Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Side 2
2
LAUGARDAGUR 4..MARS 1995
Fréttir_______________________________________________________________
Ákveðnum aðgerðum hætt á Landspítalanum og sjúklingar sendir til útlanda:
Landspítalinn sparar en
Tryggingastofnun blæðir
- getum ekki sparað meira nema minnka þjónustuna, segir varaformaður læknaráðs
„Það er rétt. Það stendur til að
leggja niður ákveðnar aðgeröir á
Landspítalanum. Okkur er gert að
spara og við getum ekki sparað meira
nema minnka þjónustuna. Nú er
mælirinn fullur. Við getum ekki
staöið í þessu lengm:. Það hefur allur
rekstur verið skorinn niður sem
frekast er unnt og því verður að
skerða þjónustuna og þess vegna
hefur þetta veriö ákveðið. Sem dæmi
um aðgerðir sem lagöar verða niður
eru hjartaskurðaðgerðir á börnum
sem nýlega eru hafnar hér á landi. I
fyrra var um sjö slíkar aðgerðir að
ræða. Það eru einhverjar fleiri að-
gerðir sem verða aflagðar hér hjá
okkur,“ sagði Atii Dagbjartsson,
varaformaður læknaráðs Landspít-
alans, í samtali við DV.
Að sögn Atla verða nú þeir sjúkl-
ingar sem þurfa að fara í þær aðgerð-
ir sem hætt er að gera hér að fara
til útlanda í aðgerðina og þá er það
Tryggingastofnun ríkisins sem
greiðir kostnaðinn. Bæði spítalarnir
og Tryggingastofnun heyra undir
Sighvat Björgvinsson, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra.
„Okkur hefur verið gert að spara
svo og svo mikið á hverju ári síðast-
hðin 3 ár. Okkur hefur tekist það.
Það var dregið saman í rekstri og það
tókst vegna natni starfsfólksins. Nú
er svo komið að meira verður ekki
sparað þar og þá er komið að þjón-
ustunni. Okkur er gert að spara sem
nemur 1,5 prósentum af íjármagni
Landspítalans og það sjá alhr hfandi
menn að við getum það ekki nema
með þessum hætti. Við verðum bara
að horfast í augu við það. Við erum
búnir að margbenda á hvemig komið
er. Ef okkur er skipað að spara þá
kemur okkur ekkert við hvar það
kemur niður ef menn vhja vera
svona skilningslausir á það sem við
erum búnir að vara við,“ sagði Ath
Dagbjartsson, varaformaður lækna-
ráðs Landspítalans.
Grjóthrun á skólarútu í Hvalnesskriðum:
Bílstjórinn slapp áður
en rútan fór niður í sjó
- var einn á ferð og sakaði ekki
„Hhðarrúðan splundraðist og það
rigndi yflr mig glerbrotum. Mér fip-
aðist við aksturinn og rútan lenti úti
í kantinum. Þar fór hún að vega salt
og ég rétt kom mér út áður en hún
fór niður í sjó,“ sagði Helgi Georgs-
son, skólabflsljóri á Höfn, við DV.
Hann var einn á ferö á skólarútu
sinni í Hvalnesskriðum um miðjan
dag í gær þegar lítils háttar grjóthrun
varð til þess að hann missti stjóm á
rútunni. Helgi náöi að koma sér út í
tæka tíð áður en rútan fór af stað og
sakaði ekki. Rútan fór 130 metra nið-
ur hhðina og út í sjó. Þar hggur hún
gjörónýt en að sögn Helga stendur
til að ná henni í dag á lágfiri.
Helgi var á austurleið þegar óhapp-
ið áttí sér stað. Rútan, sem er af gerð-
inni Toyota Coaster, tekur 20 manns
og hefur verið notuð til skólaaksturs
fyrir Nesjaskóla.
Að sögn lögreglu á Höfn gerðist
svipaö atvik í Hvalnesskriðum fyrir
tveimur ámm þegar ökumaður
jeppabifreiðar rétt slapp út úr henni
áður en hún hafnaöi niður í sjó.
Maður tekinn með
leikfangabyssu
- samferðakona áleit hann með skammbyssu
Víkingasveit lögreglunnar í
Reykjavík var kölluð að fyrirtæki í
Skeifunni í gærkvöld þar sem til-
kynnt var um mann í bíl grunaðan
um að vera vopnaður. Talsverður
viðbúnaður var á staðnum en eftir
að lögreglan hafði náð símasambandi
við „byssumanninn" gaf hann sig
fljótlega henni á vald. I ljós kom að
hann var með leikfangabyssu í
hanskahólflnu og hafði ekki ógnaö
neinum.
Kona sem var með manninum á
ferð hringdi í ofboði í lögregluna þar
sem hún sagðist hafa séö skamm-
byssu í hanskahólfi bílsins. Auk þess
taldi hún manninn hafa verið í ann-
arlegu ástandi. Við athugun lögreglu
var ekki svo heldur hefur maðurinn
átt við geðræn vandamál að stríða,
án þess þó aö hafa komist í kast við
lögin.
Tveir árekstrar á Fagradal
Tveir árekstrar urðu með skömmu
miUibiii á Fagradai i gær. AIls lentu
fimm bílar í árekstrunum en ekki
urðu alvarleg slys á fólki.
Skömmu fyrir hádegi rákust tveir
bílar saman. Annar ökumaður og
einn farþegivoru fluttir með áverka
á höíði á Egilsstaði og þaðan á Nes-
kaupstað þar sem sauma þurfti sam-
an djúpa og langa skurði.
Um miðjan dag rákust síðan tveir
bílar saman A-svipuðum stað á
Fagradal. Þá var komin stórhríð og
lenti þriðji bíllinn aftan á öðrum
bílnum í því óhappi. Einn ökumaöur
og tveir farþegar voru fluttir á
heilsugæslustöð á Egilsstöðum með
áverka á höfði.
Lögreglan á Egilsstöðum hafði ekki
náö tali af ökumanni þriðja bílsins í
seinni árekstrinum um kvöldmatar-
leytiö í gær þar sem hann fór af vett-
vangi á Fagradal.
Borðtennisstjarnan úr Víkingi, hinn 12 ára Guðmundur Eggert Stephensen,
var útnefndur íþróttamaður Reykjavíkur 1994. Athöfnin fór fram í Höfða i
gær að viöstöddu fjölmenni. Guömundur hefur unnið marga góöa sigra
og spilar með A-landsliðinu. Hann er einnig fyrsti íslenski borðtennisspilar-
inn sem hlotið hefur alþjóðlegan meistaratitil. DV-mynd S
Hæstiréttur í 33. refsidómi síbrotamanns:
Dómur mildaður fyrir
að rota og ræna mann
Hæstiréttur mildaði í fyrradag
refsingu Héraðsdóms Reykjavíkur
yfir Lárusi Birni Svavarssyni, 43 ára
síbrotamanni, úr tveggja ára fangelsi
í 18 mánuði fyrir að hafa rotað mann
og síðan rænt hann í félagi við annan
yngri mann fyrir utan veitingahúsið
Keisarann viö Laugaveg í mars síð-.
astliðnum. Mennirnir slógu höfði
fórnarlambsins utan í vegg og spörk-
uðu í það með þeim afleiðingum að
maðurinn missti meðvitund. Þeir
tóku af honum armbandsúr og hring.
Hér var um að ræöa 33. refsidóm
Lárusar en -hann var jafnframt
daemdur fyrir þjófnaði og innbrot.
í dómi Hæstaréttar segir að við
ákvörðun refsingarinnar, það er
mildun á 2 ára refsiákvörðun héraðs-
dóms, verði m.a. aö líta til þess að
aðdragandinn að árásinni væri um
margt óljós en allir sem áttu hlut að
henni hefðu verið ölvaðir. Þá væri
lítið upplýst um verðmæti þess sem
Lárus Bjöm tók ásamt félaga sínum
„en þó má ætla að það hafi verið
mjög óverulegt“, segir í dómnum.
-Ótt
Árekstur í Keflavík:
Þrír hlutu
höfuðmeiðsl
AUharður árekstur varð í efri
byggð Keflavíkur um miðjan dag
í gær. Bíll f framúrakstri lenti
framan á bíl sem kom á móti
Ökumenn og farþegar voru ekki
í bílbeltum. Flytja þurfti þijá á
Sjúkrahús en þeir hlutu talsverða
en ekki lifshættulega áverka á
höfði. Bílamir eru svo gott sem
ónýtir eftir áreksturinn.
Verslunarfólk HÖfii:
Felldisamning-
ana samhljóða
Júlia Imsland, DV. Höfn;
Á fundi verslunar- og skrif-
stofudeildar Verklýðsfélagsins
Jökuls á Hornaíiröi, sem haldinn
var 2. mars, vom greidd atkvæði
um nýgerða kjarasamninga og
vom þeir felldir samhljóða. Um
100 manns eru í verslunar- og
skrifstofudeildinni. Búið er að
samþykkja kiarasamningana í
öðrum deildum Jökuls.
Stöö2:
LindaP.ráðin
Linda Pétursdóttir hefur verið
ráðin til starfa á Stöð 2. Sam-
kvæmt heimildum DV mun hún
fyrst um sinn starfa sem kynnir
i íslandi i dag. Hún mun hefja
störf í kvöld. Elin Hirst, frétta-
stjóri Stöðvar 2, staðfesti að viö-
ræður ættu sér stað við Lindu en
vildi ekki tjá sig um málið að
öðraleyti. -rt
Stuttar fréttir
Loðnusjómenn mótmæla
Sjómenn á 34 loðnuskipum hafa
leitaö ásjár Davíös Oddssonar
forsætisráöherra vegna meints
verösamráðs loðnukaupenda.
Skv. RÚV hafa sjómennimir áður
leitað til Þorsteins Pálssonar
sjávarútvegsráðherra en að
þeirra sögn mætt litlum skilningi.
Ráðstefnuundirbúningur
Eftir helgi hefst undirbúnings-
fundur í Reykjavík fyrir ráð-
stefhu SÞ um vernd hafsins
vegna starfsemi í landi en hún
verður í Bandaríkjunum í sumar.
Hagstæðvöruskipti
Vömskiptin í janúar vom hag-
stæö um 1,8 milljarða í janúar.
Til útlanda vom fluttar vörur
fyrir 8,6 milljarða en til landsins
vom fluttar vörur fyrir 6,8 millj.
arða. Miðað við janúar í fyrra
jókst vöruflutningurinn til lands-
ins um 32% en útflutningurinn
jókst um 17%.
Niðurskurði mótmæit
Starfsmannaráö Borgarspítala
hefur sent frá sér harðorö mót-
mæli gegn þeim niöurskurði sem
ákveðinn hefur verið af bráða-
birgðastjóm Sjúkrahúss Reykja-
vikur. Ráðið lýsir fullri ábyrgð á
hendur stjómvöldum hvaö varð-
ar afleiðingamar.
nágrennt Hverageröis í gærdag.
Skv. Bylgunni búast starfsmenn
Veðurstofunnar við áframhald-
andi jarðhræringum á svæðinu.
Hitaveiturörsprakk
Stórt hitaveiturör við sund-
laugina á Hótel Loftleiöum
sprakk í gærmorgun með þeim
afleiöingum aö vatn og gufa
flæddi umkiallara hótelsins. Skv.
Bylgjunni sakaði engan. -kaa