Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Side 33
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
41
vinna.
Sjálft úrslitakvöldið verður afar
glæsilegt. Stúlkurnar munu sýna á
tískusýningu sem vandlega hefur
verið undirbúin hjá Jónu Lárusdótt-
ur og starfsmönnum Módel 79. Tríó
Ólafs Stephenseris mun leika fyrir
gesti og unglingahljómsveitin Kósý
kemur fram. Kynnir verður Steini í
Módel 79.
Margt fólk lagði hönd á plóginn til
að undirbúa stúlkurnar fyrir þessa
myndatöku en um förðun sáu Anna
Toher og Þórunn Högnadóttir. Stúlk-
urnar eru farðaðar með snyrtivörun-
um Make Up For Ever. Hárgreiðslu-
fólk frá hárgreiðslustofunni Komp-
aníið sá um hárgreiðsluna, þau Hild-
ur Árnadóttir, Magni Þorsteinsson,
Hrafnhildur Björnsdóttir og Fríða
Jensdóttir. Ljósmyndir tók Gunnar
V. Andrésson í ljósmyndastúdíói
Odds Stefáns. Stúlkurnar eru allar í
fótum frá tískuversluninni Sautján.
Nafn: Árný Þóra Ármannsdóttir.
Fæöingardagur og ár: 5. sept-
ember 1978.
Hæö: 172 sm.
Staða: Vinnur í kjörbúð en stund-
ar jafnframt nám í menntasmiðj-
unni á Akureyri en hefur fengið
inngöngu í fósturskóla í Þýska-
landi næsta vetur.
Áhugamál: Hestamennska,
ferðalög og þá sérstaklega til fjar-
lægra landa. Einnig hefur hún mik-
inn áhuga á indíánum.
Hefur þú starfað við fyrir-
sætustörf: Já, í Mílanó, en einn-
ig hef ég tekið þátt í fyrirsætu-
keppni í New York sem gekk mjög
vel.
Foreldrar: Hólmfríður Eiríksdóttir
og Gestur Helgason.
Heimili: Akureyri.
Nafn: Unnur Kristín Friðriksdóttir.
Fæðingardagur og ár: 17. júlí
1977.
Hæð: 174 sm.
Staða: Á öðru ári á náttúrufræði-
og myndlistarbraut í Menntaskól-
anum á Akureyri. Hefur hug á frek-
ara listnámi í framtíðinni, t.d. í
sambandi við fata- og búninga-
hönnun.
Áhugamál: Teikning. Finnst
einnig gaman að lesa um framand-
lega hluti og vera með fjölskyldu
og vinum.
Hefur þú starfað við fyrir-
sætustörf: Nei, aldrei komið ná-
lægt neinu slíku.
Foreldrar: Kristín Halldórsdóttir
og Friðrik Viðar Þórðarson.
Heimili: Akureyri.
Nafn: Elin Knudsen.
Fæðingardagur og ár: 24. des-
ember 1976.
Hæð: 177 sm.
Staða: Nemandi í Menntaskólan-
um í Reykjavík, á þriðja ári. Fram-
tíðin er enn óráðin.
Áhugamál: Eróbikk og að vera
með vinum.
Hefur þú starfað við fyrir-
sætustörf? Ég tók þátt í Oroblu-
keppninni og hef farið á námskeið
í Casablanca-skólanum.
Foreldrar: Lynn Knudsen og Vil-
hjálmur Knudsen.
Heimili: Reykjavík.
Nafn: Linda Einarsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 4. ágúst
1974.
Hæð: 177 sm.
Staða: Starfar í Sambíóunum og
mun hefja störf í Búnaðarbankan-
um áður en langt um líður.
Áhugamál: Skíðaíþróttin, bílar
og útivera.
Hefur þú starfað við fyrir-
sætustörf: Hef farið á námskeið
hjá Módelsamtökunum og Unni
Arngrímsdóttur.
Foreldrar: Vilborg E. Torfadóttir
og Einar J. Benediktsson.
Heimili: Garðabær.
Nafn: Sunneva Kolbeinsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 23. jan-
úar 1974.
Hæð: 170 sm.
Staða: Starfar á leikskólanum
Stakkaborg og finnst mjög gaman
að vinna með börnum. Framtíðin
er hins vegar óráðin.
Áhugamál: Ferðalög, íþróttir,
karate, dans og að borða góðan
mat.
Hefur þú starfað við fyrir-
sætustörf: Nei, en ég fór einu
sinni á námskeið hjá Karonskólan-
um.
Foreldrar: Sigurborg Guð-
mundsdóttir og Kolbeinn Gísla-
son.
Heimili: Reykjavík.
Nafn: Þórunn Þorleifsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 28. jan-
úar 1979.
Hæð: 179 sm.
Staða: Nemandi við MenntaskóL
ann í Hamrahlíð, á fyrsta ári. Lang-
ar auk þess að læra að fljúga.
Áhugamál: Hefurstundað ballett
í sex ár hjá Eddu Scheving og
einnig prófað jassballett. Sund er
einnig í uppáhaldi og að vera með
skemmtilegu fólki.
Hefur þú starfað við fyrir-
sætustörf: Ég hef aðeins verið
með hjá Módel 79.
Foreldrar: Guðný Bjarnadóttir
og Þorleifur Hauksson.
Heimili: Reykjavík.