Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1994, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994
11
______________________________Meiming
Seiðandi og mögnuð saga
Fríöa Á. Sigurðardóttir hefur
sent frá sér enn eitt meistarastykk-
ið, skáldsöguna í luktum heimi.
Tómas, aðalpersóna þeirrar bókar,
er ekki svo ósvipaður súperkon-
unni Nínu úr síðustu bók Fríðu
Meðan nóttin liður: kaldhæðinn
skynsemishyggjumaður sem ýtir
frá sér öllum tilfmningum, öllu því
sem á einhvem hátt getur hróflað
við þeirri ímynd sem hann reynir
að halda að sjálfum sér og heimin-
um. En ólíkt Nínu, sem fer sínar
eigin leiðir, er Tómas ofurseldur
valdi föðurins, Jóhanns Marsihus-
ar, sem stjórnar fjölskyldunni með
harðri hendi og beitir öllum brögð-
um til þess að halda Tómasi að
vinnu sinni innan fjölskyldufyrir-
tækisins. Langanir Tómasar eru
aukaatriði og smátt og smátt bæhr
hann þær niður og felur sig í
brynju hörku og miskunnarleysis
og fælir með kuldalegu athæfi sínu
frá sér Maríu sem hann hefur búið
meö árum saman. í brynjuna koma
þó brestir þegar líður á söguna,
þegar Tómas kynnist Rut og sogast
án þess að fá nokkm um ráðiö inn
í hringiðu heitra og ofsafenginna
tilfinninga, þeirra tilfinninga sem
hann hefur sem ákafast áfneitað.
Rut, sem er ung og bjartsýn, kemur
eins og heitur andblær inn í líf
Tómasar og færir honum löngun
til að lifa og elska, gerir út af við
tómleikakenndina sem hefur þjak-
að hinn miðaldra Tómas um nokk-
urt skeið. En Tómas höndlar ekki
þessa gífurlegu tilfinningasprengju
og í lok bókar stendur hann Rutar-
laus og berskjaldaður frammi fyrir
sjálfum sér - og lesendum. Les-
andinn er skilixm eftir með persónu
sem þarf að taka líf sitt til rækilegr-
ar endurskoðunar; það er engin
leið til baka inn í lokaðan heim
sjálfsafneitunar og tilfinningaleys-
is því Tómas hefur reynt hamingj-
una á sjálfum sér.
í luktum heimi er margslungin
saga, þroskasaga, íjölskylduharm-
saga og undurfalleg ástarsaga þar
sem alhr þræðir mætast í persón-
unni Tómasi, skerpa hana og lýsa
svo úr verður ljóslifandi persóna
sem er bæði sjarmerandi og sympa-
tísk undir sinni köldu skel. Auka-
persónur sögunnar eru ekki síður
áhugaverðar og vel skapaðar frá
hendi höfundar: hin lífsþyrsta Rut,
harðstjórinn Jóhann Marsihus og
systirin Thea með sitt „sálfræöi-
rugl“, svo dæmi séu tekin, stíga
fram sem sjálfstæðir og krefjandi
einstaklingar sem heimta sína at-
hygli - og fá. Sthl bókarinnar
minnir um margt á Meðan nóttin
FRÍÐA Á. SIGURÐARDÓTTIR
I LUKTUM
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir
höur þar sem hlaupið er fram og
tíl baka í tíma og skihn milli fortíö-
ar og nútíöar eru óljós. í luktum
heimi er byggð upp í dagbókar-
formi, sundurleitum hugsunum
Tómasar um atburði líðandi stund-
ar. Inn í þær hugsanir fléttast hug-
leiðingar um löngu höna og sárs-
aukafulla hluti sem Tómas vih
helst gleyma en skýra það að hluta
hvers vegna hann er eins og hann
er. Th þess að byrja með ákveður
Tómas að skrá aðeins niður atburði
og viöheldur vissri fjarlægð með
því að tala oftast um sjálfan sig í
þriðju persónu en þannig getur
hann lokað tilfinningarnar mis-
kunnarlaust úti. í þriðja og síðasta
hluta bókar er vamarmúr Tómas-
ar hruninn og þá taka tilfinning-
arnar að flæða fram í átakanlegri
sögu þar sem fyrstu persónu frá-
sögnin tekur alfarið yfir. Fríða beit-
ir þessari erfiðu frásagnartækni
svo áreynslulaust að lesandinn
meðtekur hana án þess að mögla.
í sthnum eru á áhrifamikinn hátt
undirstrikuð þau stakkaskipti sem
verða á persónu Tómasar, hvemig
hann smátt og smátt gefur upp á
bátinn thraunir th að skoða líf sitt
með hlutlausum augum áhorfand-
ans og neyðist um leið th að taka
afstöðu th sjálfs sín. Og það er dáht-
iö kaldhæðnislegt að hann skuh
einmitt reyna á sjálfum sér þá að-
ferð sem hann fyrirleit sem mest:
að tala sig í gegnum sársaukann.
í luktum heimi er átakanleg og
ástríðufuh saga, stútfuh af krefj-
andi hugleiðingum um ástina,
dauðann og thgang lífsins, saga
sem mér reyndist ómögulegt aö
leggja frá mér fyrr en hún var öh,
svo seiðandi er hún, mögnuð og
sterk. Og ólíklegt finnst mér að
hinn harði en um leið manneskju-
legi Tómas hverfi úr huganum í
bráð.
í luktum heimi
Friða Á. Sigurðardóttir
Forlagið 1994
Group TEKA AG
Heimilistæki
á kynningarverði
Nú er lagl
Endurnýjaðu gömlu tækin
með glæsilegum og vönduð-
um TEKA heimilistækjum,
meðan þessi hagstæðu kynn-
ingarverð bjóðast.
Flauta og harpa
Nýlega kom út hljómdiskur (CD) frá fyrirtækinu ARSIS (94001), með
samleik þeirra Peter Verduyn Lunel flautuleikara og Ehsabetar Waage
hörpuleikara.
Á þessum hljómdiski eru fimm tónverk eftir jafnmörg tónskáld. Fyrsta
verkið er Naiades eftir Wihiam Alwyn sem hann skrifaði árið 1971. Þetta
er vel skrifað verk, fremur hefðbundið í stíl og frjálslegt í formi, enda
undirtitill þess Fantasíu-sónata fyrir flautu og hörpu. Verkið er hér geysi-
vel leikið, af næmri tilfinningu íyrir hljóðblæ og hendingum og er sam-
spil þeirra Peters og Elísabetar mjög gott.
Ballade frá árinu 1950 eftir hohenska tónskáldið Henk Badings er næst
á diskinum og er þaö fögur tónsmíð, í impressjónískum stíl. Einnig hér
er leikur þeirra hreint frábær og einkennist m.a. af miklu næmi fyrir
hljómht og framvindu tónhstarinnar.
Einleiksverkið Svíta fyrir hörpu opus 83 eftir Benjamin Britten er næst
í röðinni. Svítan er í fimm þáttum: Forleikur, Tokkata, Næturljóð, Fúga
og Sálmur (St. Denio) og ber hver þeirra sitt sjálfstæða yfirbragð. Þetta
Tónlist
Áskell Másson
fjölbreytta verk er ágætur prófsteinn á færni hörpuleikara, en Ehsabet
skhar ekki aðeins nótunum öhum, heldur er leikur hennar glæddur skáld-
legri ljóman svo unun er á að hlýða.
Hið ástsæla mhlisph, eða Intermessó úr Dimmahmm eftir Atla Heimi
Sveinsson, hljómar næst, og það fallega leikið af þeim Peter og Elísabetu,
þótt flautan virki fuhsterk miðað við hörpuna.
Lokaverkið er hin þekkta „Arpeggione“-sónata eftir Franz Schubert.
Peter-Lukas Graf mun hafa umskrifað verkið fyrir flautu og hörpu og
hljómar það sannarlega ekki verr fyrir þau hljóðfæri en svo mörg önnur
sem þessi tónsmíð hefur verið leikin á. Verkið er og ágætlega leikið. Tónn
þeirra virðist með ágætum og búa yfir bæði fyllingu, krafti og léttleika,
þegar/eins og við á hverju sinni, en hér kemur að upptökunni, sem fyrir
undirrituðum er eini gahinn á þessum hljómdiski. Upptakan mun vera
gerö í kirkju í Hollandi, en tónn hennar er of harður og mjór og skortir
breidd og dýpt. Er það miður fyrir svo ágæta hstamenn sem þau Peter
Verduyn Lunel og Elísabet Waage eru. Engu að síður er þeim hjartanlega
óskað til hamingju með þennan hljómdisk og eiga þau hrós sjálfs Yehudi
Menuhins, sem prentað er á bækhng disksins, svo sannarlega skihð.
íslenskur veruleiki
Sigrún sækir efnivið sinn í dag-
legt líf barna og unglinga í dag.
Sögusviðið er óthgreint hverfi í
Reykjavík og söguhetjurnar eru á
aldrinum sex til þrettán ára.
Sagan hefst á fundi hjá leynifé-
laginu Beinagrindinni. Meðhmir
eru fiórir og bera ahir leyninöfn
sem dregin eru af nöfnum beina í
fót- og handleggjum. Það eru þau
Spíra, Sköflungur, Dálkur og Oln.
Tilgangur félagsins er ekki alveg
ljós en njósnir og dulmálslyklar
eru ofarlega á blaði. Þar sem þau
eru öll tón- og söngelsk dreymir
þau um að setja upp rokksöngleik
í skólanum. Þegar ekkert er annaö
við að vera tína krakkarnir rusl
af götum og úr görðum nágrann-
anna og það er einmitt í shkum
Bókmenntir
Oddný Árnadóttir
leiðangri sem Spíra kemst á snoðir
um óheiðarlega starfsemi brugg-
ara. Þeir góma hana þar sem hún
hggur á hleri og upp frá því æsist
heldur leikurinn.
Sú mynd sem höfundur dregur
upp af lífi barnanna er afar raun-
sönn. Foreldrar þeirra eru lítið
heima og þau ganga því mikið sjálf-
ala. Fyrir vikið eru þau afar sjálf-
bjarga og sjálfstæð eins og títt er
um íslensk börn. Það sem einkenn-
ir helst söguna er hvað höfundur
leggur mikið upp úr því að brjóta
upp hefðbundiö hlutverkamynst-
ur. Foreldrar Spíru eru báðir úti-
vinnandi, faðir hennar visinda-
maður og móðir hennar þingmaður
sem er mjög sjaldan heima. Móðir
Alnar og Dálks virðist hins vegar
fráskilin því þau búa með henni
og ömmu sinni. Skólastjórinn er
kona og best af öhu finnst mér að
annar glæpamaðurinn í sögunni er
„rosalega sætur“ ungur maður í
stað þess að vera ófrýnilegur karl.
Það er óhætt að segja að Sigrún
sæki efnivið sinn í nútímann þar
sem ólögleg bruggstarfsemi hefur
verið mjög áberandi í íslensku
þjóðfélagi undanfarið ár eða svo.
Hún kemur einmitt inn á þær hætt-
ur sem skapast af óvönduðum
vinnubrögðum þeirra manna sem
þessa iðju stunda og siðleysi þeirra
í vali á viðskiptavinum.
Þegar á heildina er litið er bókin
skemmtileg aflestrar og uppeldis-
gildið áberandi án þess að fara út
í öfgar. Myndirnar sem prýöa sög-
una falla mjög vel að textanum og
gera bókina aðgengilegri fyrir
yngri aldurshópa.
Sigrún Eldjárn
Syngjandi beinagrind
Forlagið 1994
NÓVEMBERTILBOÐ Á
HREINLÆTISTÆKJUM O.FL.
20-40% afsláttur
VATNSVIRKINN HF.
Arrnúla 21, simar 68 64 55 - 63 59 66
Innbyggingarofnar, efri
og neðri ofnar.
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál.
Verð frá 17.950
O ■
Helluborð
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál
með eða án takkaborðs.
Steyptar hellur
verð frá 11.900
Keramik hellur
verð frá 24.350
Viftur og háfar
Litir: hvítt, brúnt eða
burstað stál.
Verð frá 6.890
Stjórnborð
Litir: hvitt eða brúnt
Verð frá 3.250
Faxafeni 9, s. 887332
Oplð: mánud.-föstud. kl. 9-18
laugard. 10-14
Verslun fyrir alla