Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1994, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1994, Síða 27
MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1994 39 dv_____________________________________________________________________________Merming Sambíóin-Leifturhraði: ★★ Kyrrstaða er dauðadómur Þær eru margar, hugumstóru lögg- umar sem kvikmyndahúsagestir hafa fengiö að kynnast um dagana og meira en líklegt að aldrei verði skortur á slíkum hörkutólum á með- an ból er byggt, að minnsta kosti vestur í Hollywood. í myndinni Leifturhráða, sem svo sannarlega ber nafn með rentu því hraðinn er sjaldan undir áttatíu kíló- metrum á klukkustund, kynnumst við tveimur svona löggum, þeim Jack (Reeves) og Harry (Daniels). Félag- arnir, aöallega þó Jack, eiga í höggi við bandbrjálaðan þumalputtalaus- an náunga (Hopper einu sinni enn) sem reynir hvað hann getur til að kúga nokkrar milljónir dollara út úr yfirvöldum. Fyrst setur sá geggjaði sprengju í lyftu í háhýsi einu í Los Angeles en Jack og Harry eru réttir menn á rétt- um stað og gera fjárkúgunaráform bófans að engu. En ævintýrin í lyft- unni voru bara forsmekkurinn því næst kemur gaurinn fyrir sprengju í strætisvagni sem er þeirrar náttúru að hún springur fari vagninn undir áttatíu kílómetra hraða á klukku- stund. Hefst þá æsiakstur um borg- ina þar sem hin próflausa Annie (Bullock) situr undir stýri á meðan Jack reynir, með aðstoð Harrys í gegnum síma, að aftengja sprengj- una. Svo berst leikurinn úr strætis- vagninum yfir í annaö enn hrað- skreiðara farartæki sem er á valdi hins geðbilaða og hefnigjarna manns en sem betur fer er sú ferð ekki jafn löng og strætótúrinn. Hér er ekki mikið verið aö pæla í persónum og samtölum eöa öðru sem Kvikmyndir Guðlaugur Bergmundsson gerir kvikmyndir að vitrænu fyrir- bæri, enda persónurnar bara klisjur og samtölin sem þeim fer á milli af svipuðu sauöahúsi og það eru ekki samtölin sem hér skipta meginmáli. Nei, eins og nafn myndarinnar ber með sér er það hraðinn sem skiptir öllu máli. Kyrrstaða er dauðadómur. Stundum gengur þetta ágætlega upp, örlar jafnvel á dálítilli spennu þegar atriðin eru hvað æsilegust og lygileg- ust en alla jafna er þó heldur of mik- ið af því góða. Myndin er samt aldrei beint leiðinleg. En áhugamenn um hraðakstur og læti fá áreiðanlega Kenau Reeves i æsilegu atriði að reyna að gera sprengju óvirka undir strætisvagni á áttatíu kilómetra hraða. mikið fyrir sinn snúð Og ekki nema ofurhetjum malbiksins. Leikendur: Kenau Reeves, Jetf Daniels, gOtt eitt um þaö aö segja en vonandi Leifturhraði (Speed). Sandra Bullock, Dennis Hopper. fara þeir ekki að herma eftir þessum Leikstjóri: Jan De Bont. ______________Bridge Bridge- félag Reykja- víkur Síðastliðinn miðvikudag, 14. september, hófst ijögurra kvölda hipp-hopp tvimenningur og sló þátttakan öll fyrri met. Alls mættu 56 pör og því miður varð að vísa pörum frá vegna piáss- leysis. Hæsta skori kvöldsins náðu eftírtalin pör 1. Ifjördís Sigurjónsdóttir-Ragn- heiður Nielsen 875 2. Páll Valdimarsson-Ragnar Magnússon 854 3. Björgvin Sigurðsson-Haraldur Þ. Gunniaugsson 825 4. Ragnar T. Jónasson-Hlynur Magnússon 803 5. Sævar Þorbjömsson-Sverrir Ármannsson 788 6. Vignir Hauksson-Guðjón Bragason 774 7. Dan Hansson-Þórður Sigfússon 764

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.