Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1994, Page 25
MÁNUDAGUR 24. OKTOBER 1994
37
Gísli Sigurðsson.
Tíminn og
hverfulleikinn
í Hafnarborg stendur nú yfir
sýning á málverkum eftir Gísla
Sigurðsson. Á sýningunni eru
þrjátíu verk, unnin með bland-
aðri tækni, og er yfirskriftin
Tíminn og hverfulleikinn. Um
það yrkisefni fjalla öll verkin á
sýningunni á einn eða annan hátt
og eru þau unnin á síðustu fjór-
Sýningar
um árum. Á þijátíu ára tímabih
hefur Gísli haldið tíu einkasýn-
ingar, þær þrjár síðustu á Kjarv-
alsstöðum.
Flestar myndanna eru unnar
með olíulit á léreft en einnig not-
ar Gísli blaðgull, svo og sam-
klippur úr pappír. Hann fylgir
sýningunni úr hlaði með pisth í
sýningarskrá þar -sem hann út-
skýrir muninn á „innhverfri“ og
„úthverfri" myndUst en inn-
hverfu leiðina, sem hann hefur
valið, segir hann þá myndUst sem
sækir sér yrkisefni í hugarheim
listamannsins en byggir ekki á
að vinna eftir einhveiju, til aö
mynda landslagi.
Köfunarbúnaður er eldri en
margra grunar.
Aristóteles lýsti
köfunarbúnaði
Köfunarbúningar eru langt því
frá að vera eitthvað sem fundið
var upp á síðari tímum. Aristó-
teles (384-322 f.Kr.) lýsti þeim ít-
arlega í einu riti sinu þótt ekki
hafi þeir verið á neinn hátt líkir
nútímakafarabúningi. Köfunar-
búningarnir hurfu síðan af sjón-
Blessuð veröldin
arsviðinu á miðöldum. Leifar
þeirra fundust á 16. öld á Spáni
og Ítalíu. Sagan segir að árið 1552
hafl fiskimenn við Adríahaf, í viö-
urvist hertogans af Feneyjum,
farið niður á hafsbotn í kúpu sem
var fimm metrar á hæð og þrír
metrar í ummál.
Kúpa Halleys
Árið 1721 fann enski stjömufræð-
ingurinn Edmund Halley ráð til
að endurnýja stöðugt loft inni í
köfunarkúpu og mynda svo mik-
inn þrýsting inni í henni að vatn
flæddi ekki inn í hana. Annar
Englendingur, verkfræðingurinn
John Smeaton, gerði 1786 gagn-
merkar endurbætur á kúpu Hal-
leys. Hann tengdi dælu við köfun-
arkúpuna og dældi stöðugt lofti í
hana.
Fyrsti köfunarbúningurinn
Þjóðveijinn Klingert fann fyrstur
mann upp hinn eiginlega köfun-
arbúning árið 1796. Þetta var sí-
valur blikkhólkur, með hvelfdu
loki, sem umlukti höfuð og efri
hluta líkamans. Ekki þótti mikið
gagn í þessum búningi en meira
gagn var af köfunarbúningi sem
Englendingurinn Siebe bjó til ár-
iö 1829 og Frakkinn Cabriol tók
til nánari athugunar.
Snjór á
vegum
og hálka
Víða er snjór á vegum en yfirleitt
eru þó-leiðimar færar, þá er einnig
víða hálka. Á leiðinni Reykjavík-
Færö á vegum
ísafiörður var Eyrarfiall lokað en á
hádegi á leiðin að opnast. Á Stein-
grímsfiarðarheiöi var snjókoma og
skafrenningur, en fært. Á leiðinni
Akureyri, Egilsstaðir, Vopnafiarðar-
heiði var allvíða snjór á vegum, með-
al annars í Mývatnssveit og á Möðra-
daisöræfum. Aðrar leiðir á Austur-
landi eru frekar þungfærar og snjór
á vegum eða snjókoma heftar umferð
en vegir era þó yfirleitt færir.
G3 Hðlka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
C^) LokaörStÖÖU Œ Þungfært (|) Færffjallabtlum
Bing fir Gröndal á Gauk á Stöng:
í gærkvöldi kvaddi sér hljóðs á
Gauk á Stöng ný hljómsveit sem
heitir því kunnuglega nafni Bing &
Gröndal. Það eru þó engir postul-
ínskarlar sem skipa hljómsveitina
Skemmtaiúr
heldur eru þetta allt þekktir tón-
Ustarmenn sem hafa veriö í
fremstu viglínu í mörg ár. Þar
fremstir í flokki eru söngvararnir
Stefán Hilmarsson og Richard
Scobie. Aðrir eru Sigurður Gröndal
gítarleikari og Ingólfur Guðjónsson
hljómborðsleikarí. Richard, Sig-
uröur og Ingólfur þekkja vel hver
til annars og hafa öðru hvora i um
það bil tíu ár myndað hljómsveit-
ina Loðin rotta. Stefán Hilmarsson
þarf ekki mikillar kynningar við.
Bing & Gröndal.
þekktir úr bransanum.
Hann er einn vinsælasti söngvari
landsins. Hljómsveit hans Pláhnet-
an hefur verið að gera góða hluti
að undanfómu og þar innanborðs
er einnig Sigurður Gröndal.
Hvað Bing & Gröndal kemur til
með að starfa lengi er óljóst en
drengirnír verða alla vega í miklu
stuði á Gauk á Stöng í kvöld.
Jim Carrey með grimuna góðu,
tilbúinn að hrekkja náungann.
Græn gríma og
feiminn náungi
Laugarásbíó hefur að undan-
fömu sýnt við miklar vinsældir
The Mask eða Grímuna sem fiall-
ar um feiminn bankastarfsmann
sem lifir vægast sagt htlausu lífi.
Hann er vinafár og allt sem hann
tekur sér fyrir hendur virðist
misheppnast. Þegar hann finnur
einkennilega græna grímu kvöld
eitt verður heldur betur breyting
á lífi hans. Grímann breytir hon-
um í ofurhetju sem á meira skylt
við teiknimyndafígúrur heldur
en raunverulegt fólk.
Vinsældir The Mask byggjast
að miklu leyti á frábærum
tæknibrellum og húmor í kring-
um þær en undir öllum farðanum
er gamanleikarinn Jim Carrey
sem fyrr á þessu ári lék aðalhlut-
verkið í Ace Ventura: Pet Detec-
tive. Á innan við einu ári hefur
Kvikmyndahúsin
Carrey leikið í tveimur mjög vin-
sælum kvikmyndum og er nú
meöal eftirsóttustu kvikmynda-
leikara í Hohywood.
Leikstjóri The Mask er Charles
Russell, sem á ferh sínum hefur
mikið átt við fantasíukvikmynd-
ir, en The Mask er fyrsta leik-
stjórnarverkið hans sem sem
slær í gegn.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Forrest Gump
Laugarásbíó: Gríman
Saga-bíó: Skýjahöllin
Bíóhöllin: Bein ógnun
Stjörnubíó: Flóttinn frá Absolom
Bíóborgin: Fæddir morðingjar
Regnboginn: Reyfari
Gengið
Leiðabreytingar hjá SVR
Breytingar hafa orðið á þremur
leiðum hjá SVR. Á leið 11 er aksturs-
leiðin stytt þannig að ekið er úr Am-
arbakka um Seljaskóga að Selja-
braut. Vegna þessa er tímaáætlun
Umhverfi
þrengd. Leið 14 tengir Engja- og
Rimahverfi. Þegar Borgarvegur
verður opnaöur að Strandvegi aka
vagnamir hring um Strandveg,
Borgarveg, Gullengi og Langarima.
Á má.-fö. er ekið á 20 mín. tíðni en
30 mín. tíðni um helgar.
Leið 16 tengir Grafarvog og Árbæj-
arhverfi við efra Breiðholt og Mjódd.
Ekið verður um Austurberg í öUum
ferðum. Miðað er viö að flytja far-
þega úr íbúðahverfum að Austur-
bergi og Mjódd árdegis en þaðan að
íbúðahverfum síðdegis. Ekið verður
á 30 mín. tíðni má.-fö. kl. 7-9 og á
60 mín. tíðni kl. 9-19. Með þessari
breytingu aukast ferðamöguleikar
milU austurhverfanna, ekki síst að
og frá efra Breiðholti þar sem skólar tengir því íbúðabyggð og iðnhverfi.
og þjónustustofnanir hafa aðsetur. Nánari upplýsingar era í nýútkom-
Leiðin Uggur um Borgarmýri og inni leiðabók SVR.
Litla myndarlega stúlkan á Hún reyndist vera 3600 grömm að
myndinni fæddist á fæðingardeild þyngd og 52 sentímetra löng. For-
Landspítalans 20. október kl. 4.30. eldrar hennar eru Súsanna Helga-
---------------------------- dóttir og Steinn Jóhannsson og er
Bam dagsins hún fyrsta barn i)eirra-
Almenn gengisskráning LÍ nr. 245.
24. október 1994 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 66,340 66,540 67,680
Pund 107,970 108,290 106,850
Kan. dollar 49,060 49,260 50,420 -
Dönsk kr. 11,3080 11,3530 ii.i67tr
Norsk kr. 10,1570 10,1980 10,0080
Sænsk kr. 9,2950 9.3320 9,1070
Fi. mark 14,4330 14,4910 13,8760
Fra. franki 12,9000 12,9520 12,8410
Belg. franki 2.1462 2,1548 2,1325
Sviss. franki 53.0200 53.2400 52.9T00
Holl. gyllini 39,4300 39,6900 39,1400
Þýskt mark 44,2100 44,3400 43,8300
it. líra 0,04319 0,04341 0,04358
Aust. sch. 6,2750 6,3070 6,2310
Port. escudo 0,4319 0,4341 0,4306
Spá. peseti 0,5302 0,5328 0.5284
Jap. yen 0,68140 0,68350 0,68620
Irskt pund 106,470 107,010 105,680
SDR 98,64000 99,13000 99,35000
ECU 84,1500 84,4800 83,7600
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
1 Z' '1 £ (o 1?
$
h
>i rr JT
n
Kp n r
»9 J
Lárétt: 1 fúavöm, 4 fiskúrgangur, 8 láir,
9 mála, 10 flát, 11 skip, 13 lotning, 14 hey,
16 gripir, 18 umstang, 19 rykkom, 20
batna.
Lóörétt: 1 rúmstæði, 2 óróleiki, 3 hvíldi,
4 skrauti, 5 lélegra, 6 sukkiö, 7 betur, 12
jafnt, 13 angra, 15 óhreinka, 17 stöng.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 krepja, 8 víl, 9 laut, 10 öslar, 11
mó, 12 reit, 14 með, 16 niðjana, 19 áni, 20
ólgu, 22 skráir.
Lóðrétt: 1 kvöm, 2 rís, 3 Elliöi, 4 plat, 5
jarma, 6 aum, 7 stóð, 13 eins, 15 engi, >7
jór, 18 aur, 19 ál, 21 lá.