Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1995
Fréttir
Amarvatnsheiði:
• « ■ W
hrossfund-
ust á líf i
Þijú hross sem leitaö hefur ver-
ið að frá áramótum fundust á
fóstudag austan Úlfsvatn á Am-
arvatnsheiði. Eitt hrossana var
dautt.
Hrossin flúðu frá bænum Þor-
valdsstöðum á Hvítársíðu á nýár-
snótt og telur bóndinn þar, Sig-
urður Jóhannsson, að þau hafi
fælst vegna flugeida en talsvert
var skotið upp í sveitinni. Hrossin
tvö eru nú komin í hús og bæri-
lega haldin.
Siguröur sagði aö sonur sinn
og nágrannar heföu farið á jepp-
um og með kerru, sem skíði höfðu
verið sett undir, til að sækja
hrossin. „Þau voru komin 30 km
upp á heiðina en við höfðum leit-
að hér allt svæöiö nær bænum,“
sagði Sigurður. „Bændumar fóra
á föstudaginn á snjósleðum og þá
fundu þeir hrossin. Þeir gátu fært
þau aðeins hingað nær og skildu
eftir viö veiðikofa þangaö til þeir
gátu sótt þau á laugardag. Mér
sýnist vera allt í lagi með þau tvö
sem eftir eru. Það hefur verið
erfitt vegna veðurs að leita en
þetta tókst ágætlega núna. Þaö
var reyndar hörku skafrenning-
úr en þetta tókst.“
Egilsstaðir:
Eldur
íbíl
Eldur kom upp í bíl sem verið
var að draga frá Fagradal til
Reyðarfjarðar á laugardag.
Eigandi bílsins hafði skihö
hann eftir í Fagradal vegna gang-
traflana og var að sækja hann til
að flytja á verkstæði. Þegar hann
prófaði að starta bílnum vildi
ekki betur til en svo aö eldur gaus
upp úr húddinu. Eigandanum
tókst að slökkva eldinn með snjó
og lögreglan, sem kom á staðinn,
aðstoðaöi með slökkvítæki. BíU-
inn skemmdist en mönnum var
ekki hætta búin.
Slagsmál í miðbænum:
Tveirhand-
teknir
Tveir menn voru handteknir í
Aöalstræti aðfaranótt sunnu-
dagsins en þeir áttu í slagsmáium
við aðra tvo.
Ekkí er vitað um ástæður þess-
ara slagsmála og munu mennirn-
ir tveir, sem eftír voru, hafa farið
sjálfir á slysadeild til aö láta að
gera að sárum sínum sem reynd-
ust ekki alvarleg.
Einhver slagsmál urðu einnig í
Austurstræti og þar var einn
maöur handtekinn. Engin slys
urðu á mönnum í það skiptið.
Talsverður erill var hjá Iögregl-
unni í Reykjavík í fyrrinótt Fjór-
ir ökumenn voru teknir grunaðir
um ölvun. Um 130 þúsund krón-
um var stolið úr fjarnarbíói en
enginn er grunaöur.
Þá var hringt til lögreglu úr
Logafold og kvartað yfir glugga-
gæi sem þar var á ferð. Lögreglan
leitaði mannsins en hann faimst
ekki.
Árskógsströnd:
Tekinn ölvaður
á vélskóflu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyii
LÖgreglan á Dalvík hefur það
sem af er árinu haft hendur i
hári tveggja ökumanna sem
granaöir era um ölvun viö akst-
ur.
Sá fýrri ók vélsleða, en um helg-
ina var annar stöðvaður á Ár-
skógsströnd á Ólafsfjarðarvegi og
ók sá vélskóflu. Um akstur þess-
ara ökutækja gilda að sjálfsögðu
sömu reglur og annarra öku-
tækja að „stútur" má ekki vera
við stýrið.
Blönduós:
Ekiðáhross
Ekið var á hross viö Hjalta-
bakka sunnan við Blönduós á
laugardagsmorgun. Bíllinn, sem
var jeppi, skemmdist mikið en
ökumaður hans slapp. Hrossið
mun einnig hafa sloppið, efiir þvi
sem lögreglan á Blönduósi vissi
best.
Unga stúlkan var flutt á slysadeild Borgarspítalans en reyndist ekki alvarlega slösuð.
DV-mynd S
Sparkaði illilega
í vinkonu sína
- eftir aö hún haföi skemmt bíl hans
Ung stúika var flutt á slysadeild
Borgarspítalans rétt eftir miðnætti á
laugardagskvöld eftir aö piltur, sem
hún þekkti vel, hafði ráöist harka-
lega á hana, m.a. með spörkum og
þá sérstaklega í bak hennar. Stúlkan
reyndist þó ekki alvarlega slösuð.
Hún fékk að fara heim eftir rannsókn
og þegar gert haföi verið að sáram
hennar.
Parinu hafði oröið sundurorða sem
leiddi til þess aö stúlkan sparkaði í
bíl piltsins og skemmdi hann. Mun
hann hafa brugðist hinn versti við,
ráöist harkalega aö stúlkunni og
sparkað margsinnis í hana með fyrr-
greindum afleiðingum.
Listi Framsóknar á Reykjanesi frágenginn
Framsóknarflokkurinn í Reykja-
neskjördæmi samþykkti einróma
framboöslista flokksins á kjördæm-
isþingi í Hafnarfiröi á fimmtudag.
Sex efstu sætin eru þannig skipuö:
1. Siv Friðleifsdóttir bæjarfulltrúi.
2. Hjálmar Árnason skólameistari.
3. Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar nýja sveitarfélagsins á Suö-
urnesjum. 4. Unnur Stefánsdóttir
leikskólakennari. 5. Björgvin Njáll
Ingólfsson verkfræðingur. 6. Sigur-
björg Björgvinsdóttir forstöðumað-
ur.
í dag mælir Dagfari
Seturáðherra óskast
Eins og kunnugt er hafa Hafnfirð-
ingar tekið upp þá stefnu að reka
pólitíkina í bænum í réttarsölum.
Hér eftir má reikna með því að í
hvert skipti sem upp kemur pólit-
ískur ágreiningur í Hafnafirði
verði málið kært til ráðherra, sem
síöan gefur út úrskurð, og þaðan
verði málið sent til dómstóla sem
ákveöa hvort ákvarðanir í bæjar-
stjórn Hafnafjarðar standist lög.
Þetta er í sjálfu aér auöskilin póli-
tík enda liggur ekki fyrir hvort
fyrrverandi meirihluti var lögleg-
ur, hvort núverandi meirihluti er
löglegur, og enginn veit hvort nú-
verandi meirihluti er meirihluti af
því að enginn veit hvar Jóhann G.
Bergþórsson stendur né heldur
hvort hann situr í bæjarstjóminni
eða ekki.
Jóhann hefur tekið sér frí að ráði
forsætisráðherra sem handsalaði
samkomulagið um frí Jóhanns,
enda verða bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisílokksins vítt og breitt um
landið að muna að það fer enginn
þeirra í frí nema með leyfi Davíðs
Oddssonar. Oftast er þaö vegna
þess að flokkurinn hefur ekki efni
á því að bæjarfulltrúar fari í frí því
þá er einum sjálfstæðismanninum
færra í bæjarstjórn en í Hafnafirði
sneri málið öðra vísi við og þar
þurfti að senda Jóa í frí til að meiri-
hlutinn héldi.
Nema hvað, ástæðan fyrir fríinu
hjá Jóhanni var sú að núverandi
meirihluti er búinn 'að kæra fyrr-
verandi meirihluta fyrir viðskipti
við Jóhann sem ekki eru talin
standast lög. Kæranni var vísað til
félagsmálaráðherra en félagsmála-
ráðherrann heitir Rannveig Guð-
mundsdóttir og vafi var talinn leika
á því hvort Rannveig væri hæf til
að úrskuröa í máli sem er pólitískt
og snýr að samflokksmönnum
hennar í Hafnarfirði.
Rikislögmaöur hefur úrskurðað
að Rannveig sé hæf til að ákveða
hvort samflokksmenn hennar hafi
gert rétt í því að skipta við Jóhann
en Rannveig hefur hins vegar sjálf
ákveðið að ekki borgi sig fyrir hana
sem ráðherra að blanda sér í deil-
urnar í Hafnarfirði. Hún hefur sem
sagt vikist undan að úrskurða í
máhnu. Hún vill sem sagt ekki
skipta sér af pólitíkinni suöur þar.
Þetta er eflaust laukrétt ályktun
hjá Rannveigu enda eiga ráðherrar
ekki að vera að skipta sér af pólitík
meira en góðu hófi gegnir og raun-
ar mættu fleiri ráðherrar taka
Rannveigu sér til fyrirmyndar og
víkja sér undan ábyrgð þegar
óþægileg mál era á dagskrá. Af
hverju eiga ráðherrar að úrskurða
í málum og setja sig inn í mál sem
eru pólitískt viðkvæm og geta vald-
ið þeim sjálfum pólitískum skaða
vegna afskipta sinna?
Þetta hefur Rannveig séð og skil-
ið og þakkar pent fyrir sig. Takið
þennan kaleik frá mér, segir hún
og vill ekki nálægt krötunum í
Hafnarfirði koma.
Þá er að finna annan ráöherra
úr öðrum flokki til að úrskurða í
málinu en þá vandast málið vegna
þess að Jóhann Bergþórsson er enn
í Sjálfstæðisflokknum þótt hann
hafi tekið sér frí frá flokknum og
bæjarstjóminni á meðan veriö er
að finna út hvort hann er löglegur
eða ekki í viðskiptum sínum við
kratana. Ekki geta ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins úrskurðað í máli
sem snertir þeirra eigin mann. Af
hverju ættu þeir, frekar en Rann-
veig, aö fara að skíta sig út á því
að blanda sér í hafnfirsk pólitísk
deilumál þegar það er vitað að þeir
munu hafa verra af þeim afskipt-
um.
Hér er úr vöndu að ráöa. Þaö
vantar ráðherra! Þaö vantar hæfan
mann í ríkisstjórnina. Við sitjum
uppi með vanhæfa ríkisstjóm!
Ekki verður annað séð en að Davíð
verði að leita að framsóknarmanni
eða allaballa, nú eða þá aö fá ein-
hvern frá Þjóðvaka til að taka að
sér ráðherravald til bráðabirgða til
að úrskurða í kærumáh þeirra
Hafnfirðinga. Annars kemst eng-
inn botn í pólitíkina í Hafnarfirði
og annars kemst Jóhann ekki úr
fríinu. Nema þaö sé þá plottið á bak
viö máhð allt að kæran sitji föst í
kerfinu af því að enginn fæst til að
vera ráðherra til að úrskurða um
kæruna. Þannig losnar Sjálfstæðis-
flokkurinn við Jóa og þannig losn-
ar Jói viö að fella meirihlutann
þegar hann kemur til baka!
Dagfari