Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994
7
IVIDEO
&, WHAT HOME CiNNSMA
BEST
B
Fréttir
Flóðin á Siglufirði:
Tjónið meira
en talið var
- grófhreinsun lokið á holræsakerfinu
Nú er ljóst að tjónið, sem varð á
Siglufiröi í vatnavöxtunum þar í síð-
asta mánuði, er talsvert meira en í
fyrstu var talið. Björn Valdimarsson
bæjarstjóri segir þó að ekki sé hægt
að nefna neinar tölur í því sambandi
að svo komnu máli, enda verður ekki
fyrr en næsta vor hægt að ljúka við-
gerðum.
Holræsakerfi bæjarins stíflaðist
allt og fylltist meira og minna af
grjóti og aur en ekki einungis kerfið
í suðurhluta bæjarins eins og talið
var í fyrstu. Gróíhreinsun er lokið
en ekki verður hægt að ljúka viðgerð
fyrr en næsta vor.
Björn segir að án efa eigi eftir að
koma í ljós frekari skemmdir á mal-
biki á götum bæjarins, vatn hefði
komist undir malbikið og efiaust
þurfi að fara fram kostnaðarsöm við-
gerð vegna þess. Ein gata, Laugar-
vegur, var brotin upp eftir flóðin til
að komast í stífiu í holræsakerfinu
þar undir.
Mjólkursamdráttur:
Lítil áhrif
á neytendur
- segir forsljóri MS
Mjólkurframleiðsla er mun minni
um þessar mundir en menn gerðu
ráð fyrir. Óttast forráðamenn af-
urðastöðva að vandræðaástand
skapist. Guðlaugur Björgvinsson,
forstjóri Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík, segist hins vegar ekki sjá
að neytendur verði fyrir vandræðum
vegna mjólkurskorts.
„Mjólkurmagn til neyslu hefur
dugað hjá okkur þótt síðasta vika
hafi verið við hættumörk. Næstu
tvær vikur munu gera útslagið um
hvort sækja þurfi mjólk út fyrir suð-
vesturhornið. Við náum að metta
dagvörumarkaðinn en birgðir af
vinnsluvörum gætu minnkað," sagði
Guðlaugur við DV.
Keflavíkurflugvöllur:
Óbreyttat-
vinnuástand
næstu 2 árin
„Þessi samningur þýðir að at-
vinnuástandið á Keflavíkurflugvelli
verður óbreytt frá því sem það er nú.
Það er það gleðilega í máhnu vegna
þess að búist var viö samdrætti,“
sagði Kristján Gunnarsson, formað-
ur Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og nágrennis, um nýjan
viðhalds- og verksamning á Keflavík-
urflugvelh sem gerður hefur verið
við Bandaríkjamenn.
Samningurinn er upp á tvo mihj-
arða króna og gildir fyrir árin 1995
og 1996.
Leiðrétting
Um helgina var haldin hrekkja-
vaka í Upplýsinga- og menningar-
miðstöð nýbúa. í myndatexta í DV á
mánudag sagði aö íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkurborgar hefði
efnt th vökunnar en hún var haldin
á vegum Félags nýrra íslendinga.
Viðlagasjóður ber þann hluta
tjónsins sem snýr að hreinsun hol-
ræsakerfisins og tjóni einstaklinga
sem var nokkurt. M.a. komst vatn í
kjaha nokkurra húsa í suðurhluta
bæjarins og viðgerð á fiskvinnslu-
húsi sem varð fyrir aurskriðu mun
kosta a.m.k. um 2 milljónir króna.
Einstoklega hraðvirkt og hIjóðlátt myndbandstæki með
mánaðar upptökuminni sem deila má á 8 upptökutíma.
INDEX SEARCH - QUICK VIEW - DIGITAL TRACKING
Brautarholti & Kringlunni • Sími Ó25200
Verd ádur lcr. 53.400,-
kr. 39.900,-