Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
Fréttir
Stuttar fréttir dv
Rúmlega 20 björgunarsveitarmenn björguðu 11 hrossum úr sjálfheldu:
Erfiðar aðstæður
enalttgekkvel
- höfðu fælst við flugeldasprengingar og héldu sig á klettasyllu
Rúmlega tuttugu björgunarsveit-
armenn og bændur björguðu 11
hrossum við erfiðar aðstæður úr
sjálíheldu í Skarðshyrnu á Skarðs-
heiði í gærdag.
Það var í birtingu á ellefta tíman-
um í gærmorgun sem björgunar-
menn héldu á 6 tonna íjallatrukki og
nokkrum jeppum í ausandi rigningu
frá Tungu í Svínadal og upp á
Skaröshyrnu.
Hrossin höfðu fælst frá bænum
Tungu á nýársnótt við flugelda-
sprengingar og þvælst upp á heiði.
Strax á nýársdag fóru Samúel Ólafs-
son, bóndi í Tungu, og nokkrir ungir
drengir til leitar en fundu ekkert
annað en slóð hestanna. í fyrradag
fór Samúel svo ásamt nokkrum
bændum, í blindri stórhríð, til leitar
og fundu þeir þá hryssu úr hópi hest-
anna en hún hafði hrapað og slasast
nokkuð en sloppið óbrotin. Tók það
dýralækni á þriöja tíma að gera að
sárum hennar. Auðvelt reyndist að
finna hina hestana eftir að hryssan
hafði fundist.
Hrossin, nítján vetra reiðhestur,
níu trippi og folald, voru á um 30 til
40 fermetra klettasyOu í um 750
metra hæð, um hálfs annars tíma
erfiða gönguleið á mannbroddum frá
þeim stað þar sem björgunarmenn
þurftu að skilja bíla sína eftir. Af
syllunni var þverhnípt á tvo vegu en
á þriðja veginn var snarbrött hlíðin
og var um 150 metra leið að hrossun-
um á þann staö þar sem fýsilegast
var að leiða þau niður. Mikil snjó-
koma var uppi á heiðinni og þegar
björgunarmenn, ásamt blaðamanni
og ljósmyndara DV, voru komnir
áleiðis tók að hvessa þannig að
skyggni var mjög slæmt um tíma,
Mokað var einstigi í hjarnið en ofan
á því lá blautur snjór og voru kaðlar
strengdir eftir einstiginu og múlar
Veður var mjög slæmt á þeim stað sem hrossin héldu sig. A myndinni má sjá leiðina sem hrossunum var valin til
að komast niður. Þau voru stygg og áttu erfitt með að fóta sig á hjarninu. Samúel, bóndi i Tungu, teymir Þorra,
19 vetra reiðhest, eftir einstiginu. DV-mynd ÞÖK
fyrstu hestanna kræktir þar í. Fyrsta
hrossið, reiðhesturinn, var látið síga
niður snarbratta hlíöina þegar það
hafði verið teymt eftir einstiginu og
látið marka leiðina. Trippin og fol-
aldið voru síðan teymd sömu leið en
sum höfðu fengið róandi sprautur frá
dýralækni sem var með í fór. Aðeins
eitt trippanna missti fótanna og rann
um 15 metra leið niður hjarnið áður
en það kom undir sig fótunum og
náöi að feta sig aftur upp á einstigið.
í ljósaskiptunum var svo aftur
komiö að bílunum eftir vel heppnað-
an björgunarleiðangur, hálfum sjötta
tíma eftir að haldiö var af stað.
„Þetta var alveg frábært. Mér leist
illa á þetta áður en ég fór upp en
þegar ég sá aðstæður vissi ég að þetta
tækist þótt erfitt yrði. Ég hafði helst
áhyggjur af því að hrossin færu að
stimpast, því að trippin hafa aldrei
verið teymd, og einnig að þau eru
ekki vön að lesta sig eins og tamdir
hestar, en svo fór ekki,“ sagði Samú-
el, annar eigandi hrossanna, en
tengdasonur hans, Guðni Þórðarson,
sem einnig býr í Tungu, á hrossin
meö honum.
Gunnar Örn Gunnarsson, dýra-
læknir á Hvanneyri, sagði að hrossin
væru vel á sig komin miðað við að
hafa hafst við í hálfan þriðja sólar-
hring á syllunni. Það væri þó ber-
sýnilega aíþeim dregið og eitt þeirra
heíði kvefast.
Lódir fyrir Irving Oil
Borgarráð ákvað i gær að heim-
ila borgarstjóra að semja við Ir-
ving Oil um sölu á 3 lóðum undir
bensínsölur, viö Eiðsgranda,
Stekkjarbakka og Bæjarháls.
Lánsþörf ríkissjóðs
Lánsfjárþörf ríkissjóðs næstu
þijá mánuðina er 18 til 19 millj-
arðar. í næsta mánuði þarf ríkið
að leysa út tæplega 10 milljaröa
vegna sparisMrteina frá 1990.
Mbl. greindi frá þessu.
Skólastjóri í leyfi
Fræðslusljórinn í Reykjavík
hefur sent skólastjóra Austur-
bæjarskóla í timabundið leyfi.
Kennarar höfðu áður krafist þess
að skólastjórinn viki meðan
stjómsýsluúttekt á skólanum fer
fram. Tíminn greindi frá þessu.
Tekistáum ÚA
íslenskar sjávarafuröir og Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna tak-
ast á um hlut Akureyrarbæjar í
Útgerðafélagi Akureyringa. Sjón-
varpið greindi frá þessu.
Kaldarkveðjur
Besta nautakjötið er selt úr
landi en lakara kjötið er selt hér
innanlands. Þetta segja kjötverk-
endur kveðjur frá kúabændum
til íslenskra neytenda. Stöð tvö
skýrði frá þessu.
Bjartsýnir íslendingar
íslendingar em meðal bjart-
sýnni þjóða í fjölþjóðlegri könnun
á vegum Gailups. Skv. könnun-
inni búast íslendingar við betri
hag á næsta ári en ófriði á vinnu-
markaði. Mbl. greindi frá þessu.
Ólgan í Alþýðubandalaginu í
Reykjavík vex í kjölfar þess að
ákveðið var að stilla upp fram-
boðslista. Skv. Alþýðublaðinu
íhugar Auður Sveinsdóttir vara-
þingmaður að segja sig úr ABR.
SH eykur útflutninginn
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna seldi sjávarafurðir til út-
landa fyrir 28,4 milljarða á siðasta
ári. Skv. Mbl. jókst útflutningur-
inn um þriðj ung milli ára. -kaa
Alþýðuflokkurinn í Reykjavik:
Bændasamtökin sameinuðust um áramótin:
Gef kost á mér í öll sæti
listans verði próf kjör
- segir Össur sem útilokar þar með ekki baráttu við Jón um 1. sætið
„Ég kannast vel við þetta og mér
bárust raunar fregnir af þessu þegar
ég var í leiðangri lífs míns í Kólumb-
íu. Að vonum varð ég ekki mjög glað-
ur við. Ég hirði hins vegar ekkert
um hverjir það eru sem standa fyrir
þessu enda tel ég þetta fráleitt. Ef
menn ætla að keppa við mig um
sæti á listanum verða þeir að gera
það í prófkjöri. Enn mun allt óráðið
um að það fari fram opið prófkjör
hjá flokknum i Reykjavík. Ég er í
sjálfu sér ekkert trúaður á gildi próf-
kjöra til aö búa til góöan lista. En ef
það verður prófkjör gef ég að sjálf-
sögðu kost á mér í öll sæti listans,"
sagði Össur Skarphéðinsson um-
hverfisráðherra vegna þess orðróms
sem verið hefur á kreiki um að
kratar í Reykjavík séu að leita eftir
einhverri þekktri manneskju í 2.
sæti listans. Þannig vonist þeir til að
koma á óvart og ná auknu fylgi.
DV hefur heimildir fyrir því að
rætt hafl verið við Valgerði Bjarna-
dóttur um að hún taki 2. sætið en
hún hafnað því samstundis. Sam-
kvæmt sömu heimildum er enn verið
aö leita að manneskju til að koma á
óvart með 2. sætið á listanum. Þeir
sem fyrir þessu standa ætla að reyna
að semja við Össur um málið. Sam-
kvæmt viðbrögðum Össurar er hæp-
ið að það takist.
í- lögum Alþýðuflokksins er gert
ráð fyrir aö einhvers konar prófkjör
fari fram í Reykjavík. Það getur ver-
ið meö ýmsu móti, alveg opið, aðeins
fyrir flokksbundna alþýðuflokks-
menn eða innan fulltrúaráðs Al-
þýðuflokksfélaganna í Reykjavík.
Ekki er búið að ákveða hvaða leiö
verður fyrir valinu né hvenær próf-
kjörið fer fram. Sumir kratar sem
DV hefur rætt við segja það vel geta
komið til greina að fara fram hjá
þessum reglum og hafa ekki prófkjör
en láta uppstillingarnefnd þess í stað
annast málið.
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 99-16-00.
39,90 kr. mínútan.
Já _lj
Nei zj
r ö d d
FÓLKSINS
99-16-00
Var áramótaskaupið
of rætið?
Allir í stafræna kerflnu meft ténvalsslma geta nýtt sér þessa þjónustu.
Stef nt að hagkvæmni
í yf irstjórninni
- stiómsamtakannaverðurkosmímars
Búnaðarfélag íslands og Stétta-
samband bænda voru sameinuö í
ein heildarsamtök um áramótin.
Með sameiningunni er stefnt að því
aö gera boðleiðir einfaldari og
skapa grundvöll til samræmdari
. og skjótari ákvarðanatöku en áður.
Þá er þess vænst að aukin hag-
kvæmni náist með einföldun í yflr-
stjórn og með hagræðingu í skrif-
stofuhaldi samtakanna.
í upphafl fara stjórnir Búnaðarfé-
lagsins og Stéttarsambandsins í
sameiningu með þau verkefní sem
þeim er faliö samkvæmt lögum eöa
þar til ný stjóm hefur verið valin.
Stjórn nýju samtakanna er skipuð
þeim fulltrúum sem nú eiga sæti í
Búnaðarfélaginu og Stéttarsam-
bandinu. Fram til 15. febrúar verð-
ur Haukur Halldórsson formaður
nýju samtakanna en Jón Helgason
mun síðan gegna formennsktmni
fram að búnaöarþingi sem haldiö
veröur 13. mars.
Kosning á búnaðarþing fór fram
í október og nóvember 1994. Alls
voru kjömir 39 fulltrúar, þar af 28
af búnaðarsamböndunum og 11 af
Haukur Halldórsson og Jón Helga-
son á fundi í gær þar sem nýju
bændasamtökin voru kynnt.
DV-mynd BG
búgreínasamböndnnum. Á þinginu
verður endanlega gengið frá sam-
þykktum fyrir sameinuö bænda-
samtök og þeim kosin stjórn. Jafn-
framt verður samtökunum gefið
nafn en til þessa hafa þau gengið
undir nafninu Bændasamtökin.
Búnaðarþing er hugsað sem aðal-
fundur nýju samtakanna og verður
þar fjallað um hagsmunamál
bændastéttarinnar og stefnumótun
í málefnum landbúnaðarins.
-kaa