Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995
21
Björgvin Halldórsson syngur islenska Eurovisionlagið hjá Hemma Gunn.
- verður flutt hjá Hemma Gunn um
„Það var leitað til nokkurra aðiia
um að búa til Eurovision-lag. Björg-
vin Halldórsson hefur staðið í því að
mestu sjálfur. Síðan fengum við að
heyra rúmlega tuttugu lög sem valið
stóð um en sérstök dómnefnd var
sett á laggirnar til að velja síðan eitt
lag úr,“ sagði Þorgeir Gunnarsson,
ritari dagskrárstjóra Sjónvarpsins, í
samtali við DV. Lítið hefur heyrst
af Eurovisionframlagi okkar íslend-
inga þetta árið, annað en að Björgvin
Halldórsson muni flytja það.
Sjónvarpið mun hins vegar hafa
veriö á fullu við að undirbúa keppn-
ina. „Það var gerö skoöanakönnun
meðal tveggja hópa, fólks sem hefur
atvinnu af að starfa viö tónhst og
almennings, sem gáfu lögunum stig.
Það lag sem fékk flest stig verður að
öllum líkindum framlag okkar til
keppninnar en það er veriö að vinna
viö það lag núna,“ sagöi Þorgeir.
Keppnin verður þannig að sjón-
varpsáhorfendur munu einungis sjá
og heyra þetta eina lag sem Björgvin
mun flytja í þætti Hemma Gunn, Á
tali, í lok mars eða byrjun apríl.
mánaðamótin
Aðalkeppnin verður síðan í Dublin
13. maí en írar eru þegar farnir að
vinna að undirbúningi keppninnar
og ættu vart að vera óvanir, svo oft
sem þeir hafa haldið hana.
Að sögn Þorgeirs er íslenska Euro-
visionlagið mjög frambærilegt, fjör-
ugt og gott lag. Ekki vildi hann meina
beint aö þetta væri týpískt júróvi-
sjonlag. „Eg veit ekki hvort allir hafa
sama skilning á hvað er Eurovision-
lag en þetta lag er mjög frambærilegt
í keppnina," sagði hann. Talsverður
áhugi virðist vera á keppninni því
mikið er hringt til Sjónvarpsins og
spurt hvenær vinningslagið verði
flutt.
- En heldur Þorgeir að Björgvin
muni vinna keppnina?
„Nú er komið að því. Við stöndum
ekki í þessu fyrir minna.“
ÚTE ;aia
Einstakt tækifæri sem byðst ekki aftur! VERSLUNIN HÆTTIR ALLT Á AÐ SELIAST
m ÆajjSW un . 20-70% 4FSLÁTTUR
Halogenl jós Borðlampar Lof tl j ós LjÓS&HITI Laugavegi 32
Bridge
Silfurstiga sveitakeppni
- til styrktar yngri spilurum
Helgina 11.-12. mars verður haldin silfurstigasveitakeppni með 10 spila
leikjum. Spilaðar verða 10 umferðir með Monrad fyrirkomulagi. Sex leik-
ir verða spilaðir á laugardeginura og 4 á sunnudeginum. Spilamennska
hefst klukkan 11 báða dagana og er henni lokið klukkan 20 á laugardegin-
um og mótið klárast klukkan 17 á sunnudeginum. Keppnisgjald er 8.000
krónur á sveit og rennur helmingurinn af því i verðlaunafé. Hinn helming-
urinn rennur í fararsjóö fyrir yngri spilara á HM mót yngri spilara í
tvímenning í Ghent í Belgíu 11.-22. ágúst 1995. Tekið er við skráningu
hjá BSÍ í síma 587 9360.
Bridgefélag Breiðfirðinga
Kauphallartvimenningi félagsins lauk með sigri félaganna Guðlaugs
Sveinssonar og Magnúsar Sverrissonar sem skoruðu 266 stigum meira
en næsta par. Alls tóku 30 pör þátt í mótinu og voru spiluð 4 spil milh
para, allir við alla. Lokastaða efstu para varð þannig:
1. Magnús Sverrisson - Guðlaugur Sveinsson 1838
2. Gunnar Karlsson-Sigurjón Helgason 1572
3. Nieolai Þorsteinsson-Logi Pétursson 1208
4. Ingibjörg Halldórsdóttir Sigvaldi Þorsteinsson 1039
5. Helgi Nielsen-Marinó Kristinsson 862
6. Páll Þór Bergsson-Sveinn R, Þorvaldsson 839
7. Anna Guðlaug Nielsenr Guðlaugur Nielsen 730
8. Einar Guðmundsson - Óskar Þráinsson 724
Næsta keppni félagsins er hraðsveitakeppni sem spiluö verður 3 næstu flmmtu-
dagskvöld (2., 9. og 16. mars). Skránlng í þá keppni stendur yflr og skráð í símum
632820 (ísak) og 587 9360 (BSÍ).
_______________ I •
Eurovision-keppnin:
Sigurlagið
nær tilbúið
afslátti
á 500 g smjörstykkjunumi
Áður 168 kr. Nú 126 kr.
Notaðu tækifæríð ocj
njóttu smjörbragðsms !
Þú sparar
84 lcr. á lcíló