Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1994, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994
Fréttir
Garreth Jones, 32 ára gamall Skoti, leitar sér lækninga í Bláa lóninu:
Býr á tjaldstæðinu
í Grindavík á meðan
- líkar vistin og ætlar að dvelja þar næstu flórar vikur
„Mér líkar frelsið sem fylgir því að
búa í tjaldi og það fer mjög vel um mig
héma. Þó napurt sé og fáir á ferli úti
við hefúr mér ekki orðið kalt. Enda vel
búinn, með svefnpoka sem heldur hita
í allt að 20 gráöa frosti, og skotapilsið,
sem ég hef með mér til halds og trausts.
Ég óttast því ekki þó hann fari að
snjóa," sagði Garreth Jones, 32 ára
gamall Skoti, sem búið hefur í litlu
kúlutjaldi á tjaldstæðinu í Grindvík frá
því á fimmtudag.
Garreth þjáist af psoriasis og er
hingað kominn til að leita sér lækn-
inga. Hyggst hann dvelja hér allt til
10. desember og vonar að þá hafi
hann fengið bót meina sinna.
Garreth fer í Bláa lónið á hveijum
degi. Hann fær far með starfsmanni
lónsins á morgnana og gengur eða
húkkar far til baka. Hann fer síðan
einu sinni í viku á Farfuglaheimilið
í Reykjavík til að ná í póst og senda
bréf. Hann dregur vistir í tjaldið, eld-
ar þar og matast.
Garreth er að heimsækja ísland í
fyrsta skipti, kynntist Bláa lóninu og
meintum lækningamætti þess við lest-
ur tímaritsgreina og ferðabæklinga.
„Það er afar lítið gert fyrir psoriasis-
sjúklinga í Bretlandi og því ákvað ég
að koma hingað. Það er mun styttra
hingað en að Dauðahafinu og þar er
yfirleitt meiri hiti en Skotar geta þol-
Skotinn Garreth Jones býr i tjaldi á tjaldstæðinu í Grindavik og kvartar
ekki þó kalt sé og napurt. Að sjálfsögðú er skotapilsið með í farangrinum.
DV-mynd GVA
að. Umhverfið og loftslagið hér er
keimlíkt því skoska svo mér finnst
ég nánast eins og heima hjá mér.“
- En finnst fjölskyldu og vinum ekk-
ert skrýtið við það að búa í tjaldi í
kuldanum á íslandi?
„Sumum finnst ég örugglega skrýt-
inn en vinir mínir og fjölskylda hafa
á þessu fullan skilning. Það er ekki
vegna þess að ég geti ekki búið ann-
ars staðar eða hafi ekki efni á því.
Ég vil einfaldlega búa í tjaldinu.“
Garreth segist hafa notað tímann
milli baða til að ganga á fjöll í ná-
grenninu og lofar náttúruna. Þá hef-
ur hann farið á leiki Grindavíkur-
liðsins í körfubolta og haft gaman af.
- Hvernig taka bæjarbúar þér?
„Fólk hér er mjög elskulegt. Lög-
reglan heimsótti mig í fyrrakvöld til
að athuga hvort ekki væri allt í lagi.
Það var mjög notalegt að heyra að
fólki stendur ekki á sama um mann.“
Garreth hefur unnið fyrir slökkvi-
lið Glasgowborgar í 12 ár. Hann lang-
aði að ferðast en þar sem ferðalög'
samræmast ekki starfinu ákvað
hann að segja upp. Garreth verður
heima í Skotlandi fram yfir áramót
en þá ætlar hann leggjast í ferðalög
um heiminn. Gefi bööin í Bláa lóninu
góða raun ætlar hann að skrifa um
þaö greinar í skosk blöð og tímarit
og koma síðan aftur seinna.
Félagsdómur:
Kröfum
Landakots
hafnað
„Við höldum áfram að vinna
með undanþágunefnd og þurfum
eflaust að skipuleggja ýmsa þætti
betur. Hugsanlegt er aö við verð-
um aö flytja sjúklinga til og raða
hjúkrunarfræðingum betur inn á
vaktimar. Þaö hefur gengið vel
að vinna meö undanþágunefnd
þannig að ég á eklci von á að sam-
starfið verði erfitt," segir Rakel
Valdimarsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri á Landakotsspítala.
í gær var kveðinn upp í Félags-
dómi dómur í máli Landakotssp-
ítala gegn Sjúkraliöafélagi Is-
lands þar sem spítalinn krefst
þess að viðurkennt veröi með
dómi að 44 sjúkraliðar í um 37
stööugildum beri að vinna í verk-
fallinu. Félagsdómur hafnaði
þessari kröfu og dæmdi spítalann
tíl að greiða Sjúkraliðafélaginu
100.000 krónur í málskostnað.
í dómi Fólagsdóms kemur fram
að stjórnendur Landakotsspítala
hafi ekki samið og birt skrá um
þau störf sem ættu að vera und-
anþegin verkfalli fyrir tilskildan
tima eða 1. febrúar. Þá sé gert ráð
fyrir samráði aðila við gerð verk-
fallslista samkvæmt lögum. Ekki
hafi verið farið eftir því.
^ Handtaka Lindu Pétursdóttur:
Ég lagði aldrei
fram kæru í málinu
- segir maðurinn sem átti bíiinn sem ekið var á
„Þaö var ákvörðun lögreglunnar
að tala við Lindu, ég sat í lögreglu-
bílnum fyrir utan heimili mitt þegar
ég heyrði í talstöðinni að það segir
einhver: „Þarna kemur Linda, eigum
við að tala við hana?“ Ég tók það þá
skýrt fram að hún tengdist ekki
þessu máli. Næst heyri ég svo að ‘
þeir sögöu í talstöðina að þeir ætluðu
aðeins að tala við hana. Ég lagði aldr-
ei fram kæru í málinu heldur bað
einungis um að kannað yrði hvar Les
Robertson hefði verið á þeim tíma
þegar ekið var á bíl minn. Hefði lög-
reglan haldið sig viö það sem hún
var beðin að gera, sem sagt að kanna
fjarvistarsönnun Les, hefði málið
aldrei lent í þessum farvegi," segir
maöurinn sem hafði upphaflega
samband við lögregluna þegar Linda
Pétursdóttir var handtekin.
Hann segist hafa lent í deilu við
Les Robertson, mann Lindu Péturs-
dóttur, fyrr um nóttina og skilið við
hann í uppnámi. Klukkustund síðar
hafi veriö ekið á bíl hans og hann
Linda Pétursdóttir og Les Robert-
son.
vaknað við skarkalann.
„Ég leit út um gluggann og sá þá
bifreið sem líktist bifreið sem er í
eigu móður Lindu. Ég sá ekki hver
ók bílnum en í ljósi þess að við áttum
í þessum deilum dró ég þá rökréttu
ályktun vegna atburða kvöldsins að
þetta gæti verið Les. Reyndar voru
deilur okkar með þeim hætti að
þarna var einungis um að ræða mis-
skilning sem ekkert mál heföi veriö
að hreinsa upp. Ég vildi einungis að
það yrði kannað hvort þarna væri
um að ræða bíl sem tengdist honum
og í framhaldi af því yrði tékkað á
fjarvistasönnun hans, hvort hann
hefði verið á staðnum allan tímann
eða ekki. Auðvitað átti svo grunur-
inn að falla niður strax og í ljós kom
að umræddur bíll fannst óskemmdur
heima hjá móður Lindu," segir mað-
urinn.
Hann segist hafa gert lögreglunni
grein fyrir því að hann hafi ekki get-
að séð hver var í bílnum vegna þess
hve dimmt var. Þá segir hann það
vera sér óskiljanlegt að hann sitji nú
uppi með ónýtan bíl sem viröist orð-
ið að aukaatriði málsins.
DV ræddi við Lindu Pétursdóttur
í gærkvöldi. Hún var þá nýkomin frá
lækni vegna áverka sinna og sagðist
eiga að fara til sérfræðings í dag
vegna áverka á baki og hálsi.
áAlþingi
„Það hefði áreiðanlega veriö
lærdómsrík reynsla að taka sæti
á Alþingi en niðurstaða min var
sú að þaö væri ekki við hæfi
vegna starfa minna á ritstjóm
blaösins," segir Guömundur
Magnússon, fréttastjóri DV,
Guðmundur var nýverið beð-
inn að taka sæti á Alþingi á ijar-
veru eins af þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík en
hann er þriðji varaþingmaður
flokksins í kjördæminu.
„Þegar ég kom til starfa á DV í
vor taldi ég eðlilegt að láta af
trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn, svo sem setu í félags-
málaráði Reykjavíkurborgar og
formennsku í menningarmála-
nefnd flokksins. Ákvöröun mín
nú er í fullu samræmi við þessa
afstöðu mína.“
Stuttar fréttir
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 99-16-00.
39,90 kr. mínútan.
Efsvariöerjá i
ýtir þú á LÍJ
Ef svarið er nei 2 |
ýtir þú á —J
r ö d d
FÓLKSINS
99-16-00
Á ríkið að greiða ferða-
kostnað maka ráðherra?
TölvuveiraoHiskaða
Töhaiveiran J&M eyðilagði
ræsikerfi í mörgum tölvum í gær.
Veiran kom til íslands í upphafi
ársins með feröatölvu frá Ung-
vetjalandi og varð virk 1 gær
samkvæmt forriti.
Harkaieggagnrýni
Sjálfstæðismenn í atvinnulífinu
vilja sækja um aöild aö Evrópu-
sambandinu. Skv. Tímanum
deildu þeir harkalega á forystu
flokksins í þessu máli á leyni-
fundá á Hótel Örk fyrir skömmu.
Markaðurinníónáð
Seðlabankastjóri segir engin
efnahagsleg rök fyrir vaxta-
hækkun um þessar mundir. Á
hinn bóginn kunni að liggja fyrir
því markaðslegar ástæöur. Sjón-
varpið skýrði frá þessu.
Ólögleg landakort
Landmælingar ríkisins reyna
að koma í veg fyrir útgáfu ís-
landskorta í Evrópu, en hún hef-
ur lögbundinn einkarétt á slíkri
útgáfu. Skv. Mbl. er um að ræða
kort frá Ungverjalandi.
Dæmi eru um að íslenskar fjöl-
skyldur svelti og slíkum ölfellum
fer fiölgandi. Sjónv. hafði þetta
eftir félagsmálasfi óra Akureyrar.
Aukinn rækjukvóti
Hafrannsóknastofnun hefur
gert tillögu um að rækjukvótinn
veröi aukinn um 10 þúsund tonn
á fiskveiöiárinu. Skv. Mbl. gæti
þaö þýtt allt að 2 milljarða i auk-
in útflutningsverðmæti.
Umdeildur samningur
Forsfióri Tryggingastofnunar
neitaði að eiga aðild aö starfs-
lokasamningi við Björn Önund-
arson, fyrrv. yfirtryggingalækm.
Sjónvarpið greindi frá þessu.
Stjórn Kísiliðj unnar ræðir í dag
tillögu um að lækka hlutafé fyrir-
tækisins og greiða hluthöfunum
50 milljónir. RÚV greindi frá.
Nýtt frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur:
Vill stjórnlagaþing næsta sumar
„Astæöan fyrir því að ég tel þörf á
stjómlagaþingi er sú aö ég tel að það
sé orðin nokkur hneisa fyrir Alþingi
og alþingismenn að ekki skuli hafa
tekist með skynsamlegum hætti að
taka á kosningalögunum, ekki held-
ur sfiómarskránni, þrátt fyrir að
setið hafi í það minnsta fimm nefnd-
ir í fióra til fimm áratugi yfir mál-
inu,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir,
alþingismaður og fyrrverandi félags-
málaráðherra, í samtali viö DV í gær.
Jóhanna hefur lagt fram á Alþingi
frumvarp til laga um sfiórnlagaþing
og fmmvarp til stjórnskipunarlaga.
í frumvarpinu segir að sfiórnlaga-
þing skuli endurskoða sfiómar-
skrána. Gert er ráð fyrir að það verði
skipað 41 kjörnum fulltrúa sem kosn-
ir verða persónukosningu. Allir em
í framboði sem kjörgengir em nema
alþingismenn.
„Fyrir utan kosningalögin er hug-
myndin að stjórnlagaþing fialli um
ráðherraábyrgö og landsdóm sem
fellur undir sfiómarskrána, sem og
skráðar og óskráðar reglur sem gjlda
um embættisfærslur ráðherra eða
opinberra starfsmanna. Einnig um
embættisveitingar í æðstu störf og
ráðstöfun opinberra flármuna og
hvort draga eigi úr stjórnmálalegum
afskiptum," sagði Jóhanna.