Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1994, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994
9
Útlönd
Endurminningar Karls prins fá hraklega dóma sem og hann sjálfur:
- segir í Economist þar sem bók prinsins er kölluð lengsta afsögn sögunnar
„Einu rökin fyrir aö halda í kon-
ungdæmið eru þau að það svarar
ekki kostnaði að svipta Karl krún-
unni,“ segir í ritdómi breska viku-
ritsins Economist um endurminn-
ingar Karls Bretaprins. Þar er bók-
inni lýst sem lengstu afsögn sögunn-
ar og Karl fær bágt fyrir að láta lýsa
sér sem hálfgerðri kveif.
Economist er íhaldssamt rit og að
jafnaði konunghollt en eftir útkomu
bókarinnar er það bara spamaðurinn
við að breyta ekki um stjómarform
sem mælir með því að framhald verði
á sápuóperunni í Buckhinghamhöll. Karl hefur fengið bók sína í höfuðið.
Bók Karls fær allajafna slaka dóma
í bresku blöðunum. í einu er minnt
á að þegar Karl og Díana gengu í
hjónaband hafi því verið spáð að eft-
ir öld yrðu aðeins flmm kóngar eftir
í veröldinni; hjarta-, spaða-, tígul-,
lauf-, og Bretakóngur. Nú htur út
fyrir að kóngarnir verði aðeins fjórir.
Það eru ekki bara blöðin sem tapað
hafa trú á Karli með sjálfslýsingunni
í bókinni. Almenningur í Bretlandi
er líka búinn að fá nóg af sínum
manni. Á einu ári hefur fylgi við
konungdæmið fallið í skoðanakönn-
unum úr um 90% niöur í 70%. Á
sama tíma fitnar flokkur lýðveldis-
sinna eins og púkinn á fjósbitanum.
Verst þykir til þess að vita að Karl
tók ekki sjálfstæða ákvörðun þegar
hann gekk að eina Díönu prinsessu.
Þar réð Filippus faðir hans ferðinni
og er sá gamli nú meðal óvinsælustu
manna í Bretaveldi.
Þá hefur Karl brotið aldagamla
hefð með því að opinbera tilfmningar
sínar í bókinni. Það hafa forverar
hans ekki gert og síst bætir úr skák
að þessar tilfmningar þykja heldur
ómerkilegar.
Steffens
small face
Hún:
Peysa 2.130,-
Buxur 1.950,-
Bolur 1.590,-
Húfa 710,-
Hann:
Skyrta 2.795,-
Buxur 2.295,-
Vesti 1.995,-
10% staðgreiðsluafsl.
Ekkert
póstkröfugjald
Laugavegi 89 • Reykjavík • Sími 10610
Zhana Zhekova hefur ekki beinlínis verið með frægustu tiskuhönnuðum á
undanförnum árum. Hún þykir þó standast þeim færustu i greininni snún-
ing og sannaði það með sýningu á fötum sínum í Búlgaríu nú í vikunni.
Þetta er áður óþekktur fatastill þar i landi. Símamynd Reuter
Kaupmannahafnarháskóli:
Lektor missir dokt-
orsgráðu ffyrir svindl
Náttúruvísindadeild Kaupmanna-
hafnarháskóla hefur svipt lektorinn
Else Kay Hoffmann doktorsnafnbót-
inni sem hún fékk árið 1987 vegna
umfangsmikillar og óviðurkvæmi-
legrar notkunar hennar á niðurstöð-
um annarra vísindamanna.
Else Kay Hoffmann hefur einnig
margoft notað yfirlitsgreinar ann-
arra manna í eigin greinar, þar á
meðal tvær sem voru notaðar við
doktorsvörn hennar árið 1987, án
þess að geta heimilda.
Hin 52 ára gamla Else Kay Hoff-
mann hefur annars staðið sig ágæt-
lega sem vísindamaður en svindl
hennar komst upp þegar hún sótti
um prófessorsstöðu. Hún er félagi í
ýmsum samtökum vísindamanna,
þar á meðal hinu konunglega vís-
indamannafélagi. Búist er við að
henni verði vikið úr þeim félagsskap
verði hún ekki fyrri til að hætta sjálf-
viljug. Ritzau
MATUR&KÖKUR
///////////////////////////////
AUKABLAÐ UM
MAT OG KÖKUR
FYRIR JÓLIN
Miðvikudaginn 23. nóvember nk.
mun aukablað um matartilbúning fyrir jólin,
kökuuppskriftir og jólasiði
fylgja DV eins og undanfarin ár.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á
að auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega
hafi samband við Björk Brynjólfsdóttur,
auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 63 27 23.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur aug-
lýsinga er fimmtudagurinn 17. nóv.
ATH.! Bréfasími okkar er 63 27 27.
farlama heima
Elísabet
drottningar-
móðir í Bret-
landi veröurnú
að halda sig
heima við
vegna fótar-
meins sem
læknum tekst
ekki að
græöa. Gat hún m.a. ekki farið til
kirkju á minningardegi her-
manna síðasta sunnudag. Þar
hefur sæti hennar ekki verið autt
í 35 ár.
Bretar búa sig nú undir fréttina
af andláti gömlu konunnar.
Breska ríkisutvarpið, BBC, varð
sér þar til skammar í síðustu viku
þegar prufufrétt um fráfail Elísa-
betar var send út fyrir mistök.
Forsetaslagur-
inn hafinní
Bandaríkjunum
Hörkubarátta er aö hefjast
raeðal bandarískra repúbiikana
um forsetaefni flokksins fyrir
kosningarnar árið 1996. Öldunga-
deildarþingmennirnir Phii
Gramm og Arlene Specter hafa
þegar gefið kost á sér. Báðir eru
íhaldsmenn góðir og njóta stuðn-
ings trúaðra manna.
Þá mun þingskörungurinn Bob
Dole hyggja á framboð. Hann hef-
ur að sögn undirbúið flutning í
Hvíta húsið um árabil. Ein kona
er og nefnd til sögunnar. Sú er
Lyrra Artin, ráðherra atvinnu-
mála í stjórn George Bush. Frjáls-
lynd kona en litlaus.
Stríðsmenn Bush úr Flóabar-
daga, þeir Colin Powell og Dick
Cheney, munu og hafa hug á
framboði.
Rifrildi foreldra
Láru heitinnar
Irffæraþega
„Þaö væri
legsteinn á gröf
hennar ef kon-
anmínfyrrver-
andi leyfði að
nafn mitt stæði
þar líka,“ segir
Les Davis, faðir
Láru heitinnar
líffæraþega. Hún var mjög í frétt-
um á síðasta ári eftir að hafa feng-
iö sex ný liffæri. Hún lést þó fyrir
réttu ári eftir hetjulega baráttu.
Áður hafði hún hriflð heims-
byggðina með bjartsýni sinni og
lífsgleði.
Nú hafa foreldrar Láru skilið
og geta ekki einu sinni komið sér
saman um legstein á gröf hennar.
Rifrildi þeirra hjóna hefur vakið
mikla athygli í Bretlandi og hafa
margir orðið til að áfellast þau
fyrir sundurlyndið. Skammirnar
ganga á víxl og lögmenn beggja
sitja á löngum fundum þar sem
reynt er að ná samkomulagi um
sjálfsögðustu lúuti.
Ástríkurerá
mótiESBenguð
hlutiaus
Krístilegir þjóðarflokksmenn í
Noregi hafa lent í vandræðum
meö afstööu drottins guðs almátt-
ungs til ESB. Flokksmenn eru á
móti ESB en hafa orðið að fallast
á að leiðtogi lifs þeirra sé senni-
lega hlutlaus.
Kristilegir láta þó ekki deigan
síga í leit að goðumbomum ESB-
andsíæöingum. Nú hafa þeir
fundið út að teiknimyndahetj-
urnar Ástríkur og Steinríkur séu
svamir andstæðingar skrifræðls-
ins í Brussel.
Sparnaður í að láta
Karl hafa krúnuna