Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994
Fréttir___________________________________________________________________________x>v
Bæjarstjóri Egilsstaða um boð Grænlandsflugs á björgunarþyrlu fyrir Austfirði:
Verður einungis unnið
í samvinnu við Gæsluna
- viðræður við hagsmunaaðila og svar verður að berast flugfélaginu á morgun
„Þeir bjóöast til að staðsetja þyrlu
á Egilsstööum í 3 mánuði - frá 15.
janúar til 15. apríl. Þetta er Bell 412
- 15 sæta þyrla sem á að vera búin
öllum tækjum til björgunaraðgerða.
Þessu fylgir það skilyröi að við getum
tryggt 11 milljónir íslenskra króna -
við erum að vinna að fjármögnun-
inni en verðum að gefa svar á föstu-
dag (á morgun). Við munum leita til
aðila sem eiga hagsmuna að gæta,
sjómannasamtaka, útgerðaraðila og
við höfum einnig leitað til íjárlaga-
nefndar. Við höfum ekki leitað til
bæjarfélaga enn þá en munum heyra
afstöðu þeirra. Egilsstaðabær mun
leggja til eitthvert íjármagn, við vilj-
um ekki gefa það upp enn þá hve
mikið það verður," sagði Helgi Hall-
dórsson, bæjarstjóri á Egilsstöðum,
í samtali við DV.
Grænlandsflug hefur lagt fram
drög að samningi um leigu á Bell
björgunarþyrlu sem staðsett yrði á
Egilsstöðum. Helgi sagði að kveikjan
að málinu heföi verið umræða „um
að önnur þyrla Landhelgisgæslunn-
ar yröi staðsett úti á landsbyggð-
inni“.
„Meirihluti bæjarstjórnar hefur
lýst því yfir að þyrla skuli staðsett á
Egilsstöðum," sagði Helgi. „Ég held
að Grænlandsflug hafi þannig séð sér
leik á borði og haft samband. Frá
fimmtudegi og fram til þriðjudags
höfum við skoðað þetta dæmi. Á
þriðjudagskvöld var málið tekið fyrir
á bæjarstjórnarfundi og þar var
ákveðið að leita leiða til fjármögnun-
ar. Grænlandsflug telur sig þurfa 22
milljónir til að dæmið gangi upp en
við myndum sjá um 11 milljónir.
Helgi sagði að Grænlandsflug væri
þyrluþjónustufyrirtæki með 15 þyrl-
ur í sinni þjónustu. „Þetta kemur til
vegna þess að Grænlandsflug er að
fá umrædda vél afhenta núna en
ætlunin var ekki að taka hana í notk-
un fyrr en í maí,“ sagði Helgi.
Bæjarstjóri sagði að forstjóra
Landhelgisgæslunnar hefði verið
kynnt hugmyndin síðastliðinn fostu-
dag. Hann vildi ekki tjá sig um við-
brögð hans að svo stöddu.
„Það liggur ljóst fyrir að ef Land-
helgisgæslan metur það svo að þessi
þyrla nýtist henni veröur verkefnið
unnið í samvinnu við hana. Það er
hennar að kalla út þyrlu hvort sem
það yrði héðan eða frá varnarliðinu.
Það hefur engan tilgang að fá vél
hingað sem nýtist henni ekki,“ sagði
Helgi. Bæjarstjórinn sagði jafnframt
að næsta skref í málinu yrði að ræða
við þá aðila sem væntanlega myndu
íjármagna komu þyrlunnar hingað
til lands.
Rækjuviðræður:
Krafaum
frjálsar
veiðareða
stóraukinn
kvóta
„Niðurstaða fundarins var sú að
við gerum kröfu um að veiðar á
rækju verði gefnar frjálsar. Fáist það
ekki í gegn viljum við að kvótinn
verði aukinn um 20 til 25 þúsund
tonn,“ segir Einar Kristinn Guðf-
innsson alþingismaður um fund sem
hann og aðrir þingmenn Vestfjarða
áttu með fulltrúum rækjuvinnslunn-
ar í kjördæminu vegna þess vanda
sem steðjar að rækjuvinnslunni sem
fær hvergi keyptan kvóta.
Einar Kristinn segir það hafa verið
rætt að kvóti rynni til Þróunarsjóðs
og yrði síðan seldur en það hefði
ekki orðið ein af niðurstöðum fund-
arins.
„Mér líst illa á þá hugmynd og ég
óttast að það gæti orðið upphafið að
víðtæku veiðileyfagjaldi þar §em aðr-
ar tegundir myndu fylgja á eftir. Það
er aftur á móti ástæða til að afnema
Frá fundi þingmanna Vestfjarða og forsvarsmanna í rækjuiðnaði. Ágústa Gísladóttir, varaþingmaður Kvennalist-
ans, Einar K. Guðfinnsson alþingismaður, Aðalbjörn Jóakimsson, framkvæmdastjóri Bakka hf. Hnífsdal, Eiríkur
Böðvarsson, framkvæmdastjóri Básafells hf., Halldór Hermannsson frá Rit hf., Guðjón A. Kristjánsson, varaþing-
maður Sjálfstæðisflokks, Sigurður Hafberg, framkvæmdastjóri Þuríðar hf., og Ingimar Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Frosta hf. DV-mynd GVA
15 prósent regluna sem takmarkar nú á bilinu 30 til 35 krónur í skiptum og við munum að sjálfsögðu fylgja
framsalsréttinn. fyrir aðrar tegundir. þessu máli eftir,“ segir Einar Krist-
Hann segir að það hafi komið fram „Ég hef gert sjávarútvegsráðherra inn.
á fundinum að verö á rækjukvóta sé grein fyrir niðurstöðum fundarins
Ný og bætt þjónusta við áskrifendur:
DV á mánudögum
með morgunkaffinu
- helgarblað D V borið út fyrr en verið hefur
Áskrifendur DV verða varir viö
nýja og bætta þjónustu blaðsins frá
og með næsta mánudegi, 7. nóvemb-
er. Þá verður DV komið í hendur
áskrifenda á suðvesturhorninu um
klukkan 7 að morgni mánudags og
aðrir áskrifendur fá blaðið í hendur
með fyrstu ferðum frá Reykjavík út
á land. Samningar hafa tekist við
prentsmiðju Árvakurs um að prenta
DV aöfaranótt mánudags í stað
mánudagsmorgna áður. Þannig ætti
Qöldi áskrifenda DV að geta lesið
glóðvolgar fréttir um atburði helgar-
innar með morgunkafíinu. Aðra út-
gáfudaga kemur DV út á hefðbundn-
um tíma.
Áskrifendur DV frá Stokkseyri,
vestur með Suðumesjum og til Borg-
arness, auk Hveragerðis, Selfoss,
Hellu og Hvolsvallar, munu fram-
vegis fá mánudagsblaðið í hendur
um sjö að morgni. Til annarra staða
á landinu fer DV af staö með fyrstu
áætlunarferðum frá Reykjavik á
mánudögum sem til þessa hefur ekki
tekist'í mörgum tilfellum.
Það sama gildir um dreifingu
mánudagsblaðs DV og helgarblaðs-
ins. Til þessa hefur blaöberum á suð-
vesturhorninu verið gert að bera út
helgarblaðið fyrir klukkan 10 á laug-
ardagsmorgnum. Framvegis eiga
áskrifendur á suðvesturhominu að
fá helgarblaðið í hús um sjöleytið á
laugardagsmorgnum. Með þessu er
verið að koma til móts við óskir
áskrifenda um að fá helgarblaðið fyrr
í hendur.
Már Halldórsson, dreifingarstjóri
DV, segir að forráðamenn nokkurra
blaðbera hafi haft samband og lýst
efasemdum sínum um þessar breyt-
ingar á dreifmgu laugardags- og
mánudagsblaðsins en flestir ætli að
leysa málið í samstarfi við börn sín.
Már efast því ekki um að samstarf
DV við blaðbera verði gott hér eftir
sem hingað til.
Már biður áskrifendur að sýna
blaðbemm skilning meöan þessar
breytingar eiga sér stað.
Stuttarfréttir
Feröirhækka
Formaður Félags íslenskra
ferðaskrifstofa telur að utan-
landsferðir muni hækka í verði
vegna nýrra laga um svokallaðar
pakkaferöír sem ætlað er að auka
neytendavemd.
Samningisagtupp
Tryggingastofnun rfkisíns hef-
ur sagt upp samningum við
sjúkraþjálfara og hjúkrunar-
fræðinga sem starfa við heima-
hjúkrun. Með þessu ætlar ríkið
að spara 50 milljónir.
Gerumgottbetur
Iðntæknistofnun kynnti í gær
ráðgjafarverkefhið Gerum gott
betur sem er styrkt af Evrópu-
sambandinu og ætlað fyrir ís-
lensk framleiöslufyrirtæki.
Bandarísk stjómvöld hafa ósk-
að eftir viðræðum við níu Evr-
ópulönd, þ.á m. ísland, um að
flugfélög þessara landa fái aukin
réttindi til flugs í Bandaríkjunum
og bandarísk flugfélög fljúgi
meira til þessara ianda. Rætt hef-
ur verið við Flugleiðir vegna
þessa.
Jafnvægi á Landakoti
Allar líkur eru á að rekstur
Landakotsspitala verði imian
ramma fjárlaga á þessu ári.
Rekstrarkostnaður hefur iækkað
um 86 milljónir milii ára.
Lentu í bankaráni
Tvær konur frá Akureyri lentu
í bankaráni á írlandi á dögunum.
Samkvæmt RÚV urðu þær
hræddar en varð að öðru leyti
ekki meint af.
Húsbréf avextir hækka
Ávöxtunarkrafa hækkaði í
5,95% í gærmorgun. Frá septemb-
erbyrjun hafa afFóll við sölu bréf-
anna aukist um 5 prósentustig.
Vestmannaeyjar hefur gjörbreyst
til hins betra og fer vaxandi eftir
umdeilda lokun veiðisvæða. Stöð
2 skýrði frá þessu.
Þórslax gjaldþrota
Fyrirtækið Þórslax á Tálkna-
firði var úrskurðað gjaldþrota í
gær. Jón Sigfús Sigurðsson var
skipaður skiptastjóri. Skuldir
Þórslax nema 211 milljónum.