Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995 15 Sannaðu þörf fyrir bætur Tveir menn misstu vinnuna fyrir tveim árum. Annar var bifvéla- virki á þrítugsaldri en hinn blaöa- maður um sextugt. Báðir gátu látið skrá sig atvinnulausa og sá yngri valdi þann kost en sá eldri leitaði eftir lausaverkefnum til þess að framfleyta sér á þar til hann fengi fast starf ef það á annað borð væri í boði. Sá yngri fékk atvinnuleysis- bætur og komst fljótlega í „svarta" vinnu sem hann hafði með bótun- um. Hann hló að hinum fyrir gam- aldags siðferðisóra að nýta ekki svona galopnar glufur í kerfmu, sjálfum sér til hagsbóta. Synjunin stóð Þeim eldri gekk sæmilega að fóta sig, framan af, og hafði heldur skárri tekjur en sem svaraði at- vinnuleysisbótum, kannski svona meðal sjúkraliðalaun, en fast starf lá ekki á lausu enda maðurinn kominn langt yfir þann aldur sem atvinnurekendur sækjast eftir. Þegar líða tók á nýliðið ár dró úr tekjunum og síðustu mánuðina mátti heita að hann væri tekjulaus en þráaðist þó við að gefa upp von- ina um að geta staðið á eigin fótum. Þar kom þó um síðir aö allt var upp urið og ekki varð lengur komist hjá að leita eftir atvinnuleysisbótum. Stéttarfélag hans vísaði honum frá: „Þú ert verktaki og átt að snúa þér beint til Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs." Hjá Atvinnuleysis- tryggingasjóði var sagt: „Nei.“ Ekki: „Því miður,“ heldur: „Nei,“ og þar við sat. Eftir nokkrar spurn- ingar og svör kom þó: „Það eina KjáOarinn Sigurjón Valdimarsson blaðamaður sem við getum gert fyrir þig er að visa þér á Félagsmálastofnun." Hann spurði hvort forsjá þjóðar- innar kysi að menn tækju aðferð bifvélavirkjans frarn yfir sjálfs- bjargarviöleitnina, en fékk skýrt svar um að þetta væri bara helv... kjaftæöi, svoleiðis væri ekki hægt að gera. Synjunin stóð. Rökin fyrir synjuninni eru bund- in í landslögum og þýða á venju- legu mannamáli þetta: Missirðu launavinnu skaltu strax fara á at- vinnuleysisbætur og láttu þér ekki detta í hug að reyna að spara sam- félaginu þau útgjöld. Ef þú gerir það og mistekst, verður þér grimmilega refsað. Þó áttu útleið, þá að getir þú sannað að þú þurfir ekki á atvinnuleysisbótum að „Missirðu launavinnu skaltu strax fara á atvinnuleysisbætur og láttu þér ekki detta í hug að reyna að spara samfélag- inu þau útgjöld. Ef þú gerir það og mistekst, verður þér grimmilega refs- að.“ Skyldu alþingismenn vita hvaða lög þeir skópu?" spyr greinarhöfundur. halda, getur þú fengið þær, séu rökin á hinn bóginn þau að þú þurf- ir á bótum að halda færðu litlar eða engar. Sanngjarnt, ekki satt Lögin eru þessi: Um leið og mað- ur sem misst hefur vinnuna tekur að sér lausaverkefni er hann orð- inn verktaki og heyrir undir lög um sjálfstæöan atvinnurekstur. Þá er hann um leið orðinn skyldugur til að greiða 6,5% af innkomnum tekjum í tryggingagjald. Nái hann viömiðunartekjum sinnar starfs- greinar, sem í tilfelli blaðamanna eru tæplega kr. 105.000 á mánuði, og borgar af þeim kr. 6.825 trygg- ingagjald mánaðarlega í eitt ár, á hann rétt á fullum bótum. Hafi hann minna og borgi þar af leið- andi minna tryggingagjald, fær hann samsvarandi minni bætur og hafi hann engar tekjur og borgi ekkert tryggingagjald fær hann engar bætur. Þá skiptir engu að hann hafi verið launamaður í 45 ár og skattar og skyldur þeirra ára í fullum skilum. Með öðrum orðum: Hafirðu 105 þúsund krónur á mánuði í tekjur máttu hætta og færð fullar at- vinnuleysisbætur, 46.388 krónur. Hafirðu engar tekjur færðu engar bætur. Sanngjarnt, ekki satt? Skyldu alþingismenn vita hvaða lög þeir skópu? Sigurjón Valdimarsson Eflum dreifbýlið Ég er einn þeirra sem vil sjá mitt land bera merki þróttmikillar starfsemi, hvert sem litið er. Að ferðast um hinar nýju óbyggðir, þar sem eyðijarðir mæta augum, er í mínum huga tímabundinn ósig- ur í þeirri sjálfsögðu viðleitni að halda landinu öllu í byggð. Það heyrist oft að ekki borgi sig að reka búskap á hinum og þessum stööum eða hafa þar yfirleitt búsetu. Slík umræða ýtir undir undanhald á landsbyggðinni í staðinn fyrir aö rétta þar fólkinu örvandi hönd. Ekki skil ég að hugsunarháttur minn og annarra í þessum efnum sé á nokkurn hátt árás á líf og hags- muni þess fólks sem býr í mesta þéttbýlinu. Hitt er staðreynd aö jafnvægi búsetu eftir landshlutum hefur mjög raskast á síðustu ára- tugum en það atvinnuleysi sem verulega hefur aukist á valdatíma núverandi ríkisstjórnar leiðir m.a. hugann að því hvort ekki sé tíma- bært að reyna að snúa þróuninni við og skapa fólki betri grundvöll til þess að lifa sínu lífi um land allt. Uggvænleg þróun Þróunin í landbúnaði og sjávar- útvegi landsmanna á síðustu árum hefur verið uggvænleg. Flatur nið- urskurður í landbúnaði hefur þeg- ar fækkað bændum og valdið því að tekjur þeirra sem áfram berjast hafa lækkað um allt að 40%. Sér- stök skilyrði til mjólkurframleiðslu annars vegar og sauöfjárræktar hins vegar þurfa að mínu mati að nýtast betur en nú er eftir landnýt- KjáUaiinn Sigurður Kristjánsson kaupfélagsstjóri ingarstefnu sem bændur gætu staðið að. Það gengur ekki að út- hluta bændum vandanum og skipa þeim svo fyrir að framleiða aðeins til innanlandsneyslu. Það verður að leita nýrra mark- aða erlendis og viðhalda þeim eldri. Hóflegar útflutningsbætur falla eðhlega að okkaf aðstæðum en vel má vera að vaxtarbroddurinn geti að miklu leyti verið í hinni lífrænu eða vistvænu framleiðslu sem vissulega gefur mun hærra verð. í sjávarútvegi er hrakningur og und- anhald sem byggist í grundvallar- atriðum á fækkun í fiskistofnum. Á meðan slíkt ástand fiskistofna varir er ekki síst ástæða til þess að verðmætasköpunin geti verið sem mest af þeim afla sem á land berst. Sú vinnsla sem áður fór fram í frystihúsunum, byggð á togara- fiski, hefur mjög mikið færst út á sjó en það sem við gæti tekiö í mörgum frystihúsum er fullkomin matvælavinnsla í neytendapakkn- ingar. Reglur um veiðar smábáta þurfa meira að miðast við það að þessir menn hafa beitt sér fyrir og hefur víða miklu bjargað. Ferðaþjónustu þarf tvímælalaust að efla og þar gætu skapast mörg ný störf. Iðnaður í erlendri samkeppni hefur fremur verið á undanhaldi og aðstoðina til uppbyggingar vant- ar eins og á fleiri sviðum. í sjávar- þorpunum, þar sem kvótinn er far- inn og fólk sér fram á afkomuleysi, er skjótra aðgerða þörf sem núver- „Sjóði til aðgerða í atvinnumálum þarf mjög að efla en til bráðabirgða þurfa stjórnvöld að hafa meiri ráðstöfunar- rétt á fiskveiðikvóta til úthlutun- segirhérm.a. ar bátar fái að róa á þeim dögum er til þess viðrar. Eins og nú horfir er væntanlega óhjákvæmilegt að stemma stigu við fjölda smábáta en kvótaskerðingu bátanna þarf að endurskoða, þeirra sem í rekstri eru. Vetrarsókn smábáta er áhyggjuefni á mörgum stöðum og mikið spor aftur á bak í öryggis- málum sjómanna. Aðgerða er þörf Ef nærtækar og afgerandi lausnir væru fyrir hendi í atvinnulífinu væri þeim væntanlega tafarlaust beitt og vandinn gerður viðráðan- legri. Veiðar á fjarlægum miðum er ein leið sem íslenskir útgerðar- andi ríkisstjórn er ekki treystandi til. Víða þar sem sveitarfélög eru einhvers megnug reyna þau að halda skipum og kvóta í heima- byggð eins og frekast er kostur. Sjóði til aðgerða í atvinnumálum þarf mjög að efla en til bráðabirgða þurfa stjómvöld að hafa meiri ráð- stöfunarrétt á fiskveiöikvóta til út- hlutunar til þeirra staða sem búa við byrjandi eða viðvarandi neyð- arástand í þessum efnum. Gjald- þrotastefnunni á landsbyggðinni verður þegar í stað að linna. Sigurður Kristjánsson Hundaskattur í Reykjavik Fylgjandi „Meðan hundahald er bamiað i Reykjavík nema með sérstökum undanþágum erégfylgjandi því aö leyfis- gjald sé inn- heimt af Guðrún Ögmundsdáttir hundaeigend- boraartuiitrúi um. Mér finnst í sjálfu sér að leyf- isgjaldið eigi aö standa undir heil- brigðiseförlitinu sem fylgir hundunum en eigi ekki að fara umfram það. Auðvitað má ræða hvort leyfisgjaldið eigí að ná yfir ketti líka, eins og hundaeigendur hafa vifjað meina, en spuming er hvort köttum fækkar með til- komu nýju fjölbýlishúsalaganna. Hundahald er bannað. Sumum finnst það miður, öðrum ekki. Annað gildir um ketti. Þeir hafa gengiö um borgina frá örófi. Aðstaða fyrir hundaeigendur er mjög lítil í borginni og mér finnst aö þaö megi skoða það hvort hundaeigendur gætu fengið aukna þjónustu fyrir peningana, til dæmis útivistarsvæöi fyrir hunda. Þannig vissu hundaeig- endur að peningarnir feru í eitt- hvaö raunhæft í þeirra þágu. Þvi miður setja lélegu hunda- eigendurnir svartan blett á þá góðu og þetta er spuming um að ná í skottið á þeim en ég er sam- mála því aö hundaeftirlitskerfiö sé skoðað af opnum huga.“ Óréttlátt „Ég er á móti hunda- skatti þvi að mér finnst óeðlilegt að hundaeigend- ur, einirdýra- eigenda, séu látnir borga gjöld fyrir dýr sín. Viö telj- um Óréttlátt (élagsislands og ólöglegt að skattleggja gegnum leyfisgjald þann hluta lands- manna sem á hunda umfram aðra. Hundaeigendur greiða 9.600 krónur fyrir hvem hund á ári í borginni. Upprunalega átti þetta gjald að standa undir kostnaði við eftirlit með hundum i borginni. Nú er svo komið að hundaeigandi verður að greiða 7-8 þúsund krónur fyrir að fá hund aftur sleppi hann laus og næst af hundaeftirlitsmannl. Flesth- hundaeigendur fylgja reglum um hundahald í hvívetna þannig að borgin ber aldrei neinn kostnað af hundum þeirra. Við teljum eðlilegt aö leyfisgjaldið veröi fellt niöur enda er ágóði af þvi fyrir borgarsjóð. Við teljum rétt aö >eir sem ekki fylgja reglum borg- arinnar standi einir undir eftirliti með sínum hundum og 7-8 þús- und krónumar fari i að halda hundaeftirlitinu uppi. Leyfis- gjaldið hefur verið gert að tekju- stofni sem skilar verulegum tekj- um í borgarsjóö og nema tekjur borgarinnar aö meðaltali 12,5 prósentum umfram kostnaö við hundaeftirbt. Viö höfum leitað til umboðs- manns alþingis til að kanna hvort leyfisgjaldið stenst lög. Við bíðum eftir úrskurði og eigum von á honum fyrir febrúarlok. Þá höf- um við snúið okkur til borgar- stjórnar vegna þessa máls og störfum með fulltrúum borgar- innar í nefnd til að endurskoða reglur um hundaeftirlit og gjald- heimtu vegna þess“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.