í
bekkjum grunnskólans en í raun
er gert ráð fyrir að hver sveitar-
stjórn sjái um þessi mál í sínu
byggðarlagi. Það getur skapað
vandamál að setja of þröngar
skorður því það sem er gott fyrir
einn skóla getur verið slæmt fyr-
ir annan. Að auki aettu foreldrar
að hafa mun meira um máliö aö
segja ef ákvörðunarvaldið er hjá
sveitarstjórnum," segii' Guðrún
Hrefna Guðmundsdóttir i
menntamálaráðuneytinu, að-
spurð um viðbrögð ráðuneytisins
vegna gagnrýni samtakanna
Heimilis og skóla á að ekki skuli
vera neinar reglur um fjöldatak-
markanir i bekkjardeildir grunn-
skólans.
Hún segir að rannsóknir sýni
að það geti verið gott að hafa
bekkjardeildir stórar og fleiri en
eiim kennari komi frekar að
þeim. Hitt sé lika skiljanlegt að
foreldrar hafl áhvggur af því að
farið veröi út i það að hafa bekk-
ina allt of stóra.
„Ráðherra hefur ekki gengið frá
frumvarpinu eins og hann ætlar
að skila þvi af sér til Alþingis og
allar tillögur verða skoðaðar
gaumgæfilega áður en það verður
gert,“ sagði Guðrún Hreflia.
„Ég vil beina því til ökumanna að
fara varlega og vera vakandi fyrir
því að bömin eru nú á ferðinni á
morgnana og síðdegis, að og frá
skóla,“ segir Ómar Smári Ármaims-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn í
Reykjavik.
Dagana 1.-7. september fer í gang
sameiginlegt umferðarátak lögregl-
unnar á Suðvesturlandi. Athyglinni
verður sérstaklega beint að umferð
í nágrenni við skóla. Lögreglan mun
halda uppi eftirliti í nágrenni við
skólana á næstu dögum. Það er ein-
dregin von hennar að allir geri sitt
til þess að draga úr líkum á slysum
nú þegar skólar landsins hefja starf-
semi sína að loknu sumarleyfi. Þá
fjölgar ungum vegfarendum í um-
ferðinni og skapar það aukna slysa-
hættu.
„Við ætlum að vera eftir því sem
hægt er í nágrenni við skólana og
fylgjast með hraðanum," segir Ómar
Smári.
Börnin hafa lagt sitt af mörkum til
að öðlast reynslu í umferðarfræðslu.
Þorgrímur Guðmundsson varðstjóri
og Margrét Sturlaugsdóttir fræða
bömin um umferðina á hveiju ári í
skólunum og á leikskólunum. Að
sögn Ómars reynir einnig á að for-
eldrarnir fylgi yngstu börnunum
fyrstu dagana og hjálpi þeim að finna
öruggustu leiðina í skólann. Foreldr-
um ber að hvetja börnin til þess að
nota undirgöng eða merktar gang-
brautir þar sem slíkt er fyrir hendi
d§ sjá til þeSs að endurskinsmerkin
séu á sínum stað.
Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar.
Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga 10-14.
2MíÁ>NOTAÐIR
BIIAR
814060/681200
SIHXJKIANDSBHAL7T 12.
LADA
Úrval notaðra bíla
MMC Galant GLSi 2000, árg. '91,
ss., 4 d., vínr., ek. 61 þús. km.
Verð 1.190.000
Daihatsu Charade 1300, árg. '93, 5 Toyota Touring XL 1600, árg. '91, 5 MMC Lancer GLXi 1500, árg. ’91, 5
g„ 4 d„ grænn, ek. 4 þús. km. g„ 5 d„ rauður, ek. 86 þús. km. g„ 5 d„ brúnn, ek. 42 þús. km.
Verð 940.000 Verð 1.070.000 Verð 980.000
MMC Galant GLSi 2000, árg. ’90, 5
g„ 5 d„ grár, ekinn 65 þús. km.
Verð 1.070.000
Lada station 1500, árg. '91, 4 g„ 5
d„ hvítur, ek. 47 þús. km.
Verð 360.000
VW Golf 1600, árg. ’91, 5 g„ 3 d„
grænn, ek. 41 þús. km. Verð 790.000
VW Polo, árg. '90, 4 g„ 3 d„ hvítur,
ek. 63 þús. km. Verð 400.000
Suzuki Fox, langur, 1300, árg. ’85,
5 g„ 3 d„ rauður. Verð 350.000
Lada Sport 1600, árg. ’89, 4 g„ 3
d„ l.gulur, ek. 57 þús. km. Verð
350.000
9->
4 d„ Ijósgrænn, ek. 61 þús. km.
Verð 790.000
Lada Samara 1500,
d„ rauður, ek. 10 þús. km.
Verð 520.000
5g„ 4
Lada Safír 1200, árg. ’92, 4 g„ 4 d„
blár, ek. 10 þús. km.
Verð 370.000
Daihatsu Feroza, árg. '90, 5 g„ 3
d„ grár, ek. 55 þús. km.
Verð 920.000
Chevrolet Monza 1800, árg. '87, 5
g„ 4 d„ hvitur, ek. 105 þús. km.
Verð 320.000