Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1994, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1994
17
Menning
Frammíköll blístur og ráp
Mikið framboð er nú af söngleikjum í Reykjavík sem höfða til ungs fólks.
Þannig gengur hippasöngleikurinn Hárið fyrir fullu húsi í íslensku óperunni
og sýningar eru nýhafnar á diskósöngleiknum Grease á Hótel íslandi. Það
má velta því fyrir sér hvort smábær á borð við Reykjavík standi undir tveim-
ur sýningum af þessu tagi samtímis auk alls annars sem i boði er. Persónu-
lega tel ég það misráðið af Söngsmiöjunni að setja Grease á svið nú því sam-
keppnin og samanburðurinn við Hárið er frekar ójafn. Þar kemur ýmislegt
til en tveir meginþættir eru þó Grease í óhag.
Við þeim fyrri geta aðstandendur sýningarinnar ekkert gert en það er sögu-
þráöur verksins; hann er vissulega ekki upp á marga fiska í Hárinu en virk-
ar þó eins og djúphugsað leikverk við hliðina á söguþræðinum í Grease.
Tónlist
Sigurður Þór Saivarsson
Hins vegar er það staðarval uppsetningarinnar á Grease sem hlýtur að skrif-
ast á reikning þeirra sem setja verkiö upp. Hótel ísland er afskaplega illa til
þess fallið að setja upp leikverk, þó svo um söngleik sé að ræða. Aðstaða til
að setja upp leikmynd er nánast engin, þannig að umgjörð sýningarinnar
verður óskaplega fátækleg og felst að mestu í búningum leikendanna. Salur-
inn er svo kapítuli út af fyrir sig.
Hótel ísland er fyrst og fremst veitingahús og obbinn af gestum á Grease
er búinn að fá góðan viðurgjörning í mat og drykk áður en sýningin hefst.
Sumir eru því miður orðnir barmafullir af gleði og þess vegna verða leikend-
ur og aðrir gestir að búa viö framíköll, söng og blístur liðlanga sýninguna.
Að ekki sé minnst á stöðugt ráp á barina. Miðað viö þessa megingalla verð-
ur þó aö segja að sýningin takist þokkalega og leikendur verða ekki um það
sakaðir að þeir leggi sig ekki alla fram. Dans- og söngatriðin eru mjög vel
útfærð og virðist vera endalaust framboð af efnilegu söngfólki hérlendis.
Mest mæðir þó á þeim Guöjóni Bergmann í hlutverki Danny’s, Jónu Sig-
ríði Grétarsdóttur í hlutverki Sandyar og Nuno Miguel í hlutverki Nicky
Kenicky. Öll komast þau mjög vel frá sínum hlutverkum, sérstaklega þó
Nuno Miguel. Athygli vekur að söngatriði sýningarinnar eru öll á ensku en
samtöl milli atriða á íslensku. Elfa Gísladóttir leikstjóri gefur þá skýringu á
þessu í leikskrá að henni hafl fundist lögin missa svo mikiö við íslenska
þýðingu. Um þetta get ég ekki dæmt vegna þess að ég hef ekki heyrt íslensku
útgáfuna en mér vitanlega hefur það ekki háð Hárinu né háði það Litlu hryll-
ingsbúðinni á sínum tíma að snara verkunum yfir á íslensku, nema síður
væri. Það hljómar líka afskaplega kauðskt að heyra leikendur vera að tala
saman á íslensku en bresta svo skyndilega í söng á ensku.
Ekki verður skilið við umíjöllun um þessa sýningu án þess að minnast á
gesti sýningarinnar; þau Hermann Gunnarsson í hlutverki útvarpsmannsins
Vince Fontaine og Eddu Björgvinsdóttur í hlutverki skólastýrunnar frú
Lynch. Þau fara hreint á kostum, sérstaklega þó Edda, og bæta mjög upp
þann „menntaskólabrag" sem annars einkennir sýninguna.
Leikstjóri: Elfa Gisiadóttir.
Svidsljós
Sviðsmynd úr söngleiknum Grease á Hótel ísiandi.
Ódýr, örugg, vönduð og viðurkend slökkvitæki í úrvali.
Slökkvitæki
verð frá
kr. 4.426.-
-£3HE3-E>E«3-E3C«- p ^Q-E>Q-€>C3-E>£3-
ÖRYGGIS§1 VÖRUR@t
öQQOGQQffijjBQöQQQCíö
"Þegar öryggið skiptir öllu "
Skipholt 7 sími 29399
opið 10 - 18 máud. - föstud.
í hringiðu helgarinnar
Frystikisturnar frá Elcold eru löngu landskunnar fyrir öryggi og sparneytni.
Núna bjóðum við þessar dönsku umhverfisvænu frystikistur á verði sem allir ráða við.
HFL 290
266 lítrar
KR. 43.673
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, heilsar hér upp á Elínu Ósk Ósk-
arsdóttur söngkonu eftir frumsýningu óperunnar Vald örlaganna sem frum-
sýnd var við frábærar undirtektir á laugardaginn.
Margir komu til að heiðra Ólaf Ragnarsson bókaútgefanda með nærveru
sinni á fimmtugsafmæli Hans þann 8. september sl. Ólafur stofnaði útgáfufyr-
irtækið Vöku-Helgafell árið 1981 og hefur verið framkvæmdastjóri þess síð-
an. Á myndinni eru frá v. Ásgeir, Gerða, Róbert og Sigríður.
HFL 390
365 lítrar
KR. 51.387,-
Skiptiborð 41000, 641919
mm
Hólf og gólf, afgreiðsla 641919
Almenn afgreiðsla 54411, 52870
Almenn afgreiðsla 629400
Almenn afgreiðsla 689400, 689403
Grænt símanúmer BYKO
Grænt númer 996410
m7 Ftr:nlH
í KRINGLUNNI
Sérhæft skrifstofutækninám
Tölvunám 82 klst.
Tölvur í fyrirtækjum 88 klst.
Bókhaldsnámskeið o.m.fl.
. «MMARKER TEKIÐ Á,t>URKENNlN<;UM "
[ Tölvuskóli Revkiavíkur *'
IGS5555S5555I H BORGARTCiNI 28. I05 REVKJAUIK. sími 616699. fax 616696