Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1995, Blaðsíða 36
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIOSLU: 563 2777
KL. 6-8 LAUGARÐAGS- OG MANUDAGSMORGNA
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1995.
Samhugur í verki:
Ríflega 205
milljónir
„Aðstandendur söfnunarinnar eru
þjóðinni þakklátir fyrir þann sam-
hug sem hún sýnir í verki,“ segir
séra Pálmi Matthíasson, talsmaður
söfnunarinnar Samhugur í verki
sem hrundið var af stað í kjölfar snjó-
flóðsins í Súðavík á mánudaginn
var. Alls höfðu í gærkvöldi safnast
205.316.840 krónur. Inn hringdu
21.481 með áheit um framlög eða
greiðslu með kortum, en beinar inn-
lagnir á söfnunarreikning voru 6.496.
Söfnunin hófst á fimmtudag og
hafa nærri 600 sjáltboðaliðar starfað
fyrir hana og tekið á móti framlögum
í gegnum síma, en 85 símar voru
tengdir við söfnunarnúmerið þegar
söfnunin stóð sem hæst.
Söfnunarsímanúmerið 800 5050
verður opið næstu daga og þar getur
fólk fengið upplýsingar um söfnun-
ina og veitt framlög með greiðslu-
kortum. Söfnunarreikningurinn
númer 800 í Sparisjóði Súðavíkur
verður áfram opinn fyrir tjárfram-
lögum til 3. febrúar.
Aðstandendur söfnunarinnar eru
flestallir ijölmiðlar landsins, Póstur
og sími, Rauði krossinn og Hjálpar-
stofnun kirkjunnar. -kaa
Fáskrúðsíjörður:
Bíll gjörónýtur
eftir veltu
Toyota skutbíll er gjörónýtur eftir
aö hann valt á veginum við Skálavík
nálægt Fáskrúðsfirði um hálfsjöleyt-
ið í gærkvöldi. Ökumanninn, sem
var einn í bílnum, sakaði ekki.
Bíllinn mun hafa lent á stórum
steini sem virðist hafa hrunið úr
fjallshlíðinni en ómögulegt var að sjá
steininn í myrkrinu. Að sögn lögregl-
unnar hefur það ekki gerst fyrr í
manna minnum að grjót lendi á veg-
inum á þessum stað enda um tals-
verða vegalengd að ræða. Steinninn
var engin smásmíði um 3^00 kíló að
þyngd og lá hann á miðjum veginum.
Mesta mildi þykir að ökumaður bíls-
ins skuli hafa sloppið ómeiddur en
toppurinn á bílnum lagðist niður við
veltuna.
Fjórirhandteknir
Fjórir menn voru handteknir á
Reyðarfirði aðfaranótt sunnudagsins
eftir mikil slagsmál, skemmdarverk
og rúðubrot á staðnum. Mennirnir
voru ölvaðir og höfðu verið með
ólæti áður á Egilsstöðum.
Að sögn lögreglu voru þetta að-
komumenn og fengu þeir að gista
fangageymslur á Eskifirði þar til í
gær er þeim var sleppt.
LOKI
Það verður gaman að sjá
hvort Reykjaneskratarnir
verða svona margir 8. apríl!
Hættuástand enn víða á Vestfjörðum:
Margir hafa verið
að heiman í viku
Hættuástand er enn á Isafirði, í
Súðavík, Hnífsdal, á Flateyri,
nokkrum hæjum í Önundarfirði og
í Reykhólasveítinni. Fólk sem býr
á þessum svæðum hefur margt
ekki komist heim til sín i viku.
Aðrir hafa fengið að skjótast heim
og þurfa þá að láta vita af sér.
Almannavarnanefnd á ísafirði
mun gefa út nýtt mat á hættunni
fyrir hádegi í dag fyrir ísafjörð,
Súðavík og Hnífsdal.
Á Flateyri er áframhaldandi
hættuástand aö sögn Kristjáns Jó-
hannessonar sveitarstjóra. Bæirn-
ir Neðri-Breiðadalur, Kirkjuból í
Korpudal og Veðrará hafa verið
rýmdir og rúmlega ein gata á Flat-
eyri; Olafstún, Hjallavegur 9 og
hluti af Goðatúni. „Það bara fennir
ogfennir hér og meðan svo er verð-
ur þetta að vera svona en vissulega
eru allir að verða þreyttir,“ sagöi
Kristján. „Flest þetta fólk hefur
verið að heiman í viku. Við höfðum
rýmt fleiri götur og leyfðum nokkr-
um að fara heirn á föstudag og laug-
ardag en sumir þeirra hafa þurft
að yfirgefa hús sín aftur.“
Bjarni P. Magnússon, sveitar-
stjóri í Reykhólasveít, sagði að
hættuástand væri- enn í sveitinni.
„Það er á öllu Reykjanesi fyrir utan
Stað og Árbæ sem eru vestustu
bæirnir og eru yst í Þorskafirði.
Allir bæir sem eru á sunnanverðu
Reykjanesinu búa við hættu-
ástand, það eru Grund, Skerðings-
staðir I, en íbúar þar hafa flutt sig
á Skerðingsstaði II, Miðjanes, en
fólkið þar er flutt til Reykhóla, og
íbúar á Hamarlandi eru núna á
Staö. Á Höllustöðum er ekki hættu-
ástand en þar fauk garnalt útihús,
sem ekki var í notkun, og þakplötur
skemmdu bil,“ sagði Bjarni.
„Bændurnir hafa fengið að fara
til gegninga því skepnurnar eru í
útihusum en við höfum haft tal-
stöðvarsamband við fólkið á meðan
þannig að við vitum af því. Frá
Gilsfjarðarmúla að Gilsfjarðar-
brekku eru tólf snjóflóð fallin og
það er hald manna að það muni
taka mai-ga daga að moka. Við er-
um því einangruð áfram. Læknir
hefur ekki komiö hingað í hálfan
mánuð og við ætlum að sækja hann
með skipi frá Reykhólum yfir á
Skarðsstöð í dag. Hér eru elli- og
hjúkrunarheimili sem þurfa á
lækni að halda,“ sagði sveitarstjór-
inn.
Bjarni sagði að fólki liði almennt
vel, það hefði nóg að bíta og brenna.
Hins vegar hefur veðrið verið þrúg-
andi og enn er leiðindaveður. „Við
höfðum þó yndislega bænastund í
kirkjunni í dag og þar mættu marg-
ir.
Laxáí Aöaldal:
Vatnsborð
hækkaði um
1-2 metra
Gifurleg stemning var hjá alþýðuflokksmönnum i Kópavogi í gærkvöldi þegar fyrstu tölur í prófkjörinu í Reykjanes-
kjördæmi voru birtar. Hér fagna stuðningsmenn Rannveigar Guðmundsdóttur félagsmálaráðherra góðu gengi
hennar í prófkjörinu.
DV-mynd GVA
„Þetta er mjög óvenjulegt og ég
man ekki eftir að svona nokkuð háfi
gerst fyrr. Það er eins og áin komi
upp hér og þar utan farvegarins. Lík-
lega hefði þetta getað farið verr því
ef við gætum ekki stjórnað rennslinu
hefði áin getað rutt sig og það hefði
getað orðið alvarlegt í Laxárdal líka,“
sagði Eysteinn Sigurðsson, bóndi aö
Arnarvatni í Mývatnssveit, í samtali
við DV.
Vatnsborðið í Laxá í Aðaldal hefur
hækkað um 1-2 metra á stöku stað
undanfarna daga eftir að stífla mynd-
aðist í ánni sl. mánudag. Ekkert tjón
hefur orðið vegna þess en áin flæddi
yfir gamla þjóðveginn sem ekki er
lengur í notkun.
„Það var hér mikið stórhríðarveð-
ur og þá myndaðist þessi krapastífla
í ánni. Þetta var mjög óvenjulegt
veður á þessum stað, sunnan og suð-
vestan með miklu frosti og snjó-
komu,“ sagði Eysteinn.
4
4
4
4
f
4
4
4
4
Veðrið á morgun:
Létt
skýjað
syðra
Á hádegi á morgun verður norð-
austiæg átt á landinu, fremur hæg
víðast hvar. É1 norðan til á landinu
en léttskýjað syðra. Frost 2 til 7
stig, kaldast norðvestan til og á
Vestfjörðum.
Veðrið 1 dag er á bls. 44
QFenner
Reimar og reimskífur
Soðurlandsbraut 10. S. 680499.
Lmwm
alltaf á
MiövikudögTun
4
4
4
4