Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995 43 Börn alkóhólista eiga sér engin hagsmunasamtök sem talað geta máli þeirra svo þau verða að treysta á viðbrögð nágranna, vina og ættingja sem koma þeim til aðstoðar. Hver gætir hags- muna bams? Einhverju sinni hringdi síminn hjá Nökkva lækni seint um nótt. Örvingluð barnsrödd var á hinum enda hnunnar. „Ert þú Nökkvi?“ sagöi barnið. „ Já,“ sagði hann svefndrukkinni röddu og skyggnd- ist á útvarpsklukkuna. „Hver ert þú?“ „Ég heiti Óh og er 8 ára. Viltu koma honum pabba mínum í með- ferð strax," sagði röddin, „hann heitir Karl J. Mamma bað mig að hringja. Hún er líka að drekka. Pabbi er búinn að berja hana og mig og brjóta glös og diska. Ég sit með systur mína inni í herbergi. Hvað eigum við að gera?“ Drengur- inn snökti. Nökkvi reyndi að ræða við full- orðna fólkið en það tókst ekki. Dauöadrukkinn pabbi sagði hon- um að halda kjafti og móðir bað guð að blessa hann þvoglumæltri röddu. Nökkvi hringdi í lögreglu og bað hana aö athuga ástand þess- ara barna en manninum, fullum iðrunar, kom hann til meðferðar á Vog nokkrum dögum síðar. Lög- reglan sagði að aðkoman heíði ver- ið ófogur. Skelfmgu lostin börn höfðu lokað sig í myrku herbergi þar sem þau héldu hvort utan um annað. Nágrannar höfðu kvartað nokkrum sinnum yfir fylliríi og gleöskap þessara hjóna og barna- vemdarnefnd var með mál þeirra til athugunar. Nökkvi læknir hefur í starfi sínu rekist á fjölda svipaðra tilfella; van- rækt börn sem næturlangt hlusta á drykkjulæti foreldra sinna; hvít- voðungar sem hggja hlandblautir og grátandi; glókollar með mar- bletti í öllum regnbogans litum sakir barsmíða. Það sem helst ein- kennir alkóhólisma er mikið stjórnleysi á eigin hegðun. Alkó- hóhsti gerir og segir hluti sem oft ganga í berhögg við eigin samvisku og siðgæðisvitund. Þetta stjórn- leysi hefur mikil áhrif á fjölskyldu alkóhólista. Fíllinn í stofunni Fíhinn í stofunni er amerísk barnabók, skrifuð frá sjónarhóli barns sem liíir á heimili með alkó- hólista. Bamið lýsir honum eins og fil í stofunni. Fflhnn sefur stund- um og þá verður enginn var við hann og lífið gengur sinn vana- gang. Hann vaknar endrum og sinnum og er glaður og reifur og leikur sér við krakkana og vini þeirra. En stundum er fíllinn reið- ur og hefur allt á hornum sér. Hann Á læknavaMnrri Óttar Guðmundsson læknir brýtur og bramlar og jafnvel meið- ir krakkana sem hann lék sér við daginn áður. Enginn veit af hverju hann reiðist eða hvenær það ger- ist. Börnin læra að koma ekki með vini sína heim því að fillinn getur verið erfiður viðfangs. Það sem ein- kennir andrúmsloftið á slíku heim- ili er óvissa og öryggisleysi. Enginn veit hvaö næsti dagur ber í skauti sér. Varnarlaus börn Enginn er eins varnarlaus gagn- vart alkóhóhsma og böm. Þau skilja ekki hvað er að gerast inni á heimihnu; af hverju pabbi eða mamma em svona skrýtin; af hverju þau eru lamin eða vanrækt. Þessi börn eiga sér engin hags- munasamtök sem talað geta máli þeirra svo að þau verða að treysta á viöbrögð nágranna, vina og ætt- ingja sem koma þeim til aðstoðar. Tahð er aö barnaverndarnefnd- um berist um 2000 tilkynningar árlega um alvarlega vanrækslu á bömum. Yfirleitt er reynt að gefa foreldrum mörg tækifæri til að bæta sig undir einhvers konar eft- irliti. En í sirka 100 tilfellum árlega verður að beita þvingunaraðgerð- um til að bjarga barninu. Þá er því komið fyrir um tíma meðan for- eldramir eru að átta sig. Örsjaldan em börn dæmd af foreldrum sínum að undangenginni rannsókn þegar aðrar leiðir hafa verið þrautreynd- ar. Þohnmæði barnaverndar- nefnda er með miklum óhkindum. Allt virtist gert til að koma til móts við foreldra en hagsmunir barna voru oft fyrir borð bornir. Tannagnístran í fjölmiðlum ' Nökkva datt þetta í hug um dag- inn þegar hann las um samtök fólks sem misst hafa forræði yfir börn- um sínum. Harmþmngin viðtöl em með reglulegu mihibili höfð við fólk sem kvartar undan afskiptum kerfisins. „Við misstum börnin okkar!" „Kerfið er vont og misk- unnarlaust!" Sögurnar bera oft alkóhóhskri afneitun gott vitni þar sem sannleikurinn er fegraöur og klæddur í skemmtileg spariföt. En hvenær fara blaöamenn að skrifa um þessi mál út frá sjónarhóh barna? Hvenær verða birtar mynd- ir af grátandi vanræktum börnum sem enginn skiptir sér af? Það verð- ur seint. Vanrækt börn em ekki nógu gömul til að stofna samtök, kaUa saman blaðamannafundi og rekja raunasögur sínar um órétt- lætiheimsins. Aðrir verða að standa vörð um hagsmuni þeirra og hamingju. Við verðum að treysta því að barna- verndamefndir landsins vinni í samræmi við bestu samvisku með heiU bama í huga. Raunir og hörm- ungar þessara barna eru oft meiri en tárum taki. Nökkvi læknir hefur mun meiri samúð með þeim en því fólki sem snýr nú aUri sinni reiði og beiskju að þeim aðilum sem reyndu að hjálpa börnum þeirra í neyð. Fjölmiðlar sem taka þátt í þessum leik gera mikinn skaða. Þegar rýrð er kastað á störf barna- verndamefnda á þennan hátt er hætt viö því að fólk tilkynni ekki augljósa vanrækslu á börnum. Rughð fær þá að viðgangast enn lengur með ófyrirsjáanlegum af- leiðingum. í málum sem þessum verða hagsmunir barna að vega þyngra en grátur og tannagnístran ífjölmiðlum. UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ Staða háskólamenntaós fulltrúa í utanríkisráðuneyt- inu er laus til umsóknar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar ráðuneytisstjóra utanríkisráðu- neytisins, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík, fyrir 26. mars nk. Fyrirliggjandi umsóknir verða teknar til greina sé þess óskað. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 3. mars 1995 UPPB0Ð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Flatahraun 16A, 0202, Halharfirði, þingl. eig. Agnar B. Jónsson, gerðar- beiðendur Bykó hf„ Lsj. verkstjóra, Samein. lífeyrissj., Sigurður sf. og Sjóvá-Almennar hf„ 10. mars 1995 kl. 11.00. Gimli við Álftanesveg, Garðabæ, þingl. eig. Guðmundur Einarsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn í Hafharfirði, 10. mars 1995 kl. 14.00. Hjallabraut 21, 0301, Hafharfirði, þingl. eig. Bima Bjamadóttir, gerðar- beiðendur Húsfél. Hjallabr., Húsfél. Hjallabr. 21, Lsj. starfsm. ríkisins, Líf- eyrissjóður verslunarmanna og Spar- isj. vélstjóra, 10. mars 1995 kl. 15.00. Hvammabraut 16, 0301, Hafharfirði, þingl. eig. Óskar Hrafh Guðmundsson og Sigríður Jónasdóttir, gerðarbeið- andi Bæjarsjóður Hafharfjarðar, 10. mars 1995 kl. 15.30. Kléberg 6, Hafiiarfirði, þingl. eig. Edda Sjöfh Smáradóttir og Erlendur Ámi Hjálmarsson, gerðarbeiðandi Lánasj. ísl. námsmanna, 10. mars 1995 kl. 13.30.________________________ Langeyrarvegur 11A, Hafharfirði, þingl. eig. Ágúst Breiðfjörð og María Ásgeirsdóttir, gerðarbeiðendur Bæj- arsjóður Hafharfjarðar, og sýslumað- urinn í Hafriarfirði, 10. mars 1995 kl. 11.30.____________________________ Vallarbarð 3, 0101, Hafnarfirði, þingl. eig. Júhus Hólmgeirsson, gerðarbeið- endur Bæjarsjóður Hafriarfjarðar, Sjóvá-Almennar hf. og Tryggingam- iðst. hf„ 7. mars 1995 kl. 11.00. Ásbúð 23, Garðabæ, þingl. eig. Þór- hildur Bjartmarz, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Garðabæ og Hús- næðisstofhun ríkisins, 7. mars 1995 kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI 7 ÞVOTTAKERFI, HLJÓÐLÁT, SPARNEYTIN TEKUR BORÐBÚNAÐ FYRIR 12 MANNS VERÐ 48.900 stgr, Fjöldi ánœgðra viðskiptavina er okkar besta viðurkenning RONNING BORGARTÚNI 24 SlMI 68 58 68 l!IM'ÞVOTTAVÉLAR 11I..IÓMFLtlTMNGST TKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.