Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1994, Síða 14
14
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 -
íþróttir
Guðmundur Þ. Harðarson með hluta þeirra glæsilegu verðlauna sem í
boði verða á sunnudag þegar Kópavogssundið 1994 ter fram. Með honum
á myndinni eru ungir og áhugasamir sundkappar. DV-mynd S
Kópavogssundið
Á sunnudaginn fer fram sund-
keppni fyrir almenning í Sundlaug
Kópavogs, Kópavogssundið 1994.
Þátttakendur fá glæsileg verðlaun í
samræmi við þá vegalengd sem þeir
synda.
Fyrirkomulag keppninnar er
þannig að þátttakendur skrá sig í
sundið og fá í hendur talningakort,
en talið verður fyrir alla þátttakend-
ur. Hver og einn ákveður hve langa
vegalengd hann syndir. Engar tíma-
takmarkanir eru settar keppendum
aðrar en tímatakmarkanir keppn-
innar sem stendur frá kl. 7.00 til 22.00
á sunnudaginn.
Fyrir 500 m sund verður veittur
bronspeningur, silfurpeningur fyrir
1000 m sund og gullpening fá þeir er
synda 1500 m. Allir þátttakendur fá
skjal til staðfestingar þátttöku í
sundinu. Einnig verða veitt sérstök
verðlaun þeim sem synda lengstu
vegalengdina í nokkrum aldurs-
flokkum. Fjölmörg önnur verðlaun
verða veitt.
Forráðamenn Kópavogssundsins
1994 vilja hvetja almenning til þess
að vera með í þessari fyrstu sund-
keppni fyrir almenning, með ofan-
greindu sniði, sem haldin er hér á
landi. Markmiðið með keppninni er
að fá almenning til þess að iðka sund
reglulega og skipulega, með það að
markmiði að auka sundgetuna og
þohð. Sund er íþrótt sem höfðar til
allra aldursflokka og er því sannköll-
uð flölskylduíþrótt.
Á keppnisdaginn verður selt kafíi
og kökur í anddyri Sundlaugar Kópa-
vogs á vegum sunddeildar Breiða-
bliks. AUar nánari upplýsingar um
Kópavogssundið veitir Guðmundur
Þ. Harðarson í síma 41299.
PhilBabbfer
til Liverpool
Einn eftirsóttasti vamarmaður
Bretlandseyja, írinn Phil Babb,
er á leiðinni til Liverpool frá Cov-
entry en formlega verður gengið
frá sölunni síðar í vikunni. Félög-
in hafa orðið ásatt um að Liver-
pool greiði um 380 milljónir
króna. Babb kom frá Bradford til
Coventry í júli 1992 fyrir 50 miUj-
ónir. Áhugi margra félaga vakn-
aði fyrir Babb í kjölfar frammi-
stöðu hans með írska landsliðinu
á heimsmeistaramótinu í sumar.
Papin í aðgerð
Franski landsliðsmaðurinn Je-
an-Pierre Papin hjá Bayern
Miinchen gengst undir hnéupp-
skurð í dag. Hann verður frá
keppni í tvær vikur og missir um
leið af leik Frakka gegn Slóvakíu
í Evrópukeppninni á miðviku-
daginn kemur í Bratislava.
Sömuleiöis að minnsta kosti
tveimur leikjum hjá Bayem. Buið
var að velja Papin í 18 manna
landsliðshóp Frakka.
Kínverjarnír
eru bjartsýnir
Heimsmeistaramótið í sundi
hefst í vikunni í Róm. Allt besta
sundfólk heimsins er mætt til
leiks og er aldreí að vita nema
einhver heimsmet eigi eftir að
falla. Kinverjar hafa vakið at-
hygli vegna framfara i sundinu á
síðustu misserum og er talið að
þeir láti mikið að sér kveða á
mótínu.
Man. Utd leikur
ekkiíTyrklandi
Áhangendur Manchester Un-
ited em ekki búnir að gleyma
sögulegum leik liðsins gegn tyrk-
neska liðinu Galatasaray í Evr-
ópukeppni meistaraliða í fyrra.
Sem kunnugt er mætir United
tyrkneska liöinu á ný i Evrópu-
keppninni að þessu sinni og nú
er Ijóst að Galatasaray mun ekki
fá að leika heimaleik sinn gegn
United í Tyrklandi, að sögn
breskra fjölmiöla. Ástæðan er sú
að áhangendur liðsins réðust að
tveimur línuvörðum á dögunum
í Evrópuieik liðsins.
Leedsmuntapa
miklum peningum
Forráðamenn Leeds United
hafa lýst því yfir að sóknarleik-
maðurinn Brian Deane sé til sölu
eftir aðems 13 mánaöa vem hjá
félaginu.
Leeds keypti Deane frá Sheffi-
eld United fyrir 2,7 milljónir
punda í júlí á sl. ári sem er ótru-
lega há upphæð fyrir ekki betri
leikmann. Nú er hann til sölu
fyrír um 1,7 milljónir punda og
því er Ijóst að Leeds níun tapa
miklum peningum á þessum und-
arlegu viðskiptum á sínum tíma.
Deane skoraði 11 mörk í 41 leik
með Leeds í úrvalsdeildínni á sið-
ustu sparktíð.
Reykj alundarhlaup:
Brynjóifurog
Friðasigruðu
Um 700 manns tóku þátt í
Reykjalundarhlaupinu sem hald-
ið var á dögunum. Þátttakendur
hlupu mjög mislangar vegalengd-
ir.
Að þessu sinni hlupu 29 manns
14 km leiðina og þar varð Fríða
Bjaraadóttir fvrsi kvenna á
1:06,01 klst. Fyrstur í flokki karla
varð hins vegar Brynjólfur Ás-
þórsson og hfjóp hann vegalengd-
ina á 55,44 mín.
......... .....
Í
I
I S L A IU D - S
7. SEPT. KL. 20:00
Starfandi dómarar og aðrir með gild aðgangskort
fá afhenta aðgöngumiða á leikinn á Laugardalsvelli,
sunnudaginn 4. september kl. 11:00 -18:00 og
mánudaginn 5. septemberkl. 11:00 - 18:00.
ATH! MIÐAR VERÐA EKKIAFHENTIR
FYRIR UTAN ÞENNAN TÍMA.
Aðilar utan af landi, með gild aðgangskort,
geta hringt á skrifstofu KSI á sama tíma
og látið taka frá fyrir sig miða sem síðan verða
afhentir samkvæmt nánara samkomulagi.
ISLAND - SVÍÞJÓÐ
Á LAUGARDALSVELLI 7. SEPTEMBER
*
He
try
ggt Þer
•••
...á stórleik ársins!
Grindvlkingar í vanda:
Kaninn
stakkaf
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum:
Tony Smith, bandaríski körfuknatt-
leiksmaðurinn sem genginn var til hðs
við Grindvíkinga fyrir komandi tíma-
bil, stakk af úr landi á þriðjudagsmorg-
uninn án þess að láta vita af sér. Kom-
ið hefur í ljós að hann hringdi til Tyrk-
lands daginn áður og tahð er líklegt
að hann hafi farið þangað. Stúlka, sem
keyrði Smith upp á Keflavíkurflugvöll,
sagði að hann hefði farið með allan
sinn farangur en sagst koma aftur fyr-
ir laugardaginn.
„Við vissum ekki af þessu fyrr en í
gærkvöldi þegar hann mætti ekki á
æfingu. Þetta kom á alversta tíma,
Evrópuleikurinn viö Svíana er hér
heima á þriðjudag og Smith var orðinn
löglegur fyrir hann. Það var ekki ann-
að að sjá en hann væri ánægður og
hann var mjög snjall körfuboltamaö-
ur,“ sagði Ægir Ágústsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Grindavíkur,
við DV seint í gærkvöldi.
Newcastle skorar
-15 mörk 14 leikjum og er efst í Englandi
Newcastle hélt áfram að skora og sigra
í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gærkvöldi. Strákarnir hans Kevins Keeg-
ans unnu West Ham, 1-3, í London og
hafa skorað 15 mörk og fengið 12 stig í fjór-
um fyrstu leikjunum og tróna á toppi
deildarinnar.
Andy Cole, helsti markaskorari Newc-
astle, skoraði ekki sjálfur í gærkvöldi en
lagði upp öll þrjú mörkin.
Eric Cantona lék sinn fyrsta leik með
Manchester United á tímabilinu eftir leik-
bann og skoraði fyrsta markið í 3-0 sigri
á Wimbledon. Brian McClair og Ryan
Giggs gerðu hin mörkin undir lokin.
Liverpool vann sinn þriðja sigur í jafn-
mörgum leikjum, 0-2 gegn Southampton.
John Barnes lagði upp fyrra markið fyrir
Robbie Fowler og skoraði það síðara, hjá
fyrrum félaga sínum, Bruce Grobbelaar,
sem nú ver mark Southampton.
Úrvalsdeild:
Arsenal - Blackburn...............0-0
(Áhorfendur 37.629)
Chelsea - Manch. City.............3-0
(1—0 Peacock, 2-0 Wise, 3-0 sjálfsmark.
Áhorfendur 21.740)
Leicester - Q.P.R..................1-1
(0-1 sjálfsmark, 1-1 Gee. Áhorfendur 18.695)
Manch.Utd - Wimbledon...............3-0
(1-0 Cantona, 2-0 McClair, 3-0 Giggs. Áhorf-
endur 43.440)
Sheflf. Wed. - Norwich..............0-0
(Áhorfendur 25.072)
Southampton - Liverpogl.............0-2
(0-1 Fowler, 0-2 Bames. Áhorfendur 15.190)
WestHam-Newcastle...................1-3
(0-1 sjálfsmark, 0-2 Lee, 1-2 Hutchinson, 1-3
Mathie. Áhorfendur 18.580)
Newcastle............4 4 0 0 15-3 12
Manch. Utd...........4 3 1 0 7-1 10
Nott. For............4 3 1 0 5-2 10
Liverpool............3 3 0 0 11-1 9
Chelsea..............3 3 0 0 8-2 9
Tottenham............4 3 0 1 9-6 9
Blackburn............4 2 2 0 8-1 8
1. deild
Derby - Middlesbro................ 0-1
S windon - W.B. A...................0-0
Úrslitakeppnin í 4. deild:
Naumt hjá Magna
- en Ægir, KS og Leiknir ekki í vandræðum
Það verða Ægir og Magni annars vegar
og KS og Leiknir úr Reykjavík hins vegar
sem leika úrslitaleikina um sæti í 3. deild-
inni í knattspyrnu á laugardag og þriðju-
dag. Ægir og KS byija á heimavelli.
Magni slapp naumlega áfram í gær-
kvöldi er liðið tapaði, 2-1, fyrir Hugin á
Seyðisfirði. Magni hafði unnið fyrri leik-
inn, 1-0, en Þorvaldur og Sigurður Víðis-
synir komu Hugin í 2-0. Reimar Helgason
svaraði fyrir Magna 7 mínútum fyrir leiks-
lok og það mark réð úrshtum. Liðin voru
jöfn, 2-2, en útimarkið kom Magna áfram.
Ægir vann Víking, 2-5, í Ólafsvík og því
samanlagt 9-5. Zeikret Mehic og Sigurður
Hervinsson skoruðu fyrir Víking en Kjart-
an Helgason 3, Halldór P. Kjartansson og
Magnús Pálsson fyrir Ægi.
Leiknir vann Sindra, 4-3, á Leiknisvelli
og samanlagt 10-6. Leiknir komst í 4-0
með mörkum frá Róberti Arnþórssyni,
Heiðari Ómarssyni, Friðriki Jónssyni og
Pétri Amþórssyni. Ejub Purisevic skoraði
síðan tvö mörk fyrir Sindra og Arnþór
Gunnarsson eitt.
KS vann Njarðvík, 4-1, á Siglufirði og
samanlagt 8-3. Haseda Miralem gerði þrjú
marka KS og Ragnar Hauksson eitt en
Ingvar Georgsson svaraði fyrir Njarðvík.
-MJ/HK
Jóhannes í undanúrslit
- á heimsmeistaramóti unglinga í snóker
Jóhannes B. Jóhannesson sigraði í gær
R. Duut frá Hollandi, 5-3, í 8-manna úrslit-
um á heimsmeistaramóti unglinga, 21-árs
og yngri, í snóker sem fram fer í Helsinki
í Finnlandi.
Jóhannes er þar með kominn í úrslita-
keppni fjögurra manna og leikur í kvöld
gegn David Grey frá Englandi eða Flan
Hays frá írlandi. Þetta er frábær árangur
hjá Jóhannesi sem einnig komst í fjögurra
manna úrslit á mótinu í fyrra. Þá varð
Kristján Helgason heimsmeistari eins og
menn muna en Kristján keppir ekki á
mótinu í Finnlandi enda tíðkast það ekki
að heimsmeistari mæti að ári og verji titil-
inn.
Kristján undirbýr sig nú af krafti fyrir
þátttöku í heimsmeistaramóti áhuga-
manna sem fram fer í Suður-Afríku í nóv-
ember.
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994
27
Iþróttir
Diego Maradona: Fæddur
30. október 1960 í Buenos
Aires. Fimmta barn af átta.
1976: Fyrsti leíkur í 1. deild í
Argentínu með Argentinos
Juniors. 16 ára tíu dögum
slðar.
1977: Fyrsti landsleikur með
landsliði Argentínu.
1978: Hundsar landsliöið á
HM.
1979: Fyrirliði
unglingalandsliðsins sem
verður heimsmeistari I Japan.
1981: Vinnur fyrsta og eina
sigur sinn í argentínsku
deildarkeppninni með Boca
Juniors.
1982: Seldur til Barceiona
fyrir 210 milljónir króna eftir
HM. Tveggja ára dvöl hjá liðinu
einkénnist af veikindum og
meiðslum.
1984: Seldur til Napóll á
Ítalíu fyrir 525 milljónir króna.
1989: Napólí vinnur- y s
UEFA-keppnina, fyrsti
Evrópumeistaratitill félagsins.%
Síðan utangátta I Argentínu I 2
mánuði og neitar að koma
> aftur til Napolí eftir frí.
1990 (júní): Napolí ítalskur
meistari öðru sinni.
1990 (júlí): Fyrirliði er
Argentína tapar fýrir Þjóöverjum
I úrslitaieik HM.
I1
1990—1991: Maradona
, kvartar yfir miklu álagi I ítalska
loltanum. Missir af æfingum
og er sektaður samtals um 3,5
miljjónir króna fyrir agábrot.
■•Leiidirlfaðernismáli.
1990 (nóv.): Neitar að fara
til Moskvu I Evrópuleik með
Napólí. Mætir sólarhring síðar j
einkaþotu.
1991 (mars): Feiiurá
lyfjaprófi vegna neyslu kókalns.
Einnig bendlaður við giæpahing
I Napólí. Dæmdurí 15 mánaöa
bann.
1986: Skorar með „hendi
guðs“ I lejk á HM gegn
Englandi. Leiðir síðan lið
Argentínu til
heimsmeistarátitils eftir
sigur gegn V-Þjóðverju
úrsiitum. \
1987: ítalskur meistari með
Napólí sem vinnur titilinn I
fyrsta skipti. í J
1991 (apríl): Skömmu eftir
komu til Argentlnu tekinn fyrir,-
neyslu kókalns.
1992 (júní): Kemur áfturW
Nlapólí eftir leikbann og fer O' *
am á sölu. vjL
tjl vt
~92 (sept.): Seldurtil
Sevilla á Spáni fyrir 525
milljónir.
1993 (febr.): Aftur fyrirliði
iandsliðsins I afmæiisleik gegn
Brössum á 100 ára afmæli
J<nattspyrnusambands
Argentínu.
1993 (júni): Sevilla neitar
að greiða Maradona 70
milljónir króna vegna vanefnda
á skyidum hans við félagið.
Hættir og fer aftur til
Argehtlnu. Rekinn frá Sevilla.
1993 (sept.): Gengurtii
liðs við Newells Old Boys I
Argentínu.
L993 (okt.): Leikur með
Árgentínu I undankeppni HM
gegn Ástralíu.
1994 (febrúar): Mætir ekki
á æfingar hjá Newells Old Boys
og er rekinn frá félaginu.
Skýtur úr loftriffli aö
fréttamönnum og særir fjóra.
1994 (apríl): Leikur
æfingaleik með Argentlnu fyrir
HM gegn Marokkó og skorar ur
víti.
1994 (júní): Mætirífjórðu
Qsmeistarakeppni sína.
' áður en Maradopa getur |
|ikjamet á HM beinist
að lyfjaáti hans.
!(ágúst): Ákærður fyrir
).sKjóta úr loftriffli að
jftamönnum. Laus gegn 2£0
milljóna króna tryggi
1994 (ágúst): Dcðtíidur T
15 mánaö keppnisbann og
einnar milljónar króna sekt
vegna lyfjaáts á HM sama ár.
DV|
Þjálfari Örebro í samtali viö DV:
Hlynur eins
og hers-
höfðingi
- Hlynur og Amór skomðu báðir
yjólfiir Harðarson, DV, Svíþjóð:
„Hlynur Iék eins og hershöfðingi
miðjunni og Arnór var mjög góð-
ir. Ég var reglulega ánægður með
einni hálfleikinn,“ sagði Sven
)ahlquist, þjálfari sænska knatt-
.pyrnuliösins Örebro, við DV í
jærkvöldi eftir útisigur á Frö-
unda, 1-3, í úrvalsdeildinni. Sigur-
mn kom Örebro í annað sætí deild-
arinnar og þeir Hlynur Stefánsson
og Arnór Guðjohnsen voru í aðal-
hlutverkum og skoruðu sitt markið
hvor.
Frölunda var yfir í hálfleik en
Hlynur jafnaði á 54. minútu þegar
hann lyfti boltanum snyrtilega yfir
markvöröinn af 30 metra færi. Þaö
var síðan Araór sem innsiglaði sig-
urinn, 1-3, á76. mínútu með hörku-
skoti eftir laglega sókn.
Hlynur átti stórleik á míðjunni
og frammistaöa hans lofar góðu
fyrir landsleikinn við Svía í næstu
viku. Arnór var á miðjunni í fyrri
hálfleik en var síöan settur í
fremstu víglínu og komst þá virki-
lega í gang.
Þeir Arnór og Hlynur voru um-
setnir af sænskum fréttamönnum
eftir leikinn, bæði vegna frammi-
stöðunnar og vegna landsleiksins á
Laugardalsvelli.
Úrslit í úrvalsdeildinni í gær-
kvöldi:
Frölunda -Örebro..............1-3
Halmstad - Gautaborg..........3-1
Malmö FF - Heisingborg........2-6
Öster - Norrköping............1-1
Malmö FF er með 38 stig, Örebro
37, Gautaborg 36 og Öster er með
34 stig en þessi lið beijast um
sænska meistaratitilinn.
AC Milan fékk skell
Skrautlegur ferill Maradona
Fiestir eru á einu máli um að skrautlegum ferli
Díegos Armandos Maradona á knattspyrnuvellinum
sé lokið. Hann var sem kunnugt er dæmdur í 15 mán-
aða keppnisbann á dögunum og veröur 35 ára gamall
þegar því lýkur næsta haust. Maradona mátti teljast
heppinn að sleppa við mun lengra bann en hann var
dæmdur í sams konar leikbann árið 1991 fyrir neyslu
á kókaíni.
Evrópu- og Ítalíumeistarar AC Milan
fengu í gærkvöldi óvæntan skell á
heimavelh þegar þeir töpuðu, 0-1,
fyrir 2. deildar liðinu Palermo í fyrri
leik liðanna í 2. umferð ítölsku bikar-
keppninnar. Aöeins 3.500 manns sáu
leikinn, enda áhugi á bikarkeppninni
takmarkaður á Ítalíu. Helstu úrslit
önnur:
Fiorenzuola - Roma 0-3
Parma - Perugia 4-0
Padova - Inter 0-3
Como - Foggia 0-2
Cagliari - Atalanta 1-0
Sampdoria - Vicenza 5-1
Napoli - Fidelis Andria 3-2
Cesena - Genoa O-l
Reggiana - Brescia 1-0
Juventus - Chievo 0-0
Dalvík með
fjóraíbanni
Dalvíkingar, sem berjast með
kjafti og klóm fyrir áframhald-
andi sæti í 3. deildinni í knatt-
spymu, verða með fjóra leik-
menn í banni þegar þeir mæta
Hetti á Egilsstöðum á laugardag-
inn, í lykilleik fallbaráttunnar.
Þeir eru allir komnir með 4 eða
6 gul spjöld og einn þeirra er
markahæsti leikmaður hðsins,
Örvar Eiríksson.
Þrír hjá Fjölni
Fjölnir er að berjast á hinum
enda 3. deildarinnar, um sæti í
2. deild, og verður með þrjá í
banni í leik sínum við Völsung
sem fram fer í Grafarvogi á laug-
ardaginn. Völsungar verða með
tvo í banni og er annar þeirra
markahæstí maður hðsins, Ás-
mundur Arnarsson. Þá verður
TindastóU með markvörð sinn,
Gísla Sigurðsson, í banni í fallslag
gegn Haukum.
Þrírí2. deild
Þrír úr 2. deild taka út leikbann
í 16. umferð um næstu helgi. Alen
Mulamuhic leikur ekki með ÍR
gegn HK og hjá KA er Þorvaldur
Sigbjörnsson í banni, ásamt Erl-
ingi Kristjánssyni þjálfara.
Sindrastúlkur
hættarvið
Lið Sindra frá Hornafirði hefur
hætt við þátttöku í úrslitakeppni
2. deildar kvenna í knattspymu.
Það verða því aðeins þrjú Uð sem
leika tU úrslita um 1. deUdarsætin
tvö, ÍBV, ÍBA og Fjölnir.
Mikið magn karlhormóna mældist í þvagi Daine Modahl:
Fjögurra ára bann
- Bretar missa liklega kvennasveitina úr heimsbikamum
Breska hlaupakonan Daine
Modahl á yfir höfði sér fjögurra ára
keppnisbann eftir aö hafa faUið á
lySaprófi sem tekið var þann 18. júní
sl. í Portúgal. Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandið lýsti því yfir í gær að nið-
urstöður úr a- og b-þvagsýnum
sýndu sömu niðurstöðu og ekki væri
vafi á að Modahl hefði neytt ólög-
legra lyfja í miklum mæh.
Eðlilegt hlutfall karlhormóna í Uk-
ama kvenna er talið vera einn á
móti einum en ekki er taUð að
íþróttamaður falU á lyfjapróíi fyrr
en hlutfaUið er komið yfir sex á móti
einum. Niðurstöður úr lyfjaprófi
Modahls sýna hins vegar að hlutfall
karlhormónanna í líkama hennar er
Enn skellur
hjá Rangers
Skosku meistararnir Rangers urðu
fyrir enn einu áfalUnu í gærkvöldi
þegar þeir töpuðu fyrir Falkirk á
heimaveUi, 1-2, í 16-Uða úrsUtum
skosku deUdabikarkeppninnar í
knattspymu. Brian Laudrup skoraði
fyrir hið stjörnum prýdda hð Ran-
gers, en það var ekki nóg.
Fleira óvænt geröist því Hearts tap-
aði heima fyrir St. Johnstone, 2-4,
og MotherweU lá heima gegn Airdrie,
1-2. Celtic slapp hins vegar í 8-liða
úrsht með 1-2 útisigri á Dundee. Lið
Dundee United og Raith komust
einnig í 8-liða úrslitin.
ijörutíu á móti einum.
Daine Modahl var á dögunum köll-
uð heim frá Samveldisleikunum og
vakti það mikla athygli. Orörómur
var á kreiki á Friöarleikunum í Rúss-
landi í júlí þess efnis aö Modahl heföi
falUð á lyfjaprófmu í Portúgal og
virtust Rússar þá vita meira um mál
hennar en Bretar sjálfir. Það gerði
Breta ævareiða enda eiga Bretar á
hættu að missa kvennalið sitt út úr
heimsbikarkeppninni sem fram fer á
næstunni og Rússar munu þá taka
sæti þeirra.
Modahl kom af
hæstu fjöllum
Daine Modahl neitaði í gær aö ræða
við fjölmiðla og fólk yfirleitt. Þjálfari
hennar sagði þó að hún væri alger-
lega miður sín enda héldi hún statt
og stöðugTfram sakleysi sínu í mál-
inu. Læknir breska frjálsíþróttaliðs-
ins sagðist í gær hafa yfirfarið niður-
stöðurnar úr lytjaprófmu og vera
alveg sannfærður um sakleysi
Modahls. Mál hennar virðist vera
furðulegt fyrir margra hluta sakir
og verður fróðlegt að fylgjast með
framvindu þess.
Modahl á yfir höfði sér fjögurra ára
bann en ekki veröur dæmt í máli
hennar fyrr en hún hefur komið sín-
um skoðunum á framfæri.
Reykjavíkurmótið:
ÍR vann stærsta sigurinn á
fyrsta leikkvoldi opna Rovkjavík-
urmótsíns í handbolta í gær-
kvöldi, 29—16, gegn Fram í hinu
nýja íþróttahúsi Framara. Úrslit
leikja urðu þessi:
A-riðill:
ÍH-U18.......................27-19
B-riðill:
ÍR-Fram.............
Haukar - Fylkir.....
C-riðill:
Afturelding —HK.....
...29 16
...28-24
....28-22
D-riöill:
Stjarnan - KR............23-17
FH-UBK....................28-24
í kvöld fara fram átta leikir og
er spilað í Austurbergi, Framhús-
inu og Seljaskóla.
95
KAUPBEIÐNI
Nafn: Kennit:
Heimilisfang: Simi:
D EuroCH Visa.nr: Gildistimi: □ Póstkrafa:
l~~l Stór-Reykjavikursvæöiö 1 1 Akureyri
I 1 slembimiði
O 2 slembimiðar
Þú fyllir út kaupbeiðni/r og velur hvort þú viljir sjá leikina á Akureyri eía Stór-Reykjavíkursvæðinu. I
slembimiðapottinum verða 5000 miðar og því er ekki öraggt aí þú fáir miða. Slembimiöinn gildir á eitt leíkkvöld
sem eni 2 eía 3 leikir. í pottinum verða 250 miíar á útsláttarkeppnina og eru þeir mun verðmeiri. Ef heppnin er
meí þér getur þú fengið miúa á úrslitaleikinn fyrir aðeins 2500 kr.l Þeir aíilar sem verða dregnir út fá skriflegt
svar fyrir I október og greiða þeir 2500 kr. fyrir slembimiðann.
‘<jfr RATVÍS
ICIIAND
1995
Pósthólf 170, 602 Akureyri.
einkasöluaðili S: 96-12999, 96-12800, 91-641522