Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1994, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1994
Fréttir
Jóhanna Sigurðardóttir um úrsögn sína úr Alþýðuflokknum:
Fólk vill sjá nýjar
áherslur í pólitík
- mun skoða betur hverjir styðja nýja samfýlkingu jafhaðarmanna
„Eg er nú þingmaður utan flokka
og tek mál fyrir mál eftir því sem þau
koma á þingi. Ég geri mér grein fyrir
því að sú staða sem ég er í er erfið
og þá á ég við aðgang að nefndastörf-
um og upplýsingum þaðan. Ég kvíði
því ekki og get unnið mig út úr því.
Ég hef ekki setiö tvo síðustu þing-
flokksfundi Alþýðuflokksins en ég
taldi rétt að niðurstaða fengist í málið
nú, bæði vegna þingflokksfundar í
dag og þess að þing er að koma sam-
an,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir,
fyrrverandi félagsmálaráðherra og
varaformaður Alþýðuflokksins, en
hún hefur sagt sig úr Alþýðuflokkn-
um.
„Ákveðin kaflaskipti hafa orðið hjá
mér í stjómmálaþátttöku þar sem ég
hef sagt skilið við Alþýðuflokkinn.
Nú mun ég skoða hvemig ég get unn-
ið jafnaðarstefnunni best fylgi og mun
taka mér tíma í það. Málefnagrund-
völlurinn er álveg skýr en ég mun
skoða betur hverjir em tilbúnir til
liðs við samfylkingu jafnaðcumanna.
Fólk gerir kröfur um ýmsar breyting-
ar og mér finnst að það þurfi nýtt
stjómmálafl óháð félagshyggjuflokk-
unum. Þar sé fundinn vettvangur fyr-
ir fólk sem vill sjá nýjar áherslur í
pólitíkinni burtséð frá fjórflokkakerf-
inu,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir,
fyrrverandi félagsmálaráðherra og
varaformaður Alþýðuflokksins.
En hveijar skyldu vera ástæðumar
fyrir úrsögninni?
„Djúpstæður ágreiningur hefur
verið milii mín og forystu Alþýðu-
flokksins varðandi velferðarmálin,
einkavæðingu, aðiid að Evrópusam-
bandinu,“ segir hún og minnir á að
hún hafi beðið lægri hlut í formanns-
kosningum í sumar. Eftir flokksþing-
ið hafi verið ljóst að fremur hafi átt
að herða tökin en hitt og „skapa þeim
ekki skilyrði til að vinna innan
flokksins sem vildu starfa með öðrum
hætti en forystan, bæði að stefnumál-
um og starfsháttum og vinnubrögð-
um innan flokksins," segir Jóhanna.
„Þetta er náttúrlega ekki auðveld
ákvörðun fyrir mig sem er búin að
starfa lengi innan Alþýðuflokksins en
ég taldi bara best miðað við núver-
andi aðstæður að leiðir minar og Al-
þýðuflokksins skildu núna. Mér
finnst flokkurinn hafa færst of mikið
til hægri í ýmsum máiurn," segir hún.
Bréf Jóhönnu:
Skilekkisár
við neinn
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrr-
verandi félagsmálaráðherra og
varaformaður Alþýðuflokksins,
hefur sent formanni Alþýöu-
flokksins og helstu forystumönn-
um hans bréf þar sem hún segir
sig úr Alþýðuflokknum. í bréfinu
rekur Jóhanna þann djúpstæða
ágreining sem hefur verið milli
forystumanna flokksins og riíjar
upp átökin á flokksþinginu í sum-
ar.
„ Alþýöuflokkurinn er stoftiun -
tæki til að framkvæmda hugsjón-
ir jafhaðarstefhunnar sem sam-
einað hefur okkur í einum flokki
Þegar tækin til að hrinda hug-
sjónum jafnaðarstefnunnar í
framkvæmd eru farin að snúast
upp í andhverfu sína og spilla
jarðveginum í stað þess að rækta
hann þá fær flokkurinn aðra
merkingu og veröur eins og um-
búöir án innihalds," segir hún í
bréfinu.
Jóhanna þakkar félögum sín-
um innan flokksins samstarfiö
og óskar þeim hins besta í fram-
tíðinni. Hún segist ekki skilja sár
við neinn í Alþýöuflokknum.
Viöbrögð flokksforingja viö úrsögn Jóhönnu:
Mikið áfall fyrir
Alþýðuflokkinn
„Úrsögn Jóhönnu Siguröardóttur andrúmslofti kosningabaráttu. Hún
kemur ekki a ovart miöað við at-
buröi síðustu mánaða en hins vegar
eru þetta auðvitað stór tíðindi í ís-
lenskri stjórnmálasögu. Úrsögnin er
mikið áfall fyrir Alþýðuflokkinn og
Jón Baldvin Hannibalsson sem gerði
það að grundvelli formennsku sinnar
að sameina sterk og víðtæk öfl í
flokknum. Alþýðuflokkurinn virðist
vera að tætast í sundur,“ segir Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, um úrsögn Jóhönnu
Sigurðardóttur úr Alþýðuflokknum.
„Samstarfið við Jóhönnu Sigurðar-
dóttur gekk ágætlega í ríkisstjórn.
Miðað við það sem á undan er gengið
er úrsögn Jóhönnu nánast formsatr-
iði. Jóhanna hefur fram að þessu
borið ábyrgð á verkum þessarar rík-
isstjómar eins og aðrir og varið
gjörðir hennar. Það má vel vera að
hún kjósi aö hafa þar annan hátt á í
hefur engar skyldur við ríkisstjórn-
ina eftir aö hún segir sig úr Alþýðu-
flokknum," segir Davíð Oddsson for-
sætisráöherra.
„Mér finnst að timi hafi verið til
kominn að Jóhanna segði sig úr
flokknum eða lýsti yfir að hún væri
ekki að hugsa um sérframboð. Ég
sagði strax í sumar að hún ætti að
sitja kyrr sem ráöherra því að hún
hefur verið í flokknum svo lengi að
hún ber mikla ábyrgð á því sem þar
hefur veriö gert. Þetta hlýtur að vera
mjög afdrifaríkt fyrir Álþýðuflokk-
inn og ekki gott að segja hvaða áhrif
það hefur á íslenska flokkaskipan,"
segir Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
Kvennaiista. ,J>etta hefur legið í lofl-
inu í allt sumar og bara spuming
hvenær það myndi gerast," segir
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins.
Úrsögnin mikil vonbrigði
„Það em mér mikil vonbrigði að inn en það sem sundur slítur,“ segir
þessar urðu lyktir málsins þó aö það Guðmundur Ámi Stefánsson, vara-
hafi óneitaniega legið í loftinu um formaður Alþýðuflokksins, um úr-
nokkurra vikna og mánaða skeiö. sögn Jóhönnu Sigurðardóttur úr Al-
Það er auðvitað langtum meira sem þýðuflokknum.
sameinar Jóhönnu og Alþýðuflokk-
Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaóur. Hún hefur nú sagt skilió vió Alþýöu
flokkinn.
Stuttar fréttir
Lánþegar í vanskiium
Um fimmti hver lánþegi í hús-
bréfakerfinu er með lán sín í van-
skilum hjá Húsnæðisstofnun rík-
isins. Um þúsund húskaupendur
hafa sótt um greiðsluerfiðleika-
lán. Mbl. greindi frá þessu.
Fleiriáútieið
Bókanir í utanlandsferðir í
haust og vetur em fleiri en á
sama tíma í fyrra. Skv. Mbl er
vaxandi eftirspurn eftir stuttum
ferðum til stórborga í Evrópu.
Faldar vatnsiagnir
Faldar vatnslagnir í húsveggj-
um kosta húseigendur a.m.k.
miiljarð á ári. Þetta kemur fram
í skýrslu sem Einar Þorsteinsson
vann fyrir Rannsóknastofnun
byggingariðnaöarins.
Handalögmálum spáð
Kattaeigendur em ævareiðir
vegna laga sem banna kattahald
í blokkum frá næstu áramótum
Formaður Félags kattavina spáir
handalögmálum vegna þessa.
Stöð tvö greindi frá þessu.
Nýttstéttarfélag
Atvinnuflugmenn hjá Atlanta-
flugfélaginu hafa stofnaö nýtt
stéttarfélag. Margir þeirra hafa
nú þegar sagt sig úr Félagi ís-
lenkra atvinnuflugmanna.
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, um sérframboð Jóhönnu Sigurðardóttur:
Verður skammlíft ævintýri
- heiðarlegur stjómmálamaður hefði gert hreint fyrir sínum dyrum
„Hafi Jóhanna frá upphafi verið
ósátt við störf Alþýðuflokksins,
stjómarmyndun með Sjálfstæðis-
flokki eða niðurstöður í einstökum
málum þá útheimtir heiðarleikinn
það að viðkomandi segi af sér trúnað-
arstörfum og taki upp baráttu innan
flokks fyrir sínum sjónarmiðum. Það
er ekki bæði hægt að sitja í ríkis-
stjóm og vera í stjómarandstöðu í
ríkisstjóm. Þetta hefur skaðað Al-
þýðuflokkinn á imdanfomum árum.
Engu að síöur hefur Jóhanna setið,“
segir Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra og formaður Al-
þýðuflokksins, um úrsögn Jóhönnu
Siguröardóttur úr Alþýðuflokknum.
„Á flokksþinginu hét Jóhanna því
að una niðurstöðum flokksþingsins.
Það hefur hún ekki gert. Heiðarlegur
stjómmálamaður hefði átt að gera
hreint fyrir sínum dyrum og fara
ekki í viðræður við aðra stjómmála-
flokka fyrr en hún hefur gert upp
hlutína við sína samstarfsmenn. Jó-
hanna hefur aldrei óskað eftir fundi
í þingflokki Alþýðuflokksins né
stofnunum flokksins eftir flokksþing
til að gera upp ágreiningsmálin og
kasta kveðju á fjölmarga stuðnings-
menn sína,“ segir hann.
„Ég ræð ekki einn ferðinni í Al-
þýðuflokknum og hef oft orðið undir
í afgreiðslu einstakra mála. Ég hef
hins vegar aldrei hótað brottfor ef
ég næði ekki öllu mínu fram. Jó-
hanna hefur oftsinnis hótað afsögn.
Hún hefur iðulega farið fram opin-
berlega með ágreiningsmálin í stað
þess að ræða þau til þrautar innan
flokksins og una þar niðurstöðum
sem er hin einfalda lýðræðislega
regla. Hún hefur með öðrum orðum
gert sig seka um það sem hún bregð-
ur mér um. Þetta em óheiðarleg
vinnubrögð en Jóhanna hefur aldrei
gert sér grein fyrir því því að hún á
bágt með að setja sig í annarra spor
og er að upplagi ekki mjög tillitssöm
gagnvart öðram,“ segir hann.
Jón Baldvin Hannibalsson segir að
það hafi skaðleg áhrif þegar forystu-
maður segi sig úr flokknum.
„Alþýðuflokkurinn hefur alltaf rétt
sig við aftur og þá sem hafa klofið
flokkinn hefur ævinlega dagað uppi
í íslenskri pólitík. Þótt ég sé ekki sjá-
andi um óorðna hluti spái ég því að
þetta verði skammlíft ævintýri. Ég
óska Jóhönnu alls góðs þó að mér
þyki þessi ákvörðun hennar misráð-
in,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson
um úrsögn Jóhönnu.