Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995 Fréttir Allar líkur á meirihluta krata og Jóhanns G. Bergþórssonar: Vill að bærinn kaupi móð- urtölvu Hagvirkis-Kletts - rætt um óflokksbundinn kratabæjarstjóra eða jafnvel Guðmund Aml Stefánsson Afdrifaríkar sviptingar hafa verið í bæjarmálum í Hafnarfirði vegna ágreinings Jóhanns G. Bergþórsson- ar, fyrrverandi forstjóra Hagvirkis- Kletts, og annarra bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um ráðningu í stöðu bæjarverkfræðings. Tabð er að myndun nýs meirihluta alþýðu- flokksmanna og Jóhanns sé í upp- siglingu og taki við völdum í bænum innan viku. Búist er við að alþýðu- flokksmenn leggi til á bæjarstjórnar- fundi í dag að fundinum verði frestað og fjárhagsáætlun tekin fyrir í næstu viku. Glatt var á hjalla í herbúðum Al- þýðuflokksins í Hafnarfirði eftir að ljóst varð á sunnudagskvöldið að engir möguleikar væru á því að full- trúar Sjálfstæðisflokksins gætu náð samkomulagi viö Jóhann G. Berg- þórsson í deilunni um hvort hann fengi að gegna samhliða stöðu bæjar- verkfræðings og bæjarfulltrúa. Kratarnir hittu Jóhann eftir fundinn með Sjálfstæðisflokknum og komust að þeirri niðurstöðu að fuli ástæða væri til að fara í formlegar samn- ingaviðræður. Ágreiningur blossaði upp Rekja má rætur ágreiningsins innan Sjálfstæðisflokksins talsvert langt aftur á síðasta kjörtímabil þó að hann hafi ekki blossað upp af fullum krafti fyrr en í meirihlutamyndun- inni í fyrra og svo aftur í fjárhags- áætlunarvinnunni síðustu vikur og mánuði. Á síöasta kjörtímabili bar nokkuð á óánægju meðal sjálfstæðis- manna með samvinnu Jóhanns, þá- verandi oddvita Sjálfstæðisflokksins, og meirihluta Alþýðuilokksins. Þorgils Óttar Mathiesen, þáverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi oddvitann fyrir samvinn- una viö kratana og var missættiö milli Þorgils Óttars og Jóhanns slíkt Góður andi í viðræðunum Jóhann G. Bergþórsson sagði í sam- tah við DV í gær aö góður andi hefði verið í viðræðum við Alþýðuflokkinn fram til þessa og því héldu viðræður áfram. Hann sagðist leggja meginá- herslu á aðhald í rekstri bæjarins í samningaviðræðunum. Ekki væri gert ráð fyrir miklum sparnaði í fjár- hagsáætlun Sjálfstæðisflokks og Al- þýðubandalags. Samkvæmt heimildum DV hefur Jóhann G. Bergþórsson einkum lagt til að sparaö verði í rekstri Áhalda- húss Hafnarfjarðar og hafa uppsagn- ir jafnvel veriö nefndar. Jóhann hef- ur lagt til að bæjarsjóður kaupi hús- eignina að Skútuhrauni 2 fyrir em- bætti bæjarverkfræðings og Áhalda- hús og hætt verði við kaup á tölvu á bæjarskrifstofurnar og móðurtölva Hagvirkis-Kletts keypt í staðinn, en ekki er ljóst hvort þetta kemur til greina af hálfu krata. „Ég hef bent á þennan möguleika og get ekki séð neitt óeölilegt við það að bærinn kaupi þetta hús þó að ég hafl einu sinni verið þarna með at- vinnurekstur. Það er ljóst að það er hægt að gera ýmislegt áður en farið verður í uppsagnir í Áhaldahúsinu. Meginatriðiö er sparnaður í rekstr- arútgjöldum bæjarins. Ein af leiðun- um er að selja eignir bæjarins. Bær- inn á fullt af fasteignum úti um allar trissur," sagði Jóhann í gær. Alþýðuflokksmenn hafa verið óánægðir með meirihlutastjórn Al- þýðubandalags og Sjálfstæðisflokks síðustu sjö mánuði. Þeir telja meiri- hlutann hafa einbeitt sér að því að níöa niður Alþýðuflokkinn og hans verk með ótal endurskoöendaskýrsl- um í stað þess að stjórna bænum. Þeir kratar sem DV ræddi við í gær telja ágreininginn innan Sjálfstæðis- flokksins sprottinn af óánægju Jó- hanns með þetta. Glatt á hjalla hjá Guðmundi Árna Stefánssyni og öðrum forystumönnum Alþýðuflokksins i Hafnarfirði í gær. DV-mynd ÞÖK að Jóhann forðaðist að kalla á vara- manninn Þorgils Óttar í bæjarráð. Samstarfið innan Sjálfstæðis- flokksins hefur gengið brösuglega það sem af er þessu kjörtímabili. Flestir bæjarfulltrúar flokksins líta á málefnaágreininginn við Jóhann sem spurningu um það hvort hann fái að gegna bæjarfulltrúastarfi sam- hliða embætti bæjarverkfræðings þó að Jóhann haldi sjálfur fram ágrein- ingi um fjárhagsáætlun. Margir sjálf- stæðismenn telja að bæjarfulltrúi Fréttaljós sem einnig er bæjarverkfræðingur verði vanhæfur í bæjarráði því að hann geti oft ráðið úrslitum um niö- urstöðu í þeim málum sem hann hefur unnið að. Verulegar líkur eru því á að málið verði kært til félagsmálaráðuneytis- ins takist samningar milli Jóhanns G. Bergþórssonar og kratanna um að Jóhann verði bæjarverkfræöing- ur og bæjarfulltrúi. Erfitt hjá krötum Alþýðuflokksmenn hafa átt erfitt uppdráttar í Hafnarfirði undanfarna mánuði þar sem meirihluti Alþýðu- bandalags og Sjálfstæðisflokks hefur kynnt hverja skýrsluna á fætur ann- arri þar sem talað er um fjármála- spillingu, nú síðast í skýrslu löggilts endurskoðanda um fyrirgreiöslu Hagvirkis-Kletts hjá Hafnarfjarð- arbæ. í skýrslunni kemur meðal annars fram að ábyrgðaveiting bæj- arsjóðs upp á 43 milljónir króna er talin lögbrot auk þess sem fyrirtækið hefur verið með 30 milljóna króna fyrirframgreiðslur upp í verk og hafi fengið endurgreiddar rúmar sjö milljónir vegna gatnagerðargjalda lóöarinnar við Helluhraun 18 þó að lóöin hafi verið slegin íslandsbanka á uppboði. Samkvæmt heimildum DV heyrast raddir innan Alþýðuflokksins sem vara við samstarfi við Jóhann G. Bergþórsson vegna þess spillingar- orðs sem hvílir á flokknum og brös- ótts gengis Jóhanns í fyrirtækja- rekstri undanfarin ár. Hætt er þó við að viðvörunarraddir megi sín lítils þegar foringi flokksins, Guömundur Ámi Stefánsson, er á leið í prófkjör og vill samstarf. Til umræðu er að óflokksbundinn stuðningsmaður AI- þýðuflokksins taki bæjarstjórastarf- ið að sér eða að Guðmundur Árni fári í bæjarstjórastólinn. I dag mælir Dagfari Nýjasti Hafnarfjarðarbrandarinn Oft hefur verið hart barist í Hafnar- firði. Sennilega eru hvergi jafn- miklar væringar á milli íhalds og krata sem í Hafnarfirði. Svo lengi sem elstu menn muna hafa þessir tveir flokkar skipt bænum upp í tvær fylkingar. Önnur er rauð, hin er blá. í kosningunum í vor féll meiri- hluti krata. Ekki þó þannig að Sjálf- stæðisflokkurinn fengi meirihluta í staðinn, en með því að bjóða bæj- arfulltrúa Alþýðubandalagsins bæjarstjórastöðuna komst Sjálf- stæðisflokkurinn í þá aðstöðu að stjóma bænum og koma í veg fyrir áhrif Alþýðuflokksins. Það má líka segja það með sanni að þetta hafi verið lífsspursmál fyrir íhaldið í Hafnarfirði. Svo miklar ávirðingar eru bornar á kratana og svo alvar- legt mál er það fyrir Hafnfirðinga ef kratar stjórna, nákvæmlega eins og krötum finnst það óviðunandi að íhaldið stjómi. Nú hefur það gerst í Hafnarfiröi að einn helsti gúrú þeirra sjálf- stæðismanna, Jóhann Bergþórs- son, annar maður á lista og fyrrum mikilvirkasti verktaki bæjarins, er ósáttur við félaga sína í meirihlut- anum vegna þess að þeir vilja ekki framkvæma þá stefnu sem flokkur- inn samþykkti. Jóhann segist þess vegna vera í viðræðum við kratana um myndun nýs meirihluta og kratar eru tilbúnir að mynda þann meirihluta enda gangi allt á aftur- fótunum hjá núverandi meirihluta. Aðspurður segir Jóhann að hann sé enn ekki farinn aö ræða mál- efnasamning, en bendir á að mál- efnasamningur sjálfstæðismanna liggi klár fyrir og svo framarlega sem farið verði eftir þeim samningi muni ekki standa á sér að mynda meirihluta með krötum. Kratar hafa sagt að það sé allt vinnandi til aö koma núverandi meirihluta frá og eru þar af leiðandi, tilbúnir til að tala við einn úr meirihlutanum til að mynda nýjan meirihluta á þeim forsendum sem hann leggur höfuðáherslu á. Það mun væntan- lega verða málefnasamningur sjálfstæðismanna. Hér eru sem sagt þau tíðindi að gerast suður í Hafnarfirði að kratar komast í meirihluta með einum sjálfstæðismanni til að fram- kvæma málefnasamning íhaldsins, til að koma í veg fyrir að íhaldið sé í meirihluta til að framfylgja mál- efnasamningi sínum. Sjálfstæðis- maðurinn Jóhann Bergþórsson tel- ur í þessu samhengi að meiri líkur séu á því að málefnasamningur sinna manna komist í framkvæmd ef hann er framkvæmdur af kröt- unum. Hann er sem sé þeirrar skoðunar að íhaldið sé ekki fært um að framkvæmda sinn eigin málefnasamning og það sé betra að fá kratana í meirihluta með sér til að koma málefnum íhaldsins fram. í ljósi þeirra langvinnu átaka, sem fram hafa farið í Hafnarfirði milli erkifiendanna íhalds og krata, eru þessir pólitísku atburðir býsna merkilegir. Þeir eru merkilegir fyr- ir þá sök að einn mesti og besti sjálfstæðismaðurinn í Firðinum telur kratana betur færa aö fram- kvæma stefnu íhaldsins heldur en íhaldið sjálft og kratarnir eru á sama tíma orðnir svo óánægöir með íhaldið í meirihlutanum að þeir eru tilbúnir til að semja við einn þeirra um að hrinda málefna- samningi íhaldsins í framkvæmd! Ekki verður dregin önnur niður- staða af þessari atburðarás en sú að Jóhann Bergþórsson hafi verið á vitlausum lista og kratarnir hafi verið með vitlausan málefnasamn- ing. íhaldið lagði ofurkapp á að fella kratana til að koma sínum málum fram og þegar þaö tekst í kosningum gengur einn íhalds- maðurinn í lið með krötunum til að hrinda stefnu íhaldsins í fram- kvæmd. Fólk spyr: Til hvers var verið aö kjósa í vor? Svar: í fvrsta lagi til að fella kratana og í öðru lagi til að koma í veg fyrir að íhaldið réöi. Niðurstaöan verður hins vegar sú aö kratarnir komast aftur að til að íhaldsstefnan ráði! Síðan getur það vel gerst í Hafn- arfirði aö einhver kratinn brjóti sig út úr meirihlutasamstarfi við Jó- hann Bergþórsson og myndi meiri- hluta með íhaldinu til að koma kratastefnunni í framkvæmd. Það eru augljóslegamiklu meiri líkur á því að stefna hvers flokks komist í framkvæmd ef flokkurinn sem stendur að henni er felldur úr meirihluta. Aðalatriðiö er að vera á móti sín- um eigin flokki til aö stefna hans nái fram að ganga. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.