Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Page 11
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994 11 dv________________________________Merming Tónlistardagar Dómkirkjunnar: Orgeltónar Tónlistardagar Dómkirkjunnar hófust á sunnudag- inn var með messu og tónleikum. Var þess þá m.a. minnst að Graduale, eða Grallarinn eins og hann er oftast nefndur manna í miUum, kom út fyrir 400 árum. Þessi menningarhátíð kirkjunnar hefur nú unhið sér traustan sess í listalífi okkar og er það vel. Það tón- skáld sem nú er í forgrunni á hátíðinni er tékkneski tónhöfundurinn Petr Eben. Petr Eben er organisti sem og tónskáld og starfar mia. sem prófessor við Tónlistar- háskólann í Prag og er jafhframt listrænn stjórnandi hstahátíðarinnar Vor í Prag. Orgeltónleikar voru haldnir í gærkvöld á Tónlistar- dögunum. Það var Marteinn H. Friðriksson sem lék á orgel Dómkirkjunnar, fimm verk eftir jafnmarga höf- unda. Fyrsta verkið var Sálmforleikur um sálm sem aldrei var sunginn, eftir Jón Nordal. Þetta hljómfagra og látlausa verk hljómaði vel í túlkun Marteins sem ein- kenndist af hógværri notkun radda og yfirlætislausri rósemi. Tokkata fyrir orgel eftir Hjálmar H. Ragnarsson var næst á efnisskrá. Þetta verk var einmitt samið fyrir Tónlistardaga Dómkirkjunnar 1993. Þetta verk er ákaf- lega hefðbundin orgeltónlist, með kraftmiklum inn- gangi og eftirspili og ekta tokkötuspih á mhh. Undirrit- aður hafði á tilfinningunni að verkið væri ekki leikið nærri næghega hratt og því dytti spenna þess niður. Hér virðist þó vera á ferðinni verk sem býður upp á ákveðinn fjölbreytileik í röddun og túlkun og gaman Tónlist Áskell Másson væri að heyra fleiri organleikara spreyta sig á því. Petr Eben samdi verk sitt Hommage á Dietrich Buxte- hude m.a. út frá stefjum í verki þess siðarnefnda, Pra- eludium, Fuge und Ciacona í C-dúr. Við heyrðum fyrst verk Buxtehudes, en síðan verk Ebens. Bæði verkin lék Marteinn af festu og var forvitnilegt að heyra hve ólíkt höfundarnir tveir fóru með stefin. Tónieikunum lauk með hinu stóra verki Bachs, Pra- eludium und Fuge pro Organo pleno í Es-dúr, BWV 552. Eins og tithl verksins ber með sér er hér leikið sterkum röddum og þetta mikla og erfiða verk lék Marteinn af glæsibrag og voru það ánægjuleg lok þess- ara tónleika. Ástarsaga eftir Guðberg í haust birtist stutt skáldsaga eft- ir Guðberg Bergsson. Þetta er sam- tímasaga sem gerist að mestu í Reykjavík, þó með viðkomu í Bláa lóninu og heimsókn í Grindavík. Söguhetjan er miðaldra karlmað- ur, gullsmiður. Hann vinnur ásamt fleirum á verkstæði við Laugaveg, og finnur til yfirburða gagnvart þeim. Leit Og hér komum við að meginand- stæðum sögunnar. Annars vegar er fullkomnunarviðleitm þessa einfara, en hins vegar ofstækisfull, ágeng meðalmennska. Hún birtist ekki síst í vinnufélaganum Jóa sem alltaf er með nefið ofan í öhu sem aðrir gera og ahtaf tilbúinn með sama dóminn: „Þetta er tóm vit- leysa. Fólk kærir sig ekki um svona hér.“ Á sömu leiö eru frænkurnar í Grindavík með endalausa hnýsni um einkalíf söguhetjunnar, og reka á eftir honum að fara nú að gifta sig. En hann stendur bara í ýmsum samböndum sem öh hafa strandað á því að hann var að leita að „hinni einu réttu“ - og finnur hana reynd- ar í upphafi bókarinnar, eöa hún hann. Síðan hverfur hún honum skyndilega skýringalaust. Þá legg- ur hann á sig langan og margbrot- inn undirbúning fullkominna end- urfunda, gerir einstæðan skartgrip handa henni. í þessari hstsköpun hans eftir vinnutíma birtist sama hugarfarið, leitin að fullkomnun. Andstæða þess er samband hans við konuna á neðri hæðinni. Hún er í senn vinkona söguhetju, náinn félagi hans og ástkona, sem hann þarf ekkert að hafa fyrir, hún gerir engar kröfur til hans. Bókina í gegn er oft undarlegt misræmi milli þess sem söguhetjan segir og viðbragða annarra per- sóna. Þetta skýrist svo undir lok sögunnar, þegar kollsteypa verður í henni. Þannig voru þau hvörf vandlega undirbúin bókina í gegn. Blaðrið Fullkomnunarárátta söguhetju kann að virðast fáránleg í þessari stuttu endursögn minni. En ég held að mörgum lesendum hljóti að finnast hún geðþekk, ekki bara vegna þess hve útbreidd hún er í hugmyndaheimi okkar, heldur ekki síður vegna þess hve fráhrind- andi mótpóllinn er, það ömurlega kjaftæði, sem hér er skopstælt á mörgum síðum. Það er einkum hefðbundin alþýðuspeki í Grinda- vík, en einnig síðasta kosningabar- átta í Reykjavík og ýmislegt fjöl- miðlamal. Álltaf er slegið úr og í, meðalmennskan leyfir ekkert af- dráttarlaust. Skondiö er að sjá söguhetjuna smitast af þessu, eftir að hann hefur úthúðað manninum Bókmenntir Örn Ólafsson sem mest fer í taugamar á honum, segir hann: „Jói er annars góður strákur." Fullkomnunarþrá söguhetjunn- ar leiðir til þess að hann sendir ýmsum kunnum Reykvíkingum tóninn, þó er aðeins einn þeirra nafngreindur, og það er rithöfund- urinn Guðbergur Bergsson (bls. 102-3): Hver vhl ekki geta séð í huganum við lestur hreysti sína og ályktun- argáfu, borna saman við hnignun annarra og blinda hegðun í glæsi- legri frásögu, í staðinn fyrir að þurfa að lesa um það, að glötunin leynist óhjákvæmhega í görnum okkar allra, bæði ríkra og fá- tækra, eins og Guðbergur virðist reyna að troða inn í sína fáu les- endur? Ég á heldur von á því að þessi saga fái marga ánægða lesendur. Hún er bæði fyndin og hugljúf, og umfram aht, vel byggð. Guðbergur Bergsson: Ævínlega Forlagið 1994, 153 bls. Reglulegur fundur Borgarstjórnar Reykjavikur verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag fimmtudaginn 3. nóvember kl. 17:00. Fundurinn er opinn almenningi og er honum jafnframt útvarpað á AÐALSTÖÐINNI FM 90.9. fSfcrlfstola borgarstjóra TILBOÐSDAGAR 20% afsláttur af húsgögnum 1.-5. nóvember Antikmunir Klapparstíg 40, s. 27977, og Kringlunni, 3. hæð, s. 887877 VW FIMMTUDAGS- TILB0Ð , KJÖT OG FISKUR Mjódd Seljabraut Opið9-19 Opið 10-23.30 Sími 73900 Sími 71780

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.