Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994 Spumingin Kvíðir þú vetrinum? Sigurjón Baldursson: Nei. Hlakka bara til. Sturla Þorvaldsson: Alls ekki. Berglind Magnúsdóttir: Nei. Kvíða fyrir hveiju? Gyða Rós Gunnarsdóttir: Nei, það er svo gaman á vetuma. * Sigurður Gunnarsson: Nei, ég kviði ekki vetrinum. Árelíus S. Árelíusarson: Já, alveg ofsalega ef hann verður mjög harður. Lesendur Verkalýðshreyfingin, f lokkarnir og fólkið Haukur Guðjónsson skrifar: Menn leggja oft að jöfnu hina pólit- ísku flokka og verkalýðshreyfingar sem hafa jú mikil ítök í póhtískum flokkum. Eöa öfugt. Hvað varöar verkalýðshreyfinguna hér á landi a.m.k. þá var hún í eina tíð öflugri en hún er í dag og gerði ýmislegt fyrir fólkið. Má þar nefna hið viða- mikla tryggingakerfi sem menn njóta góðs af nú. Nú er öldin önnur og verkalýðs- hreyfingin hér á landi er nánast óvirk en hjarir enn. Hún líkist einna helst pólitísku skrímsli sem er orðið of stórt og stirt til átaka. Nú byggja verkalýðs- eða stéttarfélög sumarbú- staði fyrir félagsmenn sem ekki hafa lengur efni á að nota þá. Þau semja um utanlandsferðir fyrir félagsmenn sem flykkjast úr landi til að gera viö- skipti við erlenda kaupmenn og heildsölur og draga þannig þróttinn úr innlendri verslun. Þar eiga kaup- menn og ríkið sjálft að vísu stóra sök. Kaupmenn með óhóflegri álagn- ingu og ríkið með sköttum sem eru orðnir almenningi ofviða. En snúum okkur nú aö pólitísku flokkunum. - Gera þeir eitthvað fyrir fólkið? Það er staðreynd að fólkið er smám saman að fjarlægjast stjórn- málin hér vegna þess að það hefur uppgötvað að flokkarnir eru ekki annað en fyrirgreiðslustofnanir fyrir þá sem þar sitja á fleti fyrir í tryggum stöðum embætta og nefnda sem ekki breytast mikið innbyrðis. Ef einhver fellur frá er óðar kominn náinn ætt- ingi eða venslamaður sem fyllir sæt- ið og makar krókinn með einum eða öðrum hætti. Allt eftir eðh og um- fangi nefndarinnar eða embættisins. Þátttaka í prófkjörum og kosning- um fer minnkandi hér og spá mín er sú að hún verði sífellt minni. Og til hvers ættu menn að vera að kjósa þegar svo aht annað kemur í ljós að kosningum loknum en til var stofn- að? Það skeöur t.d. að flokkur sem kemur sem sigurvegari út úr kosn- ingum verði utan ríkisstjórnar! Póli- tísk hrossakaup eru forsenda stjóm- armyndunar og fjöldi ráðherra fer eftir því hve mikla óþolinmæði lykil- þingmenn hvers stjórnarflokks sýna. Það er því ekki fólkiö, heldur ofur- vald stjórnmálanna, sem ræður hvort þjóðarheildin skakklappast afturábak eða áfram, heldur velli í samfélagi þjóðanna, eða rennur inn í það örsnauð og uppgefin. Pólitísk hrossakaup eru m.a. forsendur stjórnarmyndunar, segir bréfritari Mobiar úr stóru samtökunum Sigurður Sigurjónsson skrifar: Rétt eins og aukin samkeppni er smátt og smátt að ryðja sér til rúms og skila fólki og fyrirtækjum hag- kvæmari hlut bera stóm samtökin, sem áður þóttu vera æskilegasti reksturinn hér á landi, öll merki þess að smátt og smátt sé að molna úr þeim. í sjávarútvegi em stór heildar- samtök ekki jafn sterk og fyrr og aöildarfélög reyna að losa um tengsl- in. í samgöngum í lofti og á legi em fyrirtæki aö hasla sér vöh eða erlend- ir aðhar að koma inn í þessa flutn- inga. Þannig sækir nú t.d. Cargolux á í fragtflugi til og frá landinu, en Flug- leiðir, sem áöur vom einráðar á markaðnum, missa móðinn þegar á móti blæs. Þaö sama skeöur í flutn- ingum á sjó. Eftir að Hafskip var þvingað til uppgjafar var Eimskipa- félagið nokkum veginn einrátt en síöan hafa Samskip komið tU sög- unnar og enn aðrir aðUar eru að hugsa sér til hreyfings í sjóflutning- um. Þá er hætt við að olíufélögin fái brátt aUharða samkeppni frá erlend- um aðUum og er kanadíska ohufélag- ið Irving OU merki um hvað í vænd- um er. Með máh Sölumiðstöövar hrað- frystihúsanna og Vinnslustöðvar- innar í Eyjum em greinileg merki um að SH verði að kyngja fleiri bitum af þvi tagi. Við þessum uppákomum er lítt tU bjargar að fyrtast við og vitna til heiðursmannasamkomulags eða undrast að einstök fyrirtæki taki tU sinna ráða þegar þeim þykir henta. - Aðalatrið er að einingamar í ís- lensku rekstrarumhverfi verða sí- feUt minni og sjálfstæðari og sam- keppnin verður hreyfiaflið. Er hún ekki líka það sem boðað hefur veriö af hvað mestum fítonskrafti? Það er þá líka tU lítUs að reisa stíflur gegn þeirri þróun, hún verður að fá að renna sinn farveg. Hægri beygjur á rauðu Ijósi Páll Steinsson skrifar: Það er gott að hafa öll þessi umferð- arljós í borginni og í nágrenni henn- ar. Öryggið eykst og óhöppunum í umferðinni fækkar. - Of mikið má þó af öllu gera og sums staðar er umferöin afar þung. Manni dettur stundum í hug hvort hér og þar mætti ekki liðka fyrir umferð bif- reiða, létta á umferðarþunganum sem skapast oft að óþörfu. Ég tek hér dæmi af akstri eftir Háaleitisbraut að gatnamótum Kringlumýrarbrautar og ég ætla að beygja inn á þá síðarnefndu í suður- átt, þá er gjaman rautt ljós. Þarna Hringið í síma 63 2 7 00 millikl. 14 og 16 Er hægt að nýta umferðarljósin bet- ur en nú er? ætti að vera leyfilegt að beygja, þ.e.a.s. ef engin umferð er sjáanleg á vinstri hönd. í stað þess er allt stopp, þar til næst kemur grænt ljós. Þama bíöa oft allmargir bílar eftir græna ljósinu en hefðu komist út á Kringlu- mýrarbrautina á meðan engin um- ferð var frá vinstri. - Þetta myndi líka liðka til fyrir umferð um Skip- holt og Bólstaðarhlíð. Öðru myndi ég vilja koma að hér. Nauðsynlegt er að öll umferöarljós á höfuðborgarsvæðinu séu stillt eins, til þess að koma í veg fyrir hin tíðu umferðarslys sem verða oft á gatna- mótum. - Þannig eru t.d. Ijósin við Hringbraut/Njarðargötu mjög vel stiht aö mínu mati. Þar áttar maöur sig á hvenær rauð ljós koma; með því aö horfa á „græna karlinn" - þegar hann kveikir rautt, þá er stutt í rauðu stopp-ljósin. - Svona þyrfti þetta að vera sem víðast. Kjördæmamálið -kosidtvisvar Lárus skrifar: Ég tek undir ummæli þing- manna, sem leggja kjördæma- málinu hð um að vægi þéttbýlist- kvæðanna aukist. Helst vildi ég sjá iandið allt eitt kjördæmi. En allar breytingar munu þurfa að taka til fækkunar þingmanna. Ég tel sjálfsagt að þetta mál hafl for- gang þessa mánuði sem eftir lifa af þingtímanum og niöurstaða fáist fyrir þinglok. Það myndi þýða að kjósa verður tvisvar á næsta ári, samkvæmt reglum stjómarskár þar að lútandi. Þess vegna mætti rétt eins hraða kosn- ingum og hafa þær fyrri fljótlega upp úr áramótum og hinar síðari þá í vor. Hvaðerufjár- hagsördugleikar? Hrafnkeh Tryggvason skrifar: Fjárhagsörðugleikar myndast þegar tekjur nægja ekki fyrir út- gjöldum. Þessi staða getur varað í stuttan tima en þegar hún hefur safhast saman 1 a.m.k. þrjá mán- uði eru komnir upp fjárhagsörð- ugleikar. Þá þurfa einstakhngar og fyrirtæki að grípa í taumana strax. Heimihn eiga ekki marga valkosti. Að auka tekjurnar, sem reynist oft erfiöur kostur, fá við- bótarlán, skera niður neyslu eða endurskipulegja rekstur heimil- isins. Það skal bent á að viðbót- arlán er alls ekki lausn, þá vefst einungis upp á skuidiraar. Það hefur reynst best að stöðva skuldasöfnunina og byrja að vinda ofan af skuldunum. Þetta útheimtir stundum mikið átak af hálfu þeirra sem lenda í fjárhags- öröugleikum. En hefur reynst best þegar til lengri tíma er litið. Fagna nýrri útvarpsstöð Reykvíkingur hringdi: Eg er einn þeirra sem sakna annars konar útvarpsstöövar en nú eru til staðar. Einkum tónlist- arvals sem ekki hefur verið aö mínu skapi. Hefur t.d. skort mjög á vinsæla létta tónlist, suðræna eða svonefnda „Latin-American“ tónhst og lika sígilda. Því fagna ég nýrri útvarpsstöð sem ég vona að bæti tónlistina til muna. Dattmérekki dýralæknir íhug! Saibjörg hringdi: Eftir að Jóhannes í Bónusi gaf út yfírlýsingu um að hann heföi í hyggju að fiytja inn soðna kjúkl- inga, en kjúklingar eru næstum uppurnir á markaðinum, varð mér hugsað til yfirdýralæknis. Hvað skyldi hann nú segja? Jú, enn er það salmonellan, og það í soðnu kjötinu! Hvað er lengi hægt að plata á landann? íslensk Þorsteinn skrifar: Vegna bréfs míns í DV 31. okt. sl. um ofangreint mál ber mér að gefa nánari skýringar á þeirri hugmynd. - Hún er sú að hér rísi alþjóðleg verðbréfahöh með al- hhða möguleikum um kaup, sölu, umboðssölu og upplýsingar. Þá er möguleíkinn sá aö hlutabréf t.d. í Halifax International, sem gefa 7,2,5% arð miðað við ársljár- festingu að andvirði (lágmark) 150.000 pund, geti verðbréfahöllin geti fengið umboð fyrir og selt með lægri vöxtum en tryggðum á einhvern hátt og þannig aukið fjármagnsstrymiö í gegnum ís- land - og þegið umboðslaun þar að auki. En í dag er erfitt fyrir smærri hluthafa að komast inn í svona fyrirtæki, svo ekki sé minnst á milli landa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.