Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 4. .MARS 1995 Fréttir Ofanflóðasjóður má kaupa fasteignir á hættusvæðum: Kostar milyarð að kaupa upp 100 hús - sjóðurinn á aðeins 130 milljónir „Viö vitum af tilvikum þar sem ódýrara er aö kaupa fasteignir en að seýa upp vamarvirki. Þaö eru staöir eins og Flateyri og Hnífsdalur auk Súðavíkur. Þessi lagabreyting gerir þá leið greiöari og skýrari aö hægt sé að kaupa upp fasteignir á hættu- svæöum,“ segir Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri. Samkvæmt breyt- ingum á lögmn um Ofanflóðasjóö er sjóðnum nú heimilt að kaup upp fast- eignir á snjóflóðasvæðum sé þaö mat sveitarstjórnar að slíkt sé ódýrara en að setja upp snjóflóðavarnir til að afstýra hættunni. Ólafur segir að það þurfi aö fara fram nýtt hættumat út frá reynslunni í Súöavik. Þá sé ljóst að lögin geri ráð fyrir frumkvæði sveitarstjómarmanna. Geir Zoéga, framkvæmdastjóri Viðlagatrygging- ar, sem hefur Ofanflóðasjóð í sinni vörslu, segir að eignir sjóðsins nemi nú um 130 milljónum króna. Tekjur hans á síðasta ári hafi numið 30 mÚlj- ónum króna. Hann segir að með nýj- um lögum sé gert ráð fyrir að tekj- umar fari upp í rúmar 70 milljónir á ári. „Sjóðurinn er svo lítill að á þessari stundu er hann ekki undir þaö búinn aö kaupa íjölda húsa,“ segir Geir. Það er ljóst að yfir hundrað hús em á hættusvæðum vegna snjóflóöa ef allt er tínt til. Ef reiknað er með að meðalkostnaður við kaup á hverri eign sé um 10 mflljónir er um að ræða einn milljarð. Miðað viö núver- andi stöðu sjóðsins er því langt í land að hann ráði viö að kaupa húsin. -rt Brunabótamat húsa Flateyringa á hættusvæði 180 milljónir: Sú stefna að efla snjó- f lóðavarnir í uppnámi - íbúar vilja ekki vera annan vetur í húsum sínum ° o O&n Keilur Ou Flateyri - hús á hættusvæöi - 0o„ 0cSP°00 °Ooooo°c Varnar- garðar aoD o° D Ólafstún oaO 0S%% Goðafú \ % W Skóli „Við emm eiginlega í sjálfheldu, fjölskyldan. Húsið okkar er skemmt en ekki ónýtt þannig að þetta er ónýt- anleg eign. Þá er þaö á hreinu að við munum ekki búa í því annan vetur og því ekki gera við það. Það var undarleg tilfinning aö fá inn um póstlúguna álagningarseðil vegna fasteignargjalda upp á rúm 60 þús- und fyrir eign sem er óseljanleg og ónýtanleg," segir Valdimar Jónsson sem á húsið Goðatún 14 sem stór- skemmdist í snjóflóði á Flateyri í vetur. Þaö sem gerir mál Valdimars veru- lega snúið er það að húsiö er ekki ónýtt. Þar með bætir viðlagatrygging aðeins skemmdir en ekki allt húsið eins og gert er við altjón. Vegna þess að húsið er á hættusvæði er ekki hægt að endurbyggja það, bæði vegna þess að það er óseljanlegt og þá getur fjölskyldan ekki hugsaö sér að búa annan vetur á svæðinu. „Eg hef ekki fengið nein svör neins staðar þannig að ég veit ekki hvernig ég á aö bregðast við þessu. Það er þó alveg á hreinu að hvemig sem allt fer þá fer ég ekki út í að endur- byggja það. Frekar hirði ég þessar bætur og skil eftir spýtnahrúguna," segir Valdimar. Lagabreytingin um Ofanflóðasjóð gerir ráð fyrir að sjóðurinn megi kaupa upp fasteignir á hættusvæð- um meti sveitarstjórn málið þannig að ódýrara sé að kaupa upp eignir en að koma upp vörnum. Verði sú leiö vahn greiðir sveitarstjórnin 10 prósent af matsverði húsanna á móti 90 prósentum Ofanflóðasjóðs. Verði farin sú leið að kaupa hús Valdimars á Flateyri liggur fyrir að það sama þarf að ganga yfir aðra íbúa þar sem búa á skilgreindu hættusvæði. Þar er um að ræða 16 íbúðir að bruna- bótamati 180 milljónir króna. Kristj- án J. Jóhannesson, sveitarstjóri á Flateyri, segir að fyrir fjórum árum hafi hreppsnefndin ákveðiö aö leggja áherslu á vamirnar en nú sé komin upp önnur staða. „Það er veriö að endurvinna skipu- lagið og skoða vamarþáttinn. Sú stefna, sem mótuö var fyrir fjórum áram, er nú í uppnámi þar sem íbú- amir vilja nú fara af hættusvæð- inu,“ segir Kristján. -rt Hlutur Þróunarsjóðs í Gunnarstindi hf.: Á annað hundrað for- kaupsréttartilboð - frá Breiðdalsvik og Stöðvarfirði „Okkar markmið er að seija, burt- séð frá því hver kaupir. Hlutverk stjómar Þróunarsjóðs er að losa sig frá þessum rekstri og meö þessu fá heimamenn tækifæri til þess að stjóma þessu,“ segir Hinrik Greips- son, framkvæmdastjóri Þróunar- sjóðs en stjórn sjóðsins hafa borist 146 forkaupsréttartilboð frá bæði Stöðfirðingum og Breiðdælingum í hlut sjóðsins í Gunnarstindi hf. Eins og DV hefur skýrt Jrá hafa íbúar á Breiðdalsvík eldað saman grátt silfur um langa hríö vegna sam- eignar sinnar, Gunnárstinds hf. Stöðvarhreppur bauð i 32 prósenta hlut Þróunarsjóðs í fyrirtækinu og hefði þar með náð undirtökunum ef ekki hefði komið til aö Breiðdælingar ákváðu að neyta forkaupsréttar og bárast 68 tilboð frá þeim. Þegar þaö lá fyrir ákváðu Stöðfirðingar einnig að neyta forkaupsréttar og hafa nú 68 tilboð borist þaðan. Aö sögn Hinriks er kaupverö rúm- ar 38 miUjónir. Það virðist því liggja fyrir að nágrannamir muni áfram berjast og þaö eina sem hefur breyst er það að Þróunarsjóöurinn er laus við sinn hlut og sameiginlega era íbúar á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði 38 miiljónum fátækari. -rt .' ^ 'Z i 4.S * :Æ jf.fcpU Frá Flateyri. Fremst á myndinni eru húsin við Ólafstún og Goðatún. íbúarn- ir vilja ekki búa annan vetur við ógn snjóflóðahættunnar. Það hvílir þvi sú krafa á Ofanflóðasjóði að kaupa húsin. Vandinn er bara sá að sjóðurinn á aðeins 130 milljónir en húsin kosta 180 milljónir. ísafiörður: Látum reyna á vilja sjóðsins „Við áttum fund með Hnífsdæling- ins til að kaupa upp eignirnar. Fyrst um og þar kom fram skýr vilji þeirra þurfum við þó að vinna ákveðna til að fara þá leið að Ofanflóðasjóður heimavinnu ,“ segir Kristján Þór kaupi húsin. Við höfum tekið þá Júhusson, bæjarstjóri á ísafirði. ákvörðun aö láta reyna á vilja sjóðs- -rt Hæstiréttur tók mið af misgjörðum Stein- gríms Njálssonar Hæstiréttur staðfesti í fyrradag nýlegan tímamótadóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar 'sem ungur maður, sem Steingrímur Njálsson misnotaði þegar hann var á bamsaldri, fékk skilorðsbundna fangelsisrefsingu fyrir aö hafa tekið ung börn upp í bíl sinn og haft í frammi kynferðis- lega tilburði fyrir framan þau. Maöurinn var á hinn bóginn, eins og í héraðsdómi, dæmdur til að sæta sérstakri umsjón yfirvalda í tvö ár á skilorðstímanum. Tiinefni ríkissak- sóknari ekki sérfræðing er Fangels- ismálastofnun gert að hafa eftirlit með framkvæmd umsjónarinnar og veita unga manninum þá félagslegu þjónustu sem stofnunin hefur tök á. Niðurstaða sálfræðings í máhnu var sú aö sennilegt væri að kynferð- isbrot mannsins tengdust tiifinn- ingatogstreitu hans frá því að hann varð fórnarlamb Steingríms Njáls- sonar - þaö hefði vafaiaust markað djúp spor í sálarlíf mannsins að hafa orðið fómarlamb hans. Rannsóknir á kynferðisbrota- mönnum sýna aö meirihluti þeirra hefur oröið fyrir kynferðislegu of- beldi í æsku, að sögn sálfræðingsins - fylgni sé á milli þess að verða þol- andi og síðan gerandi. Miklu máh skipti að kynferðisbrotamenn séu meðhöndlaðir. -Ótt Formsatriði að fylla skipið „Það er nánast formsatriði að mæta á miðin og fylla. Skipin koma bara og afgreiða sig á nokkrum tím- um,“ segir Láras Grímsson, skip- stjóri á loðnuskipinu Júpíter ÞH í samtali við DV í gær. Þeir á Júpíter vora þá að enda viö aö innbyrða 1300 tonn af loðnu og það tók þá aðeins 6 klukkutíma. Loðnan er nú komin fyrir Reykja- nes og eru á bilinu 10 tn 20 prósent hennar þegar búin að hrygna. Búist við að hrognataka hefjist um helgina. Alls hafa borist á land tæp 210 þús- und tonn á vetrarvertíðinni. -rt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.