Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1994, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1994, Blaðsíða 36
•'Om F R E X X A IC O X I Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjóm - Auglýsingar - Áskríft - Dreifing: Simi €3 27 00 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1994. Ærðist á slysadeild: Réðstá starfsfólk og sjúklinga Til átaka kom á slysadeild Borgar- spítalans aðfaranótt laugardags þeg- ar maður, sem fluttur var þangað eftir átök, missti stjóm á sér. Að sögn læknis þurftu bæði sjúkl- ingar og starfsfólk að verja hendur • sinar þegar maðurinn, sem er rúm- lega tvítugur, réðst að öllu og öllum, einnig mönnum sem reyndu að að- stoða hann. Lögregla var kölluð til og yfirbugaði hún manninn. Mikið annríki var á slysadeild að- faranótt laugardags þar sem margir þurftu að leita aðstoðar eftir pústra í miðbænum og víðar. Einn læknir orðaði það svo að af áverkum að dæma hefði mikið verið um skepnu- skap í áflogum manna á milli. • Þrír gistu fangageymslu lögreglu um nóttina vegna líkamsárása. Gæsluvarðhald: ímorgun: Þarf líklega að af- sknfa 400 milhonr Uttekt löggiltra endurskoðenda á fjármáium Haínartjarðarbæjar sýnir að heildarskuldastaða bæjar- sjóðs var mun verri en talið var eða samtals tæplega 3,2 milljaröar króna að meðtöldum skuldum hol- ræsasjóðs og leiguíbúðasjóðs. Upp- gjörið miðast við mánaðamótin júní/júli í sumar. 87 prósent af tekj- um bæjarins fóru í rekstur og 22 prósent af tekjum fóru í aíborganir lána. Samkvæmt heimildum DV voru allar framkvæmdir fjármagn- aðar með lánsfé. Nýr meirihluti sjálfstæðismanna og alþýðubandalagsmanna i Hafn- arfirði fékk i sumar löggilta endur- skoðendur til að fara yfir ijárhags- stöðu bæjarins, leggja mat á lán, hugsanlega skuldbreytingu lána og koma með tillögur til úrbóta í fjár- málum bæjarins. Tillögur til úr- bóta eru ekki tilbúnar ennþá og er að minnsta kosti nokkurra daga bið í þær en skýrslan var að öðru leyti lögö fram í bæjarráði Hafnarflarö- ar i morgun. Hugsanlegt er að bæjaryfirvöld stofhi afskriftasjóð og neyðist til að leggja allt að 400 milljónir í af- skriftasjóð fyrir siðustu íjögur árin þar sem mikið hefur veriö af kröf- um á gjaldþrota fyrirtæki í reikn- ingum bæjarins síöustu ár. Engin ákvörðun hefur verið tekin i þessu efni en ljóst er að bæjaryfirvöld verða að hafa hraðar hendur þar sem vinna við fjárhagsáætlun næsta árs fer fljótlega í gang. Samkvæmt heimildum DV stefna bæjaryfirvöld í Hafnarfirði að þvi að koma skuldastöðu bæjarins í 70 prósent af tekjum en ekki er enn ljóst hvenær og hvernig það tekst þar sem það myndi þýða 20 pró- senta niöurskurð í rekstri miðaö við stöðuna í dag. Búist er við að Guömundur Frið- rik Sigurðsson, löggiltur endur- skoðandi, skili fljótlega endurskoð- un á bókhaldi Listahátiðar Hafnar- fiarðar en hann var fenginn til að fara ofan í saumana á því í sumar. Samkvæmt heimildum DV vantar fylgiskjöl fyrir umtalsverðum tjár- hæðum inn í bókhaldið auk þess sem önnur fylgiskjöl þykja vafa- söm. Barði konu meðhamri Karlmaður hefur verið úrskurðað- ur í gæsluvarðhald í hálfan mánuð eftir fólskulega líkamsárás á konu, sem hann kannaðist við, í Hafnar- firði aðfaranótt laugardags. Maðurinn braust inn í íbúð kon- unnar og barði hana með tréhamri þannig að hún hlaut mikla áverka. Lögregla var kölluð til og var maður- inn handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, eins og fyrr sagði. Konan var hins vegar flutt á slysa- deild og samkvæmt upplýsingum þar var hún illa út leikin eftir manninn og lögð inn. Hún mun þó ekki hafa verið í lífshættu. Ók á þrjá bíla og stakk af Ekið var á þrjá kyrrstæöa bíla á Frakkastíg aöfaranótt laugardags. Ökumaður bilsins, sem ók á bílana, ók af vettvangi án þess að stoppa og hafði lögregla ekki enn haft hendur í hári hans í gærkvöld. Bíllinn fannst hins vegar mikið skemmdur á Nýlendugötu skömmu seinna. Ekki hefur verið tilkynnt um ^að bilnum hafi verið stolið og veit lögreglan hver eigandi hans er. Kveikt var i húsi um helgina vegna töku nýrrar íslenskrar kvikmyndar. Hún er gerö eftir sögunni Benjamin dúfa og verður frumsýnd næsta haust. Sagan fjallar að mestu um fjóra unga drengi sem berjast fyrir réttlæti í hverfinu sínu og lifa í ævintýraheimi. í þessu atriði er verið að sviðsetja eldsvoða sem veldur ákveðnum kaflaskiptum í lifi drengjanna. Meintum vask- svikara sleppt Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs- dóms Reykjavíkur yfir manni sem grunaður er um að hafa svikið út virðisaukaskatt að andvirði 40 millj- ónir króna. Rétturinn féllst ekki á rök héraðsdóms en úrskuröaðí manninn í farbann til 4. nóvember. Sjálfstæöismenn vestra: Kosið15.október Sjálfstæðismenn á Vestfjörðum ákváðu á kjördæmisþingi í gær að viðhafa prófkjör 15. október til kom- andi alþingiskosninga. Eins og DV hefur áður skýrt frá tilkynnti Einar Oddur Kristjánsson að hann gæfi kost á sér. Einar K. Guöfinnsson, Guðjón A. Kristjánsson, Ólafur Hannibalsson, Hildigunnur Högna- dóttir og Sigriður Hrönn Élíasdóttir lýstu einnig yfir framboði. Ekiðáhross Ekið var á hross á Suðurlandsvegi á móts við Hraungerði í Flóa í gær- morgun. Aflífa þurfti hrossið á staðnum þar sem það meiddist alvar- lega. Töluverðar skemmdir urðu á bílnum en engin slys á fólki. LOKI Misjafnterkratanna lán - í Svíþjóð og á íslandi! Veðriðámorgun: Víða bjart- viðri Á morgun verður hæg norðan- átt austanlands í fyrstu en annars fremur hæg suðaustlæg eða breytileg átt. Dálítil súld á ann- nesjum norðaustan til en þurrt að mestu í öðrum landshlutum og víða bjartviðri. Hiti 7-13 stig. Veðrið í dag er á bls. 44 Flexello Vagn- og húsgagnahjól PomIxpii Suðurtandsbraut 10. S. 086490.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.