Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1994, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1994
9
Útlönd
Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseti, kemur til viðræðna við herforingja-
stjórnina á Haíti i aðalstöðvum hersins í höfuðborginni Port-au-Prince. í för
með honum eru Sam Nunn öldungadeildarþingmaður og Colin Powell, fyrr-
um yfirmaður herráðsins. Simamynd Reuter
Jimmy Carter leysti Haítí-deiluna:
Komíveg
fyrir innrás
- Heforingjamir fara frá völdum fyrir 15. október
Jimmy Carter, fyrrum forseti
Bandaríkjanna, vann diplómatískt
þrekvirki í gærkvöldi þegar honum
tókst aö telja herforingjastjómina á
Haítí á aö láta af völdum. Þar meö
var innrás bandarísks herliðs á Haítí
að engu gerð og þúsundir hermanna
á leiö til eyjarinnar voru kallaöir
heim aftur.
Carter flaug til Washington eftir
aö hann fékk Raoul Cédras, leiötoga
herstjóranna, til að undirrita friöará-
ætlun sem gerir ráð fyrir því aö her-
foringjamir afsali sér völdum eigi
síöar en 15. október næstkomandi
þegar þing landsins hefur samþykkt
lög um aimenna sakaruppgjöf. Jean-
Aritide Bertrand, útlægur forseti
Haítí, mun þá taka viö.
„Herforingjamir á Haítí hafa fallist
á að láta af völdum. Harðstjóramir
hafa áttaö sig á því aö þaö er þeim
fyrir bestu aö fara friðsamlega frá,“
sagði Clinton Bandaríkjaforseti í
sjónvarpsávarpi til bandarísku þjóð-
arinnar í gærkvöldi.
CUnton minntist ekkert á aö her-
foringjamir mundu yfirgefa landið
eftir valdaafsahð í næsta mánuði
eins og bandarískir embættismenn
höíðu áður sagt að þeir yrðu aö gera.
Næsta víst er þó taUö aö herstjóram-
ir muni hafa sig á brott.
Herforingjarnir skrifuðu ekki und-
ir friðarsamninginn fyrr en þeim
hafði verið sagt að verið væri að
ferma tugi flugvéla sem áttu að taka
þátt í inrásinni. Lokafundur Carters
og þeirra Sams Nunns öldungadeild-
arþingmanns og Colins Powelis, fyrr-
um yíirmanns herráðsins, með her-
foringjunum stóð í sex klukkustund-
ir í gær. Áður höfðu sömu menn set-
ið þijá árangurslausa fundi.
Þótt komist hafi verið hjá innrás
til að steypa herforingjastjórninni af
stóU munu fimmtán þúsund banda-
rískir hermenn koma til Haítí í dag
þar sem þeir munu sjá tfl þess að
farið verði eftir friðarsamningnum.
í Bandaríkjunum létti mönnum
mikið þegar innrásinni var aflýst en
útlægir Haítí-búar létu þó reiöi sína
OgVOnbrigðÍíljÓS. Reuter
Kosningamar í Danmörku:
Kratar eru í sókn
Danska ríkisstjómin undir forustu
jafnaðarmannsins Pouls Nyrups
Rasmussens og tveir vinstriflokkar
sem standa utan stjórnar hafa styrkt
stöðu sína fyrir kosningamar á mið-
vikudag, ef marka má skoðanakönn-
un sem birtist í gær.
í Gallupkönnun sem birtist í Berl-
ingske Tidende fá stjómarflokkamir
fjórir og vinstriflokkamir tveir sam-
tals 53,8 prósent fylgi en stjómarand-
stöðuflokkamir þrír 45,5 prósent.
Þetta er heldur meira fylgi en mæld-
ist í Gaflupkönnun sem birtist á laug-
ardag. í nýju könnuninni auka jafn-
aðarmenn fylgj sitt í 33,3 prósent úr
32,6 prósentum.
Kristflegi þjóðarflokkurinn, einn
litlu miðflokkanna þriggja í stjóm,
nær tveggja prósenta lágmarkinu til
að koma mönnum á þing, samkvæmt
könnuninni frá því í gær, og fær 2,1
prósent. í könnuninni á laugardag
fékk flokkurinn aðeins 1,9 prósent
atkvæða.
Eitt stærsta vandamál nútímans er hraði og streita
B-vífamín og C-vítamín eru nauðsynleg til að viðhalda
sterkum og góðum taugum, auk þess að vera ^
k undirstaða ótal annara þátta líkamsstarfseminar. jl^iJ
I Vítamínin í B-STRESS eru sérvalin næringarefni .
fyrir taugarnar. Þau gegna auk þess mikilvægu
I hlutverki fyrir heilbrigð efnaskipti, grósku- f
| mikinn hárvöxt, heilbrigt og fallegt f 'jjm V
hörund og heilbrigða starfsemi hjarta og æða. jm A
eilsuhúsiö
Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966
Mfi KOSTAR MIKLU MIM
J
EN ÞÚ HELDUR AÐ KAUPA SÉR VANDAÐ,
FALLEGT OG SLITSTERKT SÓFASETT.
Valby sófasettið fæst bæði í 3-1-1 og 3-2-1
eða sem hornsófi 6 sæta eða 5 sæta.
Slitsterkt leður á slitflötum og margir
leðurlitir. Komdu strax í dag.
6 sæta horn kr. 158.640,-
5 sæta horn kr. 152.3
Hvergi meira úrval til af sófasettum og hornsófum
en í stærstu húsgagnaverslun landsins.
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REVKJAVÍK - SÍMI 91-871199
Staðgreiðsluafsláttur
eða góð greiðslukjör
munXlAn
Reuter