Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1994, Síða 28
FR ÉTTASKOTM
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskri ft - Dreifing: Sími 632700
MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 1994.
Alþingi:
vísað frá
Vantrauststillaga stj órnarandstöð-
unnar á ráðherra ríkisstjórnarinnar
verður tekin til umræðu á Alþingi í
kvöld og verður umræðunum út-
varpað og sjónvarpað. Þær hefjast
klukkan 20.30.
Fullvíst er talið að stjórnarsinnar
beri fram frávísunartillögu á van-
trauststillöguna. Þar með kemur
vantrauststillagan ekki til atkvæða-
greiðslu. Stjórnarsinnar sem DV
ræddi við í morgun vildu ekki stað-
festa þetta en DV telur sig hafa ör-
uggar heimildir fyrir því að frávísun-
artillagan komi fram.
Kristín Ástgeirsdóttir, starfandi
þingflokksformaður Kvennalistans,
mun mæla fyrir vantrauststillög-
unni. Síðan tekur forsætisráðherra
til máls og er búist við að hann greini
frá frávísunartillögunni. Síðan hefur
hver stjórnmálaflokkur 15 mínútna
ræðutíma nema Jóhanna Sigurðar-
dóttir sem hefur sjö og hálfa mínútu.
Norðurland vestra:
Framsókn
meðprófkjör
Öm Þóraiinsson, DV, Fljótuin;
Kjördæmisþing framsóknarmanna
á Norðurlandi vestra samþykkti um
helgina að viðhafa prófkjör vegna
uppstillingar á lista flokksins í næstu
alþingiskosningum. Miklar umræð-
ur og skiptar skoðanir voru um mál-
ið á kjördæmisþinginu sem haldið
var í Varmahlíð. Að loknum 3.
klukkustunda umræðum var tillaga
um prófkjör samþykkt með 33 at-
kvæðum gegn 15.
Á þinginu var samþykkt aö próf-
kjörið færi fram í janúar og að stjórn
kjördæmisráðsins skipaði 5 manna
nefnd til að sjá um framkvæmd þess.
Báðir þingmenn flokksins í kjör-
dæminu svo og varaþingmenn, Ehn
R. Líndal og Sverrir Sveinsson, lýstu
yfir að þeir muni taka þátt í væntan-
legu prófkjöri.
Bflvelta í Eyjafirði
Ökumaður bifreiðar var fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri í
gærkvöldi eftir að hann hafði velt
bifreið sinni nærri bænum Grjót-
garði í Glæsibæjarhreppi.
Að sögn lögreglu voru tvær bifreið-
ar að mætast er ökumaður annarrar
þeirra missti bifreið sína út fyrir
veginn og mun hann hafa bhndast
af ljósum hinnar bifreiðarinnar. Bif-
reiðin hafnaði á hvolfi ofan í skurði
og er mikið skemmd, en ökumaður-
inn mun ekki hafa verið alvarlega
slasaður.
LOKI
Bara að þeirfari nú ekki að
hagga við honum Páli mínum
á Höllustöðum!
Verkfall fram
undan með
lamandi áhrif
- talið víst að vinmistöðvun 10. nóvember verði samþykkt
„Verkfalhð mun trúlega hafa „tilgreindar stéttir" hafi aukist Ef til verkfalls kemur verða
sömu áhrif og árið 1992 þegar Tahúngu var ekki lokið í morgun samningaviðræður flóknar þar
sjúkraliðar gengu út í tvo daga og en búist var við að henni lyki í sem viðsemjendur eru ýmist frá
allt iamaðist. Þetta verða mörg kvöld. Kristin taldi víst að niður- ríki, borg eða fiölmörgum séreign-
verkföh,“ sagði Kristín A. Guð- staðan yrði á þá leið að verkfalls- arstofnunum.
mundsdóttir, formaður Sjúkrahða- boðunin verði samþykkt enda hefði Kristín sagði að félagið hefði haft
félags íslands, í samtali við DV i nýleg könnun sýnt eindreginn vilja lausa samninga í 19 mánuði, flest
morgun. félagsmanna í þá veruna. - á fjöi- félöghjáBSRBogASÍmynduverða
Sjúkraliðar greiddu atkvæði á mennum „könnunarfundi" á höf- með lausa samninga um áramótin
föstudag um hvort félagið eigi að uðborgarsvæðmu hefðu 374 þannig að ljóst væri að sjúkraliöar
boða til verkfalls þann 10. nóvemb- sjúkraliðar greitt atkvæði, aðeins væru að dragast verulega aftur úr.
er í ljósi þess aö launamunur viö 30 voru mótfallnh- verkfallsboðun.
Listmálararnir Una Dóra Copley, dóttir Nínu Tryggvadóttur, og Alfred Jeffries gengu í það heilaga i hinni róman-
tísku Viðeyjarkirkju á laugardaginn. Þau hjónin búa og starfa í Bandaríkjunum. Næsta vor er fyrirhuguð sýning á
verkum Nínu Tryggvadóttur í Listasafni íslands og er undirbúningurinn þegar kominn í fullan gang. DV-mynd ÞÖK
Þverá í Fljótshlíð:
Dauður f iskur
út um allt
„Séu eiturefni losuð í árnar getur
það drepið allt kvikt. AUs staðar ann-
ars staðar eru viðurlög við slíkum
ásetningsglæpum. Það eru til lög og
reglur um þetta en mér er hins vegar
ekki kunnugt um að bótaskyldu hafi
verið krafist hér á landi,“ segir Birg-
ir Þórðarson, heilbrigðisfulltrúi á
Suðurlandi.
Um helgina hrundi lífríkið í einni
af kvíslum Þverár í Fljótshlíð. Dauð-
ir fiskar, stórir og smáir, flutu um
ána og í einum hylnum mátti sjá
hátt í 30 dauða silunga. Þverá liggur
út í Rangá, sem verið hefur ein gjöf-
ulasta veiðiá iandsins, og margir því
uggandi um að lífríkið hrynji einnig
þar.
Að sögn Birgis er þó ólíklegt að
fiskur drepist víðar á vatnasvæðinu.
Líklegustu skýringuna á fiskdauðan-
um segir hann lost vegna mengunar.
Sé svo megi gera ráð fyrir að vanda-
máhð sé staðbundið i Fljótshlíðinni.
Þegar á laugardaginn tók Birgir
sýni úr Þverá og verða þau rannsök-
uð í vikunni. Mun þá koma í ljós
hvort einhverjir bæir í Fljótshlíðinni
hafi leitt eiturefni í ánna eða hvort
skýringin sé einhver önnur.
Kindablóði slett
á sendiráð
Tíu grænum blöðrum fylltum
kindablóði, að því að tahð er, var
kastað að bandaríska sendiráðinu í
gærkvöld. Sex þeirra sprungu á hús-
inu en fjórar sprungu á gangstéttinni
fyrir framan.
Húsið var útbiað blóði en það voru
ung börn sem tilkynntu um verknað-
inn til lögreglu en ekki er vitað hverj-
ir stóðu að verknaðinum.
Kópavogur:
Lögreglumaður-
inntilstarfaídag
„Mál hans hafa verið til meðferðar
í ráðuneytinu en þeim er lokiö og
hann kemur hér aftur til starfa í
dag,“ sagði Þorleifur Pálsson, sýslu-
maður í Kópavogi, um mál aðstoðar-
yfirlögregluþjóns í Kópavogi.
Upp hefur komist að byssa sem
RLR lagði haid á fyrir nokkrum
árum er skráð á aðstoðaryfirlög-
regluþjóninn í Kópavogi. Engin eðh-.
leg skýring hefur fundist á því af
hverju byssan er skráð á aðstoðaryf-
irlögregluþjóninn en hann hefur ver-
ið í launuðu leyfi um nokkurra mán-
aöa skeið, meðal annars vegna
óánægju samstarfsmanna hans í
Kópavogi með hans störf.
Veðrið á morgun:
Rigning
eða slydda
Á morgun verður norðaustan-
átt, víða ahhvöss. Búast má við
rigningu eða slyddu um allt land-
ið norðanvert og snjókomu til
fjalla en sunnan til verður að
mestu þurrt og skýjað með köfl-
um. Hiti frá frostmarki á Vest-
fjörðum upp í 7-8 stig suðaustan-
lands.
Veðrið í dag er á bls. 36
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
M*1Þuls€*n
Suðurlandsbraut 10. S. 686499.