Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995 Guömundur Árni Stefánsson. Mannlíf í gang á nýjan leik í Hafnarfirði „Mikilvægast er að myndaður sé starfhæfur meirihluti sem fær hjól atvinnulífs og mannlíf í gang á nýjan leik í Hafnarfirði. Ég tek ekki afstöðu til þess hvort Jóhann getur samtímis verið bæjarfull- trúi og bæjarverkfræðingur," segir Guömundur Ami Stefáns- son í DV. Eitthvað sjóðheitt í huga hans „... Jóhann sýndi mjög skýrt að það var engin flötur á málinu sem hann gæti hugsað sér að fallast á... Það er eitthvað sjóðheitt í hans huga sem maður ræður ekki við. Hann er ekki tilbúinn að sættast viö félaga sína og greini- lega kominn ansi langt i öðrum samningaviðræðum," segir Þór- arinn Jón Magnússon í DV. Ummæli Hefur okkur í sigti „Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar hefur notað hvert tækifæri til að reyna að koma höggi á Samherja og óheilindi hans gagnvart mér og Samherja eru öllum ljós...“ segir Þor- steinn Már Baldvinsson, útgerð- armaöur á Akureyri. Svíar verða ekki heimsmeistarar „Ég hef það sterklega á tilfmning- unni að Svíar verði ekki heims- meistarar í handknattleik á ís- landi. Þeim hefur gengið ótrúlega vel undanfarið og ég held að þetta verði orðið brothætt hjá þeim þegar kemur út í heimsmeistara- keppnina," segir Þorbergur Aðal- steinsson landsliðsþjálfari i DV. Bamavemdar- mál á íslandi Fjölskylduvernd heldur borg- arafund í safnaðarheimili Lang- holtskirkju í kvöld kl. 8.30. Sér- stakir gestir fúndarins verða Að- alsteinn Jónsson og Sigrún Gísla- sóttir. Yfirskrift fundarins er Bamavemdarmál á íslandi og starfsemi félagsmálastofnana i barnaverndarmálum. Fundir Leiðsögn við lestur Bibliunnar „Fjögurra kvölda námskeiö á vegum Leikmannaskóla þjóö- kirkjunnar hefst í kvöld. Nám- skeiðið ber yfirskriftina: Leiö- sögn við lestur Biblíunnar. Sr. Sigurður Pálsson hefur umsjón með námskeiöinu. Meðal annars verður leitast viö að kynna Bibl- íuna sem safn ólíkra rita. Mannauðsáætlun E vrópusambandsi ns Almennur kynningarfundur á vegum Rannsóknarráðs íslands og Háskólans á Akureyri verður f dag í stofu 16 í Háskólanum á Akureyri. Verður kynnt Mann- auðsáætlunin sem fjallar um þjálfun vísindamanna og er hluti af fjórðu rammaáætlun ESB á sviöi rannsóknar- og þróunar- verkefna. Sérstakur gestur er J. Rosenbaum, starfsmaöur ESB. Léttskýjað á suð- vesturhominu Veðrið í dag í dag verður norðan- og norðvestan- og þurrt. Allvíða verður léttskýjað átt á landinu, stinningskaldi eða all- sunnan- og suðvestanlands. Frost _ víðast á bilinu 4 til 9 stig. Á höfuð- borgarsvæðinu verður norðan- og norðaustan gola eða kaldi og léttskýj- að. Frost 3-7 stig. hvasst með éljum norðaustan til en Sólarlag í Reykjavík: 16.05 annars staðar verður gola eða kaldi Sólarupprás á morgun: 11.04 '*5w I | ý" Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.34 Árdegisflóð á morgun: 02.18 Heimild: Almanak Hóskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Veðrið kl. 6 í morgun Akureyri Akumes Bolungarvík Kefla víkurflugvöHur Kirkjubæjarklaustur Raufarhöfn Reykjavik Stórhöföi Bergen Helsinki Stokkhólmur Þórshöfn Amsterdam Berlin Feneyjar Frankfurt Glasgow Hamborg London LosAngeles Lúxemborg Mallorca Montreal New York Nice spjókoma léttskýjaö alskýjað léttskýjað léttskýjað skafrenn- ingur heiðskírt léttskýjað snjóélásíð. klst. skýjað slydda léttskýjað léttskýjað hálfskýjað þokumóða rign. á síð. klst. skýjað skúr hálfskýjað þokumóða hálfskýjað léttskýjað léttskýjað alskýjað léttskýjað -4 -4 -3 -5 -5 -5 -7 -2 2 1 1 -1 7 3 -2 5 4 5 8 14 4 8 -15 -1 5 Jónas Guómundsson, veróandi rektor Samvinnuháskólans: r. I _ . f „ 1 PraktisJ íi j r ta 2 haskoli nemendur í „Ég hóf störf sem lektor viö skól- ann 1989 og varö síðan aðstoöar- rektor 1991 og hef gegnt því starfi síöan,“ segir Jónas Guðmundsson, nýráðinn rektor við Samvinnuhá- skólann. Skólinn hóf kennslu á háskólasviði fyrir sex árum og sagði Jónas aö kennd væru rekstr- arfræði og viðskipti. „Við erum ekki með langa sögu á háskólastigi en höfum komið með nýjungar inn á háskólasviðiö á undanfórnum árum. Aðalnámiö við skólann hef- ur veríð tveggja ára hagnýtt rekstr- arfræöinám. Námið hefúr verið að þróast og í vor munum við útskrifa fyrstu nemendurna með B.S. próf og eru þeir nemendur með þriggja ára háskólanám að baki." Jónas sagði að uppbyggingin á náminu væri nokkuð sérstök: „Við rekum hér sérstakan verkefna- skóla, kennslufræðin er önnur en til dæmis í viöskiptadeild í Háskóla íslands. Hér er sífellt verið að gera Jónas Guðmundsson. verkefni úr þeim námsgreinum sem kenndar eru og kennsla með verkefnum tekin fram yfir fyrir- lestararkennslu. Nemendur skila hér yfirleitt fimm verkefnum á viku sem mörg eru unnin í 4-8 manna hópum. Verkefnin eru oft beint úr atvinnulífinu og náminu er æfiað aö vera praktískt. Við leggjum áherslu á tjáningu, munn- lega jafnt sem skriflega." Aðspuröur sagði Jónas að fjöldi neraenda væri nálægt eitt hundrað: „ Aöstæður okkar eru þannig að við getum ekki tekið við fleiri nemend- um. Hér eru nemendur í langflest- um tilfellum búsettir meðan á námi stendur. Viö erum nú að bæta við námsmannahúsnæði, sem einkum er ætlað fjölskyldufólki, en við leggjum áherslu á að hingað komi nemendur sem eru með reynslu að baki.“ Jónas sagði að hann teldi það gott fyrir skólann eins og hann er rekinn að vera fyrir utan borgarlíf- iö. „Vinnudagurinn er mjög langur og hóparnir verða að vera sam- stilltír og saman lengi og að því leytínu er það kostur að vera í burtu ffá borginni. En við erum ekki það langt frá að ekki er hægt að sækja í borgina eða Borgarnes það sem þurfa þykir." Jónas er Siglflröingur og nam hagfræöina í Bandaríkjunum. Hann býr i Borg- arfirði ásamt eiginkonu sinni An- h-Dao Tran og eiga þau eina dóttur. Handbolti og körfubolti Frekar rólegt er í keppnisiþrótt- um í kvöld og er ekkert keppt í efstu deildum boltaíþróttanna, nema einn leikur verður í 1. deild kvenna í körfuboltanum. Eftir íþróttir nokkuð spennandi byrjun á toppnum eru stúlkumar frá Keflavík komnar með örugga for- ystu í deildinni. Á eftir þeim kefl- vísku koma KR og Breiðablik og það er einmitt KR sera leikur í kvöld við ÍS i íþróttahúsi Kenn- araháskólans og hefst leikurinn kl. 20. í kvöld verða einnig tveir leikir í 2. deíld handboltans. Klukkan 20.30 leika á Akureyri heima- menn í Þór gegn Fjölni úr Grafar- voginum í Reykjavík og Fylkir leikur á heímavelli sínum i Aust- urbergi gegn Breiðabliki, sá leik- ur hefst kl. 20. Þá má geta þess fyrir þá sem íylgjast með NBA- deildinni amerísku að í kvöld verða leiknir átta leikir. Skák Alþjóðlegi meistarinn Peter Enders sigraði óvænt á þýska meistaramótinu sem fram fór í nóvember sl. og sló með þvi fimm stórmeisturum við. Enders fékk 7 v„ Wahls fékk 6,5, Bezold, Mainka og Bangijev fengu 6 og Maiwald, Schlosser, Lagunov, Bischoff, Martynov og Schmittdiel fengu 5. Keppendur alls 38 og tefldu 9 umferðir. Leikur mótsins var í skák Gerstner, með hvítt, gegn Machelett. Hvítur leikur og vinnur: 28. Dc8! og svartur gafst upp. Ef 28. - Hxc8 29. Hxe6 mát. Jón L. Árnason Bridge Baráttan á Reykjavíkurmótinu í sveita- keppni um sæti í 8 sveita útsláttarkeppn- inni er hörð, en riðlakeppninni lýkur næsta fimmtudag. í B-riðlinum eru sveit- ir Landsbréfa, Roche, Tryggingamið- stöðvarinnar og Hjólbarðarhallarinnar í fjórum efstu sætunum og standa best að vígi. í innbyrðis leik Roche og Hjólbarða- hallarinnar græddi sveit Roche 15 impa á þessu spili. Sagnir gengu þannig í opn- um sal, austurgjafariog enginn á hættu: Myndgátan * G82 ¥ D ♦ ÁKG42 + 9872 ♦ 754 f 98762 N ♦ D1086 + 10 ♦ ÁD3 V KG543 + DG654 * K1096 * ÁIO * 9753 + ÁK3 Austur l¥ 4¥ Suður dobl 44 Vestur 3¥ P/h Norður 3« ! Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi. Gylfi Baldursson, sem sat í suður, úttekt- ardoblaði hjartaopnun austurs og vestur lét nægja að stökkva í þijú hjörtu. Sigurð- ur B. Þorsteinsson, sem sat í norður, átti fast að opnunarstyrk, bjóst við að Gylfi ætti fjórlit í spaða og skaut þess vegna á sögnina 3 spaða á gosann þriðja. Eftir það var leiðin greið í fjóra spaða og vegna hagstæðrar legu í spaðalitnum reyndist Sigurði ekki erfitt að vinna þann samn- ing. í lokuðum sal opnaði austur einnig á einu hjarta, suörn- doblaði til úttektar en vestur stökk í fjögur þjörtu sem gerði norðri erfiðar um vik. Hann ákvað að dobla til refsingar en varð ekki feitur af því. Suður hóf vömina á þvi að spila út laufásnum og skipti síðan yfir í spaða frá kóngnum og sagnhafi fékk því yfirslag í þeim samningi. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.