Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1995, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995 Sviðsljós Rod hjálpar fátækum Breska poppstjarnan Rod Stew- art hefur veriö lánsamur maöur um ævina, að minnsta kosti ef maður notar peningamælistik- una. Hann hefur nú ákveðið aö liggja ekki einn á gullinu, heldur leyfa öðrum að njóta þess meö sér á nýju ári. Hann ætlar því aö halda ókeypis tónleika í Ríó de Janeiro á hinni frægu Copaca- bana baðströnd og eiga áheyr- endur að koma meö mat sem síð- an veröur gefinn heimilislausum. Cybill í nýrri þáttaröð Leikkonan Cybill Shepherd sýndi það og sannaði í sjónvarps- þáttunum Moonlighting aö hún getur verið prýðileg í gaman- myndum. Eigendur CBS sjón- varpsstöðvarinnar virðast vera á sama máli því frúin sú er nú kom- in meö eigin gamanþátt sem heit- ir í höfuöiö á henni. Þar leikur hún konu á fimmtugsaldri sem er að verða amma. Grafinn, ekki gleymdur Bandaríski kvikmyndaleik- stjórinn Sam Peckinpah, höfund- ur mynda á borð við Straw Dogs og Wild Bunch, er kannski graf- inn en hann er þó langt því frá að vera gleymdur. Fjölskylda hans og vinir komu nýlega saman á uppáhaldskaffihúsinu lians til að minnast þessa mikilhæfa kvikmyndastjóra sem var farinn að gera blóði drifnar myndir þeg- ar Quentin Tarantino var enn í leikskólanum. Tíu ár eru liðin frá því Peckinpah lést. Talaðu við okkur um BÍLARÉTTINGAR ASPRAUTUN Varmi Auðbrekku 14, sími 64 21 41 Ofurfyrirsætan Christie Brinkley gengin út: Gifti sig í skíðabrekkunni „Ef maður ætlar sér að ganga að eiga fallega konu er eins gott að það sé gert á fallegum stað,“ sagði milljónamæringurinn og olíugróðaerfinginn Ricky Taubman þegar hann og ofur- fyrirsætan Christie Brinkley höfðu verið pússuð saman í skíðabrekkum Telluride í Kól- óradó skömmu fyrir jól. Mörg hundruð manns fylgd- ust meö því þegar skötuhjúin voru gefin saman, bæði klædd í skíðabúninga frá fjórða áratug aldarinnar. Slegið var upp veislu eftír athöfnina en hjóna- kornin voru þögul sem gröfln um hvert þau ætluðu í brúð- kaupsferðina. Christie og Ricky eru miklir skíðaunnendur en við lá að sú ástríða yrði þeim að aldurtila þegar þyrlan hans hrapaði í fjallshlíðunum í Telluride síð- astliðinn vetur. Þau sluppu lif- andi, svo og fjórir aðrir farþeg- ar um borð í þyrlunni, en Ricky brotnaði þó illa á nokkrum stöðum. Christie er fertug og var áður gift popparanum Billy Joel og á með honum dóttur. Ricky er 47 ára, fráskilinn og á einn son. Þau dvelja ýmist í húsi hans nærri Telluride eða á óðalssetri hans á Hawaii. Christie Brinkley og Ricky Taubman skælbrosandi á leið i hjónavigsluna í brekk- um Telluride skíðabæjarins í Kólóradó. Simamynd Reuter Pymim kona Ringos látin hún þjáðist af hvítblæði. Maureen var 47 ára gömul. Hún bjó í Beverly Hills í Kaliforníu síðustu árin með eiginmanni sínum, Isaac Tigrett, en hann er helst frægur fyrir aö hafa stofnað veitingahúsakeðjuna Hard Rock Café. Maureen var fædd í bítlaborginni Liverpool og var aðeins 17 ára þegar hún tók saman við Ringo en þá voru Bítlarnir þegar orðnir heimsfrægir. Þau bjuggu saman í 11 ár og skildu árið 1975. Hún tók þá strax saman við Isaac Tigrett og giftu þau sig síð- ar. Með Tigrett átti Maureen eina dóttur sem nú er sjö ára gömul. Með Ringo átti hún þrjú börn sem öll eru uppkomin og nýlega varð hún amma. Bowie og Iman eiga von á bami Popparinn David Bowie og kona hans, sýningarstúlkan sómalska, Iman, eiga von á barni næsta vor en þá eiga þau þriggja ára brúðkaupsafmæli. Hjónakornin eiga bæði börn úr fyrri hjónaböndum og þykja vera ansi frumleg í nafngiftum og því má búast við að nýja barnið verði að bera eitthvert skelfilegt nafn. Bowie, sem er oröinn 48 ára gamall, á 22 ára gamlan son sem heitir Zowie og Iman á fyrir 15 ára dóttur sem heitir Zu- lekha. Óléttan hefur orðið til þess að Iman hef- ur hætt við að leika í kvikmynd sem átti að hefja tökur á bráðlega og Bowie hefur flýtt upptöku næstu plötu sinnar svo að hann verði örugglega frír og frjáls þegar barniö kemur í heiminn. Parið hefur verið á fullu að undanförnu við að útbúa barnaherbergi á heimilum sínum í Los Angeles, New York, Sviss og á karabísku eyjunni Mustique. Zulekha dóttir Iman er ekkert alltof kát með fréttirnar. Hún hefur lengi ásakað móður sína um að hafa veitt henni litla athygli lengst af. Stúlkan býr með föður sínum, Spencer Haywood, sem er fyrrum stjarna úr bandaríska körfuboltanum. David Bowie og Iman eiga von á barni i vor. Maureen Cox Tigrett, fyrrum eig- gamlársdag í kjölfar erfiðleika sem inkona Bítilsins Ringos Starrs, lést á upp komu eftir beinmergsflutning en Itinifif ISiarr skiljnr siff ivONl'M'iN flixpro .Kx- Rnxlai}U Uu ati m Uall»«?n. úoa’to i\ir.Kti &Utti utivil Ocíi )*& h*r Nnr»«y har soiu Mtt iifí. efus r Uinfio. Hitsina itu MaUf«i«rn. sc:n hán —- Xanc\ ocit }ísk »'• íarl«' n:»r h«r» var buiu 17 ár, hár <X'i« M.*»ur«<*n «r lyckllg&St 1 át i lortúon :»«'•.! t.'<- t:arr.»r< lUnúard rnvtian Rbfo ar : </■/■. Aitjick’s —• Ákt»'Msksí« :<r »'t» konstig r»«.'*.l 'Í2- ártfii :ckar> Nar>- s«k. Dct Uutut í:t;;a Jsg ;•>' AttH;< v.:>. U \ r ít>r •.lay*,n J.«<: Iwr r»;r>;> Ringo og Maureen þegar þau skildu. Madonna í 99. sæti Það 'er ekki á hverjum degi sem poppsöngkonan og kynímyndar- sprengjan Madonna er í 99. sæti á einhverjum listanum. Svo er þó í nýútkominni hók vestur í Ameriku þar sem taldir eru upp 100 áhrifamestu einstaklingarnir meöal homma og lesbia. Ma- donna er höfð með vegna þess aö hún hefúr sprengt allar goðsagnir um kynhlutverkin, að sögn höf- undarins. í fyrsta sæti er heim- spekingurinn Sókrates. Samningur um ástina Leikkonan Sarah Jessica Par- ker kemur til með að leika annað aðalhlutverkanna í myndinni „If Lucy Fell“ á móti Ben Stiller. Þau leika ungt fólk í New York sem gerir með sér óenjulegan samn- ing um að verða ástfangið. Hermt er að ástralska fyrirsætan Elle MacPherson, sem sprangaði um á Evuklæðunum í myndinni „Sir- ens“, verði einnig meö i mynd þessari sem Eric nokkur Schaef- fer ætlar að stjórna. Kraftaverk í alvörurmi Hún Mara htla Wilson, sjö ára hnátan sem leikur í jólamyndinni Kraftaverki á jólum, sem verið er að sýna í Reykjavik, þótti standa sig svo vel að kvikmynda- félagið 20. aldar Fox hefur boðið henni samning upp á 100 milljón- ir króna. Það er allnokkur kaup- hækkun þar sem stúlkan fékk ekki einu sinni fjórtán milljónir fyrir leikinn í Kraftaverkinu. Wonder gegn hungrinu Poppparinn góðkunni Stevie Wonder hefur löngum verið liö- tækur í að styrkja litilmagnann meö ýmsum hætti. Hann ætlar ekki að hggja á liði sínu á nýju ári því á gamlárskvöld hóf hann tónleikaferð í samvinnu við sam- tök sem berjast gegn hungri. Um leið og Stevie styður gott málefhi ætlar hann að kynna efni af nýrri plötu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.