Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
Utlönd
Gro Harlem Brundtland tefldi öflu 1 tvlsýnu í stundarbræði á lokaspretti kosningabaráttunnar:
Já, en þetta er lygi
- sagði forsætisráðherrann 1 beinni sjónvarpsútsendingu og sló krepptum hnefanum 1 borðið
Gísli Kiistjánsson, DV, Ósló:
„Já, en þetta er lygi,“ sagði Gro
Harlem Brundtland, forsætisráð-
herra Noregs, í beinni sjónvarpsút-
sendingu á lokaspretti kosningabar-
áttunnar fyrir þjóðaratkvæðið um
aðild Noregs að Evrópusambandinu.
Á eftir fylgdi krepptur hnefinn í
borðið og ekki fór milli mála að nú
var Gro nóg boðið. „Hér eru mörk-
in,“ hrópaði hún og skelfingarsvipur
færðist yfir andlitið á sessunaut
hennar, Anne Enger Lahnstein. Gro
reiddist vegna þess að Lahnstein,
leiðtogi nei-manna, fullyrti að aðild
að Evrópusambandinu mundi leiða
til skerðingar á réttindum verkalýðs-
félaganna. Málið er afar viðkvæmt,
sérstaklega fyrir Gro og Verka-
mannaílokkinn sem aila tíð hefur
haldið fram réttindum verkalýðsins.
Gro getur því aldrei falhst á að hún
hafi afsalað réttindum sem flokkur-
inn hefur verið heila öld að berjast
fyrir.
Straumhvörf í baráttunni
Stjórnmálaskýrendur hér í Noregi
eru samála um að straumhvörf hafi
orðið í baráttunni með stundarbræði
Gro. Ekki eru menn þó á einu máli
um hvort hún hafi skaðað málstað-
inn með því að missa stjórn á skapi
sínu þetta andartak. Gro sagði eftir
á að hún hefði verið búin að fá nóg
af rangfærslum ESB-andstæðing-
anna. í þessu máli hafi hún ekki get-
aö látið lygina yfir sig ganga öllu
lengur. Hún hefur líka margítrekað
að ekki komi til greina að biðjast af-
sökunar. Sérfræðingar í vinnurétti
eru sammála um að Gro hafi haft
rétt fyrir sér. Fulllangt sé þó gengið
að halda því fram að Lahnstein hafi
vísvitandi logið að kjósendum. Hér
sé um flókið álitamál að ræða.
Anne Enger Lahnstein reitti Gro
Harlem til reiði í sjónvarpsumræð-
um um ESB.
Gro gerði sig hins vegar seka um
ósannindi að verkalýðshreyfmgin
hefði opinberlega fallist á þá túlkun
sína aö réttindi verkalýðsfélaganna
yrðu ekki skert við inngöngu í ESB.
Slík yfirlýsing hefur aldrei komið
fram.
Gro sigraði með yfirburðum
Gro getur huggað sig við að yfir-
gnæfandi meirihluti þeirrar milljón-
ar manna sem sá hana reiðast í sjón-
varpinu taldi að hún hefði sigrað með
yfirburðum í sjónvarpskappræðun-
um. Skoðanakannanir daginn eftir
sýndu einnig að já-menn hefðu unnið
tvö prósent óákveöinna kjósenda á
sitt band.
Odvar Nordli, fyrrum forsætisráð-
herra Noregs, er einn fjölmargra sem
beðinn hefur verið um álit á lygaá-
burði Gro Harlem. Hann á ef til vill
síðasta orðið í þessari deilu þegar
hann segir: „Þetta voru skiljanleg
viðbrögð eins og á stóö en samt full-
langt gengið hjá Gro.“
Búist viö 85 prósenta kjörsókn 1 Noregi 1 dag:
Andstæðingamir
hafa undirtökin
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
„Það er réttur okkar til að ráða
málum okkar sjálf sem mestu máli
skiptir,“ segir Anne Enger Lahn-
stein, leiðtogi andstæðinga aðildar
að Evrópusambandinu hér í Noregi.
Allar líkur eru á að meirihluti Norð-
manna taki þessi rök fram yfir full-
yrðingar um einangrun og afturfor í
kjölfar þess að hafna aðild.
Allar skoöanakannanir benda til
að nei-mennirnir sigii í kosningun-
um. Munurinn verður þó ekki mik-
ill. Algengt er að kannanir sýni mun
upp á tvö til fjögur prósent. Síðasta
könnun í Dagbladet sýnir aö 52 pró-
sent ætla að segja nei en 48 prósent
já. Miöað er við þá sem taka afstöðu
en enn eru um tíu prósent aðspurðra
óákveðin. í könnun í Aftenposteneru
hlutfóllin 53 prósent gegn 47 prósent-
um, nei-mönnum í vil. Já-mennirnir
geta þó huggað sig við að þeir eru í
stöðugri sókn.
Hugsið um framtíðina
Kosningabráttunni lauk formlega á
laugardagskvöldið. Gro Harlem
Brundtland hélt ræðu í Drammen og
hét á landsmenn að hugsa um kom-
andi kynslóðir og segja já. Anne Eng-
er Lahnstein stóð á sama tíma fyrir
framan Stórþingið og hét á lands-
menn að hugsa um komandi kyn-
slóðir og segja nei. Það er búið að
segja allt sem segja þarf.
Þeir sem þegar eru vissir í sinni sök
bíða spenntir eftir úrslitunum í
kvöld. Þeir óákveðnu bíða líka
spenntir eftir að vita hvað þeir gera
sjálfir í kjörklefanum í dag. Efasemd-
armennirnir eiga erfiðan dag fyrir
höndum.
Kannanir benda til að kjörsókn
verði um 85 prósent. Það þykir ekki
sérlega mikið þegar haft er í huga
að undanfarna mánuöi hefur norska
þjóöin verið upptekin af einu máli
og aðeins einu máli: Eigum við að
ganga í ESB eöa ekki?
Tillitssemin getur ráöið
Verði kjörsókn meiri en spáð er
kemur það já-mönnum til góða,
Meirihluti efasemdarmannanna
hallast aö þvi að segja já ef eftir er
gengið og því líklegt að fleiri já-
atkvæði kom úr þeirra hópi eftir því
sem fleiri fara á kjörstað. Kjörfundur
hófst reyndar í nokkrum hreppum í
dag og þar kom á óvart hve áhuginn
var mikill.
Þvi er haldið fram að tillitssemi við
Gro Harlem geti ráðið úrslitum í
þjóðaratkvæðagreiðslunni. í umræð-
um manna á meðal er þeirri spurn-
ingu varpað fram í alvöru „hvort hún
Gro geri nokkum tíma annað en það
sem hún veit að er þjóðinni fyrir
bestu?" Tiltrú almennings á forsætis-
ráðherranum skiptir hér miklu og
margir efasemdarmenn eru sáttir við
aö segja já bara af því að Gro segir já.
■*w.
Hátískan hefur svo sannarlega haldið innreið sína í Moskvu. Hér má sjá
fatnað eftir rússneska hönnuðinn Valentin Júdasjkín sem hann kennir við
Katrinu miklu keisaraynju og var sýndur á mikilli hátið. Simamynd Reuter
Þjóðaratkvæðiö í Noregi:
Hlutföllin eins
og árið 1972
Gísli Kristjánsson. DV, Ósló:
Athygli vekur hér í Noregi aö
úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunn-
ar um ESB-aöild ætla að verða
eins og í hliðstæðri atkvæða-
greiöslu árið 1972. Þá var kosið
um inngöngu í Evrópubandalag-
ið, eins og það hét. Niöurstaðan
varð að 53,35 prósent sögðu nei
en 46,5 prósent já. Skoðanakann-
anir nú eru ekki ósvipaðar þessu.
Margt hefur þó breyst á liðnum
22 árum. Þá var ungt fólk í for-
ustu þeirra sem höfnuðu aðild.
Sárafáir stúdentar sögðu já. Nú
nýtur ESB stuðnings meirihluta
námsmanna við norska háskóla.
Árið 1972 höfðu konur sig ekki
mjög í frammi. Nú er andstaðan
sterkust meðal kvenna. Það sem
‘ekki hefur breyst er að fylgi við
aðild er mest í Osló og nágrenni.
GroHarlemá
allt sitt undir úrslit-
um dagsins
Hafi einhver
Norðmaður
ástæðu til . aö
bíða í spenningi
eftir úrslitum
dagsins þá er
jtað Gro Harl-
em Brundtland
forsætisráð-
herra. Niðurstaðan, hver sem
hún verður, snertir hana meira
en nokkurn annan. Fyrir alla
aðra verður morgundagurinn
eins og aðrir dagar en Gro gæti
hafa orðiö fyrir mesta ósigrinunr
á feriinum eða þá að hún hefur
endanlega tryggt sér sess meðal
hinna stóru í sögu Noregs.
Vandi er að sjá hvemig Gro
gæti haldið áfram sem forsætis-
ráöherra ef þjóðin hafnaði aðild
að ESB. Hún hefur lagt allt undir
þótt hún vilji ekki lýsa yfir að
framtíö hennar sem stjórnmála-
manns velti á úrslitunum. Sigur-
inn væri að sama skapi stór.
Ætlaaðtelja
beturenSvíar
„Við ætlum ekki að gera sömu
mistök ogSviarnir," segja norsk-
ir skoðanakönnuöir og lofa áreið-
anlegum útgönguspám í kvöld. í
Svíþjóð urðu könnuðum á alvar-
leg mistök þegar þeir birtu út-
gönguspár um leið og kjörstöðum
var lokaö. Nær sextiu prósent
landsmanna virtust hafa sagt já
en síðar kom i ljós að það var
verulega ofmetið. Niðurstaðan
varð að rúm 52 prósent sögðu já.
Upplýst er að sænsku könnuð-
imir reiknuðu vitlaust Of fáir
kjósendur í dreifbýh vora spurðir
en þar var andstaðan mest Nú
segjast norsku könnuðirnir hafa
reiknað allt rétt og að fyrsta út-
gönguspáin eigi aö gefa rétta vís-
bendingu um niðurstöðuna.
MMC L-300 '88, hvítur, ek. 120 þ.
km. Verð 1.080.000 kr., allt að 36
mán.
Volvo 740 GLE st. ’88, grár, ssk.,
vetrar- og sumardekk, ek. 108 þ.
km. Faliegur bill.
Verð 1.240.000 kr. til allt að 48 mán.
nwm
Volvo 740 GLE st., áll., 5 g„
aðeins 81 þ. km. Toppeintak.
Verð 1.200.000 kr.
Toyota Hilux extra cab '90, dis., ek.
90 þ. km, 35" dekk, króm, piasthús.
Verð 1.490.000 kr. til allt að 36 mán.
MMC Pajero disil, turbo, intercool-
er, EXE ’90, ek. 156 þ. km, 31" dekk,
álf., rafdr. rúður, centrall.
Verð 1.690.000 kr. til allt að 48 mán.
BÍLABATTERÍHD
Nissan king cab V-6, 3 I, ’91, ek.
22 þ. km, álf., rafdr. rúður, centr-
all., ABS, vsk. Verð 1.450.000 kr. til
allt að 48 mán.
Höfum mikið úrval af vélsleðum á
skrá og á staðnum.
BÍLDSHOFOI I2
112 REYKJAVÍK
SÍMI 673131
984-58460
Bíldshöfða 12,
s. 673131 og 989-38083,
fax 673826.
■f