Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1995, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 23. MARS 1995
13
Fréttir
Hugmyndir framsóknarmanna á Reykjanesi 1 kvótamálinu valda innanfiokksdeilum:
Stefán og Jóhannes
mótmæla tillögunum
SCANDIC
parket
ódýrt og sterkt
verð frá 1.799
kr/m'
HÚSASMIÐJAN
Sameining Bakka og Ósvarar:
Vona að þetta takist
- segir Aðalbjöm Jóakimsson, framkvæmdastjóri Bakka
„Eg vona fyrir hönd Bolvíkinga að
þetta takist og allir leggist á eitt til
að svo megi verða. Ég hef ekkert út
á skilyrði Vestfjaröanefndarinnar aö
setja en það er ljóst að þetta kostar
mikla vinnu,“ segir Aðalbjörn Jóa-
kimsson, framkvæmdastjóri og aöal-
eigandi Bakka hf. í Hnífsdal sem
fengið hefur lánsloforð frá Vest-
fjarðanefndinni upp á 91 milljón
króna vegna sameiningar fyrirtækis-
ins og Ósvarar hf. í Bolungarvík.
Aðalbjörn segir að nú sé unnið aö
því að fullnægja þeim skilyrðum sem
Vestfjarðanefndin setti.
-rt
Súðarvogi 3-5. Sími 68 77 00
Skútuvogi 16. Sími68 77 10
Helluhrauni 16. Sími 65 01 00
Nell-leikurinn er skemmtilegur leikur þar
sem þátttakendur eiga þess^kost aö vinna
skemmtilega vinninga frá Úrvalsbókum
og Háskólabíó. Það eina sem þú þarft
aö gera er að hringja í síma 99-1750 og
svara þrem laufléttum spurningum um
kvikmyndir. Svörin finnur þú í blaðauka
DV um dagskrá, kvikmyndir og myndbönd
á fimmtudögum.
30 heppnir þátttakendur
dregnir út vikulega
Horfðu á sjónvarpið
íkvöldkl. 22.25
Hvort sem þú ert fylgjandi stefnu
sjálfstæðismanna eða ekki ættirðu að
horfa á þáttinn um Sjálfstæðisflokkinn
sem er á dagskrá ríkissjónvarpsins í
kvöldkl. 22.25.
Kynntu þér stefnu sjálfstæðismanna
með opnum hug
og taktu málefnalega afstöðu í
kosiiingunum 8. apríl.
BETRA
ÍSLAND
- tel mig hafa fengið hótanir, segir Siv Friðleifsdóttir
Verö 39,90 mín.
„Áherslur okkar í sjávarútvegs-
málum falla ekki í kramið hjá flokkn-
um eins og gefur að skilja. Þess vegna
hef ég fengið að heyra það frá sum-
um. Ef ég myndi vera mjög á skjön
við stefnu flokksins myndi ég ekki
græða á því pólitískt og að jafnvel
yrði staðið í vegi fyrir mér í þing-
flokknum. Ég lít á þetta sem hótanir
en tek þær ekki nærri mér. Þetta
sýnir að Framsóknarflokkurinn er
ekki steingeldur flokkur," sagði Siv
Friðleifsdóttir, efsti maður á Usta
Framsóknarflokksins í Reykjanes-
kjördæmi.
Að mati framsóknarmanna á
Reykjanesi hafa togarar tekið of mik-
inn afla á kostnað smábátanna og
þessu vilja þeir breyta. Að sögn Sivj-
ar hefur þetta fariö illa í suma flokks-
menn hennar. Hún vildi ekki nafn-
greina menn en sagði að hún hefði
fengið þessar hótanir í símasam-
tölum við flokksfélaga sína víða um
land.
„Ég er ekki sáttur við þessa yfirlýs-
ingu félaga minna á Reykjanesi. Ég
tel það raunar ekki vera inni í kort-
inu að tala um að togarar fái aðeins
að veiða 15 prósent af kvótanum og
að þeim verði gert skylt að veiða ut-
ar. Þetta er ekki stefna Framsóknar-
flokksins," sagði Stefán Guðmunds-
son, þingmaður Framsóknarflokks-
ins í Norðurlandi vestra og einn
helsti taismaður flokksins í sjávarút-
vegsmálum.
„Við hér í Norðurlandskjördæmi
eystra viljum ekki bera ábyrgð á
þessum hugmyndum og höfnum
þeim alfarið. Við teljum að þessar
hugmyndir félaga okkar á Reykja-
nesi séu ekki í takt við það sem viö
framsóknarmenn höfum verið aö
tala um varðandi sjávarútvegsmál,"
sagði Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
þingmaður Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra.
Hann sagðist vilja benda á og und-
irstrika að í öllum stjórnmálaflokk-
um á íslandi væru skiptar skoðanir
í sambandi við stjóm fiskveiða. Það
færi nokkuð eftir kjördæmum hverj-
ar skoðanirnar væru. Hér væri ekki
um alvarlegan ágreining að ræða
innan Framsóknarflokksins heldur
áherslumun.
30 þátttakendur fá að launum nýútgefna
bók um Nell frá Úrvalsbókum og bíómiða
fyrir tvo á kvikmyndina Nell sem verið er
að sýna í Háskólabíói um þessar mundir.
Allir sem svara öllum þrem spurningunum
rétt komast í pottinn í hverri viku.
Jodie Foster er tilnefnd til óskarsverðlauna
fyrir leik sinn í þessari frábæru mynd.
( • ^ ^
HÁSKOIABÍÓ