Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1995, Page 11
LAUGARDAGUR 4. MARS 1995
11
Það er mikið tilstand á hverjum morgni í förðun og greiðslu enda eru sjón-
varpsmyndavélar í gangi allan daginn á eftir þátttakendum í Supermodel
of the World.
Elísabet innan um fallegan gróðurinn á Hawaii.
annað en umsókn um starf. Þær
stúlkur sem senda mynd af sér í
keppnina þurfa að íhuga að umsókn-
inni getur fylgt starf í útlöndum, eins
og gerðist hjá Ehsabetu, og þá þurfa
þær að vera tilbúnar að takast á við
það.
Á hverju ári koma um sjö þúsund
stúlkur á skrifstofu Ford Models í
New York og sækja um vinnu. Aðrar
tíu þúsund senda bréf og mynd til
skrifstofunnar í von um aö þær verði
uppgötvaðar. Eileen Ford tekur sjálf
viðtöl við um fimm þúsund stúlkur
á hveiju ári á aldrinum frá 15-20
ára. Kannski verða fimmtíu þeirra
heppnar og fá starf. Eins og sjá má
er ekki auðvelt að komast á samning
við Ford Models og því njóta þær
stúlkur, sem taka þátt í Fordkeppn-
inni, algjörra forréttinda hvað varð-
ar að koma sér á framfæri.
Fyrsta skrif-
stofa fyrirsætna
Ford Models skrifstofan í New
York var fyrsta skrifstofa sinnar teg-
undar í heiminum og stofnandi
hennar, Eileen Ford, brautryðjandi á
sínu sviði. Eileen, sem er komin yfir
sjötugt, stofnaði skrifstofu sína árið
1948. Hún hafði þá sjálf starfað við
tískusýningar ásamt tveimur vin-
konum sínum. Auk þess haföi hún
skrifað tískufréttir í blöð og var í
námi í sálarfræði en ætlunin var að
fara í lögfræði. Þegar Eileen gifti sig
og varð bamshafandi tók hún að sér
að útvega viðskiptavinum sínum fyr-
irsætur, aðallega vinkonur sínar, og
upp úr því varð skrifstofan til. Hún
þénaöi um 65 dollara á mánuði.
Umsvif hennar hafa aukist ár frá ári
og til marks um það er talið að velta
Ford Models sé nú tahn í milljörðum
á ári hveiju.
Nú hafa Ford-skrifstofur verið sett-
ar upp í París, Tokyo og víðar. Ford
Models er fjölskyldufyrirtæki, þijú
af fjórum bömum hennar starfa hjá
henni. Ford Models hefur samstarf
við margar af þekktustu umboðs-
skrifstofum í Evrópu.
Rétta útlitið
Starfsmenn Ford Models ferðast
víða um heiminn til að leita að hinu
eina rétta útliti. Eileen Ford hefur
litið mjög í átt til austurs á undan-
fórnum árum og hún telur að stærstu
tækifærin séu þar núna. Eileen hefur
starfað mikið í Tokyo undanfarin ár
en Japanir velja fremur vestrænar
fyrirsætur en frá eigin landi. Það var
árið 1992 sem japönsk stúlka tók í
fyrsta skipti þátt í Supermodel of the
World. Árið 1993 tók rússnesk stúlka
þátt í fyrsta skipti.
Fordkeppnin fer fram á svipaðan
hátt í flestum löndum, í gegnum blöð,
tímarit eða sjónvarp og stúlkurnar
senda sjálfar myndir af sér í keppn-
ina. Þetta hefur gefist vel, alls staðar
er áhuginn jafn mikill á fyrirsætu:
starfinu.
Draumareisur
í fyrra fór keppnin fram á eynni
Maui á Hawaii og var ekkert til spar-
að að gera hana sem glæsilegasta.
Búist er við að keppnin verði á ein-
hverri eyju í Karíbahafmu á þessu
ári eða í Evrópu, en þar hefur hún
aldrei verið haldin, þannig að önnur
Fordstúlka á jafn ævintýraríka ferð
fyrir höndum og Ehsabet fékk.
Ákvörðun um staðsetningu hefur
enn ekki verið tekin en þaö verður
gert á næstu dögum. Áður en Ford-
stúlkan fer í Supermodelkeppnina
mun hún fara til Parísar þar sem
atvinnutískuljósmyndarar munu
taka af henni myndir sem sendar
verða til dómnefndar keppninnar.
Ef Fordstúlkan 1995 verður jafn
heppinn og Ehsabet gæti hún fengið
samning við Ford Models í París og
starf í sumar.
Margar stjömur
Það er sagt að Eileen Ford hafi
auga fyrir stjömum. Það er hveiju
orði sannara því margar af þeim
stúlkum sem hún hefur uppgötvað
hafa síðar orðið miklar stjörnur,
jafnt í tísku- sem kvikmyndaheimin-
um, má þar nefna Brooke Shields,
Shari Belafonte, Candice Bergen, Ah
MacGraw og Jane Fonda. Þá má
nefna frægar fyrirsætur sem starfa
fyrir Ford Models eins og Christie
Brinkley, Cheryl Tiegs, Jerry Hall,
Lauren Hutton, Kehy Le Brock,
Renee Simonsen, Ashley Richard-
son, Rachel Hunter og Christy Turl-
ington svo einhverjar séu nefndar.
Þær stúlkur sem hafa áhuga á að
kynnast heimi fyrirsætunnar og
jafnvel komast í keppnina um súper-
módehð ættu að senda af sér myndir
sem fyrst. Sendið tvær myndir, aðra
þar sem viðkomandi sést öh og hina
andhtsmynd. Best er að senda mynd-
ir sem teknar eru af atvinnuíjós-
myndara þó það sé ekki skilyrði. Þar
sem myndimar verða sendar til Ford
Models í Bandaríkjunum er nauð-
synlegt að þær séu skýrar og góðar.
FVUið út meðfylgjandi seðil og látið
fylgja myndunum. Skilafrestur er til
26. mars. Merkið umslagið með eft-
irfarandi:
Fordkeppnin
Helgarblað DV
pósthólf 5380
125 Reykjavík
aiuia aiuia aiuia aiuia aiuia aiuja aiuia aiuia
fl)
6
0)
B)
£
0)
B)
£
fl)
B)
£
B)
B)
£
B)
B)
£
B)
B)
£
B!
B)
£
Ð)
B)
£
B)
Einstakt verð!
Takmarkað magn!
aiu/a NSX-380
Við bjóðum þessi frábæru hljómtæki
með 10.000 kr. fermingarafslætti
^ 49.900 .
Rétt verð kr. 59.900 stgr.
D
Raðgreiöslur til
allt að 24 mán.
Raðgreiðslur til
Kaaio
ÁRMÚLA38 (Selmúlamegin), 108 ReykjaviK
SÍMI: 553 1133
CSv allt að 36 mán.
aiiua anua auua aiu/a aiu/a auua aiuua aiuua
emie emie emie emie emie emie emiB emis emie