Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1994, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994
Viðskipti
I j i i j |. j j j
_ — _ f;0 Ma
Þingvísit. hlutabr.
XUXU I : i
1 1 i i
1 * *
Þri MiFi Fö Má
'• Þri Mi Fi Fð Má Þr
Kauph. í London
3120
3100 -
3140 ■
Dollará
uppleið
Þorskverð á íiskmörkuðum
hefur sveiflast til síðustu daga.
Kílóverðið á mánudag var 127
krónur.
Þingvisitala hlutabréfa náði
sínu hæsta gildi í síðustu viku,
1010 stigum á fimmtudag. Á
mánudag var vísitalan 1009 stig.
Þegar viðskipti með ál á mark-
aði í London hófust í gærmorgun
var staðgreiðsluverðið 1859 doll-
arar tonnið sem er svipað verð
og undanfarið.
Dollarinn hefur hægt og sígandi
verið að mjakast upp á við síö-
ustu daga. Sölugengið fór hæst í
67,80 krónur á mánudag og var
67,64 krónur í gærmorgun.
Hlutabréfaverð í London hækk-
aði töluvert í gærmorgun þegar
FT-SE 100 fór í 3123 stig, sem er
1,6% hækkun frá sl. fóstudegi.
Norræni fj árfestingarbankinn:
Þrjátíu milljarða
lán til íslands
Norræni fjárfestingarbankinn
— útistandandi lán til íslands, staöan í okt. '94 í
milljónum króna —
Sveitarfélög (3)
1.961
Einkatyrirtæki (9)
1.267
Ríkissjóður
4.282
Sjóöir og bankar (8)
14.494
Fyrirtæki ríkis
og sveitarfélaga (3)
8 207 Alls: 30.211 milljónir
Verðbréfamarkaður íslandsbanka,
VÍB, stóð nýlega fyrir kynningu á
Norræna fjárfestingarbankanum í
Finnlandi sem Jón Sigurðsson, fyrr-
um seðlabankastjóri og ráðherra,
veitir núna forstöðu. Jón flutti erindi
um bankann auk Guðmundar Tóm-
assonar aðstoðarbankastjóra og Ás-
geirs Þórðarsonar frá VÍB. Á fundin-
um kom fram að í október sl. hafi
útistandandi lán bankans til ís-
lenskra lántakenda numið um 30
milljörðum króna.
Norræni fjárfestingarbankinn tók
til starfa árið 1976 og er í eigu Norð-
urlandaþjóðanna. í máli Jóns Sig-
urðssonar kom fram að aðalhlutverk
bankans væri aö hlúa að hagvexti á
Norðurlöndum og stuðla að því að
fyrirtæki á svæðinu tengdust í aukn-
um mæh hvert öðru. Alls lánaði
bankinn 318 milljarða til Norður-
landanna á síðasta ári, þar af 30 millj-
arða til íslands. Jón sagði að hlutur
íslands, um 9%, væri verulegur mið-
að viö stærð hagkerfisins.
Guðmundur Tómasson sagði að ís-
lenskum lántakendum hefðu boðist
hagstæðari vaxtakjör hjá bankanum
en öðrum sambærilegum lántakend-
um. Lánveitingar bankans yrðu hins
vegar að rúmast innan tiltekins
ramma því bankinn tæki enga
áhættu. Þátttaka bankans í hveiju
verkefni takmarkast við 50% hlut-
dehd.
Afkoma Hlutabréfasjóðsins:
54,6 milljóna hagnaður
Samkvæmt uppgjöri Hlutabréfa-
sjóðsins hf. fyrir fyrstu 9 mánuði
ársins var hagnaður félagsins 54,6
miUjónir. Góö afkoma er rekin til
þeirrar almennu verðhækkunar sem
orðiö hefur á hlutabréfum á árinu.
Félagið á hluti í 16 félögum og hluta-
bréf eru 2/3 hlutar eigna þess. Þriðj-
ungur eigna er skuldabréf ýmiss
konar.
Hlutabréfasjóöurinn hóf starfsemi
á árinu 1986. Hluthafar eru tæplega
2 þúsund og eigið fé félagsins er nú
558 milljónir. Gengi hlutabréfa fé-
lagsins hefur hækkað um 24% frá
áramótum.
Hluthafar í Hlutabréfasjóðnum eru
einkum einstakhngar sem hafa nýtt
sér heimild í skattalögum til þess að
lækka skattgreiðslur sínar með
hlutabréfakaupum. Megintilgangur
félagsins er að dreifa áhættu þeirra
sem fjárfesta í íslenskum hlutabréf-
um. Þær breytingar hafa orðið á frá-
dráttarbærni kaupverðs hlutabréfa
frá skattskyldum tekjum einstakl-
inga að í næsta framtah verður heim-
ilt að draga frá 80% þeirrar fjárhæð-
ar sem keypt er fyrir. Frádrátturinn
getur hæstur orðið 100 þúsund hjá
einstakhngi og 200 þúsund hjá hjón-
um.
Þrír togarar seldu 1 Þýskalandi:
Átta prðsenta verðlækkun
Óvenju mikil skipasala fór fram í
Þýskalandi í síðustu viku. Þrír togar-
ar seldu afla sinn fyrir alls 35 milljón-
ir króna. Meðalverð þessara togara
er 8 prósentum lægra en fékkst í
Þýskcdandi í vikunni áður en lan^-
mest seldist af karfa.
Engey RE seldi 147 tonn fyrir 13,8
mihjónir, Sólberg ÓF fékk 10,5 mihj-
ónir fyrir tóep 110 tonn og Dala-Rafn
VE seldi tæplega 117 tonn fyrir 10,8
mihjónir. Sólberg náði hæsta meðal-
verði á hvert kfió eða 96 krónum.
Hlutabréfaviðskipti í síðustu viku
námu aUs tæpum 24 milljónum
króna. Þar af seldust hlutabréf Síld-
arvinnslunnar í Neskaupstað fyrir 7
milljónir, Ohufélagsins fyrir 5,5
milljónir og íslandsbanka fyrir tæp-
ar 2 milljónir. Mesta breyting á verði
hlutabréfa varð hjá Haraldi Böðvars-
syni hf. en þar lækkaði verð um
14,2% mhh vikna. Hlutahréf Flug-
leiða hækkuðu um fimm punkta í
vikunni en Eimskipsbréfin lækkuðu
um sex punkta.
Eins og fram kemur hér tíl hhðar
náði þingvísitala hlutabréfa sögu-
legu hámarki í síöustu viku, eða 1010
stigum. Af þeim hlutabréfum 14
hlutafélaga sem viöskipti urðu með
í vikunni hækkaði verð í 8 tilvikum.
Óveruleg viðskipti fóru fram með
hlutabréf á mánudag, eða fyrir 1,2
miUjónir. Viðskipti gærdagsins lágu
ekki fyrir þegar þetta var ritað.
Útflutningsafurðir, gjaldmiðlar og verðbréf
DV
Iðntæknistofnun
ogHansPeter-
sen verðlaunuð
Iðntæknistofnun og Hans Pet-
ersen hf. fengu hvatningarverö-
launin 1994 sem Gæðastjórnun-
arfélag íslands afhenti með viö-
höfh í Árbæjarsafni sl. fimmtu-
dag. Þetta or í annaö sem verö-
launin eru afhent en i fyrra fóru
þau tU Lýsis hf.
Núna var sú nýjung uppi aö
verðlaunum var skipt í tvo
flokka, annars vegar fyrirtæki í
einkarekstri og hins vegar fyrir-
tæki í opinberri þjónustu. Iðn-
tæknistofnun og Hans Petersen
voru valin úr hópi fjölda fyrir-
tækja og stofnana sem voru tíl-
nefnd tU verölaunanna.
Flutningsmiðlun
lækkarflugfrakt
í fréttatilkynningu frá Flutn-
ingsmiðlun hf. kemur fram að
fyrirtækið segist bjóða allt að 50
prósenta lægra fraktverð með
fiugi frá Evrópu tíl íslands en
hstaverö hljóði upp á.
Þetta segir Steinn Sveinsson hjá
Flutningsmiölun að hafi tekist
með hagstæðum fraktsamning-
um við Flugleiðir í krafti þess
magns sem fyrirtækið flytur með
flugi til landsins, eða um 600 tU
800 tonn á ári hveiju.
Söluaukning kjá
Steinullarverk-
smiðjunni
ÞórhaHur Asmundss., DV, Sauðáifccóki:
Sala Steinullarverksmiðjunnar
á Sauðárkróki fyrstu 10 mánuði
ársins nam 384,6 mifijónum
króna sem er 15,5% aukning mið-
að við sama tímabU i fyrra. Salan
innanlands nam um 236 mUljón-
um sem er 6% aukning milli ára
en verðmæti útflutnings hefur
aukist úr 111 miUjónum 1993 1
148,8 mUljónir í ár. Stærstu út-
flutningsmarkaðirnir eru Bret-
land og Þýskaland.
Samkvæmt 8 mánaða uppgjöri
var 3 miljjóna hagnaður af rekstri
fyrirtækisins í samanburði við
66,4 mUljóna tap á sama tíma í
fyrra. Afkomubatann má þakka
aukinni sölu, einkum á útflutn-
ingsmörkuðum, auk þess sem
gengisþróun hefur verið fyrir-
tækinu hagstæö. Einar Einars-
son, framkvæmdastjóri SteinuU-
arverksmiðjumiar, segist von-
góður um aö reksturinn veröi í
jafhvægi um áramót og útkoman
nálægt núUi.
Skagfirðingur
stefniráVerð-
bréfaþingið
Þórhalhir Asmundss., DV, Sauöárkróki:
Samkvæmt uppgjöri á rekstri
útgerðarfélagsins Skagfirðings
fyrir fyrstu níu mánuði ársins er
37 mUljóna hagnaður á félaginu.
Þetta er fyrsta endurskoðaða
uppgjöriö er litur dagsins Ijós eft-
ir að Skjöldur hf. sameinaðist
Skagfirðingi um síðustu áramót.
Fjármimamyndun í rekstrinum
hefur verið 115 miUjónir á þessu
tímabih.
Framlag tfl afskrifta og íjár-
magnskostnaðar hefur einnig
aukist, er 152 miHjónir miðað við
141 miUjón aUt árið í fyrra. Eigið
fé Skagfirðings er nú 325 mUljón-
ir og veltufjárhlutfaU 1,15. Núver-
andi hlutafé Skagfirðings er 343
miUjónir. Heimfid er fyrir 380
milljónum í hlutafé og er ætlunin
að auka það í 400 milljónir á næst-
unni. Skagfirðingur er opið félag
sem stefifir að skráningu á Verð-
bréfaþingi fyrir iok næsta árs.