Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 63 27 00
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER 0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokaö
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 63 27 77
Kl. &8 LAUGARDAGS- OG MÁNUDAGSMORGNA
Frjálst,óhaö daqblaö
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994.
Veðrið á morgun:
Hvöss
suðlæg
átt
Á morgun veröur hvöss suðlæg
átt og rigning, mest úrkoma veröur
sunnan- og vestanlands. Hiti verö-
ur á bilinu 6-11 stig víöast hvar.
Veðrið í dag er á bls. 44
LOKI
Jæja, Jón Baldvin
kemst þó enn inn sem
uppbótarþingmaður!
Jóhanna Sigurðardóttir:
Fólk treystir
ekki gömlu
flokkunum
„Mér sýnist á þessari könnun aö
þessi nýja hreyfing sé komin með
samanlagt fylgi Alþýðuflokks, Al-
þýðubandalags og Kvennalista sem
sýnir að þessi hreyfing getur orðið
öflug forystuhreyfing jafnaðar-
manna og félagshyggjufólks og sterkt
mótvægi viö íhaldsöflin í landinu,"
segir Jóhanna Sigurðardóttir um
niðurstöðu skoðanakönnunar DV.
„Það er augljóst að fólk treystir
ekki lengur gamla flokkakerfinu til
að ná fram því sem það vill. Það kem-
ur glöggt fram í þessari könnun,"
segir Jóhanna.
„Þessi könnun sýnir að Alþýðu-
bandalagið heldur algjörlega sínu
fylgi þrátt fyrir útkomu Þjóðvaka.
Hins vegar virðast Alþýðuílokkur-
inn og Kvennalistinn vera að hrynja
og Sjálfstæðisflokkurinn tapar veru-
lega,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins.
„Ég er ánægður með þessa skoð-
anakönnun. Ég hef alltaf tekið mark
á skoðanakönnunum DV. Framsókn-
arflokkurinn hefur hækkað verulega
frá síðustu könnun og miðað við
hvað listi Jóhönnu hefur mikið fylgi
þá tel ég þetta mjög góða niðurstöðu
fyrir Framsóknarflokkinn," segir
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins.
„Samkvæmt þessu heggur Jó-
hanna drýgst skörð í raðir sinna fýrri
flokkssystkina og það finnst mér rök-
rétt. Ég reikna með að sveifla hennar
muni eitthvað ganga niður og það
muni þá skila sér til hækkunar hjá
flestum en þó hugsanlega ekki hjá
Alþýðuflokki,“ segir Anna Ólafsdótt-
ir Björnsson, þingkona Kvennalist-
ans.
„Þessi könnun sýnir þá miklu
hreyfingu sem virðist vera á kjósend-
um og hefur endurspeglast í ýmsum
könnunum upp á síðkastið. Mér sýn-
ist í fljótu bragði að sveiflur í þessu
geti verið og verði á næstu vikum
mánuðum mjög miklar. Það er óvar-
legt að draga of víðtækar ályktanir
af svona könnunum," segir Guð-
mundur Árni Stefánsson, varafor-
maður Alþýðuflokksins.
„Þessi könnun endurspeglar fyrst
og fremst þá umræðu sem hefur orð-
iö um flokk Jóhönnu Sigurðardóttur
undanfarna daga. Sá flokkur virðist
í þessari könnun taka til sín umtals-
vert fylgi. Ég tel að það megi búast
við talsverðum sveiflum á næstu vik-
um og mánuðum meðan verið er að
vinna að undirbúningi framboða og
það er athygli vert að yflr þriðjungur
tekur ekki afstöðu eða neitar að
svara,“ segir Friðrik Sophusson,
varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Skyndilega sá
ég allt svart
- segir Baldur Baldursson sem er nefbrotinn og með brotnar tennur
„Eg er nefbrotinn, með glóðar-
auga á báöum augum, með brotna
framtönn og nokkrar lausar. Égfer
í aðgerð í dag til aö laga á mér nef-
iö og verð sjálfsagt á sjúkrahúsi i
einn til tvo daga,“ sagði Baldur
Baldursson, 33 ára Keflvíkingur,
við DV en hann varð fyrir tilefnis-
lausri likamsárás fyrir utan veit-
ingastaðinn Rána í Keflavík að-
faranótt laugardagsins.
Baldur, sem rekur fjölritunar-
stofu í Keflavík auk þess að vera
sjúkraflutningamaður, var ásamt
starfsmönnum sínum viðstaddur
úrshtakvöld í karaoke-söngva-
keppni á Ránni.
„Kvöldið var frábært að öllu leyti
nema þarna í lokin. Um leiö og ég
kom út var ég kýldur af manni sem
ég þekki ekki nokkurn skapaðan
hlut. Ég hélt ég ætti ekkert sökótt
viö þennan mann. Ég sá ekki
manninn eða hnefann á honum því
þetta gerðist svo snöggt. Ég kom
út um dymar og sneri mér við. Þá
sá ég bara allt í einu allt svart. Ég
steinlá og missti meðvitund í smá-
stund. Ég var heillengi að rembast
viö að ná sjóninni aftur,“ sagði
Baldur. Honum var komið á
sjúkrahús um nóttina þar sem
meiðsl hans voru rannsökuð. Bald-
ur fékk síðan að fara heim en fer
í aðgerð í dag.
Fjölmörg vitni voru að árásinni.
Kona Baldurs sá að árásarmaður-
ínn var að tala við stelpu fyrir utan
Rána. Um leið og Baldur kom- út
hafi árásarmaðurinn hrint stelp-
unni í götuna og kýlt Baldur um-
svifalaust.
Þegar DV ræddi við Baldur í gær
var hann ekki búinn að kæra árás-
armanninn. Hann sagðist hklega
leggja frarn kæruna hjá rannsókn-
arlögreglunni í Keflavík i dag.
Baldur hafði reyndar heyrt að
árásarmaðurinn vildi ná sáttum.
Hann hefði haft samband við eig-
anda Ráarinnar og beðiö hann að
hafa mílligöngu um sættir við
Baldur.
Davíö Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen, eiginkona hans, komu í þriggja daga opinbera heim-
sókn til Kina i gær. Li Peng, forsætisráðherra Kina, tók á móti Davíð og hér kanna þeir heiðursvörð í þjóðarhöllinni
í Peking. Davið og Ástríður skoðuðu forboðnu borgina i Peking síðdegis. Þá var undirritað samkomulag um sam-
vinnu í menningarmálum. Davið og Ástriður fara að Kínamúrnum í dag en í óperuna í kvöld. Simamynd Reuter
Árás á HvolsveUi:
horna-
boltakylfu
Fjórir ókunnir menn á þrítugsaldri
réðust á feðga á Hvolsvelli á laugar-
dagskvöldið, að því er virðist að til-
efnislausu. Það er hins vegar hald
lögreglunnar á Hvolsvelli að hér hafi
verið um „þrælskipulagða" árás að
ræða. Feðgarnir eru illa leiknir eftir
árásina og varö að flytja soninn á
sjúkrahús í Reykjavík þar sem hann
hlaut opið sár á hnakka. Hann fékk
síðan að fara heim að lokinni aögerð.
Árásarmenmrnir voru ekki fundnir
þegar blaðið fór í prentun í nótt.
Málavextir eru þeir að hringt var
á heimili miðaldra manns sem starf-
ar sem kennari á Hvolsvelli. Spurt
var um húsráðanda sem ekki kann-
aðist viö þann sem hringdi. Spurt var
hvort koma mætti í heimsókn en síð-
an var lagt á. Klukkutíma síðar var
bankað upp á á heimilinu. Þar stóðu
fjórir menn á tröppunum og sögðust
hafa ekið utan í bil sem stóö innar-
lega í innkeyrslunni.
Kennarinn fór út og kannaði hvort
bíllinn væri skemmdur. Svo var hins
vegar ekki og skipti engum togum
að mennirnir réðust á kennarann,
spörkuöu í hann og börðu. Hann
náði að kalla á hjálp og fljótlega bar
að tvítugan son hans. Hann reyndi
að skakka leikinn og hafa tal af (
mönnunum en án árangurs. Skyndi-
lega var hann svo barinn með horna-
boltakylfu í hnakkann og víðar um
skrokkinn. Við þetta hlupu árásar-
mennirnir á brott og hafa ekki sést
síðan, þrátt fyrir ítarlega eftir-
grennslan lögreglunnar á Hvolsvelli.
StuLkur með ungbam:
Björguðustúr
bílihöfninni
Tvær stúlkur og ungbarn björguð-
ust úr bíl sem fór í höfnina á Skaga-
strönd um klukkan hálfflmm í gær.
Slysið varð með þeim hætti að öku-
maðurinn, 17 ára, sem er móðir 7
mánaða barns sem var í framsætinu,
var að beygja sig að gólfi bílsins eftir
að barnið missti snuðið út úr sér. í
Við það sá hún ekki fram fyrir bílinn j
sem rann fram af bryggjunni og út í
sjó.
Bíllinn fór ekki allur á kaf en móð-
irin komst út með barnið. 14 ára far-
þegi, systir móðurinnar, komst einn-
ig út og upp á bryggju. Bíllinn, sem i
er af gerðinni Honda Accord, flaut j
út með höfninni og sökk þar. Lög-
reglan og fleiri náðu bílnum á land
í gærkvöldi. Hvorki stúlkurnar né |
barnið sköðuðust.
íbaksturinn
Á morgunmatinn
í heita og kaida drykki
Brjóstsykur
K Skemmir ekki tennur
bragðtegundir og
n
náttúruleg efni
MTT*
alltaf á
Miövikudögxun
i
i
I i
l i
\i
I i
f
i
i
\i
| i
I i
i
i
i
i
i
i
i
I i
i
i
i
i
i