Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1994, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994
Spumingin
Ertu byrjaður/uð að kaupa
jólagjafir?
Herdís Guðmundsdóttir: Nei.
i
i
Þorsteinn Þorsteinsson: Ég* byrja
ekki fyrr en um miðjan desember.
Kristín Agnarsdóttir: Nei, ég byrja
23. desember.
Jóhanna Ingadóttir: Já, ég er búin
að kaupa eina.
Heiða Dröfn Bjarnadóttir: Nei, ekki
ennþá.
Guðríður Guðjónsdóttir: Já, ég er
búin að kaupa eina en maður fer að
gera þetta.
Lesendur
Ovandaðir
viðskiptahættir
Ný lög hafa tekið gildi um sölu notaðra ökutækja.
Helgi Skúlason skrifar:
Því miður kemur það of oft fyrir
að við kaup og sölu notaðra öku-
tækja séu viðhafðir óvandaðir við-
skiptahættir. Margir grandalausir
neytendur hafa þurft að líða fyrir það
þar sem slík viðskipti eru í raun,
vegna þekkingarleysis, áhættusöm
fyrir stóran hóp neytenda. - Nú í
maí sl. gengu í gildi í fyrsta sinn lög
um sölu notaðra ökutækja og er þeim
ætlað að auka neytendavernd í þess-
um málum, m.a. með því að leggja
ýmsar skyldur á herðar bifreiðasala
sem ekki voru áður.
í seinni tíð hefur, að því er virðist,
aukinn hluti viðskipta með notuð
ökutæki færst til bílaumboðanna
sem telja verður að séu nokkuð vönd
að virðingu sinni og með því hafí
öryggi viðskiptavina aukist. Ætla
má að þetta tvennt hafi orðið til að
auka öryggi í bílaviðskiptum og vona
ég að svo verði. Því er þó ekki að
heilsa í öllum tilfellum og því rita ég
þessa grein nú.
Laugard. 5. nóv. sl. kom ég í Bíla-
þing Heklu og sá þar bíl er hentaði
mér. Ég gerði því tilboð í bílinn. Sölu-
maður Heklu sagði mér að billinn
væri í eigu eins af starfsmönnum
fyrirtækisins og kvaðst hann kanna
hvort boði mínu yrði tekið. Eftir að
hafa gengið afsíðis um stund kom
hann til baka og sagði mér að boði
mínu væri tekið. Komið var að lokun
og bað hann mig því að koma nk.
mánudag og þá væri hægt að „ganga
frá þessum viðskiptum". - Hann
sagðist þó ekki verða við þá og benti
mér á annan sölumann sem myndi
annast þetta.
Bíll af þeirri tegund sem hér um
ræðir er mjög vandfundinn. Annar
bíll sömu gerðar stóð mér þó til boða
á sama verði en ég afþakkaði það,
þar sem mér leist betur á bílinn hjá
Heklu. Auk þess taldi ég munnlegan
samning vera kominn á með milli-
göngu starfsmanns Heklu. -
Ég kom síðan á mánudagsmorgni
til að ganga frá viðskiptunum. Þá
kannaðist sölumaðurinn, sem mér
hafði veriö bent á, ekkert við þessi
viðskipti. Hann hafði samband við
eiganda bílsins og var mér þá sagt
að hann væri tilbúinn að selja bíhnn
en ég yrði að greiða 150.000 kr. meira
en hinn sölumaðurinn hafði sagt
mér. Það vildi ég ekki og kvaðst mjög
óánægður, sér í lagi þar sem þeSsir
bílar erú vandfundnir og ég hafði séð
á eftir öðrum bíl sömu gerðar. Sölu-
maðurinn kvaðst ekkert geta gert og
bað mig afsökunar.
Ég fór því á fund forstjóra fyrirtæk-
isins og bað hann að leita lausnar á
þessu máh. Hann bað mig einnig af-
sökunar en kvaðst ekkert geta gert
fyrir mig. Ég spurði hvort fyrirtækið
bæri. ekki ábyrgð á misgjörðum
starfsmanna þess og sagði hann svo
vera en það gæti það ekki í þessu til-
felli. - Það er von mín að þetta tilvik
sé undantekning en ekki regla og að
trúverðugheit fyrirtækisins og
starfsmanna þess verði meiri í fram-
tíðinni.
Misskilningur að óþörfu
- s var frá BHaþingi Heklu hf.
Finnbogi Eyjólfsson skrifar:
Vegna skrifa Helga Skúlasonar um
viðskipti sín við Bílaþing Heklu ósk-
um við aö eftirfarandi komi fram:
1. Rétt er að Helgi kom á bílasölu
okkar 5. nóv. og gerði munnlegt
verðthboð í ákveðna bifreið sem var
í umboðssölu hjá okkur. Hann gerði
þó aö skilyrði að bifreið, sem hann
kvaðst eiga, yrði tekin sem greiðsla
upp í andvirði hennar. Helgi var ekki
með sína bifreið og því fór ekki fram
skoðun á henni eða verðmat sem að
sjálfsögðu er hluti af viðskiptunum
þegar bílaskipti eru gerð.
2. Rangt er að munnlegur samning-
ur hafi komist á um kaup, enda óger-
legt aö ná sambandi við eiganda við-
komandi bifreiðar th umsagnar um
thboð Helga, og ástand á hans bifreið
óvitað af okkar sölumanni.
3. Rétt er að þegar Helgi gerði th-
boðið vék sölumaður frá til að leita
upplýsinga hjá sölustjóra um hvort
hann teldi að yfirleitt væri um bha-
skipti að ræða af hendi eiganda um-
ræddrar bifreiðar. Svarið við því var
jákvætt og þaö svar flutti sölumaður
beint th Helga með þeim ummælum
að ekki væri unnt að ganga frá fram-
haldinu fyrr en eftir helgina, þegar
næöist í eigandann og að hann yrði
að koma með sinn bh til þess að eig-
andi hins bhsins gæti tekið endan-
lega afstöðu th áðurnefnds tilboðs.
4. Rétt er að Helgi kom í fyrra
sinnið um lokunartímann og í seinna
skiptið í þann mund er verið var aö
opna að morgni mánudags og því
hafði sölumanni, sem hann ræddi við
í fyrra sinnið, ekki gefist tími th að
upplýsa vinnufélaga sinn, sem varð
fyrir svörum í seinna skiptið, um
málið. - Okkur þykir leitt að slíkur
misskhningur sem þessi skuli skap-
ast að óþörfu, að því er virðist, en
þó má öhum Ijóst vera að þegar bif-
reið er tekin í umboðssölu verður að
komast á samkomulag mhli kaup-
anda - og seljanda - ef af viðskiptum
á að verða.
„Þá situr meira en helmingur bíla-
flotans fastur á Ijósum um alian
bæ...“ segir m.a. i bréfinu.
Hringið í síma
milJikl. 14 og 16
-eða skrifið
Nafn og sítnanr. verdur aÖ fy!g|a bréfum
Ábending til samgönguráðherra:
„Endurbætur“
á gatnakerf inu
Þorsteinn Baldursson skrifar:
Kæri samgönguráðherra. - Þar
sem þú verður innan skamms með
fuha vasa fjár (350 mhljónir eiga að
fara í gatnakerfið í Reykjavík) langar
mig að biðja þig að sjá th þess að
gatnamálastjórinn í Reykjavík geri
tvennar miidlvægar endurbætur á
gatnakerfinu.
Sú fyrri er að lokið verði við að
setja upp umferðarljós á þau fáu
götuhom sem enn eru eftir án ljósa.
Benda má á götur í Norðurmýrinni
og í Örfirisey, og a.m.k. þrenn Ijós
ættu að komast fyrir í Ártúnsbrekku.
Allir sjá að þetta er gríðarlega mikh-
vægt fyrir umferðarmenninguna því
að þá situr meira en helmingur bíla-
flota Reykjavíkur fastur á ljósum um
alla borg, og þegar grænt ljós birtist,
þeysist flotinn af stað með allt í botni
th að ná næstu ljósum. Þetta myndi
líka skapa skemmthega spennu í
umferðinni!
Hin endurbótin er að í stað þess
að risastórir vörabílar á fleygiferð á
morgnana hendi salti á bha og fólk
þá veröi vikulega keyrð svo sem 10
tonn af salti á hvert götuhom th að
íbúamir geti sjálfir skemmt sér að
kvöldlagi við að dreifa úr salt-
hrauknum, yfir bhana, hver á annan
eða 1 garðana. - Vonandi tekst þér,
samgönguráðherra, að koma vitinu
fyrir gatnamálastjóra.
DV
Skcrtðráfrelsi
kvenna?
Fjóla skrifar:
Sumar konur, einkum í Sam-
tökum um kveimalista en reynd-
ar líka annars staðar þar sem
staða kvenna er til umræðu (og
það er nú í tisku að hafa þessi
mál á dagskrá innan flestra
stjómmálaflokka), tefia mikið
skorta á frelsi kvenna hér á landi.
Ég er þessu algjörlega ósammála.
Nefna má ótal dæmi. En frelsi
sitt hafa konur hér faríð ógæti-
lega með og nauöga því daglega
með ótímabærum uppákomum.
Gott dæmi er yfirstandandi verk-
fall sjúkraliða, sem eru konur að
meirhhuta og nota frelsiö th aö
ógna öhu heilbrigðiskerfinu.
Misvægi
atkvæða
Lárus Jónsson hringdi:
Eftir umræðumar um misvægi
atkvæða og óskir kjósenda um
að því verði eytt sem ahra fyrst
vil ég skora á forystumenn ahra
stíómmálafiokka að ýta nú á
málið þanmg að kjósendur missi
ekki áhugann og mæti ekki á
kjörstað. Ef ekki verður tekiö
nema hænufet í senn eins og sum-
ir forystumenn flokkanna hafa
látið uppi verður ekkert mark
tekið á vilja þeirra til að eyða
misvæginu. - Einnig þarf sam-
hhða að koma th fækkun þing-
manna því fjöldi þeirra í dag er
vandamál sem tengist beint nhs-
vægi atkvæöa.
eiturefnanna
Ólafur Magnússon skrifar:
Það dylst engum að eitur- og
fíkniefhainnflutningur hefur rutt
sér farveg til íslands. Þeir sem
Itann framkvæma skiptast í tvo
hópa; þá sem kaupa hann erlend-
is og flytja hann inn og svo þá sem
nefnast „burðardýr" og flytja
hann til landsins fyrir þá sem
efnin eiga. Buröardýrin eru að
mínu mati jafn sek þeim sem þau
vinna fyrir. Alltof lint er enn tek-
ið á þessum málum. Skhyrðis-
laust á að nafngreina alla inn-
flytjendur fxkmefiia, jafnskjótt og
upp um þá kemst. Gildir þá einu,
hvort um þekktar eöa frægar per-
sónur er að ræða eða ekki.
ESB-umræðan
Kristján Einarsson hringdi:
Nú hefur meirihluti kosninga-
bærra manna í Svíþjóðsagtjá við
aðild að Evrópusambandinu og
ekkert er liklegra en Norðmenn
taki þá ákvörðun hka. Það er
a.m.k. afar ósannfærandi af okk-
ar stjórnmálamönnum að vera
að vænta einhverra annarra úr-
slita þar. - Þetta þýðir að nú ætti
umræðan um ESB-málið að fara
á fullt héma hjá okkur. Og hvað
er svo sem á móti því aö efna th
þjóðaratkvæðagreiðslu um máliö
á íslandi? Með þeim hætti einum
fáum við úr því skoriö hver vilji
þjóðarinnar er.
Myndinum
Scarlett
Nanna hringdi:
Ég horfði á fyrsta þátt Scarlett-
myndarinnár í Sjónvarpinu sl.
sunnudagskvöld. Ég verð að segja
að þessi raynd ætlar ekki að verða
síöri en upphafsmyndin, „Gone
with the wind“ (Á hverfanda
hveli, eins og hún hét hér í gamla
daga). Þetta er sett í meíri nú-
tímabúning nú, þótt myndin ger-
ist rétt cftir borgarastyrjöldina í
Bandaríkjunum. Spennan heldur
sér og persónur eru alveg full-
ghdir arftakar þeirra sem héldu
uppi fyrri stórmyndinni.