Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Blaðsíða 28
40
MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994
Svidsljós
Fimmlíu fjöllistamenn frá Kína eru
nú staddir hér á landi og sýndu þeir
listir sínar í Háskólabíói um helgina.
Listamennirnir skemmtu ungum
sem öldnum með alls kyns áhuga-
verðum og framandi leikatriðum
sem oft eru á mörkum þess fram-
kvæmanlega hvað snerpu og sniUd
varðar. Listrænir tilburðir og snilli-
brögð þeirra gerðu áhorfenduma
hvað eftir annað agndofa.
Jólakeramik
Mikið úrval af alls
konar jólakeramik
og styttum.
Alls konar tilboð
í gangi.
Lítið inn og
sjáið úrvalið.
Listasmiðjan
Dalshrauni 1
220 Hafnarfirði, s. 652105
BÍLAVIÐGERÐIR
15 ára þjónusta!
Allar almennar viðgerðir.
• Hemlaviðgerðir
• Pústviðgerðir
• Kúplingsviðgerðir
• Vélastillingar
Fullkomin stillitölva
ÁTAK Sr.
bílaverkstæði
Nýbýlavegi 24
200 Kópavogi
símar 46040 - 46081
Manfred Hoeberl frá Austurríki tekur hér vel á í að draga dráttarvél í keppninni Sterkasti maöur jarðarinnar sem
haldin var í Laugardalshöll um helgina. Keppendur voru sex aUs og kepptu í 7 greinum. íslendingurinn Andrés
Guðmundsson varð í öðru sæti.
Vímuefnaneysla getur haft mikU
áhrif á útUt fólks. Það mátti glögglega
sjá á laugardaginn í Listhúsinu í
Laugardal þegar fórðunarmeistari
málaði módel sitt öðrum megin sem
vímuefnaneytanda. Þar var í gangi
átak fyrir vímuiausri æsku og gafst
fólki kostur á að sýna stuðning sinn
við málefnið með því að koma og
taka þátt í dagskránni.
í Listhúsinu í Laugardal var opnuð
listahátíð um helgina til að vekja at-
hygh á vímuiausri æsku. Dagskrá
var í gangi allan laugardaginn og gat
fólk sýnt málefninu stuðning, m.a.
með því að skrifa nafn sitt á heimsins
stærsta bol.
Tónleikar tíl styrktar Alnæmissamtökunum voruhaldnir á vegum nemenda
úr Ejölbrautaskólanum í Breiðholti á föstudaginn. Allur ágóði af tónleikunum
rann tU Alnæmissamtakanna auk þess sem nemendur dreifðu verjum og
rauðum borða til að minna á boðskapinn. Gestir á tónleikunum fylgjast hér
með einni hljómsveitinni af áhuga.
Fyrsti sunnudagur í aðventu var haldinn hátíðlegur með hátíðarguðsþjón-
ustum víöa um land. í Seltjamameskirkju gengu fermingarbörn inn í kirkj-
una með kertaljós og kveikt var á fyrsta kertinu í aðventukransinum.
Egill Ólafsson söng við undirleik
Jónasar Þóris á skemmtidagskrá til
minnngar um Fróða Finnsson, til
styrktar krabbameinssjúkum börn-
um í Þjóðleikhúsinu á laugardaginn.
Fróði er einn þeirra mörgu bama og
unghnga sem hafa þurft að beijast
lengi við banvænan sjúkdóm og lúta
í lægra haldi. Fíölmargir Ustamenn
komu fram áskemmtidagskránni til
að leggja þessu málefni lið.
Hilmir Snær Guðnason leikari var
fulltrúi Fróða Finnssonar og stiklaði
á stóru í sögu hans í skemmtidagskrá
sem haldin var í minningu Fróða og
til styrktar öllum krabbameinssjúk-
um börnum í Þjóðleikhúsinu á laug-
ardaginn. Fróði Finnsson lést 30.
september síðastiðinn á tuttugasta
aldursári úr krabbameini, en hann
var einkabam Eddu Þórarinsdóttur
leikkonu og Finns Torfa Stefánsson-
ar tónskálds.
Sigríður Sigurðardóttir og Elías T.
Nordgulen tóku á móti gestum á
Kaffi Reykjavík í tilefni þrítugsaf-
mælis Elíasar nú fyrir stuttu. Um 40
manns heiðruðu afmæhsbamið með
nærvem sinni og er óhætt að segja
að ekki hafi farið iha um gestina því
nóg var að bíta og brenna fram eftir
nóttu.