Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Page 9
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995
9
Fréttir
Margrét Hjálmarsdóttir og Hrafn Leifsson eru mjög ánægð með tviburavagn-
inn sem þau fengu gefins eftir að hafa sett smáauglýsingu í DV.
Tvíburamamma í Hlíðunum ánægð með smáauglýsingar D V:
Fékk gefins
tvíburavagn
- og vann nýja matvinnsluvél í smáauglýsingapottinum
„Þetta var mikiö happ og kom sér
ákaflega vel fyrir okkur,“ segir
Margrét Hjálmarsdóttir, tvíbura-
mamma í Hlíöunum, en hún auglýsti
nýlega eftir gefins eöa ódýrum tví-
buravagni í smáauglýsingum DV.
Viöbrögöin voru mjög góð og þrír
gefins vagnar buðust strax. Á endan-
um ákvað hún aö þiggia vagn austan
frá Hornafirði.
Þaö er ekki nóg meö að Margrét
hafi fengið vel meö farinn barnavagn
gefms heldur var hún líka dregin út
úr smáauglýsingapotti DV og vann
glænýja Tefál matvinnsluvél.
Tvíburavagninn kom ?ö góöum
notum fyrir Margréti og Iitlu fimm
mánaða tvíburana hennar, þá Haf-
þór og Hauk. Nú ekur hún um Hlíð-
arnar með litlu kríhn í vagninum.
Hún segir þaö vera hörkuvinnu að
eiga tvíbura en auövitað mjög
skemmtilegt.
Minkur gerir usla við ÞingvaUavatn:
Drepur f uglana og
stelur veiðibráð
- veiðistjóri íhugar aðgerðir gegn þessum vágesti á næstunni
„Rauðukusunesið iðaði af fuglalífi
fyrir nokkrum árum. Nú sést varla
fugl þarna. Dag einn í sumar taldi
ég einungis 6 kríur á svæðinu og þær
voru allar við veginn. Endurnar eru
flúnar út á vatn og jaðrakan er horf-
inn. Minkurinn virðist orðinn alls-
ráðandi þarna við vatnið. Og hann
er svo kræfur að ef maður leggur frá
sér fisk á bakkann þá er hann horf-
inn innan nokkurra mínútna," segir
Sævar Stefánsson, rannsóknarlög-
reglumaður í Reykjavík.
Sævar er einn fjölmargra sumar-
bústaðaeigenda við Þingvallavatn
sem horft hafa upp á mikinn viðgang
minkastofnsins á kostnað fuglalífs-
ins. Minkurinn hefur sést á svæðum
við vatnið þar sem hans hefur ekki
orðið vart áður og dæmi eru um að
fjöldi fugla hafi fundist dauður eftir
hann. Óttast margir að fulgalíf við
vatnið þurrkist út með sama áfram-
haldi.
Að sögn Sævars hefur fuglum
fækkað mjög frá því fjölskylda hans
keypti sér sumarbústað á Kárastaða-
nesinu fyrir 15 árum. Að hans mati
er full þörf á því að útrýma minkin-
um enda stefni hann fuglalífinu í
voða.
Að sögn Ásbjörns Dagbjartssonar
veiðistjóra hafa menn orðið vaxandi
áhyggjur af viðgangi minksins. Því
muni embættið í vaxandi mæli snúa
sér að því vandamáli. Þingvalla-
svæðið sé þar ofarlega á blaði enda
vinsælt útivistarsvæði.
„Við reynum að sporna gegn við-
gangi minksins. Okkur hefur gengið
vel í Mývatnssveit sem að mörgu
leyti svipar til Þingvallasvæðisins,"
segir Ásbjörn.
-kaa
Fannst eftir myndbirtingu í DV
Gamli maðurinn, sem saknað var
af Elliheimilinu Grund og lýst var
eftir í DV, fannst í fyrradag. Maður-
inn gisti á Hjálpræðishernum og
sagðist vera frá Hveragerði og vera
heimilislaus. Honum var fúslega
veitt gisting en þegar hann vaknaði
veitti starfsmaður Hjálpræðishers-
ins manninum athygU eftir að hafa
séðmyndafhonumíDV. -pp
HUGO ER KOMINN I BÆINN OG
LENDIR í SKEMMTILEGUM OG
SPENNANDI ÆÍnNTÝRUM. SVO
TALAR HANN ALVEG FRÁBÆRA
ÍSLEN5KU!
SÝMD í HÁSKÓLABÍÚ
OC BOftCARBÍÓI AKUREYRI