Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1994, Síða 5
MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 1994
5
Fréttir
w Vandræði 1 veitingarekstri vegna innkaupa á áfengi fyrir helgar:
I fangelsi fyrir tékkasvik
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt fyrrum rekstraraðila Hress-
ingarskálans og Berlinar í tiu mán-
aða fangelsi, þar af sjö skilorðsbund-
ið, fyrir að hafa gefið út íjóra inn-
stæðulausa tékka til ÁTVR og Viking
Brugg að andvirði samtals rúmlega
þrjár milljónir sem greiðslur fyrir
áfengi í rekstur staöanna á árunum
1992 og 1993.
Maðurinn lýsti sig saklausan af
lögbrotum meö útgáfu tékkanna en
viðurkenndi aö hafa gefið þá alla út
fyrir fyrirtækið Laguakaffi hf. sem
rak staðina tvo. Fyrirtækið starfar
enn, en án reksturs, vegna uppgjörs
á skuldum þess.
Maðurinn gaf út tékka til Viking
Brugg vegna bjórs að andvirði 220
þúsund krónur. Tékkann átti að
geyma og framvísa síöar en þegar
honum var framvísaö í banka var
innstæða ekki fyrir hendi. Upphæðin
er ógreidd. Maðurinn gaf einnig út
tékka til ÁTVR að andviröi 865 þús-
und, 961 þúsund og 1.008 þúsund
krónur vegna áfengiskaupa á veit-
ingastaðina. Hann bar fyrir dómi að
tékkarnir heföu ekki átt að koma til
greiðslu eftir viökomandi helgar.
Hann kvaðst líta svo á aö ekki heföi
veriö um staðgreiðsluviðskipti að
ræða. Þegar dómur gekk höfðu 1.800
þúsund krónur verið greiddar upp í
andvirði tékkanna.
Ákærði rak fyrirtækin tvö í veit-
ingarekstri í þrjú ár en rekstrinum
lauk um síðastliðin áramót. Hann
taldi sig hafa keypt áfengi hjá ÁTVR
með sama hætti hverja einustu helgi
á tímabilinu - veltan hefði verið um
30 milljónir á ári. Maðurinn staðfesti
að útgáfudagsetningar tékkanna
hefðu verið réttar, ekki hefði verið
beðið um geymslu eða hafður fyrir-
vari við útgáfu þeirra. Af hálfu
ÁTVR kom skýrt fram að um stað-
Kópavogur:
Kvennalistinn
hættiraðsitja
bæjarráðsfundi
„Við erum sammála um að kjörin
sem okkur eru búin séu mjög slæm
og munum ekki sækja bæjarráðs-
fundi undir þessum kringumstæö-
um. Við erum afskaplega ósáttar við
að fá ekki áheyrnarfulltrúa með
málfrelsi og tillögurétti og jafnvel
þótt maður fengi að sitja við blessað
borðið er það aðeins skárra en samt
ófullnægjandi. Undir þessum kring-
umstæðum verðum við því að nota
bæjarstjórnarfundina til hins ýtr-
asta,“ segir Helga Sigurjónsdóttir,
bæjarfulltrúi Kvennalistans í Kópa-
vogi.
A næsta bæjarstjórnarfundi í
Kópavogi mun bæjarfulltrúi
Kvennalistans flytja tillögu um að
áheyrnarfulltrúi Kvennalistans fái
að færa sig úr homsófa í fundarher-
bergi bæjarráðs og verði leyft að sitja
við fundarborð bæjarráðs til að hægt
verði að fylgjast betur með. Fulltrúi
Kvennalistans mun hætta að sitja
bæjarráðsfundina um sinn.
Kvennalistinn í Kópavogi er aðeins 1
með einn fulltrúa í bæjarstjórn en.
engan fulltrúa í nefndum eða ráðum
bæjarins. Áheyrnarfulltrúi listans í
bæjarráði hefur hvorki málfrelsi né
tillögurétt og segir Helga það brot á
25 ára gamalli hefð í bænum.
greiöslu hefði verið að ræða - ekki
lánsviðskipti.
Dómurinn taldi brot ákærða stór-
felld, ekki heföi verið bætt fyrir þau
að fullu né vilji sýndur til aö sam-
þykkja bótakröfur sem hafðar em
uppi í málinu. Refsingin þótti því
hæfilega 10 mánaða fangelsi en 7
mánuðir veröa skilorðsbundnir.
Bótakröfu var vísað frá dómi í ljósi
þess að fyrir hendi er aðfararhæf
sátt.
MANUDAGS-
á Pi Ijó r j i tœhzj11 n i
Allt aö
atsláttur
KENWOOD
kraftur, gceöi, ending
2 gerðir Kenwood MIDI samstæður frá 59.900,-
3 gerðir Kenwood MINI samstæður frá 69.900,-
Margskonar samsetningar á Kenwood útvarpsmögnurum,
geislaspilurum og Wharfedale hátölurum.
Auk þess ýmis stök tæki á mjög lækkuðu verði.
r
/\
þar sem gœðin heyrast
Ármúla 17, Reykjavík, sími 688840
KJÖT OG FISKUR
Mjódd
Opið 9-19
Sími 73900
Seljabraut
Opið 10-23.30
Sími 71780