Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1995, Page 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995
AEmæli
Valgarð Briem
Gunnlaugur Valgarð Ólafsson Bri-
em hrl., Sörlaskjóli 2, ReyKjavík, er
sjötugurídag.
Starfsferill
Valgarð fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá VI1945, embættisprófi í lögfræði
1950, stundaði framhaldsnám í sjó-
rétti og sjótryggingum í London
1950- 51 og hefur sótt ýmis námskeið
ísjórétti.
Valgarð var lögfræðingur BÚR
1951- 59, j afnframt framkvæmda-
stjóri umferðamefndar Reykjavík-
ur 1955-59, forstjóri Innkaupastofn-
imar Reykjavíkurborgar 1959-66 en
hefur rekið eigin lögmannsstofu í
Reykjavík frá 1961 og með syni sín-
um, Garðari Briem, frá 1991.
Valgarð var formaður Málfunda-
félags VÍ1942, sat í stjóm Heimdall-
ar 1943-49, í stjóm Nemendasam-
bands VÍ1946-50 og 1967-73, formað-
ur Vöku 1947-48, í stjóm Bygginga-
samsamvinnufélags starfsmanna
Reykjavíkurhorgar 1954-67 og form-
aður 1957-67, í Þjóðhátíðamefnd
Reykjavíkur 1963-67 og formaður
1966 og 1967, formaður hverfafélags
sjálfstæðismanna í Nes- og Mela-
hverfi 1969—71, formaður Varðar
1972-73, í flokksráði Sjálfstæðis-
flokksins 1972, varaborgarfulltrúi í
Reykjavík 1974-86, formaður um-
ferðarnefndar Reykjavíkur 1974-78,
í stjóm Innkaupastofnunar Reykja-
víkurborgar 1974-82 og formaður
1974-78, formaður Umferðarráðs
1986-90 og í stjóm Hins íslenska sjó-
réttarfélags frá 1986.
Fjöiskylda
Valgarð kvæntist 14.3.1950 Bentu
Margréti Jónsdóttur Briem, f. 6.5.
1925, húsmóður. Hún er dóttir Jóns
Steingrímssonar, sýslumanns í
Borgamesi, og k.h., Karítasar Guð-
mundsdóttur húsmóður.
Synir Valgarðs og Bentu Margrét-
ar em Ólafur Jón, f. 9.3.1953, skipa-
verkfræðingur hjá Skipatækni hf. í
Reykjavík, kvæntur Sesselju
Margréti Magnúsdóttur; Garðar, f.
16.3.1956, hdl. í Reykjavík, kvæntur
Elinu Magnúsdóttur sjúkraþjálfara,
en fyrri kona hans var Áslaug Björg
Viggósdóttir; Gunnlaugur, f. 27.8.
1960, viðskiptafræðingur og fram-
kvæmdastjóri Draupnissjóðsins í
Reykjavík, kvæntur Hönnu Björgu
Marteinsdóttur.
. Systkini Valgarðs: Margrét Þuríð-
ur Ölafsdóttir Briem, f. 24.12.1912,
d. 1994, húsmóðir í Reykjavík; Guð-
rún Ólafsdóttir Briem Bjömsson, f.
9.4.1915, lengst af húsmóðir í Borg-
amesi; Gunnlaugur Friðrik Ólafs-
son Briem, f. 27.5.1918, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík; Ólafur
Briem, f. 25.1.1933, deildarstjóri hjá
Flugleiðum í Reykjavik.
Foreldrar Valgarðs: Ólafur Jó-
hann Gunnlaugsson Briem, f. 14.7.
1884, d. 19.11.1944, framkvæmda-
stjóri í Reykjavík, og k.h., Anna
Valgerða Claessen, f. 22.8.1889, d.
8.5.1966, húsmóðir.
Ætt
Ólafur var sonur Gunnlaugs Bri-
em, alþm. og verslunarstjóra í Hafn-
arfirði, bróðir Páls amtmanns, afa
Sigurðar Líndal lagaprófessors.
Systir Gunnlaugs var Kristín,
amma Gunnars forsætisráðherra og
Jónasar borgarfógeta og Sigríðar
Thoroddsen, móður Jóns Tómas-
sonarríkislögmanns. Gunnlaugur
var sonur Eggerts Briem, sýslu-
manns á Reynisstað, bróður Valdi-
mars sálmaskálds og Ólafs á Grund,
langafa Davíðs Stefánssonar skálds
og Odds læknis, foður Davíðs for-
sætisráðherra. Systir Eggerts var
Jóhanna, amma Hannesar Hafstein
ráðherra. Eggert var sonur Gunn-
laugs, ættfóður Briemættarinnar
Guðbrandssonar. Móðir Gunnlaugs
var Ingibjörg Eiríksdóttir, sýslu-
manns í Kollabæ, Sverrissonar.
Móðir Ólafs framkvæmdastjóra var
Frederike C. J. Claessen, dóttir Jean
Jacobs Claessen, skrifstofustjóra í
Kaupmannahöfn, og k.h., Frederike
Valgarð Briem.
Carohne Louise von Hansen.
Anna Valgerða var dóttir Jean
Valgard Claessen, kaupmanns á
Sauðárkróki og landsféhirðis í
Reykjavík, bróður Frederike Carol-
ine Jakobinu.
Móðir Önnu Valgerðu var Anna
Margrét Þuríður Kristjánsdóttir
MöUer, veitingamanns í Reykjavík.
Valgarð og Benta Margrét taka á
móti gestum í OddfeUowhúsinu í
dag miUi kl. 17.00 og 19.00.
Ingibjörg Þórðardóttir,
Melbraut 12, Gerðahreppi.
Steinunn Júlíusdóttir,
Hlaðhömrum 2, MosfeUsbæ.
Sólveig Bára Guðnadóttir,
Hrauntúm 39, Vestmannaeyjum.
Gunnar Halldór Antonsson,
EskihUð 8, Reykjavik.
John Leslie Soul,
Eyrarkoti, Kjósarhreppi.
40 ára
Þór Jóhannsson,
Efstasundi 19, Reykjavik.
60 ára
Ásgerður Halldórsdóttir,
Álfhólsvegi 49, Kópavogi.
50 ára
Sigriður Valdimarsdóttir,
Bjóluhjáleigu, Djúpárhreppi.
Guðmar Andrésson,
KeilufelU 12, Reykjavík.
Ágústa Pálsdóttir,
Granaskjóli 8, Reykjavík.
Kristin Bjarnadóttir, :
Heiðargerði 36, Reykjavík,
Þorsteinn Ingi Jónsson,
BarmahUð 41, Reykjavík.
Unnur Erna Hauksdóttir,
Vesturhólum 9, Reykjavík.
Margrét Ingimundardóttir,
Kringlumei, Skilmannahreppi.
Herdís Jóhannsdóttir,
Heiðargeröi 49, Reykjavík.
Bjarnveig Ingvarsdóttir,
KögurseU 26, Reykjavík.
Ásta Steingrímsdóttir
Asta Steingrímsdóttir, Háaleitis-
braut 117, Reykjavík, er sjötíu og
fimmáraídag.
Starfsferili
Ásta fæddist í Vestmannaeyjum
en ólst upp í HUð undir Eyjafjöfium.
Hún átti lengst af heima í Vest-
mannaeyjum eða fram að gosi er
þau hjónin fluttu norður á Akur-
eyri. Árið 1986 fluttu þau til Reykja-
víkur þar sem Ásta býr enn.
Fjölskylda
Ásta giftist 31.12.1946 Einari Jóns-
syni, f. 26.10.1914, d. 24.2.1990, sjó-
manni. Hann var sonur Jóns Páls-
sonar og Þorbjargar Bjamadóttur
sem bjuggu að Ásólfsskála undir
Eyjafjöllum.
Böm Ástu og Einars em Hermann
Einarsson, f. 26.1.1942, kennari og
ritstjóri í Vestmannaeyjum, kvænt-
ur Guðbjörgu Ósk Jónsdóttur og
eiga þau tvær dætur; Amar Einars-
son, f. 14.6.1945, skólastjóri á Húna-
völlum í Austur-Húnavatnssýslu,
kvæntur Margréti Jóhannsdóttur
og eiga þau þrjú böm.
Ásta Steingrímsdóttir.
ForeldrarÁstu: Steingrímur
Magnússon, sjómaöur í Reykjavík,
og Pálína Scheving húsmóðir.
Ásta var alin upp hjá hjónunum
Guðjóni Sigurðssyni og Vilhorgu
Tómasdóttur í Hlíð undir Eyjafjöll-
um en þau era bæði látin.
Ásta tekur á móti gestum í safnað-
arheimili Langholtskirkju laugar-
daginn4.2. kl. 15.00.
Oddbjörg Leifsdóttir
Oddbjörg Leifsdóttir, húsfreyja að
Mið-Fossum í Andakílshreppi, er
fimmtugídag.
Starfsferill
Oddbjörg fæddist á Akranesi og
ólst þar upp. Hún lauk gagnfræöa-
prófi frá Gagnfræðaskóla Akraness,
stundaði nám við Húsmæðraskól-
ann Ósk á ísafirði 1963-64 og stund-
aði síðan verslunarstörf á Akranesi,
m.a. í Bókaverslun Andrésar Níels-
sonar.
Oddbjörg hóf búskap með manni
sínum að Ytri-Skeljabrekku 1966 en
þau fluttu að Miðfossum4981 þar
sem þau hafa búið síðan. Hún starf-
aði mikið með skátahreyfingunni á
Akranesi á sínum yngri árum.
Fjölskylda
Oddbjörg giftist 28.10.1967 Gísla
Jónssyni, f. 17.6.1946, bónda. Hann
er sonur Jóns Gíslasonar, b. á
Innri-Skeljabrekku, og k.h., Kristín-
ar Pétursdóttur húsfreyju.
Böm Oddbjargar og Gísla era Jón,
f. 20.8.1968, búfræðingur og b. að
Miðfossum; Áslaug Ella, f. 11.1.1972,
starfsstúlka viö leikskóla á Hvann-
eyri en sambýlismaður hennar er
Ámar Hólmarsson; Kristín, f. 19.3.
1973, háskólanemi í Reykjavík, en
sambýlismaður hennar er Kristinn
Óskar Sigmundsson; Leifur, f. 4.1.
1976, starfsmaður við Rúmfatalag-
erinn í Reykjavík, en sambýhskona
hans er María Rán Pálsdóttir; Guð-
finna, f. 5.1.1981, nemi.
Systkini Oddbjargar era Helgi, f.
1.6.1940, húsvörður við Brún í Bæj-
arsveit, kvæntur Dóru Hervarsdótt-
ur og eiga þauíjóra syni; Jón Þórir,
f. 30.11.1948, lögregluþjónn á Akra-
nesi, kvæntur Jennýju Ásgerði
Magnúsdóttur og eiga þau íjóra
syni; Jófríður, f. 25.7.1956, starfs-
maður við rannsóknarstofu á
Hvanneyri, gift Jóni HaUdórssyni
og eiga þau þrjú hörn.
Foreldrar Oddbjargar era Leifur
Jónsson, f. 31.10.1912, sjómaður og
síðar starfsmaður við Sementsverk-
smiðju ríkisins, og k.h., Áslaug Ella
Helgadóttir, f. 5.12.1921, húsmóðir á
Akranesi.
Oddbjörg Leifsdóttir.
Leifur er sonur Jóns Þórólfs Jóns-
sonar og Jófríðar Ásmundsdóttur
sem bjuggu á Gunnlaugsstöðum í
Þverárhhð en Áslaug EUa er dóttir
Helga Jónssonar frá Tungu í
Reykjavík og k.h., Friðrikku Þor-
láksínu Pétursdóttur.
Oddbjörg tekur á móti gestum á
heimhi sínu á afmæhsdaginn.
Rafn Sigurbjömsson
Rafn Sigurbjörnsson reikimeistari,
Sjávargötu 28, Álftanesi, er fertugur
ídag.
Starfsferill
Rafn fæddist-í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk sveinsprófi í
rafeindavirkjun 1976 og öðlaðist
meistarabréfl979.
Rafn hefur unnið við Skiparadíó
hf. frá 1974, er einn af aðaleigendum
þess og stjórnarformaður. Þá er
hann framkvæmdastjóri Austur-
vegs hf. og stjórnarformaður og
hluthafi í Global Tradic í Bandaríkj-
unum sem m.a. hefur með höndum
fiskútflutning frá íslandi.
Rafn hóf að spha með hljómsveit-
inxú Gaddavír 1975 og hefur spilað
síðan með ýmsum hljómsveitum,
síðast með Sveitinni milh sanda,
1992. Hann er einn af stofnendum
Reikisamtaka íslands og er fram-
kvæmdaaðili þeirra samtaka. Hann
hefur helgað sig reiki-hehun frá
1992, hefur m.a. gefið út kennslurit
í þeim fræðum og er fyrstur hér á
landi th að semja, flytja og gefa út
sérhæföa hugræktartónhst á snæld-
um fyrir heilara-nuddara og hug-
ræktalmennt.
Fjölskylda
Rafn kvæntist 1990 Guðrúnu Sig-
ríði Vhhjálmsdóttur, f. 2.3.1964,
húsmóður.
Börn Rafns og Guðrúnar Sigríðar
eru Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, f.
6.10.1987; Sigurbjöm Gauti Rafns-
son, f. 14.6.1991; Hrefna Björk
Rafnsdóttir, f. 15.10.1992; Þorsteinn
Dagur Rafnsson, f. 19.8.1994.
Systkini Rafns era Birgir Guð-
mundsson, f.7.8.1943; Guðmundur
Ingvar Guðmundsson, f. 30.1.1945;
Amar Sigurbjömsson, f. 16.1.1949.
Rafn Sigurbjörnsson.
Foreldrar Rafns: Sigurbjörn Ól-
afsson, f. 25.7.1919, rafeindavirkja-
meistari í Reykjavík, og Hrefna
Ingvarsdóttir, f. 6.10.1921, d. 7.8.
1978, húsmóðir.
. Gerum ávallt ráö fyrir .
\ börnunum yC
L-X tfjar”0*"
563 2700
- skila
árangri