Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1994, Qupperneq 22
34
FIMMTUDAGUR 1. SEFTEMBER 1994
Afmæli
Ketill Larsen
Ketill Ágúst KierultTLarsen. leikari
og starfsmaöur íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur. Tjarnar-
engi viö Vesturlandsveg, Reykjavík,
er sextugur í dag.
Starfsferill
Ketill er fæddur á Landspítalan-
um í Reykjavík og ólst upp í Soga-
mýrinni aðallega. Hann stundaði
nám við Bændaskólann á Hvann-
eyri 1960-62, Leiklistarskóla Ævars
R. Kvaran 1962-64 og brautskráðist
úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins
1967.
Ketill vann við bústörf á Engi við
Vesturlandsveg á árunum 1952-60
og hefur verið starfsmaður íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkur
(sem áður hét Æskulýðsráð Reykja-
víkur) frá 1963 við leiðbeinendastörf
og sumardvalir barna í Saltvik og
síðan Víðidal o.íl. störf. Hann starf-
aði með Leikflokki litla sviðsins á
vegum Þjóðleikhússins 1967-68 og
starfaði í Leiksmiðjunni undir
stjórn Eyvindar Erlendssonar í
Lindarbæ 1968-69. Ketill lék ýmis
hlutverk hjá Þjóðleikhúsinu frá
1969, m.a. Inúk í samnefndu leikriti
en það var leikið í 19 löndum á árun-
um 1974-78. Hann hefur fengist við
myndlistarstörf og haldið 20 einka-
sýningar í Reykjavík og nágrenni
og einnig í Kaupmannahöfn á árun-
um 1970-94. Ketill hefur leikið jóla-
sveininn Askasleiki og stjórnað ár-
legum útiskemmtunum jólasveina í
miðborg Reykjavíkur frá 1963. en
þær uppákomur hafa oftast verið á
Austurvelli þegar kveikt er á jóla-
trénu frá Óslóar-borg, einnig hefur
hann leikið Tóta trúð í Reykjavík
og úti um land frá 1970.
Ritstörf: Askasleikir, foringi jóla-
sveinanna og bræður hans (barna-
bók), Reykjavík 1979. Bókin um Tóta
trúð (barnabók), Reykjavík 1980.
Báðar í eigin útgáfu. Ketill hefur
auk þess samið fjölda leikþátta og
ýmiss konar efni fyrir börn vegna
æskulýðsstarfsins.
Ketill hefur verið búsettur á
Tjarnarengi frá 1979.
Fjölskylda
Sambýliskona Ketils er Ólöf Bene-
diktsdóttir, f. 4.2.1947, BA í íslensku
og dönsku og bókasafnsfræðingur á
Stofnun Árna Magnússonar, en þau
hófu sambúð 1970. Foreldrar henn-
ar: Benedikt Sigurðsson, f. 14.4.1918
á Hofteigi í Jökuldalshreppi, fyrr-
verandi kennari og rithöfundur á
Siglufirði, og Hólmfríður Magnús-
dóttir, f. 26.1.1922, fyrrverandi skrif-
stofumaður, þau eru nú búsett á
Akranesi.
Börn Ketils og Ólafar: Hólmfriður
Þórunn Ketilsdóttir Larsen, f. 14.1.
1971, nemi í bókmennta- og kvik-
myndasögu á Ítalíu; Sólveig Dögg
Ketilsdóttir Larsen, f. 12.6.1974,
stúdent frá Menntaskólanum við
Sund og nú starfsmaður Laugar-
dalslaugarinnar; Axel Ketilsson
Larsen, f. 4.4.1980, d. 15.4.1980; ívar
Helgi Ketilsson Larsen, f. 28.9.1981.
Systur Ketils: Zoe Fanney Sóley
Larsen, f. 13.7.1929, d. 15.3.1943;
Ingibjörg Guðrún Sólveig Larsen, f.
28.6.1937, bóndi, búsett á Engi við
Vesturlandsveg, dóttir hennar og
Sigurðar J. Bergmann, f. 14.4.1943,
d. 27.12.1991, bátsmanns á varðskip-
inu Tý, er Helga Fanney Sigurðar-
dóttir Bergmann, f. 22.1.1969, starfs-
maður í útibúi Pósts og síma í Ár-
múla í Reykjavík.
Foreldrar Ketils: Axel Larsen, f.
12.11.1879, d. 9.4.1938, verkamaður
í Reykjavík og áður verslunarmað-
ur í Danmörku, og kona hans, Helga
Þórðardóttir Larsen, f. 14.5.1901, d.
15.4.1989, bóndi, þau bjuggu á
Grímsstaðaholtinu lengst af og síðar
í Hafnarfirði en Helga var búsett á
Engi við Vesturlandsveg frá 1952.
Ætt
Axel var sonur Rasmus Larsen,
tónlistarmanns í Danmörku, og
Ketíll Agúst Kierulff Larsen.
konu hans, Sofie (fædd Lassen),
húsmóður. Rasmus var tónlistar-
stjóri í Tívolíinu í Kaupmannahöfn
í tæplega hálfa öld og spilað jafn-
framt við dönsku hirðina. Sofie var
komin í fiórða lið af Jósep, sem var
konungur á Spáni um tveggja og
hálfs árs skeið. Jósep þessi var elsti
bróðir Napóleons Bonaparte.
Helga var dóttir Þórðar Magnús-
sonar, bóndi á Auðsholti í Biskups-
tungum frá Skollagróf í Hruna-
mannahreppi, og konu hans, Ólafíu
Ólafsdótur, frá Auðsholti í Bisk-
upstungum.
Ketill verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Andlát
Þóroddur Jónasson
Þóroddur Jónasson læknir, Ása-
byggð 3, Akureyri, lést 27. ágúst.
Útfor hans verður gerð frá Akur-
eyrarkirkju á morgun, föstudaginn
2. september, kl. 13.30.
Starfsferill
Þóroddur var fæddur 7.10.1919 á
Grænavatni í Mývatnssveit. Hann
lauk cand. med.-prófi frá HÍ1947.
Þóroddur var staðgengill aðstoðar-
læknis á Sjúkrahúsinu á Akureyri
1947, aðstoðarlæknir héraðslæknis
í Egilsstaðahéraði 1947—48, nám-
skandidat á Landspítalanum og St.
Jósefsspítala 1948-49 og aðstoðar-
læknir héraðslæknir í Stórólfs-
hvolshéraði 1949. Hann fékk al-
mennt lækningaleyfi 1949, sótti
námskeið í Helsinki 1961 og sótti
námskeiö í Gautaborg nokkra mán-
uði árin 1965,1967 og 1968. Þóroddur
varð viðurkenndur sérfræðingur í
heimilislækningum og embættis-
lækningum 1972.
Þóroddur var starfandi læknir á
Akureyri 1950-51, héraðslæknir í
Breiðumýrarhéraði 1951-69 og
gegndi þá jafnframt Kópaskershér-
aði um skeið og var héraðslæknir á
Akureyri frá 1969. Hann starfaði við
Berklavamarstöð Akureyrar
1950-51 og 1969-71. Þóroddur starf-
aði sem trúnaðarlæknir til 1993.
Þóroddur, sem gegndi fiölmörgum
trúnaðarstörfum, var heiðurfélagi
Læknafélags íslands, Félags ís-
lenskra heimilislækna og Læknafé-
lags Akureyrar.
Fjölskylda
Þóroddur kvæhtist 23.8.1951
Guðnýju Pálsdóttur, f. 18.7.1924.
Foreldrar hennar: Páll Einarsson,
sýsluskrifari á Akureyri, og kona
hans, Þóra Steingrímsdóttir, sýslu-
manns og alþingismanns á Akur-
eyri, Jónssonar.
Börn Þórodds og Guðnýjar: Ingv-
ar, f. 16.6.1952, heilsugæslulæknir á
Akureyri, kvæntur Guðrúnu Bald-
ursdóttur sjúkraliða, þau eiga fiögur
börn; Þóra, f. 14.7.1954, sjúkraþjálf-
ari í Þórshöfn í Færeyjum, gift
Martin Næs, yfirlandsbókaverði
Færeyja, þau eiga þrjú börn; Hólm-
fríður, f. 6.11.1966, óbóleikari við
Sinfóníuhljómsveit íslands, sambýl-
ismaður hennar er Darren Ston-
ham, hljóðfæraleikari. Sonur Þór-
odds: Þóroddur, f. 28.1.1950, jarð-
fræðingur hjá skipulagsstjóra ríkis-
ins, kvæntur Sigríði Friðgeirsdótt-
ur, starfsmanni Landsbankans, þau
eigatværdætur.
Systkini Þórodds: Árni, f. 26.9.
1916, bústjóri á Skógum undir Eyja-
fiöllum og síðar erindreki Stéttar-
sambands bænda, búsettur í Kópa-
vogi, kvæntur Jóhönnu Ingvars-
dóttur, þau eiga tvo syni; Helgi, f.
8.2.1922, bóndi á Grænavatni í Mý-
vatnssveit, kvæntur Steingerði Sól-
veigu Jónsdóttur húsmóður, þau
eiga fióra syni; Jakobína, f. 26.3.
1927, húsfreyja á Hvanneyri í Borg-
arfirði, gift Trausta Eyjólfssyni,
kennara á Hvanneyri, þau eiga átta
börn; Kristín, f. 26.3.1927, fyrrver-
andi skrifstofustúlka hjá Kísiliðj-
unni hf., nú búsett á Akureyri.
Foreldrar Þórodds: Jónas Helga-
son, f. 6.9.1887, d. 1970, b., hrepp-
stjóri og söngstjóri á Grænavatni,
og kona hans, Hólmfríður Þórðar-
dóttir, f. 11.5.1890, d. 1980, húsfreyja.
Ætt
Jónas var sonur Helga, hrepp-
stjóra á Grænavatni, bróður Árna,
prófasts á Skútustöðum, föður
Gunnars, sóknarprests í Kópavogi,
og Ingu, móður Þórs Vilhjálmssonar
hæstaréttardómara og séra Auðar
Eir, móður prestanna Döllu og Yrsu
Þórðardætra. Helgi var einnig bróð-
ir Sigurðar, ráðherra á Ystafelli, afa
Sigurðar Þingeyings sundkappa. Þá
var Helgi bróðir Hjálmars, afa
Magnúsar Torfasonar hæstaréttar-
dómara, Hjálmars gullsmiðs og Ás-
geirs útskurðarmeistara. Helgi var
Þóroddur Jónasson.
sonur Jóns Árnasonar. Móðir Jón-
asar var Kristín Jónsdóttir, systir
Þóru, móður Jóns Gauta sem var
oddviti Mývetninga í fiörutíu og sjö
ár. Önnur systir Kristínar var
Guðný, móðir Jóns, sýslumanns í
Borgamesi, og Kristjáns, sýslu-
manns í Stykkishólmi, Steingríms-
sona. Kristin var dóttir Jóns Jónas-
sonar, b. á Grænavatni.
Hólmfríður var systir Erlends,
prests í Odda á Rangárvöllum.
Hólmfríður var dóttir Þórðar, b. í
Svartárkoti, Flóventssonar og Jak-
obínu Jóhannsdóttur.
63 27 OO
markaðstorg
tækifæranna
Til hamingju
með afmælið
1. september
90 ára
Einar Gíslason,
Fannborg 7, Kópavogi.
85 ára
Kristjana Guðmundsdóttir,
Bræðraborgarstíg 18, Reykjavík.
80ára
Ásta Laufey Gunnarsdóttir,
Litlagerði 14, Hvolsvelli.
Eiginmaður hennar er Sigurþór
Sæmundsson.
Þau taka á móti gestum í félags-
heimilinu Hvoli á Hvolsvelli
laugardaginn 3. september frá kl.
14-17.
70ára
Anton Lindal Friðriksson,
Efstasundi 70, Reykjavík.
Sigfús Jóhannesson,
Tjarnargötu 36, Keflavik.
Haukur Sigtry ggsson,
Ennisbraut8, Ólafsvík.
60ára
Kjartan Sóiberg Júlíusson,
Sogavegi 131, Reykjavík.
Skarphéðinn Lýðsson,
Gaukshólum 2, Reykjavík.
Hann tekur á móti gestum á
heimili sínu föstudaginn 2. sept-
ember.
Sigríður Baehmann,
Þorsteinsgötu 6, Borgarnesi.
Geir Garðarsson,
Blikanesil7, Garðabæ.
50ára
Stefán Óskarsson,
Glerárgötu 14, Akureyri.
Katrín Óskarsdóttir,
Grjótaseli 16,
Revkjavík.
Eiginmaður
hennarer
GunnarAlex-
andersson.
Þautakaámóti
gestumáheim-
ilisínufrákl.
17-19 ídag.
Ingibjörg Pétursdóttir,
Rjúpufelli 35, Reykjavík.
Margrét Hj altadóttir,
Hrauntungu 50, Kópavogi.
Kristján Beek,
Kópavogsbraut 89, Kópavogi.
40ára
Sigrún Erla Pálmadóttir,
HlíðarvegilO, Súgandafirði.
Særún Helgadóttir,
Búðabraut 10, Búöardal.
Bjarni Harðarson,
Hraunbæ 182, Reykjavík.
SigurveigH. Sigurðardóttir,
Brekkutúni 7, Kópavogi.
Guðftnnur Ólafsson,
Keilufelli 26, Reykjavík.
Guðbjörg Þorsteinsdóttir,
Spóahólum 6, Reykjavík.
Elvi Baldursdóttir,
Nýbýlavegi 82, Kópavogi.
Guðríður Vilbertsdóttir,
KirHjubraut 30, Njarðvík.
Ragnheiður H. Halldórsdóttir,
Víkurtúni 5, Hólmavik.
Valtýr Friðgeir Valtýsson,
Tiamarási 15, Stýkkishólmi.
Jenný Guðbj. Sigurbjörnsdóttir,
Engihjalla 3, Kópavogi.
Ægir Vopni Ármannsson,
Fannafold 164, Reykjavík.
Sveinn IngiÓlafsson,
Hálsaseli 40, Reykjavík.
Erla Björk Ólafsdóttir,
Holtabraut 2, Blönduósi.